Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 28

Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÁRSREIKNINGUR Mosfells- bæjar fyrir árið 2005 hefur verið lagður fram. Rekstur sveitarfé- lagsins gekk mjög vel og var um- talsvert betri en gert var ráð fyrir í fjár- hagsáætlun og gildir þá einu hvort með eru taldar tekjur af sölu byggingaréttar eða ekki. Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu 3.062 mkr. samkvæmt samanteknum árs- reikningi fyrir A- og B-hluta, en þar af námu rekstrartekjur A-hluta 2.808 mkr. Rekstrarniðurstaða A- hluta var jákvæð um 542 mkr. eða um rúm 19% af tekjum. Þess ber að geta að í árs- reikninginn eru færðar tekjur af sölu byggingarréttar í Krikahverfi að upphæð 392 mkr. Afkoma af reglulegri starfsemi var því jákvæð um 150 mkr. sem er um 90 mkr. betri afkoma en reiknað var með í fjárhagsáætlun. Samanlagður rekstrarafgangur samstæðunnar frá árinu 2003 um 750 mkr. en þetta eru þau ár sem núverandi meirihluti hefur gert fjárhagsáætlanir fyrir. Þessi upphæð nær langleiðina upp í að kosta byggingu tveggja hlið- stæðu grunnskóla. Skuldir lækka – eiginfjárstaða orðin góð Skuldir samstæðunnar (þ.e. A-hlutans og stofnana) lækka um 40 þús. á hvern íbúa milli ára og eru nú um 520 þús. og frá árinu 2003 hafa skuldir samstæðunnar lækkað um 75 þús. á íbúa. Skuldir A-hlutans eru komnar niður í 448 þús. á íbúa en voru 525 þús. árið 2003. Samfara þessu hefur eig- infjárstaðan batnað verulega en eftirlits- nefnd sveitarfélaga gerði einmitt verulegar athugasemdir við hversu þetta hlutfall var lágt árið 2002 ásamt því auðvitað að reksturinn stæði ekki undir sér. Eiginfjár- hlutfallið hefur hækk- að úr 14% á árinu 2003 í tæp 29% árið 2005 eða rúmlega tvöfald- ast. Hér að neðan má sjá þróun skulda og eiginfjárhlutfalls bæjarins und- anfarin ár. (Sjá töflur.) Framtíðin og efndirnar Í stefnuskrá sjálfstæðismanna fyrir kosningarnar 2002 segir um fjármál bæjarins: við ætlum að lækka hlutfall rekstrarkostnaðar af skatttekjum við ætlum að stöðva skuldasöfnun við ætlum að tryggja ráðdeild í meðferð fjármuna bæjarins Ljóst má vera þeim sem lesa árs- reikning bæjarins fyrir árið 2005 að tekist hefur að uppfylla öll þessi lof- orð og rúmlega það. Reksturinn er blómlegur og skilar verulegum fjár- munum upp í fjárfestingar og skuldasöfnun hefur ekki aðeins ver- ið stöðvuð heldur hafa skuldir verið lækkaðar mikið. Þetta hefur gerst með samstilltu átaki meirihlutans, starfsmanna bæjarins og bæjarbúa. Það er allt önnur framtíðarsýn sem blasir nú við bænum og bæjarbúum en á sama tíma fyrir fjórum árum. Ef rétt er á málum haldið verða næstu ár tími uppbyggingar, tími þar sem við getum farið að upp- skera vegna faglegrar og ábyrgrar fjármálastjórnunar á kjör- tímabilinu. Hlutir, sem með öllu óhugsandi var að láta sig dreyma um fyrir fjórum árum miðað við fjárhagsstöðu sveitarfélagsins þá, eru nú í augsýn. Hlutir eins og nýir grunnskólar og leikskólar, áfram- haldandi uppbygging menningar- starfsemi, gervigrasvöllur, reiðhöll, félagsaðstaða við Varmá, glæsileg almenningssundlaug, 18 holu golf- völlur og lækkun gjalda svo eitthvað sé nefnt. En munum jafnframt að menn eru yfirleitt fljótari að eyða en afla, þannig að afar brýnt er að ábyrgð og framsýni verði áfram við- höfð í fjármálum og rekstri Mos- fellsbæjar á næsta kjörtímabili. Jákvæð afkoma Mosfellsbæjar – Skuld- ir lækka – eiginfjárhlutfall tvöfaldast Haraldur Sverrisson fjallar um skuldastöðu Mosfellsbæjar ’Það er allt önnur framtíðarsýn sem blasir nú við bænum og bæjar- búum en á sama tíma fyrir fjórum árum.‘ Haraldur Sverrisson Höfundur er formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar. 0 5 10 15 20 25 30 % 2002 2003 2004 2005 Á Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs 450 500 550 600 2002 2003 2004 2005 Skuldir á íbúa í þús. kr. FIMMTUDAGINN 6. apríl, lauk sýningum í Hagaskóla á söng- leiknum West Side Story eða Sögu úr vesturbænum. Flestir þekkja verkið, enda löngu orðið sígilt meistaraverk í leik- hús- og tónlistarsög- unni. Við sem höfum glímt við Sögu úr vest- urbænum vitum líka hversu flókið verkið er. Tónlistin er falleg en erfið í söng og leik, sagan er einföld en mjög viðkvæm. Að sýningunni í Haga- skóla komu ekki færri en 100 unglingar á aldrinum 13 til 16 ára. Já, ég endurtek: 100 unglingar! Þarna voru 40 leikarar, tæplega 30 í hljómsveit, sviðs- menn, hljóðmenn, ljósamenn og allir aðr- ir sem þarf til að koma leiksýningu á svið. Sýningar urðu 8, flestar fyrir troð- fullu húsi. Það er skemmst frá því að segja að sýningin var slíkur sigur fyrir alla aðstandendur að ég gat ekki stillt mig um að stinga niður penna og segja ykkur frá því. Allir gerðu sitt besta. Einbeitingin skein úr andlit- unum, samhugurinn var einstakur. Við erum alltof dugleg að leita að því neikvæða í fari unglinganna okkar og gleymum að hrósa þegar vel er gert. Ég hef sjaldan upplifað meiri sigurtilfinningu en í gærkveldi þeg- ar síðustu sýningunni lauk. Unglingarnir voru algjörlega búnir að klára síðustu orkudrop- ana en þau glöddust svo innilega yfir unnu af- reki að maður gat ekki annað en glaðst með. Sýningin sannaði að börnin okkar eru að fást við erfiða og krefj- andi hluti en þau ráða fullkomlega við þá. Þau sýndu listrænt innsæi og aga og sönnuðu að það er engu að kvíða í framtíðinni. Lærdóm- urinn sem þau taka með sér úr verkefni eins og þessu er ótrúlegur. Hann skyldi ekki van- meta. Kæra Sigríður Birna leikstjóri, Hrólfur tón- listarstjóri og aðrir starfsmenn í Haga- skóla. Þakka ykkur fyr- ir að leiða þetta verk- efni. Það mun aldrei gleymast okkur sem fengum að njóta. Við leikhópinn, hljómsveitina og alla hina ung- lingana sem að verkefninu komu segi ég: Til hamingju! Þið eruð snill- ingar! Ég hlakka til að sjá afrek ykk- ar í framtíðinni. Skemmtileg saga úr vesturbænum Felix Bergsson fjallar um uppfærslu nemenda Hagaskóla á Sögu úr vesturbænum Felix Bergsson ’Við leikhópinn,hljómsveitina og alla hina ung- lingana sem að verkefninu komu segi ég: Til ham- ingju! Þið eruð snillingar! ‘ Höfundur er fulltrúi í foreldraráði Hagaskóla. SJÁLFSMYND persónu ein- staklingsins byggist á mörgum ólíkum þáttum. Án þess að hafa gert á því vísindalega at- hugun sýnist mér að stærsti hluti sjálfs- myndar einstaklings- ins byggist á eftirfar- andi: Persónumótun ein- staklingsins byggist að meginstofni á því sem hann heldur að aðrir haldi um hann. Þetta felur í sér þá kreppu að ein- staklingurinn veit aldrei fyrir víst hvað aðrir halda um hann. Hann leitar að ábendingum úr um- hverfi sínu og til þeirra sem eru vilj- ugir að leiðbeina hon- um um réttu forsend- urnar. Og það er þarna sem einstak- lingurinn er hvað varnarlausastur. Og það er þarna sem markaðurinn er hvað sterkastur. Snilldin, ef snilld skyldi kalla, felst í því að markaðsöflin taka svo yfir persónumótunina að miklu leyti. Í dag getur einstaklingur keypt all- an ytri búnað viðkomandi persónu sem hann vill vera eða telur að al- menningur haldi að hann sé. Hann getur meira að segja tekið lán (bundið framtíðartekjur sínar) til þess að kaupa persónumuni dags- ins. Vandamálið er hins vegar að þar með hefur hann falið mark- aðnum persónusköpun sína og markaðurinn breytir sífellt for- sendunum. Markaðslögmálið segir að eftirspurn neytenda búi til framboð framleiðenda. Hins vegar hefur það fyrir löngu sannast að lögmálið virkar líka í hina áttina. Framboð býr til eftirspurn. Þann- ig eru það ekki endi- lega þarfir ein- staklingsins sem stýra markaðnum, heldur eru það oftar þarfir markaðsins sem stýra einstaklingnum. Á vegum framleiðenda starfar svo sér- staklega þjálfuð lang- skólagengin stétt manna til að viðhalda þessu ástandi, svokall- að markaðsfólk. Nýjar forsendur sumar, vet- ur, vor og haust. Sjálfsmyndin bygg- ist á innrætingu markaðsaflanna á ófullnægðri leit ein- staklingsins að óljósu markmiði. Hvað gerist svo þegar keyptur persónuleiki rímar ekki við sálina, veldur það hamingju? Í þessu samhengi má velta fyrir sér hversu varnarlaus börn og unglingar eru. Ég er ekki að halda því fram að fullorðin manneskja sé viljalaust fórnarlamb markaðarins, þvert á móti, allt eru þetta valkvæðir kostir. Það merkir að hægt er að velja um annað. Það sagði einu sinni við mig góður vinnufélagi að leiðin að lífshamingjunni lægi í gegnum hógværðina. Ég held að hann hafi rétt fyrir sér. Markaðsleg persónusköpun? Geir Hólmarsson fjallar um sjálfsmynd, persónusköpun og markaðslögmál Geir Hólmarsson ’Persónumótuneinstaklingsins byggist að meginstofni á því sem hann heldur að aðrir haldi um sig.‘ Höfundur er nemi og flokksbundinn Framsóknarmaður. ALLIR þeir sem gera launakröfur hafa rétt fyrir sér. Allar launakröfur eru settar fram í nafni réttlætisins, en réttlætið setja menn fram með mis- munandi móti á hverjum tíma. Iðulega byggist krafan þó á samanburði við aðra og hvernig laun annarra hafa þróast. Í landinu eru í gildi kjarasamn- ingar sem verða endur- skoðaðir í haust miðað við verðlagsþróun. Ekki má gleyma því að grundavallargildi kjara- samninga er fólgið í þeirri gagnkvæmu frið- arskyldu sem þeim fylgir. Hvorugum samn- ingsaðilanum leyfist að brjóta á hinum. Án frið- arskyldunnar hefðu kjarasamningar ekkert gildi og væri þá allt eins hægt að sleppa þeim. Eins og fyrr segir er það réttlæt- iskennd fólksins sem býr að baki kröfugerð þess. Þegar svo ber undir að einn aðili (í þessu tilviki Reykjavík- urborg) sker sig úr og semur um mun hærri laun til ákveðins starfshóps en aðrir hafa samið um eru viðbrögð fólksins mjög eðlileg. Þeir sem lægri laun hafa fyllast réttlátri reiði og gera kröfu, í nafni sanngirni, um að fá ekki minni laun. Þetta er staðan í dag gagn- vart umönnunarstörfum í samfélaginu. Starfsfólk leggur niður störf og neitar að hlíta þeirri friðarskyldu sem kjara- samningar þeirra kveða á um. Morgunblaðið hefur gerst málsvari þessa fólks. Blaðið gerir harða hríð að ríkisstjórninni og stuðningsflokkum hennar og krefst þess að ,,höggvið verði á hnútana“. Eða eins og segir í síðasta Reykjavíkurbréfi, þá á rík- isstjórnin ekki að ,,skýla sér á bakvið einhver formlegheit“. Hvaða hnútar eru þetta sem höggva þarf á? Hvaða form- legheit eru þetta sem ríkisstjórnin skýlir sér á bak við? Varla getur ver- ið um annað að ræða en þá frjálsu kjarasamn- inga sem sannarlega eru í gildi og þau fjárlög sem Alþingi hefur samþykkt. Hvenær eiga stjórn- völd að hafa forystu um að slíta frjálsum kjara- samningum? Er það þegar einhver sest niður í ólöglegu verkfalli? Eða þegar einhver ,,handhafi sannleikans“, t.d. ein- hver fjölmiðill, krefst þess? Í þessu landi, eins og öðrum, er fjöldi fólks sem hefur tiltölulega lág laun, t.d. margir í þjónustustörfum, all- ur matvælaiðnaðurinn, fólk í landbún- aði o.s.frv. Er þá ekki réttlætiskrafan alveg skýr? Ber ekki að hækka laun þessa fólks líka? Samanburðurinn hef- ur alltaf knúið fram kröfurnar og auð- vitað eru þær alltaf ,,réttmætar“. Hver á þá ekki rétt á að hækka í launum? Svarið er einfalt: Í nafni réttlætisins eiga allir rétt á að hækka í launum. Þannig er þetta og skiptir þá engu máli hvort dansinn færir mönnum 30% eða 300% hækkun. Launahækkanir geta aldrei fært þjóðinni betri kjör nema aukin verðmætasköpun þjóð- félagsins standi þar á bak við. Nið- urstaðan er því alltaf hin sama, að allar þessar launahækkanir, og kannski um- fram þær, munu óhjákvæmilega hverfa í verðbólgubálið. Þeir sem skað- ast munu mest verða, eins og fyrri daginn, láglaunafólk og skuldugir að- ilar. Þetta vita allir en það hryggir mig að menn láta eins og þeir viti það ekki. Það er ábyrgðarhluti fyrir virtan fjölmiðil, eins og Morgunblaðið, að taka slíka afstöðu. Jafnvel þó að ég viti vel að blaðinu gengur ekkert annað til en sú heiðríka hugsun að vilja hjálpa fátæku fólki. Það er hins vegar gott hjá Morgunblaðinu að segja: ,,Stjórn- málamennirnir verða að veita forystu.“ Auðnan ein ræður því hins vegar hvaða forystu mönnum tekst að veita. Ég hef lengi reynt að hafa uppi aðvar- anir því ég veit að við höfum lengi farið óvarlega í peninga- og launamálum. Ég er staðráðinn í því að halda þeim aðvörunum áfram þó að mér sé vel ljóst að nú þegar kosningaloforðunum rignir yfir er ekki líklegt að margir vilji þýðast þær viðvaranir. Um laun og launasamninga Einar Oddur Kristjánsson skrifar um laun ’Það er ábyrgðarhlutifyrir virtan fjölmiðil, eins og Morgunblaðið, að taka slíka afstöðu. Jafnvel þó að ég viti vel að blaðinu gengur ekkert annað til en sú heiðríka hugsun að vilja hjálpa fátæku fólki.‘ Einar Oddur Kristjánsson Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.