Morgunblaðið - 11.04.2006, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 49
DAGBÓK
Einar Guðbjartsson, dósent við Við-skipta- og hagfræðideild HÍ, heldur ámorgun fyrirlestur í stofu 101 í Odda.Óefnislegar eignir í efnahagsreikningi
er viðfangsefni fyrirlestrarins: „Sú þróun hefur
átt sér stað á hinum almenna hlutabréfamarkaði,
bæði hér á landi og erlendis, að við stækkun og
sameiningu eru fyrirtæki keypt á hærra verði en
bókfært verð þeirra er samkvæmt ársreikningi.
Við þetta myndast svokölluð óefnisleg eign,“ segir
Einar. „Miklu erfiðara er að setja verðmiða á
óefnislegar eignir en efnislegar, en óefnislegar
eignir geta m.a. verið hugvit, vörumerki, við-
skiptasambönd og tækniþekking. Slíkar eignir
eru mun viðkvæmari í reikningsskilum en efnis-
legar.“
Einar segir að frá árinu 1990 hafi óefnislegar
eignir orðið æ stærra og stærra hlutfall af heildar
efnahagsreikningi fyrirtækja: „Sem dæmi má
nefna að í árslok 2001 voru óefnislegar eignir fyr-
irtækisins America Online 84% á móti 16% efnis-
legum eignum og hjá mörgum íslenskum útrás-
arfyrirtækjum á hlutabréfamarkaði eru
óefnislegar eignir orðnar þó nokkuð stór hluti af
efnahagsreikningi. Þessi þróun hefur haldið stöð-
ugt áfram og fjallað sérstaklega um þennan þátt í
nýjum alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Óefn-
islegar eignir eru þannig ekki afskrifaðar eins og
efnislegir fastafjármunir heldur er gert virð-
isrýrnunarpróf að lágmarki einu sinni á ári. Ef
óefnislegu eignirnar skapa jafnmikið af tekjum og
ráð var gert fyrir verður engin virðisrýrnun og
þar af leiðandi engin gjaldfærsla. Hins vegar, ef
óefnislegu eignirnar reynast ekki eins mikils virði
og talið var þegar kaup áttu sér stað þarf, til við-
bótar við minnkaðar tekjur, að gjaldfæra virð-
isrýrnun óefnislegu eignanna og því leggst kostn-
aður á af tvöföldum þunga í efnahagsreikning
fyrirtækisins þegar illa árar. Virðisrýrnunarpróf
kemur í staðinn fyrir hina hefðbundnu afskrift-
argjaldfærslu. Fræðimenn eru ekki á einu máli
um það hvort virðisrýrnunarprófið gefur gleggri
mynd af rekstri og efnahag viðkomandi félags.“
Sem dæmi nefnir Einar gjaldfærslu American
Online í ársbyrjun 2002: „Þá gjaldfærði fyrirtækið
54,2 milljarða dollara vegna virðisrýrnunar sem
hlaust af því að samlegðaráhrif við Time Warner
samsteypuna höfðu ekki í för með sér þau tæki-
færi sem búist hafði verið við. Þetta var stærsta
tap eins fyrirtækis á einum ársfjórðungi banda-
rískum hlutabréfamarkaði frá upphafi og um gríð-
arlegar fjárhæðir að ræða. Þó varð ekkert „fjár-
hagslegt“ tap fyrir fyrirtækið sjálft og það gat
starfað áfram með sama hætti, en kostnaðurinn
féll að mestu leyti á hluthafa, þar sem kaupin áttu
sér stað með hlutabréfaviðskiptum.“
Fyrirlestur Einars hefst kl. 12.20. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Hagfræði | Fyrirlestur í Háskóla Íslands um reikningsskilastaðla og áhrif óefnislegra eigna
Óefnislegar eignir í efnahagsreikningi
Einar Guðbjartsson
fæddist í Reykjavík
1958. Hann lauk stúd-
entsprófi frá FÁ 1981.
Þá vann hann við end-
urskoðun og lauk
grunnnámi frá Við-
skiptaháskólanum í
Gautaborg og árið 1998
Ek. Lic gráðu. Nú vinnur
hann að doktorsritgerð
við sama skóla. Einar
sat í reikningsskilaráði frá 2002 til 2005 og
var formaður þýðingarnefndar vegna innleið-
ingar alþjóðlegu reikningsskilastaðlanna. Frá
2000 hefur Einar starfað sem dósent við við-
skipta- og hagfræðideild HÍ. Einar er kvæntur
Vilborgu Eiríksdóttur, þroskaþjálfa og leið-
sögumanni, og eiga þau þrjú börn.
Kaplan og Kay.
Norður
♠D1063
♥Á763 S/Allir
♦K7
♣875
Vestur Austur
♠KG ♠4
♥DG5 ♥K1082
♦ÁDG4D1043 ♦10962
♣ ♣9632
Suður
♠Á98752
♥94
♦85
♣ÁKG
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 spaði
1 grand Dobl Pass Pass
2 tíglar 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
„K-in tvö“ voru þeir kallaðir, Edgar
Kaplan (1925–1998) og Norman Kay
(1927–2002), enda samherjar við brids-
borðið í tæplega hálfa öld. Spilið að of-
an er frá Reisinger-keppninni 1966 og
sýnir næma samvinnu þeirra í vörn-
inni.
Kaplan var í vestur og kom út með
hjartadrottningu gegn fjórum spöðum.
Sagnhafi dúkkaði, en Kay yfirdrap
með kóng til að skipta yfir í lauf. Þessi
einfaldi leikur reyndist nauðsynlegur
til að fyrirbyggja innkast á vestur í lok-
in.
Suður stakk upp á laufás og spilaði
strax tígli. Og nú var það Kaplan sem
var á tánum – lét gosann. Kóngur
blinds átti slaginn og Kay setti tíuna
undir til að sýna níuna.
Sagnhafi tók á hjartaás og trompaði
hjarta. Spilaði svo tíguláttu að heiman.
En Kaplan lét lítinn tígul hiklaust og
Kay komst inn á níuna. Hann spilaði
laufi og gerði vonir sagnhafa um inn-
kast að engu.
Sagnhafi spilaði vel: Hann vissi að
vestur átti trompkónginn og hugðist
senda hann þar inn á viðkæmum tíma-
punkti til að spila laufi upp í gaffalinn
eða tígli í tvöfalda eyðu. Og það hefði
tekist ef vörnin hefði ekki gjörnýtt inn-
komur austurs til að spila laufinu tvisv-
ar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rf3 Be7 8.
Bc4 0–0 9. 0–0 Rc6 10. h3 b5 11. Bb3
Ra5 12. Bg5 Rxb3 13. axb3 Bb7 14.
Bxf6 Bxf6 15. Rd5 g6 16. Dd3 Bg7 17.
c4 bxc4 18. bxc4 f5 19. Hfe1 Kh8 20.
Had1 fxe4 21. Hxe4 a5 22. Hg4 Bc8
23. Hg3 Bf5 24. Da3 Hf7 25. Rg5 Hd7
26. Re3 De8 27. Hxd6 e4 28. Rxf5
gxf5 29. Re6 Be5 30. Dc5 Bxb2
Staðan kom upp á afar öflugu skák-
móti sem fram fór í Poikovsky í Rúss-
landi fyrir skömmu.
Sigurvegari mótsins, Alexei Shirov
(2.709) sem teflir fyrir Spán hafði
hvítt gegn félaga sínum Viktor Bolog-
an (2.661) frá Moldavíu. 31. Db5! og
svartur gafst upp þar sem hvítur hót-
ar biskupnum á b2 og hróknum á d7.
Svartur yrði mát eftir 31. … Hxd6 32.
Dxb2+.
Lokastaða mótsins varð þessi: 1.
Alexei Shirov (2.709) 6 vinninga af 9
mögulegum. 2.–5. Ruslan Ponomarjov
(2.723), Vadim Zvjaginsev (2.664),
Alexey Dreev (2.697) og Evgeny Ba-
reev (2.698) 5 v. 6.–7. Ivan Sokolov
(2.689) og Evgeny Najer (2.652) 4½ v.
8. Sergei Rublevsky (2.665) 4 v. 9. Al-
exander Onischuk (2.650) 3½ v. 10.
Viktor Bologan (2.661) 2½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Til hamingju, Selfoss!
ÞEGAR við óskum einhverjum til
hamingju er það yfirleitt vegna ein-
hverra tímamóta:
Ég fór inn á heimasíðu Morg-
unblaðsins nýlega og sá frétt um að
Selfyssingar hefðu hætt við bygg-
ingu 16 hæða turna í miðbænum. Það
er alveg tilefni til að óska heima-
mönnum til hamingju.
Ég þekki reyndar ekki forsendur
þess að horfið var frá þessari fram-
kvæmd, en ég vona bara að Selfyss-
ingar verði þeirrar gæfu aðnjótandi
að velja þá hönnun sem fellur sem
best að veðurfari og landslagi.
Bærinn hefur af mörgu að státa og
ekki síst grósku í gróðri sem býr til
skjól fyrir veðri og vindum. Því hefði
verið sorglegt að sjá skjólinu kastað
á glæ með byggingu þessara háhýsa.
Það er margsannað mál að míkró-
veður frá svona háum byggingum
eru umtalsverð. Hvernig miðbæj-
arstemning hefði myndast með 16
hæða háhýsi sem magna upp vind-
inn? Sem jú nóg er af fyrir.
Oddný Guðmundsdóttir, nemandi í
Umhverfisskipulagi við LBHÍ.
Vilja ráðherrarnir „okkar“
ekki tala við okkur?
NÚ fyrir þremur vikum hringdi ég í
menntamálaráðuneytið og átti miður
skemmtilegt samtal við ritara ráð-
herra. Erindi mitt var það að nýta
rétt minn og panta viðtal við ráð-
herra.
Ritari reyndi þá margar aðferðir
til að fá mig ofan af því að tala við
Þorgerði en ég stóð fast á mínu. Rit-
arann lét loks undan með orðunum
„jæja þá!“ Ritarinn tók loks niður
nafn og símanúmer og sagði að haft
yrði samband við mig.
Ég spurði kurteislega hve langt
gæti orðið í viðtalið og þá hvenær
dagsins væri líklegast að það yrði.
Ritarinn gat engan veginn svarað
því.
Nú þremur vikum síðar get ég
hreinlega ekki orða bundist. Með
einföldu bókunarkerfi væri lítið mál
fyrir ritara ráðherra að bóka ein-
staklinga í viðtal hjá ráðherra á
ákveðnum degi og á ákveðnum við-
talstíma.
Við eigum jú öll rétt á að tala við
ráðherra. Þetta eru jú „okkar“ ráð-
herrar.
Það er ekki biðin sem fer mest í
taugarnar á mér heldur þessi óvissa.
Það að vita ekki fullkomlega hvort af
viðtalinu verði og þá hvenær.
Vonarneisti kviknar hjá mér í
hvert skipti sem síminn minn byrjar
að hringja og ég spyr mig „Er þetta
frá ráðuneytinu?“
Vilja ráðherrarnir kannski alls
ekki tala við okkur? Vilja þeir ekki
heyra okkar skoðanir? Eru viðtals-
pantanirnar bara látnar fyrnast á
skrifborði ritara?
Ja, ég bara spyr.
Róbert Birtingur.
Svartur köttur
týndist frá Mosgerði
SVARTUR köttur, 1 árs fress, týnd-
ist frá Mosgerði 9, 26. mars sl. Hann
er ógeltur, ómerktur og ólarlaus.
Fólk er beðið um að athuga bíl-
skúra og geymslur í hverfinu. Hans
er sárt saknað. Þeir sem verða hans
varir eru vinsamlega beðnir að hafa
samband við Brynju í síma 616 2615.
Köttur í óskilum
í Seljahverfi
HVÍTUR og gulbröndóttur köttur
með frekar langa gulbröndótta rófu
er í óskilum í Seljahverfi. Hann
fannst mjög svangur 29. mars sl. við
Strýtusel í Breiðholti. Hann er 6 til 8
mánaða gamall, ógeltur með bláa
hálsól en ómerktur. Upplýsingar gef-
ur Sigríður í síma 557 6003.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fréttasíminn 904 1100
Í KVÖLD klukkan 20 verður 60.
Skáldaspírukvöldið haldið í Iðu.
Ösp Viggósdóttir les upp úr verk-
um sínum, einkum upp úr nýjustu
bók sinni Hjartahreinir ævidagar
Úlfs og kynnir útgáfu sína.
Aðgangur er ókeypis, gestir
mega taka með sér hressingu frá
annarri hæðinni.
60. Skáldaspíru-
kvöldið í Iðu
UM PÁSKANA verður opnunartím-
inn í galleríinu Suðsuðvestur í
Keflavík lengri en alla jafna. Sýn-
ing Eyglóar Harðardóttur stendur
nú yfir þar en hún ber titilinn Spá-
dómar og snilligáfa.
Opið verður sem hér segir: skír-
dag, föstudaginn langa, laugardag
og páskadag frá 14–17. Nánari upp-
lýsingar fást á www.sudsudvest-
ur.is
Eygló í
Suðsuðvestur
Eygló Harðardóttir sýnir nú í Suðsuðvestur í Keflavík.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
EcoGreen Multi
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Vítamín, steinefniog jurtir
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Orkubomba og hreinsun
www.nowfoods.com