Morgunblaðið - 11.04.2006, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 11.04.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 27 DAGLEGT LÍF Í APRÍL ERTU BURÐAR- DÝR FYRIR UNGLINGINN? KAUPUM EKKI ÁFENGI FYRIR FÓLK UNDIR LÖGALDRI. Landsmenn hafa væntanlegatekið eftir auglýsingumbankanna að undanförnu um valkost í fermingargjöfum sem felst í því að bankinn gefur ferm- ingarbarninu ákveðna upphæð á móti ef stofnaður er reikningur í bankanum þar sem lágmarks- upphæð er lögð til grundvallar. Mis- jafnt er hversu há upphæð er lögð á móti. Hildur Hörn Daðadóttir á mark- aðsdeild KB Banka upplýsti að fermingarbörn sem leggja 30.000 kr. eða meira inn á Framtíðarbók fá 5.000 kr. peningagjöf inn á bókina frá KB banka. „Bankinn er að selja gjafakort inn á Framtíðarbók og fermingarbörn sem ákveða að leggja aur inná sparnað Framtíð- arbókar, hvort sem það er með gjafakortum eða í reiðufé, þrjátíu þúsund krónur eða meira, fá fimm þúsund krónur að gjöf frá bank- anum. Helstu eiginleikar Framtíð- arbókar er að reikningurinn er undantekningarlaust bundinn til 18 ára aldurs eiganda,“ sagði Hildur. Halldór Kristjánsson í þjón- ustuveri Landsbankans sagði að ef lögð væri inn upphæð yfir 20.000 kr. í Landsbankanum myndi Lands- bankinn gefa 5.000 kr. „Þegar fermingarbarnið, eða einhver sem vill gefa því 20.000 kr., leggur inn á svokallaðan framtíðargrunn hjá okkur, það er reikningur sem er laus við 18 ára aldur, þá leggur Landsbankinn 5.000 kr. á móti.“ Halldór benti jafnframt á að nánari upplýsingar væri að finna á vef Landsbankans, landsbanki.is. SPRON, líkt og hinir bankarnir, er með tilboð vegna ferminganna í ár. „Öllum stofnuðum Framtíð- arreikningum með gjafabréfi fylgir 2.000 kr. mótframlag frá SPRON,“ segir Jónína Kristjánsdóttir, for- stöðumaður einstaklingsviðskipta hjá SPRON. „Auk þess bjóðum við fermingarbörnunum sérstakt tilboð fram til 10. júní nk. Öll ferming- arbörn sem stofna hjá okkur þessa framtíðarreikninga, SPRON Fram- tíð, fá 2.000 kr. mótframlag frá SPRON, en ef þau leggja inn 30.000 kr. eða meira hækkar mótframlagið í 5.000 kr. Jafnframt fá þau 10% vaxtaálag ofan á greidda vexti um næstu áramót bæði á nýstofnaða Framtíðarreikninga og netreikn- inginn okkar, SPRON Vaxtabót.“ Aðspurð segir Jónína að ekki séu sett takmörk á fjölda gjafabréfa gefin út á hvert fermingarbarn og því sé óhjákvæmilegt að ferming- arbörn geti átt fleiri en einn fram- tíðarreikning. „Ég veit þó dæmi þess að ættingjar fermingarbarna hafi sameinast um eitt gjafabréf einmitt til að komast hjá þessu,“ segir Jónína að lokum. Hjá Glitni fengust þau svör hjá Áka Sveinssyni á markaðsdeild að miðað sé við að hvert ferming- arbarn geti fengið mótframlag frá bankanum fimm sinnum og er það tengt kennitölu fermingarbarnsins. Reikningurinn er bundinn til 18 ára aldurs eiganda og miðað er við að reikningur sé stofnaður með minnst 5.000 kr. inná. „Einnig gefum við öllum ferming- arbörnum 2.500 kr. inneign á Fram- tíðarreikning, þ.e. þau fá gjafabréf sent frá okkur,“ segir Áki enn frem- ur. „Auk þess fá þau aðrar 2.500 kr. ef þau ákveða að leggja ferming- arpeningana sína inn á reikninginn, 30.000 kr. eða meira.“  FERMINGAR Peningagjafir banka mismunandi Nú er fermingartíma- bilið í algleymingi og tilboðin streyma til landsmanna um ferm- ingargjafir. Sigrún Ásmundar skoðaði tilboðin frá bönkunum sem bjóða þeim sem stofna reikning hjá sér mótframlag að gjöf. Morgunblaðið/Brynjar Gauti sia@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.