Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 60

Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. MAGNEA Þorkels- dóttir, biskupsfrú, er látin. Hún lést í gær- morgun að heimili dótt- ur sinnar í Skálholti, 95 ára að aldri. Magnea fæddist 1. mars 1911 í Reykjavík en hún var Skaftfelling- ur í báðar ættir. For- eldrar hennar voru Þorkell Magnússon, vélstjóri og sótari, og Rannveig Magnúsdótt- ir, húsfreyja. Hún nam við Kvennaskólann í Reykjavík og útskrif- aðist með ágætiseinkunn árið 1929. Magnea giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Sigurbirni Einarssyni, biskupi, 22. ágúst árið 1933, eða fyrir tæplega 73 árum. Fyrsta heimili þeirra var í Uppsölum í Svíþjóð á meðan Sigurbjörn var í námi en síð- an fluttust þau heim og bjuggu sem prestshjón á Breiðabólsstað á Skógarströnd árin 1938–41. Frá 1941 bjuggu þau í Reykjavík en þegar embættisferli Sigurbjörns lauk árið 1981 fluttu þau í Kópa- vog. Magnea var lengst af húsmóðir á stóru heim- ili. Hún var um tíma formaður kvenfélags Hallgrímskirkju og var alla tíð mikilhæf hann- yrðakona og saumaði þjóðbúninga, meðal annars skaut- búninga. Magnea og Sigurbjörn eignuðust átta börn; Gíslrúnu, Rannveigu, Þor- kel, Árna Berg, Einar, Karl, Björn og Gunnar. Tvö barna þeirra eru lát- in, þeir Árni og Björn. Andlát MAGNEA ÞORKELSDÓTTIR Á FJÖLMENNUM baráttufundi sérhæfðs starfsfólks og félagsliða á nokkrum hjúkrunar- og dvalar- heimilum í Kiwanissalnum í Reykjavík í gær, var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta að boða til viku langs setuverkfalls aðfaranótt 21. apríl. Þá hyggja starfsmennirnir, nær eingöngu konur, á uppsagnir fyrir mánaða- mótin. Samninganefndir Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu og Eflingar komu saman ásamt fulltrúum starfsmannanna í gær og hófu viðræður um gildandi kjarasamning og hvernig leysa mætti deiluna. Árni M. Mathiesen, fjármálaráð- herra, sagðist í umræðum á Al- þingi í gær fagna því að samnings- aðilar væru farnir að ræða saman. Hann vísaði því á bug í samtali við Morgunblaðið að ráðamenn og stjórnendur hefðu vísað hver á annan í málinu og sagði ekkert hægt að segja um hver aðkoma ríkisins yrði að málinu fyrr en nið- urstaða fengist í viðræðum for- svarsmanna og starfsmanna við- komandi stofnana. Hann sagði þó að hugsanlega mætti flýta viðræð- um um daggjöld til að liðka fyrir. Launakjör við umönnun fatlaðra verði leiðrétt Trúnaðarmannafundur starfs- manna sambýla og annarra starfs- stöðva fyrir fatlaða sem starfa hjá ríkinu sendi í gær frá sér ályktun þar sem krafist er kjaraleiðrétt- ingar þeirra sem lægst hafi launin hjá ríkinu til samræmis við það sem nýlega hafi verið gert hjá sveitarfélögunum. „Erfiðlega hefur gengið að fá ófaglært fólk til starfa og það mis- ræmi sem upp er komið í launa- kjörum hjá ríki og sveitarfélögum í þessum geira eykur enn á þann vanda,“ segir meðal annars í álykt- uninni. „Fyrirsjáanlegt er að ef ekki verður bætt úr þessu og laun þeirra sem starfa við umönnun fatlaðra verða hækkuð stefnir í ófremdarástand.“ Boða viku setuverkfall og uppsagnir í kjölfarið Hugsanlega má flýta viðræðum um daggjöld til að liðka fyrir, segir Árni Mathiesen, fjármálaráðherra  Allt of þægar | 10–11 KRÓNAN var með lægra verð í 29 til- vikum af 36 í verðkönnun sem Morg- unblaðið gerði í Krónunni á Bíldshöfða og Bónus á Smáratorgi eftir hádegi í gær. Matvörukarfan kostaði 8.565 krónur í Krónunni en 9.171 krónu í Bónus og er karfan 6,6% ódýrari í Krónunni en Bónus. Þó nokkru munaði á verði ýmissa vöru- tegunda og var mestur verðmunurinn á tveggja kílóa pokum af gullauga kart- öflum sem kostuðu 49 krónur í Bónus en 81 krónu í Krónunni. | 26 .       %/2  !% /% Krónan oftar með lægra verð HREINN Jakobsson hefur látið af störfum sem forstjóri Skýrr, dótturfélags Kögunar. Hann segir ástæðu uppsagnarinnar vera þá að hann hafi verið ósáttur við þær breyt- ingar sem orðið hafa á eignarhaldi Kög- unar undanfarið. Nýlega keypti Dagsbrún 51% hlut í Kögun og hefur gert öðrum hlut- höfum yfirtökutilboð. „Ég fagnaði því þegar Síminn keypti 39% hlut í Kögun og taldi að félögin ættu mikla samstarfsmöguleika, enda hefur Síminn verið einn stærsti viðskiptavinur Kögunar um árabil. Ég tel því að skammtímasjón- armið hafi ráðið mestu um að meirihluti Kögunar var seldur til Dagsbrúnar. Ég er einfaldlega leiksoppur þess valdabrölts sem hefur verið í gangi,“ segir Hreinn. | 14 Hreinn hættir sem forstjóri Skýrr „FYRST hélt ég að þetta væri svona tíu punda fiskur en þegar ég strandaði honum á eyrinni sá ég hverskonar lengja þetta var, ekkert nema haus- inn og langur búk- urinn,“ sagði Arthur Galvez sem landaði 109 cm löngum sjóbirtingi í Vatnamótunum. Arthur, sem veiddi tvo aðra sem mæld- ust 98 cm langir, giskaði á að tröllið hefði verið svona 13–14 pund. Fullvíst má telja að hann hafi verið um eða yfir 20 pund þegar hann gekk í ána í haust. | 12 109 cm sjóbirtingur í Vatnamótunum UNGUR maður, sem lenti í snjó- flóði í Hoffellsdal í gær, var úr- skurðaður látinn á ellefta tímanum í gærkvöldi, að sögn lögreglunnar á Eskifirði. Björgunarsveitarmenn fundu manninn klukkan 20.20 og fluttu hann á vélsleða niður að bæki- stöð björgunarsveitarmanna að bænum Hólagerði, skammt frá Hof- fellsdal, þar sem læknir tók á móti manninum. Honum var komið í sjúkrabíl en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var hann úr- skurðaður látinn á leiðinni á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Neskaupstað. Hátt á annað hundrað björgunar- menn tóku þátt í leitinni að mann- inum, sem hafði ásamt félaga sínum verið á vélsleða í dalnum þegar flóð- ið skall á. Félagi mannsins slapp undan flóðinu og gat látið vita. Hann fór til móts við fyrstu björg- unarmennina sem voru komnir á svæðið innan við klukkustund eftir að flóðið féll. Allar björgunarsveitir á Austur- landi voru kallaðar út og sendar á svæðið til leitar en björgunarmaður með leitarhund hafði upp á mann- inum þegar hann hafði legið í snjón- um í tæplega tvær og hálfa klukku- stund. Hann var þá meðvitundar- laus og á kafi í snjó. Óvenju stórt flóð Að sögn Guðjóns Más Jónssonar, sem stýrði aðgerðum á bækistöð björgunarmanna, voru aðstæður til leitar ágætar en flóðið óvenju stórt og fór yfir mikið svæði. Hann segir það hafa verið nokkuð verk að koma björgunarmönnum upp á fjallið á vélsleðum og að betra hefði verið að hafa þyrlu á svæðinu. Jón Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Landsbjargar, segir að alls hafi um 85 björgunarsveitarmenn verið á svæðinu og 80 til viðbótar verið kallaðir út, þar á meðal frá höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesj- um, Þingeyjarsýslu og Eyjafirði. Fjórir leitarhundar voru notaðir og segir Jón ljóst að þeir hafi skipt miklu máli og að án þeirra hefði tek- ið mun lengri tíma að finna mann- inn. Viðbúnaður var hjá Landhelgis- gæslunni og áhöfn TF-SIF var köll- uð út kl. 18.44 og óskað eftir því að hún kæmi á staðinn. Hins vegar mat áhöfn þyrlunnar ástandið þannig að þyrlan myndi ekki nýtast í verkefn- ið vegna myrkurs en nætursjón- aukabúnaður þyrlunnar hefur ekki verið vottaður. Þyrlan var því afturkölluð en þyrla varnarliðsins kölluð út og var í þann mund að fara í loftið þegar til- kynning barst um að maðurinn hefði fundist. Þá var samhæfingar- stöð Almannavarna virkjuð og fulltrúi Landhelgisgæslunnar var þar meðan á aðgerðum stóð. Hinn látni var á þrítugsaldri. Ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Morgunblaðið/Albert Kemp Umfangsmikil leit var gerð að manninum í gær og hér má sjá björgunarmenn í bækistöð leitarmanna við Hólagerði. Ungur maður lést í snjóflóði Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is       E+#             AM3 5&/=$ !                            ! " !  8?M 3 #    # 75 $              )! ((!!  %  %;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.