Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 48

Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 48
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn SÝNIÐ SAMÚÐ Í VERKI ÉG SAGÐI BARA AÐ MÉR ÞÆTTI VÆNT UM HUNDA OG HANN HEFUR EKKI SLEPPT MÉR SÍÐAN MEINTIRÐU ÞAÐ? JÁ,AUÐVITAÐ HANN VAR AÐ HERÐA TAKIÐ AÐEINS HVAÐ EF MAMMA OG PABBI ERU BÚIN AÐ SELJA ALLT DÓTIÐ MITT? HVAÐ EF ÞAU ERU BÚIN AÐ LEIGJA HERBERGIÐ MITT? HVAÐ EF ÞAU ERU FLUTT? MARGT GETUR GERST Á EINUM MORGNI! MAMMA!!! ÞAÐ ER STÓR FOSS FRAM UNDAN, HRÓLFUR! HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA! OPNA ROMMIÐ SEM VIÐ ERUM BÚNIR AÐ SPARA OG STURTA ÞVÍ Í OKKUR HIÐ SNARASTA SEGÐU GUÐFÖÐURNUM AÐ LÚLLI GULLFISKUR SÉ Í DJÚPUM SKÍT FISKAMAFÍAN HÉRNA ER ÓSKALISTINN MINN HVAÐ ER „PUFFBUDDY“? LÍTIÐ SÆTT VÉLMENNI SEM GENGUR FYRIR RAFHLÖÐUM OG GEFUR ÖLLU SKRÍTIN GÆLUNÖFN ÉG SKIL, EN ÞAÐ ER EKKI VÍST AÐ ÞÚ FÁIR ALLT AF LISTANUM ERTU AÐ SEGJA MÉR AÐ ÉG FÁI EKKI „PUFF- BUDDY“! ÉG SAGÐI ÞAÐ EKKI! SVO ÞESSI LEIKKONA ER EIGINKONA ÞÍN JÁ! ÞÁ ER ÉG MEÐ VERKEFNI HANDA ÞÉR JÁ, ÉG SKAL NÁ MYNDUM AF HENNI ÞAÐ ER EKKI NÓG, ÉG VIL AÐ ÞÚ TAKIR VIÐTAL VIÐ HANA Dagbók Í dag er þriðjudagur 11. apríl, 101. dagur ársins 2006 Víkverji kaupir ímatinn á svo til hverjum degi. Yfirleitt gengur afgreiðslan við kassann hratt og örugglega fyrir sig en þó kemur fyrir að Vík- verji þarf að bíða í röð, einkum á álagstímum. Það er þó ekkert til að kveinka sér yfir. Þeg- ar röðin eða raðirnar eru teknar að lengjast úr hófi er að jafnaði opnaður nýr kassi og öll vitum við hvað ger- ist þegar starfsmað- urinn kallar „opið á kassa fjögur“. Æðisgengið kapp- hlaup brestur á. Lögmálið fyrstur kemur, fyrstur fær er nefnilega í gildi. Og oftar en ekki fara þeir sem eru aftast í hinni röðinni eða röð- unum með sigur af hólmi. Eftir standa þeir sem beðið hafa lengst og hrista höfuðið. Þetta hefur Víkverji upplifað í óteljandi skipti og var raunar löngu hættur að velta fyrir sér þeim mögu- leika að annað gæti gerst. Þar til á dögunum. Víkverji var þá staddur í nokkuð langri röð í matvöruverslun þegar nýr kassi var opnaður. Um leið og það var tilkynnt hugsuðu menn sér til hreyfings en voru stöðv- aðir í rásblokkunum af manni sem stóð í miðri röðinni. Hann tók af skarið með óvæntum hætti. „Bíðið við. Ert þú ekki búinn að bíða lengst?“ spurði hann og benti á Víkverja sem kinkaði agndofa kolli. „Þá ferð þú fyrst.“ Víkverji trúði hvorki augum sínum né eyrum. En beið ekki boðanna. Færði sig yfir á nýja kassann og gerði upp. Þakkaði manninum auð- mjúklega fyrir hans framtak. Hefur raunar velt því fyrir sér síðan hvort hann hafi verið þessa heims eða ann- ars. Að öllu gríni slepptu var inngrip þessa ókunnuga manns vitaskuld til eftirbreytni. Í því fólst skynsemi. Réttlætinu var fullnægt við að- stæður þar sem frumskógarlögmálið ríkir. Það hefur fært Víkverja heim sanninn um það að ýmislegt er hægt ef viljinn og samstaðan eru fyrir hendi. Hann hvetur því lesendur til að bregðast við með sama hætti og ókunnugi maðurinn næst þegar þeir lenda í samskonar aðstöðu í kjörbúð. Það mun hann hiklaust gera sjálfur. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       London | Bandaríski listamaðurinn Jenny Holzer virðir hér fyrir sér texta- verk sem hún hefur varpað á ráðhús Lundúnaborgar. Textinn er eftir leik- skáldið fræga, Samuel Beckett, en um þessar mundir er þess minnst að hundrað ár eru síðan hann fæddist og hefur verið efnt til hátíðarhalda í Barb- ican menningarmiðstöðinni af því tilefni. Reuters Becketts minnst í London MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið, og þér munuð öðlast, svo að fögnuður yðar verði fullkominn. (Jóh. 16, 24.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.