Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 43

Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 43 MINNINGAR okkur öll saman úr grunnskóla en það bættist vel í safnið þegar við hófum skólagöngu okkar í MK. Minningar úr MK eru ótalmargar og auðvitað er það félagslífið sem stendur þá upp úr. Alltaf vorum við mætt á böllin og skemmtum við okkur alltaf vel saman. Þú varst svo mikil félagsvera, fannst gaman að vera í góðra vina hópi og ekki spillti fyrir ef það var gítarspil og söngur. Sumarið fyrir þriðja árið í menntó kynntist þú Sirrý þinni. Það ljómaði af þér, þú varst svo ástfanginn. Þú talaðir alltaf svo vel um hana, hún var þér allt. Þið vor- uð búin að plana það að þið ætluðuð alltaf að vera saman. Það kom fyrir að þú komst til okkar stelpnanna alveg ráðalaus þegar þú vissir ekki hvað þú ættir að gefa Sirrý í jóla- gjöf eða afmælisgjöf. Þá komum við með góð ráð handa góðum vini. Útskriftarferðin sumarið fyrir fjórða ár stendur upp úr. Við plön- uðum hana og ákveðið var að halda til Krítar í tvær vikur. Það voru sannarlega skemmtilegar tvær vik- ur, en þú saknaðir Sirrýjar þinnar mikið. Talaðir mikið um það hvað þig langaði að knúsa hana og kyssa. Við getum haldið áfram enda- laust að rifja upp, en hér látum við staðar numið Þú varst yndislegur í alla staði, það eru forréttindi að hafa kynnst þér og átt þig að sem vin. Við vitum það að englar guðs taka vel á móti þér og leiða þig inn í ríki þar sem þér líður vel. Við viljum votta fjölskyldu Pét- urs, Sirrý og vinum okkar dýpstu samúð. Megi guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum. Elsku Pétur, þín stjarna skín skært. Hvíl í friði, kæri vinur. Þínar vinkonur Linda, Eva, Fanney, Sunna, Inga, Arna og Unnur. Pétur Benediktsson var aðeins tæplega 22 ára gamall en var þegar orðinn áberandi í uppbyggingu knattspyrnunnar í Kópavogi. Bæði sem þjálfari yngri flokka og sem mikilvægur hlekkur í meistara- flokksstarfi Breiðabliks. Sjálfur var hann fyrirliði í sigursælum árgangi upp alla flokka Breiðabliks, og naut virðingar og vinsælda langt út fyrir raðir félagsins. Hann var heil- steyptur og traustur piltur og í miklum metum hjá jafnöldrum sín- um og skólafélögum úr HK sem eru harmi slegnir við fráfall hans. Pétur hafði viðdvöl hjá HK eitt sumar, lokaárið sitt í 2. flokki, og það sum- ar, 2003, náði 2. flokkur félagsins sínum besta árangri frá upphafi. Knattspyrnudeild HK sendir for- eldrum Péturs, unnustu, systkinum og öðrum aðstandendum hans sínar innilegustu samúðarkveðjur. Knattspyrnudeild HK. Elsku vinur. Ég veit ekkert hvernig ég á að byrja á þessu, hvernig á ég að skrifa minninga- grein um vin minn, sem ég trúi ekki að sé dáinn. Þú varst mér svo góður vinur og þó að við töluðum ekki saman á hverjum degi varstu mér oft of- arlega í huga. Ég vona að þú vitir að þú átt sérstakan stað í hjarta okkar allra. Þú ert okkur öllum svo mikilvægur. Elsku Pétur, við eigum svo marg- ar og skemmtilega minningar. Við krabbarnir vorum góðir saman. Gleymi ekki spánarferðinni fyrir nokkrum árum. Það var svo gaman að fíflast með þér. Ég á fullt af myndum af þér í furðulegu bláu skyrtunni þinni sem þér þótti ein- hverra hluta vegna voðalega flott, mér finnst hún mjög flott núna, því þú varst í henni! Tónlistin mun minna mig á þig, þú söngst alltaf frá hjartanu. Ég geymi allar þessar minningar eins og dýran fjársjóð. Farðu varlega þarna uppi og láttu englana passa þig. Elsku Sirrý, hann var og er enn svo ástfanginn af þér. Ástin býr í hjartanu og sama hvað gerist og sama hvað tímanum líður, þá verð- ur sú ást alltaf til staðar. Ég sakna hans og ég ætla ekki að reyna að ímynda mér söknuð þinn. Ég sendi þér allan minn styrk og allar mínar bænir. Hér er ljóð til þín Pétur: Er röddin hætt að hljóma og segja svo vel frá? Er brosið farið, mun ég sjá það á ný? Í hjartanu ómar gleðinnar hlátur. Í huganum geymi ég, brosið þitt. Þú ferð ekki langt, þú ert mér hjá, í huga og hjarta. Svo langt í burtu, en samt svo nálægt, Þú ert mér hjá, elsku vinur. Megi guð geyma þig að eilífu, elsku Pétur minn, og ég bið guð og himnanna engla að halda vernd- arhendi yfir ástvinum þínum og fjölskyldu. Með samúðarkveðju Steinunn Þóra Camilla. Kveðja frá Knattspyrnudeild Breiðabliks Sýndarsigur eyðileggingar og dauða er í raun og veru upphaf að nýjum og varanlegum sigri. Þetta kennir náttúra landsins okkur. Þetta er reynsla alls lífs – um þetta sannfærumst við æ betur, eftir því sem við lifum lengur og reynum meira. Í skóla lífsins reynum við að það eru ekki aðeins sár foldar sem gróa, heldur og öll önnur sár. Pétur Benediktsson, vinur og samstarfs- maður okkar, er látinn. Enginn átti á því von, að hann félli frá svo fljótt. Ævi hans var starfstími. Hann var maður sístarfandi, vildi engu eyða, engu spilla, heldur þvert á móti byggja upp, græða, efla og reisa við. Pétur vann ávallt af trú og dyggð meira en venjulegt er og í dagfari öllu var hinn ljúfi vinur og félagi hollur til samfylgdar. Hann var ræktunarmaður lýðs og lands mestalla ævina og starfaði lengi fyrir Breiðablik Ungmennafélag og fleiri íþróttafélög, en á þessum vett- vangi unnum við saman við að rækta landið og það besta í hverj- um einstaklingi. Ævi Péturs varð ekki eins löng og við höfðum vænst. Við hefðum vonast til þess, að þessi starfsfúsi maður hefði fengið að dvelja hér lengur við starf til gleði og bless- unar fyrir alla. Honum hefur verið kippt burtu. Fjölmargir vinir sakna hans nú og minnast hans með hrærðum og viðkvæmum huga. Í fljótu bragði hefur dauði góðs manns og göfugs þau áhrif á okkur flest sem skaðvaldur lífsins hrósi sigri – og lífið sé sigrað. Jafnvel þótt við höfum áður verið sannfærð um hið gagnstæða. Þegar við missum ástvini okkar óvænt, þá hefur fallið fram skriða eyðingarinnar en það sár grær aft- ur og meira en það. Látum því ekki hugfallast þótt hinn mikli eyðandi dauði hafi höggvið nærri okkur, sært okkur djúpum sárum. Við vit- um af reynslu kynslóðanna, af reynslu okkar og fyrst og fremst þó af lífi Jesú Krists að lífið á þá fyrst framtíð er dauðinn hefur endur- leyst það frá tíma til eilífðar. Öllum ástvinum Péturs eru send- ar hugheilar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Péturs Benedikts- sonar. Einar Kristján Jónsson, formaður. Þegar við fengum fréttirnar að þín væri saknað datt okkur allt annað í hug en það sem raunin varð. Minningar um þig elsku Pétur streymdu inn í hugann. Öllum ferðunum sem við fórum í saman með Smáraskóla eigum við aldrei eftir að gleyma. Þó svo að þær væru kannski ekki allar þær auðveldustu vorum við í vinahópn- um öll svo náin og gerðum þessar ferðir ógleymanlegar. Oft fórum við krakkarnir saman í bíó og þurftum nánast að taka heila sætaröð frá fyrir okkur af því við ætluðum að sitja öll saman og eng- inn mátti vera útundan. En nú er þitt sæti autt og þetta tómarúm sem situr eftir í hjörtum okkar fyll- um við með yndislegum minningum um góðan vin. Við tókum þátt í alls kyns söng- leikjum sem settir voru upp í skól- anum. Þar varst þú í ófá skiptin að syngja og sýna þína bestu takta. Þú sýndir án efa þína bestu takta þeg- ar þú söngst lagið Tears in Heaven á söngkeppni grunnskóla. Við vin- irnir hvöttum þig til dáða og þú söngst eins og engill eins og þér einum var lagið. Margar minningar eigum við um okkur öll saman úr grunnskóla en það bættist vel í safnið þegar við hófum skólagöngu okkar í MK. Þú varst svo mikil félagsvera, fannst gaman að vera í góðra vina hópi og ekki skemmdi fyrir ef það var gítarspil og söngur. Sumarið fyrir þriðja árið í menntó kynntist þú Sirrý þinni. Það ljómaði af þér, þú varst svo ástfanginn. Þú talaðir alltaf svo vel um hana, hún var þér allt. Þú sagð- ir okkur að þið væruð búin að plana ykkar framtíð saman. Þú varst ynd- islegur í alla staði, það eru forrétt- indi að hafa kynnst þér og átt þig að sem vin. Við vitum það að englar guðs taka vel á móti þér og leiða þig inn í ríki þar sem þér líður vel. Við viljum votta fjölskyldu Pét- urs, Sirrý og vinum okkar dýpstu samúð. Megi guð vera með ykkur. Elsku Pétur þín stjarna skín skært. Hvíl í friði kæri vinur. Beyond the door, There’s peace I’m sure … (Eric Clapton.) Þínar vinkonur Linda, Eva, Fanney, Sunna, Inga, Arna og Unnur. Sumt fólk hefur sérstaklega þægilega nærveru og á auðvelt með að ná til annarra. Pétur var einn af þeim. Mér hlotnaðist sá heiður að kynnast Pétri í gegnum sameig- inlegan áhuga okkar á félagsstörf- um meðan við vorum í MK. Þegar ég hugsa til baka finnst mér hann hafa verið eins og brú milli vina- hópa, enda góður vinur og félagi. Það var ánægjulegt að heyra það á sínum tíma að hann væri farinn að þjálfa litla bróður minn í fótbolta því ég vissi að Pétur væri drif- fjöðrin í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann hafði ein- stakt lag á fólki. Við áttum margar skemmtilegar stundir saman eins og í útskriftarferðinni, ýmsu tengdu skólanum og nemendafélaginu, og síðast en ekki síst í söguferðinni til Póllands og Þýskalands. En stund- um er lífið ekki eins sjálfsagt og maður oft heldur. Minningin um þennan einstaka mann mun lifa í hugum okkar sem hann þekktum. Kæri Pétur, hvíldu í friði. Þinn vinur, Ragnar Þorvarðarson. Elsku Pétur minn. Ótrúlegt að þurfa að trúa því að þú sért farinn. Þegar ég heyrði fréttina stóð ég máttlaus og horfði út í loftið. Ég vildi ekki trúa þessu. Ég vildi bara ekki trúa því að ég fengi ekki að heyra rödd þína, sjá andlit þitt og heyra þig syngja með okkur aftur. Þegar ég hugsa til baka þá rifjast upp endalausar minningar um þig, og okkur saman. Manstu þegar við keyrðum tvö saman upp í sum- arbústað að hitta alla hina krakk- ana? Það var alveg svartamyrkur úti og þú varst alltaf að stríða mér með því að slökkva ljósin á bílnum þínum þannig að það sást ekkert nema bara myrkrið. Ég gæti rifjað upp endalaust af minningum um þig sem ég mun geyma á öruggum stað í hjarta mínu. Þú tókst alltaf þátt í öllu og skipulagðir allt. Það var alltaf hægt að treysta á þig. Þegar ég hugsa um þig þá sé ég þig með gítarinn í höndunum og syngj- andi og brosandi til skiptis. Það eru svo sannarlega forréttindi að hafa fengið að þekkja þig öll þessi ár og hvað þá að hafa fengið að vera vin- kona þín. Algjörlega ómetanlegt. Þú áttir yndislega unnustu sem dáði þið og dýrkaði. Það sást langar leiðir hvað þið voruð ástfangin. Þið voruð svo hamingjusöm saman, þið Sirrý. Ég á eftir að sakna þín svo óeðli- lega mikið að engin orð fá því lýst. Okkur þótti alltaf svo vænt um hvort annað. Ég veit að þú ert á betri stað núna og að við munum hittast þar seinna. Pétur hefur kvatt okkur alltof ungur en allar minningarnar um yndislegan dreng, metnaðargjarnan og umfram allt góðan vin geymast að eilífu. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku besti Pétur minn. Hvíldu í friði, elsku vinur minn. Þín vinkona, Dagný. Nú er mér tregt tungu að hræra, kvað Egill Skallagrímsson þegar Böðvar sonur hans drukknaði í Breiðafirði. Ekki verða þessi orð skiljanlegri en þegar kærir vinir sjá á bak syni, unnusta, bróður og frænda. Pétur Benediktsson fórst í lífsins ólgusjó og okkur er öllum þungt fyrir hjarta. Í fornbókmenntum Íslendinga er víða tekist á við mikla sorg. Undir- tónninn er æðruleysi; í þeirri vissu að eitt sinn skal hver deyja. Í Hávamálum eru hin fleygu orð: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Þótt Pétur færi svo ungur gat hann sér orðstír. Hann var góður og samviskusamur drengur, elsk- aður af samferðamönnum sínum og fyrirmynd og vinur ungra drengja sem hann kenndi. Hörmulegt fráfall hans minnir okkur á, að við þurfum ævinlega að líta til hvert með öðru og ekki einu sinni það er nóg. Okk- ur ber í dagsins önn að hugsa hlýtt og rétta hönd kærleika og hjálpar, líka þeim sem aldrei virðast þurfa neina hjálp. Um leið og við biðjum þess að látnir öðlist ró biðjum við þeim líkn- ar sem lifa. Pétur átti marga að sem nú eiga um sárt að binda. Nú ríður á að samfélag okkar haldist áfram í hendur, þeim sterku tökum sem hafa verið svo aðdáunarverð síðustu daga. Guð leiði og styrki alla þá sem syrgja og þurfa nú á okkur öllum að halda. Megi hann líka styrkja okkur öll til þess að berjast fyrir því að hinir ungu fái betri byr í lífsins ólgusjó. Þar er hvert handtak mikils virði, stórt og smátt. Elsku vinir okkar, Benni, Guð- rún, Sirrý, Vignir, Sindri, Birta og öll stórfjölskyldan. Við vottum ykk- ur dýpstu samúð okkar. Megi Guð færa huggun harmi gegn og sýn fram á veginn. Guð blessi minningu Péturs Benediktssonar. Góða ferð kæri vinur, takk fyrir allt og allt. Samúel Örn, Ásta B., Hólm- fríður Ósk og Greta Mjöll. Til minningar um þig, Pétur. Takk fyrir allt Fegurðin er frá þér barst, fullvel þótti sanna, að yndið okkar allra varst, engill meðal manna. Sú besta gjöf er gafst þú mér, var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. (B.H.) Elsku Sirrý, Benedikt, Guðrún, Vignir, Sindri, Birta og aðrir að- standendur og vinir ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi guð gefa ykkur styrk. Elísabet Jónsdóttir. Elsku langafi minn, ég trúi varla að þú sért dáinn. Mig langaði rosalega að hitta þig áður en þú fórst um helgina. Þegar þú varðst áttræður kom ég í afmæl- isveislu til þín og spurði þig: „Hort ertu tuttu og himm eða áttatíu ára?“ Þá sagðir þú: „Ég er tuttugu og fimm!“ Alltaf þegar ég og Ragnar Ingvi bróðir komum í heimsókn til þín og langömmu voruð þið með góð- gæti. Líka oft þegar við komum, fór- um ég og Ragnar Ingvi út á svalir og niður tröppurnar og út í garð að hanga og leika okkur í þvottasnúr- unum. Síðan horfðir þú og amma oft á mig fara á handahlaupum og standa á höndum út í garði. Svo nótt- ina sem þú lést var ég hjá pabba og fór svo beint í skólann og þegar ég INGÓLFUR GEIRDAL ✝ Ingólfur G.Geirdal fæddist á Ísafirði 29. apríl 1915. Hann andaðist á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnar- firði 13. mars síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Graf- arvogskirkju 20. mars. kom heim sagði mamma „ Komiði að- eins, Ragnar Ingvi og Anetta“ og við komum og þá sagði hún „Ing- ólfur langafi er dáinn“ og ég varð mjög pirruð og fór að líða mjög illa og tárin láku niður. Okkur mömmu, Ragn- ari Ingva og mig lang- aði bara til að kveðja þig og vonandi líður þér vel uppi hjá Guði, hjá langömmu og allri fjölskyldu þinni. Þín Anetta Sigdís. Nýlátinn er á 91. aldursári mágur minn, Ingólfur Geirdal. Honum kynntist ég fyrst er ég giftist systur hans, Hjördísi í nóvember 1952. Var hann elstur þeirra systkinanna fæddur árið 1915. Móðir þeirra Vil- helmína Steina Pétursdóttir lést 25. desember 1939. Nokkrum árum síð- ar flutti fjölskyldan frá Ísafirði. Þá var Guðmundur Geirdal orðinn heilsuveill og má segja að mikil ábyrgð hafi fallið í hlut Ingólfs, sem þá var nýgiftur Svanhildi Vigfús- dóttur. Yngstu systur hans, þær Erna og Hjördís, voru þá enn á barnsaldri. Þetta voru án nokkurs efa erfið ár, en einhvern veginn gekk þetta allt og átti Ingólfur mikinn þátt í því. Ingólfur var meðalmaður á hæð, dökkhærður, fríður sýnum og bauð af sér góðan þokka. Víðsýnn var hann en gat verið fastur fyrir ef svo bar við. Ingólfur sótti nám í Kenn- araskólanum í Reykjavík og lauk þar námi. Kennsla varð síðan aðalstarf Ingólfs. Ingólfur bjó flest fullorðins- ár í Reykjavík en Vestfirðirnir og Vesturland voru honum ávallt kær. Fyrir allmörgum árum fórum við Ingólfur, Hjördís kona mín, Erna og Bragi Geirdal í nokkurra daga ferð um Vesturland og Ísafjarðardjúp. Fyrir undirritaðan sem þykist þekkja þetta svæði nokkuð vel, var samfylgdin með Ingólfi ógleyman- leg. Hann virtist þekkja til í flestum bæjum, einkum þegar komið var norðan Gilsfjarðar. Komið var að Kleifum í Gilsfirði, en þangað áttum við öll ættir okkar að rekja, Gauts- dal, þar sem Guðmundur faðir hans ólst upp, Laugabóli við Ísafjörð þar sem Halla föðursystir hans bjó í eina tíð og Hafnardal þaðan sem Vilhelm- ína Steina móðir systkinanna var ættuð. Ég kveð Ingólf mág minn fyrir hönd dætra minna og þeirra barna og sendi börnum og barnabörnum hans mínar bestu samúðarkveðjur. Guðmundur Áki Lúðvígsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.