Morgunblaðið - 11.04.2006, Page 54

Morgunblaðið - 11.04.2006, Page 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÞÉR MUN STANDA AF HLÁTRI! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 6 Date Movie kl. 8 og 10 B.i. 14 ára N ý t t í b í ó Ice Age 2 m/ensku tali kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Ice Age 2 m/ensku tali í Lúxus kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 2, 4, 6 og 8 Date Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára Big Momma´s House 2 kl.1.30, 3.40, 5.45, 8 og 10.15 Pink Panther kl. 1.30, 3.50 og 10.10 RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR „FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN... OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM Sýnd með íslensku og ensku tali eee LIB, Topp5.is 13.000 manns á aðeins 4 dögum! Stærsta opnun á teiknimynd frá upphafi á Íslandi! www.xy.is Frá Grínsnillingnum Mel Brooks!! FRÁ ÖLLUM HANDRITS-HÖFUNDUM „SCARY MOVIE“ 2 af 6 Rúnar Júlíusson hefur víða komið við ítónlist og er ekkert að slá af, gefur út ívikunni nýja plötu, þá 68. sem hannkemur að. Platan nýja heitir Nostalgía og Geimsteinn gefur út að vanda. Rúnar segir að platan sé fyrst og fremst aft- urhvarf til fortíðar, hann hafi ætlað sér að segja sögu áranna frá því hann var sjö ára til sautján er hann ánetjaðist tónlistinni af fullum krafti. „Þetta eru þau lög sem rísa hæst í minningunni, tengd minningabrotum úr mínu lífi, lög eins og Söngur villiandarinnar, Heimþrá, Hreðavatnsvalsinn og Draumur fangans til dæmis, tónar úr eldhúsi minninganna,“ segir Rúnar og bætir við að hann hafi síðan fengið Einar Má Guðmundsson til þess að vera með hugleiðingu um það þegar farið er aft- ur í tímann að leita minninga. Íslensk sönglög íslenskra höfunda Rúnar hefur verið að líta um öxl á síðustu tveim plötum sínum, til að mynda var síðasta plata hans á undan Nostalgíu, Blæbrigði lífsins, tileinkuð for- eldrum hans. „Mig langaði líka til að sýna að áhrif- in hafi ekki bara komið að utan,“ segir hann, en lögin á Nostalgíu eru öll íslensk sönglög íslenskra höfunda. „Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að áhrifin liggja dýpra, ég heyrði ekki tónlist í fyrsta sinn er ég heyrði í Little Richard,“ segir hann. Síðstu ár hefur Rúnar rekið hljómsveit með sonum sínum og þeir hafa einnig lagt honum lið á plötum. Því er þó öðruvísi farið að þessu sinni því aðstoðarmenn Rúnars á Nostalgíu eru þeir Guð- mundur Pétursson, Sigurður Guðmundsson, Birg- ir Baldursson og Þórður Högnason, „og svo syng ég þessi lög með mínu nefi,“ segir Rúnar og kímir. Rúnar segir að platan hafi verið unnin hratt, lög og textar fá að njóta sín og ekki mikið um aukatök- ur. „Þetta er mjög einfalt, ég vildi leggja áherslu á það hvað væri spunnið í lögin og textann,“ segir hann. Undanfarið hefur hann síðan spilað þessi lög með hljómsveit sinni, Rokksveit Rúnars Júl- íussonar, og þá eru lögin í nokkuð öðrum búningi, sem vonlegt er, enda sveitin aðeins þriggja manna, en að sögn Rúnars hefur gengið vel að spila þessar gömlu söngperlur fyrir fólk. Geimsteinn í 30 ár Útgáfan hans Rúnars, Geimsteinn, er eldri en tíðkast með plötuútgáfur, í það minnsta hér heima, en hún verður þrjátíu ára á árinu og gam- an að geta þess að Nostalgía er með útgáfunúm- erið GSCD 222. Rúnar er þegar búinn að halda upp á afmælið, var með hátíðartónleika í Borg- arleikhúsinu fyrir jól. „Ég er ekki svo mikill markaðs-,búskapar- og áætlanamaður að ég geti sagt það hér og nú hvað ég ætla að gera til að halda upp á afmælið, en það verður eitthvað,“ seg- ir hann og bendir á að líta megi á Nostalgíu sem fyrsta innlegg í afmælishátíðina. Geimsteinn rekur hljóðver heima hjá Rúnari, en hann talar reyndar aldrei um stúdíó eða hljóð- ver, segir alltaf upptökuheimilið, enda sé andinn þar þannig að þetta sé líkara heimili en vinnustað. „Það er mikið um að vera þar núna, búið að vera mjög mikið að gera, og þegar þessir krakkar eru að taka upp er ég oft á staðnum, en það er líka mikið af gömlu græjum á staðnum sem fólki finnst spennandi, mikið plötusafn og mikið af bókum og tímaritum um tónlist.“ Áhrifin ekki bara að utan Rúnar Júlíusson sendir í vik- unni frá sér plötuna Nostalgíu þar sem hann rifjar upp sönglög æsku sinnar. Árni Matthíasson ræddi við hann af þessu tilefni. Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Rúnar og synir hans, þeir Baldur og Júlíus Guðmundssynir. G. Rúnar Júlíusson 12 ára og Júlíus Valgeirsson. arnim@mbl.is Stjarnan úr þáttaröðinni Malcolmin the Middle, Frankie Muniz, ætlar að leggja leiklistina á hilluna næstu tvö árin til að helga sig kapp- akstri. Hinn tví- tugi leikari, sem hefur leikið séníið Malcolm í þátta- röðinni síðan hann var tólf ára, segir að tími sé kominn til að taka sér hlé frá leik- listinni til að elta draum sinn um að aka kappakst- ursbílum. „Það er ekki hægt að gera bæði í einu því þá fær maður ekki nógan tíma í bílnum,“ sagði Muniz. En hann ætlar að snúa aftur að leiklist- inni sem fullorðinn leikari. „Ég held að það verði auðveldara fyrir mig að hverfa frá um stund og koma svo aft- ur þegar ég er 23 eða 24 ára og byrja upp á nýtt í leiklistinni sem fullorð- inn,“ sagði Muniz. Fox hefur ákveðið að framleiða ekki fleiri þætti af Malcolm þar sem áhorfendum hefur fækkað.    Eiginkona Pauls McCartney,Heather Mills, þurfti nýlega að gangast undir aðgerð á fæti og er nú í hjólastól. Mills er 38 ára gömul fyrrum fyrirsæta en hún lenti í mótorhjólaslysi 1993 og missti neðan af fæti. Nú var verið að græða vef á bein- stúfinn á nýjan leik. Mills hafði frestað þessari aðgerð, en var orðin svo þjökuð af sársauka að hún varð að láta verða af henni og hvílist nú á heimili sínu með sir Paul og ungri dóttur þeirra Beatrice. Mun hún þurfa að vera í hjólastól næsta mán- uðinn og trúlegast á hækjum eitt- hvað eftir það. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.