Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 38

Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. (Hannes Pétursson.) Arnar. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. (Matthías Jochumsson.) Jón Baldvin Pálsson, Þorsteinn Pálsson, Hlynur Guðjónsson. Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga, en sér í lagi þau, sem tárin lauga, og sýndu miskunn öllu því, sem andar, en einkum því, sem böl og voði grandar. Þín líknarásján lýsi dimmum heimi, þitt ljósið blessað gef í nótt mig dreymi. Í Jesú nafni vil ég væran sofa og vakna snemma þína dýrð að lofa. (Matthías Jochumsson.) Guðjón Heiðar, Guðrún Björk, Andrés Jakob, Emilía Jóhanna, Friðrik Jónatan. HINSTA KVEÐJA ✝ Guðfinna Ein-arsdóttir fædd- ist í Ásgarði 2. febr- úar 1897 en fluttist á fyrsta ári að Leys- ingjastöðum í Dala- sýslu með foreldrum sínum. Hún lést á Landakotsspítala 1. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Einars- son og Signý Hall- dórsdóttir, var hún elst þriggja barna þeirra. Systkini Guðfinnu eru: Jón Jóel, f. 1898, d. 1947, Þuríður, f. 1908, d. 1995 og fósturbróðir Einar Kristjánsson, f. 1917. Dóttir Guðfinnu og Þorbjarnar Ólafssonar er Jóhanna Þórunn, f. 1934. Eiginmaður hennar var Páll Jónsson, f. 1928, d. 2003. Synir þeirra eru: 1) Páll Már, f. 1965, kvæntur Þóru Sigríði Ólafsdóttur, f. 1967, börn þeirra eru Ólafur Páll, f. 1991, Jóhanna Þórunn, f. 1996, og Einar Páll, f. 2002. 2) Guðfinnur Þór, f. 1967, börn hans og Rögnu S. Ragnarsdóttur, f. 1966, eru Sigurlaug Sól, f. 1999, og Þór Elí, f. 2002. 3) Höskuldur Einar, f. 1971, kvæntur Beintu Eliasen, f. 1971, börn þeirra eru Al- fred, f. 1990, Aron, f. 2001, og Liv, f. 2004. 4) Arnar, f. 1977, sambýliskona Jana María Guðmunds- dóttir, f. 1981. Eftir nám í Kvennaskólanum á Blönduósi 1917– 1918 starfaði Guð- finna við bú foreldra sinna. Á þessum tíma tíðkaðist að fara í vetrarvist til Reykjavíkur og fór hún suður nokkra vetur. Árið 1944 gerðist Guðfinna bústýra í Hvítadal í Saurbæ, Dalasýslu, hjá Sigurði Sigurðssyni bónda sem þá var ekkjumaður með tvö börn sín, Sig- urrós og Kristján. Í Hvítadal bjó Guðfinna yfir tuttugu ár eða þang- að til hún fluttist til dóttur sinnar og tengdasonar í Reykjavík þar sem hún hefur búið undanfarin tæp 40 ár. Í vetur var Guðfinna í hvíldarinnlögn á Landakoti. Útför Guðfinnu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. „Kallið er komið, komin er nú stundin,“ segir í sálminum eftir Valdimar Briem. Þessu kalli höfum við lengi búist við. Loks kom að því. Engum þarf að koma á óvart að kall- ið sé komið þegar 109 ára gömul kona á í hlut. Söknuður, eftirsjá og minningar eru orð sem koma upp í hugann. Amma hefur alltaf verið til staðar, eins og klettur í lífi okkar. Við höfum notið þeirra forréttinda að hafa hana á heimili okkar, við bræðurnir í okkar uppvexti og síðar meir börnin okkar. Amma bjó á heimili dóttur sinnar og tengdasonar í tæp 40 ár. Þau voru ávallt samstiga í að búa henni gott heimili, þar sem hugsað var um hana af mikilli alúð og umhyggju. Það er aðdáunarvert og átti án efa stóran þátt í langlífi hennar. Það eru ekki margir sem hafa lifað jafn miklar þjóðfélagsbreytingar. Lífsskeið hennar snertir þrjár aldir. Mikil saga og þekking hverfur með henni en alltaf átti hún auðvelt með að tileinka sér nýjungar. Við munum eftir henni 100 ára með sjónvarps- fjarstýringuna að skipta á milli Eurosport og Discovery. Amma leit aldrei á sig sem aldraða konu sem væri ófær til verka. Það kom glöggt fram þegar við fjölskyld- an dvöldum í Dalalandi eitt skiptið. Hafði hún orð á því, að ef við þyrftum að skreppa í bæjarferð, þá skyldi hún gæta barnanna, þá átta mánaða og fimm ára en hún sjálf 100 ára. Þegar fyrsta barnið okkar fæddist var haft á orði við okkur, að við skyldum eyða jólunum með ömmu. Þá fengi hún að njóta fyrsta lang- ömmubarnsins, þar sem þetta gætu verið síðustu jólin hennar. En henn- ar tími var ekki kominn, heldur átti hún í raun fimmtán góð ár eftir. Nú er langri vakt lokið. Eftir sitja minningar um stórkostlega og merkilega konu, sem við varðveitum með okkur. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Páll Már, Þóra Sigríður og fjölskylda. Elsku amma. Með fáeinum orðum langar mig til að þakka þér fyrir samveruna. Þegar ég fæddist varst þú rétt að verða 84 ára og sú fyrsta sem leiðbeindir og aðstoðaðir mömmu með mig. Síðan eru liðin 25 ár og höfum við mæðgur notið heil- ræða frá þér allar götur síðan. Minn- ingarnar eru margar og góðar. Við spiluðum marías tímunum saman en ekki fyrr en ég hafði klárað heima- lærdóminn. Við spjölluðum um allt og ekkert og alltaf var stutt í grínið og hláturinn til dæmis þegar við ræddum um stráka. Þú sýndir mér alltaf mikla góðvild og lést mig vita hve stolt þú varst af mér. Ég var varla byrjuð í Kvennó þegar þú sagðir mér að þú myndir gjarnan vilja mynd af mér með „hvíta koll- inn“ sem þú að sjálfsögðu fékkst. Ég var svo stolt þegar ég fékk að klæð- ast peysufötunum þínum á peysu- fatadaginn í Kvennó. Eftir að ég fór að kenna fyrir um ári síðan þá töluðum við saman um starfið og meðal annars vildir þú vita hvort krakkarnir væru baldnir við mig. Já, margs er að minnast enda varstu alveg stórmerkileg og stór- glæsileg kona sem mér þótti afar vænt um. Ég kveð þig eins og við kvöddumst ávallt: Hafðu það ofsa gott og sjáumst. Þín Gunnur Rós. Vér sjáum, hvar sumar rennur með sól yfir dauðans haf, og lyftir í eilífan aldingarð því öllu, sem Drottinn gaf. (Matthías Jochumsson.) Það mun hafa verið 17. maí 1918 sem ég kom sem fósturbarn að Leys- ingjastöðum í Dölum. Þá vantaði mig móðurleysingjann nær þrjá mánuði í fyrsta æviárið. Þá bjuggu þar hjónin Signý Halldórsdóttir og Einar Ein- arsson föðurbróðir minn. Þau Leys- ingjastaðahjón bjuggu með þremur börnum sínum, Guðfinnu, sem hér er minnst og náði því að verða elsta kona landsins. Næstur Guðfinnu að aldri var Jón Jóel, einu ári yngri, lengi organleikari við kirkju sveitar- innar í Hvammi. Yngst var Þuríður, ellefu árum yngri en Guðfinna. Þegar ég kom að Leysingjastöð- um hafði Guðfinna nýlokið námi við kvennaskóla Húnvetninga á Blöndu- ósi. Guðfinna frænka var minn fyrsti kennari. Hún kenndi mér lestur, skrift og reikning. Hafi ég einhvern tíma orðið kristinn maður þá er það henni að þakka. Hún benti mér á feg- urstu dæmisögur Jesú Krists í Nýja testamentinu og sagði mér að lesa ræður sr. Haraldar Níelssonar. Fyrstu veturna sem hún dvaldi í Reykjavík fór hún oft í Fríkirkjuna til að hlusta á sr. Harald og dásamaði ræður hans æ síðan. Dr. Helgi Péturs notaði fyrstur manna orðið „framlíf“. Nú, þegar lokið er óvenjulega langri vegferð hérna megin grafar vil ég óska frænku minni allrar guðsblessunar á vegum framlífsins. Hún gaf mér þær gjafir, sem bestar eru allra gjafa. Einar Kristjánsson. Upp úr miðju sumri árið 1944 kom Guðfinna ásamt dóttur sinni Jó- hönnu að Hvítadal. Guðfinna þá ráð- in til að sjá um heimilið hjá föður mínum. Það varð okkur fóstursystk- inunum mikil gæfa, að fá svo góða konu á heimilið. Hún var sérstaklega barngóð og hændumst við strax að henni. Sjana móðursystir mín, sagði mér að eitt sinn hefði eitthvað hlaup- ið í mig stelpustýrið og hefði ég þá sagt: „Mér er alveg sama þótt eng- um þyki vænt um mig, ég veit að henni Guðfinnu þykir vænt um mig.“ Þetta lýsir þeim tengslum sem strax urðu. Guðfinna hafði ærinn starfa innanhúss, ekki var komið rafmagn til að létta störfin. En hún vann verk- in af mikilli natni og heilindum, var einstaklega þrifin og vandvirk. Hún var hjá okkur vel yfir 20 ár, en fór þá til Jóhönnu dóttur sinnar og tengda- sonar. Þegar við Gunnar fórum að búa í Búðardal, kom Guðfinna lengi vel til okkar, tók sér jafnan far með rútunni. Það var alltaf tilhlökkun hjá börnum okkar að hún kæmi, alltaf með einhvern glaðning handa mér og þeim. Hún var þeim sem besta amma. Dvaldi þá oft góðan tíma og fór alltaf í heimsókn til Didda og fjöl- skyldu. Guðfinna var elskuleg kona, hafði ákveðnar skoðanir, en var dagfars- prúð og rólynd. Gamansöm, glettin og nutum við samvistanna vel í spjalli, þegar svo bar undir. Oft sett- um við plötu á fóninn og sungum þá stundum með, en hún var söngelsk mjög og sagði eitt sinn við mig: „Þið eruð söngelska fjölskyldan.“ Guðfinna var heilsuhraust, hélt andlegu atgervi, upplifði ýmsar breytingar og mér fannst það lýsa hennar innri ró að hún tók því sem sjálfsögðu ferli, var ekki að ergja sig yfir neinu. Hún átti því láni að fagna að geta verið í heimahúsi hjá dóttur sinni og fjölskyldu síðustu áratugina og naut þar frábærrar umhyggju á allan hátt. Hún var trúuð og las sína sálma á kvöldin, meðan hún hafði sjón til. Við Gunnar og börnin okkar öll þökkum samveruna alla, umhyggj- una, elskulegheitin og óskum henni blessunar á Guðs vegum. Innileg samúð til Jóhönnu og fjöl- skyldu. Sigurrós Kr. Sigurðardóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Það var á laugardagsnótt að Guð- finna sofnaði svefninum langa. Það ríkti friður yfir henni þar sem hún lá í rúmi sínu á Landakoti með fallega hvíta hárið bundið í tvær fléttur, eins og hún var vön. Undanfarna daga hefur hugurinn reikað að þeim stundum sem ég átti með Guðfinnu í Dalalandinu þar sem hún bjó síðustu ár ævi sinnar. Guðfinna átti sinn stað í stofunni þar sem hún sat jafnan með teppi yfir fætur sér, í bláa kjóln- um sínum með hárið snyrtilega bundið í tvær fléttur. Göngugrindin var ekki langt frá og nýttist göngu- grindin yngstu langömmubörnunum hennar sem hið prýðilegasta leik- tæki. Guðfinna átti hug þeirra og hjörtu og þótti lítið tiltökumál að sitja hjá þeirri gömlu ef fyrirséð var að hún yrði ein heima. Á þeim tæpu þremur árum sem ég bjó í Dalaland- inu kom það oft í hlut minn og Arn- ars að hugsa um Guðfinnu þegar Jó- hanna og Páll brugðu sér í frí. Á þessum tímum átti ég margar dýr- mætar stundir sem ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið með henni Guðfinnu. Mér sérstaklega minnisstætt þegar spurningakeppni var í sjónvarpinu og við sátum inni í stofu og horfðum á keppnina. Nokkrar spurninganna voru um sögu Íslands og persónur er ég hafði einungis lært um í skóla, en Guð- finna hafði hitt fólkið sem spurt var um og gat lýst þeim nákvæmlega. Á þessum tíma áttaði ég mig á því hversu ótrúlega tíma hún hafði lifað. Guðfinna var mjög ern og hafði mikið dálæti á tónlist, enda sofnaði hún yfirleitt með tónlist á fóninum. Yfirleitt var það sami diskurinn sem hún hlustaði á, þrátt fyrir ýmsar til- raunir til að kynna henni nýja diska. Björgvin skyldi það vera þar sem sungnir eru sálmar úr íslenskum kirkjum. Það var engin undantekn- ing á því, kvöldið sem hún kvaddi hljómaði tónlistin í bakgrunninum og Guðfinna sofnaði vært. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Fríða Björg. Látin er kær og elskuleg vinkona, Guðfinna Einarsdóttir. Ég var svo lánsöm að kynnast henni og Jóhönnu dóttur hennar fyr- ir rúmlega sextíu árum og hef ég átt margar góðar stundir með þeim mæðgum gegnum tíðina. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Elsku Guðfinna mín, ég þakka þér samfylgdina og allt sem þú varst mér. Minning þín lifir. Elsku Jóhanna, þú varst móður þinni einstök dóttir. Guð blessi þig og fjölskyldu þína. Vera Kristjánsdóttir. GUÐFINNA EINARSDÓTTIR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR, Blikabraut 11, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi sunnudaginn 9. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Guðfinna Arngrímsdóttir, Sigurjón Þórðarson, Jóhanna Arngrímsdóttir, Árni Óskarsson, Vilhjálmur Sv. Arngrímsson, Guðríður Halldórsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur. Ástkær frændi okkar og vinur, HÖSKULDUR SKAGFJÖRÐ, dvalarheimilinu Grund, áður Norðurbrún 1, Reykjavík, sem lést aðfaranótt föstudagsins 7. apríl á dvalar- heimilinu Grund, verður jarðsunginn frá bæna- húsinu í Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. apríl kl. 13:00. Fyrir hönd aðstandenda og vina, Þórður Pálmason og fjölskylda. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN SUMARRÓS JÓNSDÓTTIR, Sunnuvegi 5, Hafnarfirði, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði föstudaginn 7. apríl. Kristín Pálsdóttir, Guðmundur Friðrik Sigurðsson, Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Páll Arnar Sveinbjörnsson, Henny María Frímannsdóttir, Þröstur Sveinbjörnsson, Kristín Steinunn Helga Þórarinsdóttir, Sigurrós Lilja Pálsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.