Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 39

Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 39 MINNINGAR ✝ Guðni G. Sigfús-son fæddist í Vífilsstaðadal í Hörðudal í Dala- sýslu 8. júlí 1932. Hann lést 3. apríl síðastliðinn. Móðir hans var Jóhanna Jónsdóttir, f. 21.9. 1889. Faðir hans var Sigfús Einars- son, f. 18.3. 1893. Var Guðni yngstur fjögurra bræðra. Hinir eru: Friðrik, f. 9.4. 1923; Jakob, f. 20.3. 1929; og Sigurður, f. 2.4. 1931. Guðni kvæntist Sóleyju Jónasdóttur sem lést 8.8. 1974. Þeim varð fjögurra barna auðið. Þau eru: María, f. 8.8. 1955; Valur, f. 5.9. 1956; Sigfús, f. 6.8. 1958, og Jóhann, f. 9.8. 1960 og lifa þrjú þeirra föður sinn en Jóhann dó einnig ungur eða 28 ára að aldri. Útför Guðna verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Komið er að kveðjustund hjá okk- ur, kæri tengdó. Ég kom fyrst á heim- ili ykkar hjóna milli jóla og nýárs 1970 er ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir Maríu dóttur ykkar og frá þeim degi hef ég borið mikla virðingu fyrir þér og verið montinn af að segja að tengdapabbi minn heiti Guðni Sigfús- son og sé húsasmíðameistari. Ég minnist allra þeirra ferða sem við fór- um saman í útilegur bæði innanlands og utan. Þó minnist ég sérstaklega ferðarinnar sem við fórum til Þýska- lands 1992 og keyrðum þar í landi og víðar. Það var alveg sama hvar við komum, Heidelberg, Köln eða bara hvar sem var, alltaf hafðir þú eitthvað að segja frá og miðla þinni þekkingu til okkar hinna. Og ekki varstu minna fróður um Ísland. Þú gast alltaf sagt frá hvar sem við vorum og sögurnar voru skemmtilegar. Þú hafðir gaman af að veiða og fórst í nokkra veiði- túrana. Það var gaman að vera með þér í góðra vina hópi. Söngmaður varst þú mikill og kunnir alla texta gömlu og góðu laganna og oft kom ég og spurði þig um ljóðlínu í sumum lög- um og þú vissir svarið. En lífið er ekki alltaf dans á rósum. Þú misstir konuna þína Sóleyju, sem var yndisleg kona, aðeins 38 ára göm- ul. Skömmu síðar sérð þú á eftir móð- ur þinni og síðan föður og bróður þeg- ar Jói dó. Þá hélt maður að komið væri nóg. Nei, þú færð hjartaáfall, stendur það af þér. Svo blæðir inn á heilann og allir héldu að þú myndir missa minnið, en nei, ekki var þetta nóg til að fella þig, það þurfti krabba- mein til. Elsku Guðni, guð veri þér mis- kunnsamur og færi þig til þeirra sem hurfu á braut á undan þér. Ég er viss um að þeir taka á móti þér opnum örmum. Hvíl í friði. Ingólfur Karl. Elsku afi minn, að sjá þig á spít- alanum svona veikan og sárþjáðan, var hræðilega erfitt. Það er ekkert lít- ið sem þú og þessi fjölskylda hefur þurft að ganga í gegnum, áföll og missir. Maður finnur það svo innilega á svona stundum hversu mikilvæg fjöl- skyldan er manni og hversu sárt það er að missa einhvern úr hópnum. Jafnvel þó svo að maður hafi ekki haft eins mikið samband og maður hefði viljað. Þetta er líka óþyrmileg áminning um það hversu lífið getur verið hverf- ult. Það er svo skrítið að þú skulir ekki vera þarna lengur. Við huggum okkur við það að þú þjáist þá ekki meir. Ég vona bara í hjarta mínu að þú sért hamingjusamur í dag og ég veit það innst inni að þú ert í góðum fé- lagsskap og með ömmu hjá þér … loksins. Sóley. Elsku bróðir. Nú þegar þú hefur kvatt þennan heim er margs að minn- ast. Minningarnar streyma fram í hugann. Allar stundirnar frá því að við vorum börn að alast upp í Árn- húsum. Þá var nú margt brallað, enda vorum við fjórir bræðurnir saman. Allar gönguferðirnar, leikirnir og klifrið í klettunum. Þá var nú gaman þegar við vorum öll í vega- og brúar- vinnunni sumarið áður en við fluttum til Keflavíkur. Ég minnist allra sam- verustundanna okkar þar. Þá fórst þú fljótlega að læra húsasmíði, sem varð svo ævistarf þitt. Alltaf varstu tilbú- inn að hjálpa okkur, eftir að við Sigga fórum að byggja í sveitinni. Hvað þú varst hjálplegur eftir að við fórum að byggja litla húsið okkar. Þá kemur upp í hugann öll ferða- lögin okkar saman hér heima og er- lendis. Þú varst einstaklega góður ferðafélagi og alltaf gaman að fá þig í heimsókn. Þín verður sárt saknað, en við vitum að það verður tekið vel á móti þér og þú færð að hitta aftur ást- vini þína, Sóleyju og Jóhann. Það verða góðir endurfundir. Jakob sendir kveðjur með þakklæti fyrir öll liðnu árin. Við öll í Stafholtsey kveðjum þig með þessu ljóði eftir Guðmund Böðvarsson, innilegar sam- úðarkveðjur til allra ættingja: Þó er komið það á daginn þegar ég hugsa um gamla bæinn, lotnar þekjur, litla glugga, ljósið var þó bjartast þar. Þegar sól á sumri löngu, sæl og heit af morgungöngu, kvisti í súð og kroti á þilju kveðju guðs og sína bar. Maður er aðeins minningar. Sigurður. Núna sit ég hér og hugsa um allar minningarnar sem ég á um þig, elsku afi. Margar þeirra eiga sér stað úti í sveit. Þú elskaðir alltaf að fara út úr bænum í bíltúra. Svo fórstu oft í heim- sókn í Stafholstey og í eitt skiptið fékk ég að fljóta með. Það er ein sú skemmtilegasta ferð sem að ég fór í með þér. Þú hafðir sent pabba í sveit til hans Sigga bróður þíns þegar hann var lítill. En ég hafði ekki fengið að fara í sveit. Við gistum bara í eina nótt en þessi minning á sko sannarlega sérstakan stað í mínu hjarta. Það var á þeim tíma sem mig dreymdi um að verða bóndi. Enda fékk ég margar hugmyndir um það hvernig við gæt- um gert stórt býli saman. Oft þegar að við fórum úr bænum var veiði- stöngin við höndina. En mínar fyrstu minningar um þig eru einmitt úr slíkri ferð. Þar veiddi ég minn fyrsta fisk, og öll fjölskyldan var þar saman komin. Svo grilluðum við um kvöldið og sögur voru sagðar. Þú hefur þraukað í gegnum erfið veikindi en alltaf stóðstu upp aftur og alltaf kynntist maður þér betur. Við höfum líka unnið mikið saman og það eru ófáir veggirnir sem við höfum klætt saman. Ég er þakklátur fyrir allan þann tíma sem ég fékk með þér, kæri afi. Ég hefði samt alveg viljað hafa stundirnar fleiri. Þetta gerðist bara allt svo fljótt. Um jólin varstu eldhress og gerðir auðvitað mjög vel við okkur systkinin. Það gerðirðu reyndar alltaf. Við fengum til dæmis alltaf páskaegg frá þér um hverja páska. Ég veit að við vorum í miklu uppáhaldi, við barnabörnin. En núna ertu kominn á góðan stað. Þar getur þú klárað Alfræðibókina sem þú sagðir mér frá um daginn og jafnvel farið með ömmu og skoðað alla þessa sögufrægu staði sem þú varst svo hrifinn af. Ég gæti skrifað mikið meira af minningum um þig elsku afi en ég veit að við deilum þeim saman. Að kveðja þig er það erfiðasta sem ég hef gert en við munum hittast aftur. Þangað til mun ég hugsa um þig og þú fylgjast með mér. Ég elska þig, kæri afi, mjög mikið. Hvíldu í friði. Þitt barnabarn, Halldór Berg Sigfússon. Í dag kveðjum við elsku afa með söknuði og tárum. Við þökkum fyrir allar þær dýr- mætu stundir sem við áttum saman og við munum aldrei gleyma. Við minnumst allra heimsóknanna þinna, en einni þeirra var alltaf beðið eftir með sérstakri eftirvæntingu á hverju ári, það var þegar þú komst um páskana með fullan poka af páska- eggjum handa allri fjölskyldunni. Söknuðurinn er sár en við vitum að þú ert á góðum stað hjá Guði þar sem pabbi okkar og amma Sóley taka vel á móti þér. Efst í huga okkar er þakk- læti fyrir allar góðu stundirnar. Þær geymast en gleymast ekki. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem.) Guð geymi þig og verndi, elsku afi okkar. Hvíl í friði. Þín barnabörn Birgir Daði, Agnes og Rebekka. GUÐNI G. SIGFÚSSON Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, RUT OLLÝ SIGURBJÖRNSDÓTTIR, lést þriðjudaginn 4. apríl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðviku- daginn 12. apríl kl. 13:00 Eiríkur Jónsson, Guðlaug Eiríksdóttir, Elo Gartmann, Jón Ágúst Eiríksson, Elísabet Magnúsdóttir, Sigurbjörn Eiríksson, Guðný Elva Kristjánsdóttir, Helga Eiríksdóttir, Einar Bjarnason, barnabörn og barnabarnabarn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNLAUGUR BJÖRNSSON frá Grjótnesi, sem lést á LSH í Fossvogi föstudaginn 7. apríl verður jarðsunginn í Áskirkju miðvikudaginn 12. apríl og hefst athöfnin klukkan 15.00. Jarmíla Hermannsdóttir, Björn Gunnlaugsson, Eva Guðný Þorvaldsdóttir, Herdís Sigurveig Gunnlaugsdóttir, Pétur Bjarnason, Hermann G. Gunnlaugsson, Gunnhildur Þ. Guðmundsdóttir og barnabörn. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GESTUR GUÐJÓNSSON, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, lést laugardaginn 8. apríl á St. Jósefsspítala. Jarðarförin auglýst síðar. Þórunn F. Benjamínsdóttir, Guðjón A. Gestsson, K. Erla Gestsdóttir, Sigurgeir Sigurðsson, Guðmundur I. Gestsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGÞRÚÐUR JÓRUNN TÓMASDÓTTIR, andaðist á heimili sínu að Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 9. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Halldór Ibsen. Konan mín, MAGNEA ÞORKELSDÓTTIR, er látin. Sigurbjörn Einarsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HREGGVIÐUR HERMANNSSON læknir, Nónvörðu 14, Keflavík, andaðist á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi laugardaginn 8. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Lilja Jóhannsdóttir, Margrét Hreggviðsdóttir, Bjarni Guðjónsson, Hermann Torfi Hreggviðsson, Ágústa Hildur Gizurardóttir, Elín Kristín Hreggviðsdóttir, Júlíus Sigurðsson, Guðmundur Páll Hreggviðsson, Sólveig Silfá Karlsdóttir, Björn Blöndal, Gísli Blöndal, Sólveig Leifsdóttir, James William Sandridge, Jóhann Dalberg, Kristín Ruth Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, SIGURBJÖRN BJÖRNSSON, Hrísum, Flókadal, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 30. mars. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þórdís Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Sigurbjörnsdóttir. Faðir okkar og bróðir, JÓHANN PÉTURSSON fv. vitavörður á Hornbjargsvita, er látinn. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. apríl kl. 15:00. Magnús Brimar, Gréta Mörk, Guðrún S. Pétursdóttir, Ásgerður Á. Pétursdóttir, Lára Karen Pétursdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.