Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ENSKA hljómsveitin I’m Being Go-
od er væntanleg til landsins en hún
hyggst spila á fimm tónleikum hér á
landi frá 13. til 18. apríl.
I’m Being Good er frá strand-
bænum Brighton og hefur starfað í
ýmsum myndum í ellefu ár. Breið-
skífur þeirra eru þrjár talsins og
hafa þær allar nema sú nýjasta,
Family Snaps, komið út á útgáfu
þeirra Infinite Chug. Núverandi
meðlimaskipan er Andrew Clare
(gítar og rödd), Tom Barnes (gítar),
Dave Evan Campell (trommur) og
Stuart O’Hare (bassi). I’m Being
Good geta stoltir skipað sér í hóp
með framsæknari jaðarböndum
Breta og meðal aðdáenda sveit-
arinnar var útvarpsmaðurinn John
heitinn Peel sem bauð þeim nokkr-
um sinnum í hinar annáluðu Peel
Sessions.
I’m Being Good hafa túrað með
og deilt sviði með virtum nöfnum úr
jaðargeiranum og má m.a. nefna
Trumans Water, Mogwai, Melt Ban-
ana, North of America, Dianogah,
Deerhoof, Oxes, Fuck, Young
People, Sleater-Kinney og fleiri.
Meðlimir I’m Being Good hafa í hjá-
verkum unnið með tónlistarmönnum
á borð við Thurston Moore (Sonic
Youth), Derek Bailey (lærifaðir Jim
O’ Rourke (Sonic Youth, Wilco)),
Jad Fair (Half Japanese o.fl.) og Jer
Reid (Dawson).
Tónleikadagskráin
13. apríl – Tónlistarþróun-
armiðstöðin, Hólmaslóð 2
14. apríl – Grand Rokk
15. apríl – Edinborgarhúsið, Ísa-
firði (Aldrei fór ég suður)
17. apríl – Gamla Bókasafnið,
Hafnarfirði
18. apríl – Frumleikhúsið,
Keflavík
Tónlist | Hljómsveitin I’m Being Good með tónleikaröð á Íslandi
Hljómsveitin I’m Being Good í Bláa lóninu.
www.myspace.com/imbeinggood
www.imbeinggood.com
www.jonsonfamily.com
Páskarokk
Í TILEFNI þess að glænýr íslensk-
ur tónlistarþáttur er farinn í loftið
á sjónvarpsstöðinni Sirkusi var
efnt til veislu á Kaffibarnum á
laugardagskvöldið. Þátturinn ber
nafnið Bak við böndin og eru um-
sjónarmenn hans Ellen og Erna en
þær eru þekktar fyrir að hafa
starfað sem plötusnúðatvíeyki.
Þær ætla að taka fyrir fjölbreytt
tónlistarfólk í þáttunum, í þeim
fyrsta var Gus Gus til umfjöllunar
en í þætti vikunnar verður
skyggnst inn í líf Ampops.
Morgunblaðið/Eggert
Kjartan F. Ólafsson er meðlimur í hljómsveitinni Ampop, sem er umfjöll-
unarefni tónlistarþáttarins Bak við böndin í þessari viku.
DJ dúettinn Kakaka leysti Ernu og Ellen af á vaktinni.Skarphéðinn Guðmundsson og Ingvar E. Sigurðsson.
Stjórnendurnir og plötusnúðarnir Ellen og Erna með framleiðanda þátt-
arins, Dóru Takefusa, á milli sín á Kaffibarnum.Böndin
styrkt
eeeee
Dóri Dna / Dv
Frá höfundi „Traffc“
eee
- VJV topp5.is
eee
- SV mbl
eeee
- S.K. - DV
eee
V.J.V. topp5.is
eee
S.V. mbl
BYGGÐ Á ÓTRÚLEGUM SÖNNUM ATBURÐUM
Basic Instinct 2 kl. 6 og 9 b.i. 16 ára
V for Vendetta kl. 6 - 8 og 10 b.i. 16 ára
The Matador kl. 6 - 8 og 10 b.i. 16 ára
Blóðbönd kl. 6 og 8
Syriana kl. 10 b.i. 16 ára
Lassie kl. 6
FRELSI AÐ EILÍFU !
eeee
- S.U.S. - XFM 91,9
eeeee
- V.J.V. - TOPP5.IS
eeee
- KVIKMYNDIR.IS eeee- A.B. Blaðið
Sharon Stone
er í banastuði
eins og í fyrri
myndinni.
FORSÝND Í KVÖLD
Með hinum eina sanna Harrison Ford.
Mögnuð spennumynd frá byrjun til enda.
Kjólar
við buxur
Mikið úrval
Mörg mynstur
Stærðir 36-48
Verð 3.990
Laugavegi 54
sími 552 5201