Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ Það kann að vera óþægilegt aðhorfast í augu við þá stað-reynd að eitt helsta musteri fræðanna á Íslandi, Þjóðarbók- hlaðan, skuli ekki standa betur und- ir væntingum fræðimanna en raun ber vitni. Auðvitað er þar til glás af góðum bókum – en samt sem áður ekki nándar nærri nóg. Það er töluvert áfall fyrir flesta þá er stundað hafa nám eða rann- sóknir erlendis að koma heim og líta við í Þjóðarbókhlöðunni; hvað þá að eiga að reiða sig á bókakostinn sem þar er til að mynda við kennslu. Augljóst er að ekki er til nægilegt fjármagn til að kaupa inn þau grundvallarrit sem þar eiga heima, hvað þá bækur sem eru sértækari í efnistökum sínum og umfjöllunar- efnum.    Að sjálfsögðu koma margvíslegirmöguleikar til efnisöflunar og heimildaleitar til greina við rann- sóknar- og skólastarf á háskólastigi – hægt er að fá bækur lánaðar úr bókasöfnum erlendis, komast í greinasöfn í gegnum gagnabanka, nota netið o.s.frv. En það breytir ekki þeirri staðreynd að allur sá stóri hópur fólks sem er að mennta sig í vísindum af ýmsu tagi sem ekki tilheyra beinlínis sértækum þjóð- ararfi okkar sjálfra, þurfa iðulega að sætta sig við mun rýrara úrval bóka á sínu sviði en nemendur í sambærilegu námi í frambærilegum háskólum nágrannalanda. Fram á síðustu ár hafa sam- tímafræði ekki verið sérlega að- gengileg fyrir íslenska nemendur á háskólastigi, nema á erlendum tungumálum. Fræðibókaútgáfa, sem beinlínis er ætluð fræða- samfélaginu frekar en áhugasömum leikmönnum, hefur að sama skapi verið fremur tilviljanakennd vegna þess hversu lítið hefur verið þýtt af slíkum ritum yfir á íslensku. Það er þó langt frá því að ekki gæti viðleitni til að breyta þessu eins og Hákskólaútgáfan og fram- tak ReykjavíkurAkademínunnar í Atviksbókaröðinni er til vitnis um. En betur má ef duga skal. Auðvitað mælir ekkert gegn því að fræðimenn lesi slík rit á erlend- um tungum. En hættan hlýtur óneit- anlega að vera sú að helstu hugtök og orðfæri hugmyndafræðinnar nái aldrei því flugi á íslenskri tungu sem æskilegt er. Að jafnvel hinum innvígðu fari að finnast umræðan framandleg og heftandi á móð- urmálinu.    Í ljósi þess hversu mikið þarf aðbæta bókakost Landsbókasafns- ins í Þjóðarbókhlöðunni eru fréttir af afdrifum bókakosts Goethe- Zentrum nú nýverið undarlegar. Ef marka má orð Stefánie Hontscha, menningarfulltrúa á Íslandi fyrir þýska menningarsetrið Goethe- stofnun, í Morgunblaðinu 1. apríl sl. er Goethe-stofnunin ekki sátt við þá ráðstöfun að bækur Goethe- Zentrum endi í bókasafni Hafn- arfjarðar, en ekki í Landsbókasafni Íslands í Þjóðarbókhlöðunni. Enn undarlegri virðist sú ákvörðun þeg- ar horft er til þess að talsmaður þeirra er ráðstafa bókunum er Oddný G. Sverrisdóttir, dósent í þýsku og deildarforseti heim- spekideildar Háskóla Íslands. Að hennar sögn „réð það úrslitum í ákvörðun hollvinafélagsins [sem rak Goethe-Zentrum] að í Hafn- arfirði verði allar bækurnar saman sem heild, í stað þess að tvístrast á milli ólíkra hæða, eins og tilfellið hefði orðið hefðu bækurnar farið á Landsbókasafnið“. Um er að ræða á milli 6 og 7 þús- und bækur, sem augljóslega er mestur fengur í fyrir fræðimenn og nemendur á sviði þýskra fræða. Lík- lega starfa allir þeir sem mest not hafa af þessum bókakosti í Háskóla Íslands – steinsnar frá Þjóð- arbókhlöðunni. Jafnvel þótt bæk- urnar hefðu „tvístrast á milli ólíkra hæða“ þar og menn þurft að rölta á um húsið er erfitt að sjá hagræðið í því að fara alla leið í Hafnarfjörð eftir bókunum – hálftíma akstur í burtu. Þjóðarbókhlaðan er auk- inheldur það bókasafn á Íslandi sem mesta reynslu hefur í því að taka við slíkum gjöfum og koma þeim sem allra fyrst í notkun – og hefur þar að auki mun rýmri opnunartíma en söfn á borð við Bókasafn Hafn- arfjarðar eða önnur lítil söfn af sama tagi. Það eina sem getur réttlætt þessa ráðstöfun bókanna til Hafn- arfjarðar, að mínu mati, er ef bóka- kostur Landsbókasafnsins á þessu sviði er með þvílíkum ágætum að þar sé hreinlega engu við að bæta. Getur það hugsast? Ef svo er ekki virðist sem í þessu tilfelli hafi verið gengið framhjá hagsmunum nemenda, kennara og fræðasamfélags hugvísindadeildar Háskóla Íslands. Musteri fræðanna fátæklegt? ’Það eina sem getur rétt-lætt þessa ráðstöfun bók- anna til Hafnarfjarðar, að mínu mati, er ef bóka- kostur Landsbókasafns- ins á þessu sviði er með þvílíkum ágætum að þar sé hreinlega engu við að bæta. Getur það hugs- ast?‘ Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson fbi@mbl.is AF LISTUM Fríða Björk Ingvarsdóttir Í KVÖLD kl. 20 og laugardaginn 15. apríl kl. 16 (laugardagur fyrir páska) verður sýnd myndin Sommaren med Monika frá árinu 1953 í leikstjórn Ingmar Bergman. Hún fjallar á afar óvenjulegan hátt um ástarsamband unglinganna Harry sem er 19 ára og Moniku 17 ára. Það er allt á móti þeim. Harry þolir ekki vinnuna, rífst við yfirmanninn og er rekinn. Monika rífst við pabba sinn og hleypur að heiman. Harry hefur lítinn bát til um- ráða og þau ákveða að sigla inn í skerjagarðinn og búa í bátnum í nokkrar vikur. Í byrjun er mikil róm- antík en svo steðja erfiðleikarnir að. Aðalleikarar eru Harriet Anderson og Lars Ekborg. Myndin er einhver besta tilraun leikstjóra til að sýna unglingsár á raunsæjan hátt. Kvikmyndasýningar Kvikmynda- safns Íslands eru í Bæjarbíói, Strand- götu 6, Hafnarfirði alla þriðjudaga kl. 20 og laugardaga kl. 16. Bergman í Kvikmyndasafni Íslands MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200 MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17 W.LEIKFELWW AG.IS ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS MIÐASALA OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN Á NETINU. Litla hryllingsbúðin – tryggðu þér miða! Mið 12/4 kl. 19 UPPSELT Mið 12/4 kl. 22 AUKASÝN UPPSELT Fim 13/4 kl. 19 UPPSELT Fim 13/4 kl. 22 AUKASÝN UPPSELT Lau 15/4 kl. 19 UPPSELT Lau 15/4 kl. 22 AUKASÝN UPPSELT Mið 19/4 kl. 20 síðasti vetrard. UPPSELT Fim 20/4 kl. 20 sumard. fyrsti Örfá sæti laus Fös 21/4 kl. 19 UPPSELT Lau 22/4 kl. 19 UPPSELT lau 22/4 kl. 22 AUKASÝN Örfá sæti laus sun 23/4 kl. 16 AUKASÝN í sölu núna sun 23/4 kl. 20 nokkur sæti laus fim 27/4 kl. 20 AUKASÝN í sölu núna fös 28/4 kl. 19 Örfá sæti laus Lau 29/4 kl. 19 UPPSELT Lau 29/4 kl. 22 AUKASÝN UPPSELT Næstu sýn: 4/5 (aukasýn), 5/5, 6/5 - síðustu sýn! Ath: Ósóttar miðapantanir seldar daglega! Maríubjallan – sýnd í Rýminu Þri 11/4 kl. 20 AUKASÝN. síðasta sýning Stóra svið RONJA RÆNINGJADÓTTIR Su 23/4 kl. 14 UPPS. Su 23/4 kl. 17:30 Lau 29/4 kl. 14 Su 30/4 kl. 14 Lau 6/5 kl. 14 Su 7/5 kl. 14 Lau 20/5 kl 14 Su 21/5 kl. 14 Su 28/5 kl. 14 ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA KALLI Á ÞAKINU Fi 13/4 kl. 14 skírdagur UPPSELT Lau 15/4 kl. 14 UPPSELT Má 17/4 kl. 14 annar í páskum UPPSELT Fi 20/4 kl. 14, sumard. fyrsti UPPSELT Fi 20/4 kl. 17, sumard. fyrsti AUKASÝNING Lau 22/4 kl. 14 UPPSELT FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP Su 30/4 kl. 20 UPPS. Má 1/5 kl. 20 UPPS. Þri 2/5 kl. 20 UPPS. Mi 3/5 kl. 20 UPPS. Su 7/5 kl. 20 UPPS. Má 8/5 kl. 20 UPPS. Þr 9/5 kl. 20 UPPS. Mi 10/5 kl. 20 AUKAS. Fi 18/5 kl. 20 UPPS. Fö 19/5 kl. 20 UPPS. Fö 19/5 kl. 22:30 UPPS Su 21/5 kl. 20 UPPS Fi 25/5 kl. 20 AUKAS Fö 26/5 kl. 20 UPPS. Fö 26/5 kl. 22:30 Su 28/5 kl. 20 UPPS Fi 1/6 kl. 20 UPPS. Fö 2/6 kl. 20 Fö 2/6 kl. 22:30 AUKASÝNING VORSÝNING 2006 Listdansskóli Íslands Í kvöld kl . 20 Mi 12/4 kl. 20 Nýja svið / Litla svið BELGÍSKA KONGÓ Fi 20/4 kl. 20 Fö 21/4 kl. 20 Lau 29/4 kl. 20 Lau 6/5 kl. 20 Su 7/5 kl. 20 Su 14/5 kl. 20 Fi 18/5 kl. 20 Mi 24/5 kl. 20 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 27/4 kl. 20 AUKASÝNING Su 30/4 kl 20 AUKASÝNING ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR Í REYKJAVÍK HUNGUR Fi 4/5 kl. 20 Su 7/5 kl. 20 NAGLINN Fö 28/4 kl. 20 Lau 29/4 kl. 20 Fö 19/5 kl. 20 Su 21/5 kl. 20 GLÆPUR GEGN DISKÓINU Lau 22/4 kl. 20 Fö 28/4 kl. 20 Fö 5/5 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR FORÐIST OKKUR Fi 20/4 kl. 20 Fö 21/4 kl. 20 Lau 22/4 kl. 20 Su 23/4 kl. 20 AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR! DANSleikhúsið Í kvöld kl. 20 Mi 19/4 kl. 20 Su 23/4 KL. 20 TENÓRINN Su 30/4 kl. 20 Lau 6/5 kl. 20                                                   !"    !"   $  !"   %& !"    %& !"                         ! Hugleikur sýnir Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu við Hlemm Miðvikud. 12. apríl - frumsýning Mánud. 17. apríl Föstud. 21. apríl Laugard. 22. apríl Laugard. 29. apríl Sunnud. 7. maí Aðeins þessar sýningar Sýningar hefjast kl. 20.00. Miðapantanir í síma 551 2525 eða midasala@hugleikur.is . Fréttasíminn 904 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.