Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
S
jómannaverður haldinn hátíðlegur um helgina. Í mörgum
sjávarplássum er sjómannadagurinn ein stærsta hátíð árs-
ins; allir sem einn flykkjast heimamenn niður á bryggju og
þorpin fyllast af gestum sem koma til að taka þátt í hátíð-
arhöldunum. Í borginni er stemningin ekki sú sama – í það minnsta
efa ég að sama eftirvænting hafi ríkt meðal krakka í Reykjavík og
hjá Eyjapeyjum og vestfirskum „púkum“ síðastliðna viku.
,,Það er af sem áður var,“ hefur mér heyrst vera viðkvæðið hér í
borginni. Og sjómannadagurinn er ekki einn um að fá þessa umsögn;
í fréttum af hátíðarhöldunum á fyrsta maí sl. þótti það t.d. mark-
verðast hversu fáir mættu í kröfugönguna. Merking þessara hátíð-
isdaga er augljóslega að breyt-
ast í hugum fólks og ef marka
má bölsýnisraddirnar þá er hún
að hverfa.
Það held ég hins vegar að sé
stórlega orðum aukið. Að sjálf-
sögðu hafa þessir dagar ekki
lengur sömu þýðingu og áður.
Til dæmis var sjómannadag-
urinn upphaflega miðaður við
vertíðarlok og var þannig
uppskeruhátíð sem markaði
mikilvæg tímamót í dagatalið. Þegar kvótakerfinu var komið á leið
þetta undir lok og nú eru það ekki lengur árstíðir, gæftir og sókn
sem ráða aflanum heldur vísindaráðgjöf og aflaheimildir. Ef eitthvað
einkennir samtímann fremur öðru þá hljóta það að vera breytingar.
Sjómennska, útgerð, skip og fiskvinnsla, allt hefur þetta tekið
gríðarlegum breytingum á síðustu árum. Stundum er sagt að róm-
antíkin og mannlífið í kringum geirann hafi minnkað á þessum tíma,
en er það endilega satt?
Undanfarin ár hafa verið eitt lengsta og
mesta hagvaxtarskeið í sögu þjóðarinnar. Þeg-
ar svo háttar beinist athygli okkar venjulega
að vaxtarbroddinum – nýjabrumið vekur eðli-
lega forvitni okkar og nú er það viðskiptalífið
sem helst þykir spennandi. Verðbréfavísitölur hafa skipað sér sess
við hlið aflatalna sem vísbending um afkomu þjóðarinnar. En þótt
fjölbreytni atvinnulífsins hafi aukist mikið á síðustu árum og fleira
fangi athygli okkar, þá sækja menn enn sjóinn og ekkert síður fast
nú en áður.
Á tímum mikilla breytinga er kannski enn frekar tilefni til að
halda sjómannadaginn hátíðlegan. Ef tenging barna og unglinga við
sjávarútveginn fer dvínandi, er þá ekki enn ríkari ástæða til að fjöl-
menna niður á bryggju með krakkana; fara í siglingu á fiskibát, sjá
fiska í öðru ljósi en soðna og stappaða í tómatssósu, læra kannski
einn sjómannshnút og glöggva sig aðeins á því hvað bjóðir, trossur,
dragnót og hrognkelsi eiginlega merkja. Þeir sem vilja fá stemn-
inguna beint í æð geta lagt land undir fót, skellt tjaldvagninum á bíl-
krókinn og brunað í næsta sjávarpláss og tekið þátt í hátíðarhöld-
unum.
Íslendingar eiga ekki að þurfa að kafa djúpt til að finna raunveru-
lega tengingu við sjóinn og sjómennsku. Flestir eiga afa eða feður
sem til lengri eða skemmri tíma voru sjómenn og allir eiga í það
minnsta frænda sem lagt hefur stund á sjómennsku. Merking sjó-
mannadagsins hefur breyst, en þegar allt kemur til alls þá ráðum við
því sjálf hvaða merkingu við leggjum í dagana. Höldum merkjum
sjómannadagsins á lofti, mætum niður á bryggju og treystum bönd-
in við hafið.
Að lokum vil ég óska sjómönnum til hamingju með daginn.
BRYGGJUSPJALL | Kristján Torfi Einarsson
Sjómannadagurinn þá og nú
Merking þessara
hátíðisdaga er aug-
ljóslega að breytast
í hugum fólks og ef
marka má bölsýnis-
raddirnar þá er
hún að hverfa.
kte@mbl.is
! "# #
!" #$%
&'
&"
% #%
() %" %
'%* #% + %*
,
,
& %
-./01 &21#%
3
%
& .0 + %* 4 %*
4. 02% 5
%*
672
89& %
8.
:;"" %". 0 0 %
< %% 0 %
!"
& * =;220 -1>" -0%*
! #$
%
5?=@
-A0
0 0
/
/
/
/
/
/
/
; %" 1
; 0 0
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
B
CD
B /CD
/
B /
CD
B /
CD
B /CD
B /
CD
B
CD
B
CD
B
CD
/
B /
CD
B /CD
/
B /
CD
/
/
/
/
/
B /
CD
/
/
/
/
/
4 * 0
*" %
: #0 A *" E
( -
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
< 0 A )$
:4 F "% &2 *
0
/
/
/
/
/
/
/
ÚR VERINU
HEIMSMARKAÐSVERÐ á mik-
ilvægum málmum, svo sem áli,
gulli, silfri og kopar, hefur lækkað
verulega á síðustu fjórum vikum.
Þannig hefur verð á áli lækkað um
24% síðan 11. maí á málmmark-
aðinum í London (London Metal
Exchange).
Samkvæmt frétt AFP-fréttastof-
unnar hefur verðþróun á málmum
snúist algjörlega við eftir að verð
hækkaði mikið á fyrri hluta ársins.
Sem dæmi má nefna að verð á
únsu af gulli hefur lækkað um 15%
á síðustu fjórum vikum og á sama
tímabili hefur verð á silfri lækkað
um 24%. Verð á kopar hefur lækk-
að um 16% á tímabilinu. En hvað
er það sem veldur þessum um-
skiptum?
Vaxtahækkanir eða bóla?
Þessari spurningu er ekki auð-
svarað og hafa nokkrar skýringar
verið settar fram. Ein er sú að á
síðustu misserum hafi verð á
málmum einfaldlega verið allt of
hátt og að hér hafi því verið um
verðbólu að ræða sem nú sé
sprungin.
Meðal þeirra sem hafa haldið
þessu fram eru sérfræðingar
franska bankans Societé Generale.
„Við erum viss um að lækkun síð-
ustu daga sýni einmitt fram á að
spákaupmennska hafi ýtt verðinu
upp,“ segir Frederic Lasserre,
sérfræðingur hjá bankanum, við
AFP. Að hans mati var verð
málma á bilinu 70–150% hærra en
eðlilegt var þegar það náði há-
marki fyrir um mánuði síðan.
Í ljósi þess að þessi lækkun end-
urspeglar lækkun á hlutabréfum
sem einnig hefur átt sér stað að
undanförnu virðist þó önnur skýr-
ing vera líklegri, þ.e. að hækkun
stýrivaxta að undanförnu sé farin
að hafa áhrif til lækkunar. Þegar
vextir hækka færa einhverjir fjár-
festar peninga sína yfir í skulda-
bréf. Báðir eignaflokkar eru taldir
tiltölulega áhættulitlir og þar sem
vaxtastig í heiminum hefur verið
lágt á síðustu árum hafa margir
leitað yfir í málma. Þegar vextir
hækka leita fjárfestar sem vilja
dreifa áhættu sinni í skuldabréf og
samtímis dregst eftirspurn eftir
málmum á heimsmarkaði saman.
Þetta á sérstaklega við þegar von
er á frekari vaxtahækkunum.
Hátt í sögulegu samhengi
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og stjórn-
unarsviðs Norðuráls, segir að
þrátt fyrir lækkanirnar undanfarn-
ar vikur sé álverð enn hátt í sögu-
legu samhengi. Í dag sé verðið um
2.500 bandaríkjadalir fyrir tonnið
en meðalverð í fyrra hafi verið um
1.900 dalir . Það sem af er þessu
ári fór álverð hæst í um 3.275 dali
tonnið þann 11. maí síðastliðinn og
hafði það þá ekki verið hærra í 18
ár.
Ragnar segir erfitt að segja
nokkuð til um þróun álverðs á
næstunni en hjá Norðuráli séu
menn mjög sáttir við það verð sem
fáist fyrir framleiðsluna.
Mikil verðlækkun
málma á heimsmarkaði
G% &# , ,A G$%
& &
( ( (
!!
"
#
*
$%
Eftir Guðmund Sverri Þór og
Sigurhönnu Kristinsdóttur
Morgunblaðið/Ómar
FJÁRFESTIRINN Pálmi
Haraldsson hefur tekið völdin
í sænska flatskjáaframleiðslu-
fyrirtækinu Multi Q og rekið
alla stjórn félagsins. „Við-
skiptaumhverfið í Svíþjóð er
jákvætt og ég er að líta á
fleiri fyrirtæki sem skráð eru
í kauphöllinni í Stokkhólmi,“
segir Pálmi í samtali við Da-
gens Industri, sem talar um
hallarbyltingu í Multi Q.
Pálmi á um 22% hlut í Ze-
tadisplay, sem er stærsti
hluthafi í Multi Q en Zetad-
islpay framleiðir einnig
flatskjái. Með samstarfi við
aðra hluthafa í Multi Q hefur
Pálmi tryggt sér völdin í fé-
laginu og samkvæmt DI styð-
ur hann hugmyndir um sam-
runa félaganna. „Þetta eru
tvö góð félög og það eru kost-
ir við að sameina þau,“ segir
hann.
Mats Johansson, forstjóri
Zetadisplay, mun nú taka
sæti í stjórn Multi Q og það
mun Matthías Páll Imsland,
starfsmaður Fons eignar-
haldsfélags og stjórnarfor-
maður ferðaskrifstofunnar
Ticket, einnig gera.
Pálmi með
hallarbylt-
ingu í Multi Q
6 *H
-I8
C
C
&:-=
!J
C
C
??
K,J
C
C
K,J ( %
6
C
C
5?=J !L G%
C
C
STJÓRN bresku verslanakeðj-
unnar House of Fraser hefur sam-
þykkt að veita Baugi Group að-
gang að bókhaldi fyrirtækisins til
að geta hafið áreiðanleikakönnun
á því. Þetta gerðist í kjölfar þess
að stjórnin samþykkti að styðja
hugsanlegt kauptilboð Baugs og
hefur hún fallist á þær hugmyndir
Baugs að greiða 356 milljónir
punda fyrir fyrirtækið, jafnvirði
rúmlega 48 milljarða íslenskra
króna. Breskir fjölmiðlar greina
frá þessu.
Í frétt TimesOnline segir að nú
taki við um sex vikna tímabil þar
sem Baugur vinni að áreiðanleika-
könnun á House of Fraser, sem á
um 60 verslanir á Bretlandseyj-
um.
Frá því var greint í aprílmánuði
síðastliðnum að Baugur hefði
Stjórn House of
Fraser styður
tilboð Baugs
keypt um 10% hlut í House of Fra-
ser. Í framhaldinu sögðu breskir
fjölmiðlar frá því að Baugur væri
orðaður við hugsanlega yfirtöku á
félaginu.
Í maímánuði síðastliðnum kom
svo fram í tilkynningu frá House
of Fraser til kauphallarinnar í
London að Baugur ætti í viðræð-
um við stjórn félagsins um mögu-
leika á að leggja fram tilboð í fyr-
irtækið.
Árið 2002 átti Baugur um 10% í
House of Fraser en hlutabréfin
höfðu verið keypt á þónokkrum
tíma. Um svipað leyti gerði skoski
fjárfestirinn Tom Hunter yfir-
tökutilboð í félagið sem ekki var
tekið.
Baugur seldi hlut sinn árið 2004
og var talinn hafa hagnast um 10
milljónir punda á viðskiptunum.