Morgunblaðið - 11.04.2006, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.04.2006, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN V ið fyrsta innlit í Nor- ræna húsið á sl. fimmtudagseft- irmiðdegi hefði grunlaus gestur kannski talið sig vera staddan í guðfræðitíma þar sem farið væri yfir boðorðin. Fyrir miðju sal- arins sat virðulegur maður, greinilega nokkuð við aldur, og brýndi fyrir áhugasömum hópi að ljúga aldrei. Sérann var þó ekki séra heldur doktor og heitir Hans Blix og fyrir framan hann sátu nemendur í alþjóða- samskiptum við Háskóla Íslands. Hans Blix var forstöðumaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunar- innar frá 1981–1997 og fór síðar fyrir sérstakri afvopnunarnefnd sem var sett á laggirnar árið 2000. Hann er maðurinn sem leitaði ljósum logum að gereyð- ingarvopnum í Írak í aðdraganda innrásarinnar. Hann fann þau ekki. Auk þess að taka þátt í mál- stofu með alþjóðasamskiptanem- um talaði Blix á tveimur fundum hér á landi og veitti viðtöl í öll- um helstu fjölmiðlum. Þennan dag í Norræna húsinu miðlaði hann af reynslu sinni af samn- ingaferlum og benti m.a. á að hversu freistandi sem það geti verið að ljúga örlítið geti það alltaf komið manni í koll. Þótt þetta Viðhorf gæti fjallað alfarið um samningatækni sem Blix hef- ur tileinkað sér langar mig frek- ar að færa mig inn á það eldfima svið að fjalla aðeins um málefni Írans og þá með vísan í það sem Blix sagði á fundum og í við- tölum hér á landi. Meginástæðan sem Bandaríkin gáfu fyrir innrásinni í Írak var að þar leyndust gereyðing- arvopn. Nú hefur verið við- urkennt að þær upplýsingar hafi verið rangar. Blix benti á að bandarísk yfirvöld hefðu þó nefnt fleiri ástæður. Ein var að koma þyrfti á lýðræði í landinu enda Saddam Hussein hinn mesti fantur. Tíminn verður að leiða í ljós hvort það markmið náist en fyrir leikmanni hljómar óneitanlega furðulega að ætla að koma á lýðræði með stríði. Bandaríkjamenn vildu líka senda hryðjuverkamönnum skýr skila- boð. Fátt bendir til þess að inn- rásin hafi dregið úr hryðjuverk- um heldur einmitt hins að hún hafi ýtt frekar undir þau. Því var einnig haldið fram að Írak væri ógn við alþjóðasamfélagið en að mati Blix var því ekki svo farið árið 2003. En þá sögðu Banda- ríkjamenn að Írak gæti seinna orðið ógn við alþjóðasamfélagið. Og í hvað átti þá að nota tím- ann? Bomba? Hugurinn hvarflar ósjálfrátt til fyrirlestra um stöðu mála í Ír- an og Írak sem Bandaríkjamað- urinn Michael Rubin hélt hér á landi nýverið. Rubin virtist reyndar eiga erfitt með að gera upp við sig hvort hann væri póli- tíkus eða fræðimaður og um leið og hann ítrekaði að hann talaði ekki í nafni bandarískra stjórn- valda virtist hann tilbúinn að gera allt til að verja þau. Rubin sagði Bandaríkin hafa áhyggjur af Íran vegna þriggja þátta: 1. Ógnar við frið í Mið-Aust- urlöndum. 2. Gereyðingarvopna. 3. Hryðjuverka. Furðu líkt rök- semdunum sem voru notaðar fyrir árás á Írak? Þetta er raunar í fullu sam- ræmi við yfirlýsingar banda- rískra leiðtoga. Condoleezza Rice utanríkisráðherra hefur kallað Íran „seðlabanka hryðjuverk- anna“ og svo munu sennilega seint gleymast ummæli George W. Bush, forsetans þar vestra, um öxulveldi hins illa. Hvaða til- gangi þjóna svona ummæli? „Ég gæti ímyndað mér að Bush hafi grætt nokkur atkvæði í Wiscons- in en þetta hefur líklega ekki skapað góðan farveg fyrir við- ræður við N-Kóreu eða Íran,“ sagði Hans Blix. Ósjálfrátt vakna spurningar um hver sé forgangsröð bandarískra stjórn- valda. Friður? Atkvæði heima fyrir? Olía? Blix ítrekaði mikilvægi þess að hafa sögulega þekkingu á við- fangsefninu. Hvaða máli skiptir hún í Íran? Alla 20. öldina höfðu Bandaríkjamenn og Bretar mjög mikil afskipti af innanríkismálum í Íran (og reyndar Rússar líka í upphafi aldarinnar). Þessar tvær stórþjóðir stuðluðu að því að lýð- ræðislega kjörinn forsætisráð- herra Írana, Mohammed Mossa- degh, var hrakinn frá völdum og við tók hinn vænisjúki Mohamm- ad Reza Shah Pahlavi. Keisarinn sá var ekki vinsæll hjá þjóð sinni enda tók hann upp þráðinn þar sem faðir hans sleppti honum og vildi nútímavæða Íran ofan frá, í góðu samstarfi við Vesturveldin. Þegar þjóðin fékk endanlega nóg var gerð bylting og henni rændi hinn heimsþekkti Ayatollah Kho- meini sem gerði Íran að ísl- ömsku lýðveldi árið 1979. Íranar hafa ekkert sérstaklega góða reynslu af byltingum, hvort sem þær koma utan eða innan frá, og ætli Bandaríkin að veita „aðstoð“ sína við að kollvarpa klerkaveldinu þá er ekki líklegt að það falli í kramið hjá almenn- ingi. En eru Íranar ógn við alþjóða- samfélagið eins og Bandaríkja- menn halda fram? Blix segir að þeir gætu þróað kjarnorkuvopn á næstu fimm ár- um. Það ætti hins vegar að gefa alþjóðasamfélaginu ágætis tíma til að reyna að ná samningum við Írana og draga úr herskáum yfirlýsingum forsetans. Og hvernig á að standa að slíkum samningaviðræðum? Blix bendir á að Bandaríkja- menn hafi ekki talað við Írana síðan í lok áttunda áratugarins þegar íranskir námsmenn rudd- ust inn í sendiráð Bandaríkjanna í Teheran og héldu 52 mönnum föngnum í 444 daga. Væri ekki ágætis hugmynd að byrja að tala saman? Yfirlýsingar leiðtoga Banda- ríkjanna sem vitnað er til hér að framan eru ekkert voðalega góð- ur grundvöllur til þess að hefja viðræður, eða hvað? Ég veit það ekki, ég er ný- byrjuð að læra samningatækni og veit bara að það er ekki snið- ugt að ljúga … Bomba eða spjalla? Ég veit það ekki, ég er nýbyrjuð að læra samningatækni og veit bara að það er ekki sniðugt að ljúga … halla@mbl.is VIÐHORF Halla Gunnarsdóttir HANN RT (Ert) vinur minn á bráðum sextugsafmæli. Hann segist eiga allt og ekki megi gefa honum neitt. Þess vegna ætla ég að gefa honum geit. Hann Ert er ekki bóndi og býr á mölinni svo hann hefur ekkert með geit að gera sjálfur, en ég ætla samt að gefa hon- um geit, geit skal hann fá hvað sem hann segir. Nú er það svo, að geit- in sem ég ætla að gefa Ert kostar bara 2.400 kr., svo kannski ég gefi honum bara tvær, eða jafnvel fleiri. Æðsta ósk mín væri sú, að margir fleiri vinir Erts, vinar míns, hann er mjög vinamargur, gæfu honum líka geit. Honum er nefnilega vel trúandi til að fara að vitja um þær. Hvaða geitatal skyldi þetta svo vera? Þannig er, að það hefur verið áhugamál undirritaðrar í áratugi, að til væru gjafir, sem þriðja manni/ konu væru gefnar, ekki þeim, sem gjöfina, að öllu óbreyttu hefði fengið. Það eru svo geysilega margir, sem eiga miklu meira en þeir þurfa, þegar þeir eru komnir á miðjan aldur. Oft hefur maður verulega komist í hann krappan, við að finna gjöf handa vini eða ættingja, sem allt á. En á hátíðis- og tylli- dögum langar mann oft að gleðja fólk. Nú er málið leyst, fyrir mér að minnsta kosti, nú gef ég öllum geit. Og hvernig skyldi ég nú fara að? Jú, ég hringi til HjálparSTARFS (ekki stofnunar) kirkjunnar og þau þar taka við greiðslu fyrir eina eða fleiri geitur og senda svo gjafakortið til mín, eða viðtakanda, eftir því sem ég vil. Hvernig kemur svo geitin inn í þetta? Hún er í Malaví. Þar er verk- efni til að hjálpa mun- aðarlausum börnum til sjálfstæðs lífs og þau þurfa geitur. Á fulltrúaráðs- fundi Hjálparstarfsins um daginn voru okkur sýndar myndir frá heim- ili fjögurra barna, sem eru í þessu verkefni. Ég þakkaði Guði mínum fyrir, að það var dimmt í salnum, því það sem sýnt var var ótrúlega dap- urlegt. Ég grét. En eftir á að hyggja, veit ég ekki alveg fyrir víst, hvort ég grét af depurð eða gleði, sennilega hvort tveggja. Það var nefnilega til- fellið, að það var ótrúlegt að sjá hvað mikið hafði verið gert og þvílíkt gagn, sem gert hefur verið! Þarna voru börn, sem ræktuðu garðinn sinn, í orðsins fyllstu merkingu og hugsið ykkur – þau hirtu hverja örðu af geitataðinu til að nota sem áburð á bananaplönturnar. Það var sjáan- legur stærðar- og þroskamunur á plöntum, sem hafði verið borið á og hinum. Geiturnar nýtast ekki bara til að framleiða áburð, heldur líka vit- anlega er mjólkin nýtt og svo kjötið, þegar á að yngja upp stofninn. Geit- ur eru þurftalítil dýr en ákaflega nyt- samar, já og skemmtilegar líka, sjálf- stæðar og sjálfbjarga. Það man ég úr bernsku að norðan. Ég skora á allan árgang 1946, að gefa nú hvert öðru geitur í sextugs- afmælisgjöf og þá sér í lagi ykkur, sem búið er að bjóða í afmælið hans Erts, vinar okkar allra. Ég er viss um að þau hjónin drífa sig til Malaví til að líta á geitahjörðina sína og litlu geithirðina, sem gæta og nýta. Ég hlakka til, að sjá myndir úr þeirri ferð. Geit Þórey Guðmundsdóttir fjallar um hjálparstarfið í Malaví ’Ég grét. Eneftir á að hyggja veit ég ekki alveg fyrir víst hvort ég grét af depurð eða gleði, senni- lega hvort tveggja.‘ Þórey Guðmundsdóttir Höfundur situr í fulltrúaráði Hjálparstarfs kirkjunnar. Á ÍSLANDI er mikill fjöldi barna með annað móðurmál en íslensku. Ár- ið 2005 var hlutfall innfluttra Íslend- inga 4,6%. Árið 2003 var hlutfallið 3,5%, í Noregi 4,1% og í Danmörku 4,8%. Börn af erlendum uppruna standa höllum fæti í námi, fæst þeirra ljúka framhaldsnámi hér á landi. Þegar þau hefja skólagöngu hafa þau að með- taltali 1.000 orð í 1. bekk á meðan börn með íslensku að móðurmáli hafa 3.200 orð. Munurinn eykst eftir því sem ár- um í grunnskóla fjölgar. Við eigum að læra af reynslu þjóða sem hafa gengið í gegnum áralanga þróun í málefnum innflytjenda, til að koma í veg fyrir þessa neikvæðu þró- un. Þar kemur fram mikilvægi þess að kennarar fái í grunnnámi nauð- synlegan undirbúning til að geta unnið faglega með nemendum af er- lendum uppruna. Einnig að í boði sé gott, samfellt, markvisst námsefni upp allan grunnskólann, sérstaklega gert fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál. Í grunnnámi Kennaraháskóla Ís- lands er ekki boðið upp á íslensku sem annað tungumál og þegar menntun kennara í faginu er ekki fyrir hendi verður námskrá enn mik- ilvægari. Hlutverk hennar er að stuðla að markvissum, faglegum kennsluháttum og auðvelda mat á ár- angri nemenda og kennara. Í námskrá grunnskóla í íslensku sem öðru tungumáli er að finna göfug markmið en ekki eru gefnar leiðir til að ná þeim. Þó er kveðið á um að ís- lensku skuli kenna í gegnum náms- greinar en ekki hvernig sú kennsla á að fara fram. Áhersla námskrárhöf- unda á kennslu í gegnum náms- greinar er tengd þeirri aðferð í tungumálakennslu sem náð hefur mikilli útbreiðslu sl. áratugi. Þetta er svokölluð „top-down“ aðferð eða „nálgun ofan frá“ (C.B.I.=Content based instruction) þar sem kennsla er byggð á inntaki eða innihaldi texta. Með því að fá fræðslu í ýmsum námsgreinum öðlast nemandinn smám saman kunnáttu í tungumál- inu. Þetta er í andstöðu við gömlu málfræði-þýðingaraðferðina, sem er „bottom-up“ aðferð eða „frá grunni“ þar sem nemandinn byggir upp þekkingu á formgerð tungumálsins stig af stigi. Áhersla er lögð á mál- fræði, texti saminn út frá þeim reglum og undantekningum sem ver- ið er að kenna hvert sinn. 1. Rýna í innihald texta og tileinka sér þannig tungumálið smám saman, innihald textans verður aðalviðfangs- efnið, engin áhersla á málfræði. 2. Leggja áherslu á málfræði og orða- forða, byggja upp sterkan grunn með fjölbreyttum kennsluaðferðum. Í námskrá í íslensku sem öðru tungumáli er gert ráð fyrir fyrri leið- inni, þar sem tekið er sérstaklega fram að ekki skuli leggja áherslu á formgerð íslenskunnar. Nýjustu kenningar í kennslufræði erlendra tungumála leggja áherslu á fjölbreytni í kennsluháttum. Komið hefur í ljós að gamla málfræði- þýðingaraðferðin hefur margt til síns ágætis. Hún hentar afskaplega vel til að koma röð og reglu á nýtt tungu- mál, flokka og raða þannig að ekki sé allt í belg og biðu. Þetta á við þegar nemendur tileinka sér orðaforða og málfræði. Markmið kennslunnar hef- ur líka beinst í þá átt að gera nem- endur sjálfstæða í námi. Ein aðferð í þá átt er að gera notkun orðabóka auðveldari. Ef nemandi með annað móðurmál en íslensku les texta og ætlar að leita í orðabók, án þess að hafa fengið kennslu í málfræði, upp- götvar hann fljótlega að þar vantar fjölda orða vegna þess að orð í ís- lensku breytast oft töluvert við fallbeyg- ingar, greini, sagn- beygingar o.s.frv. Eins og áður er nefnt er mikilvægt að nýta þekkingu og reynslu annarra þjóða í kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Hins vegar verðum við að gæta sérstöðu íslenskunnar, við get- um ekki kennt ís- lensku eins og Danir dönsku eða Englend- ingar ensku. Námsgagnavefurinn Katla er við- leitni til að takast á við verkefnið taf- arlaust og taka í notkun aðlagað efni byggt á reynslu annarra þjóða. Það er tímafrekt að finna upp leiðir og börnin sem nú eru í skólunum hafa ekki tíma til að bíða. Það er mik- ilvægt að stuðla að samhæfðum vinnubrögðum í kennslu þessara barna, sameiginlegum leiðum að því markmiði að þau nái fótfestu í ís- lensku skólakerfi. Á vefnum er námsefni og fræðsla um þá hugmynda- og kennslufræði sem liggur að baki námsefninu, markvissu og samfelldu námsefni í íslensku sem öðru tungumáli. Á vefn- um nýtist einnig sú þróunarvinna sem átt hefur sér stað í móttöku- deildum Háteigs- og Breiðholtsskóla síðustu ár. Við höfum notið stuðnings dr. Anne Vermeer, prófessors við Til- burgháskóla í Hollandi, og dr. Hetty Roessingh, prófessors við Calg- aryháskóla í Kanada, í öflun kennslu- fræði og styttum okkur því leið með því að nýta okkur reynslu og þekk- ingu þeirra sem hafa náð vaxandi ár- angri á þessu sviði. Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að móttökuskólarnir Háteigs- og Breiðholtsskóli hafa í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna, Kenn- araháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri blásið til málþings og nám- skeiða 11.–15. maí nk. þar sem dr. Anne Vermeer og dr. Hetty Roess- ingh munu miðla okkur af rann- sóknum og reynslu sinna þjóða. Grunnskólabörn með annað móðurmál en íslensku Anna Guðrún Júlíusdóttir og Sigríður Ólafsdóttir fjalla um íslenskunám fyrir útlendinga ’Á vefnum nýtist einnigsú þróunarvinna sem átt hefur sér stað í móttöku- deildum Háteigs- og Breiðholtsskóla síðustu ár. ‘ Sigríður Ólafsdóttir Höfundar eru í forsvari fyrir mót- tökudeildir í Breiðholtsskóla og Há- teigsskóla og höfundar Kötlu sem er námsgagnavefur í íslensku sem öðru tungumáli fyrir grunnskóla: http:// www.katla-is.net/ Anna Guðrún Júlíusdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.