Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 67
DAGBÓK
Ungur Íslendingur, Egill Sigurðsson, varnýverið kosinn forseti nemendastjórn-ar við César Ritz-hótelháskólann íSviss.
César Ritz er meðal virtustu hótelskóla heims og
þykir mikil upphefð að ná kjöri sem forseti nem-
endastjórnar. Það gerir kjör Egils enn sérstakara
að hann er fyrsta árs nemi, en yfirleitt gegna stöð-
unni nemendur á öðru ári.
„Staðan felur í sér að stýra starfi nemenda-
stjórnar, skipuleggja almannatengsl og kynningar,
sinna rekstri tveggja bara á vegum skólans auk
þátttöku í ýmiss konar viðburðum, fundahöldum og
samskiptum við aðra hótelskóla,“ segir Egill. „Sá
sem gegnir embættinu hefur töluvert að segja um
þróun skólastarfsins, þarf að huga að hagsmunum
og velferð allra nemenda skólans og vera samnem-
endum góð fyrirmynd.“
César Ritz-hótelskólinn er einkaskóli með
heimavistarformi og sækja þar nám 250 nemendur
frá 42 löndum. Mikill metnaður er í skólastarfi og
agi, og vinnuálag á nemendur með mesta móti:
„Mikil samkeppni er milli nemenda. Skólinn kennir
allan rekstur tengdan hótel- og ferðamannarekstri.
Bæði er kennt um viðskipti og markaðsmál, nem-
endur eru þjálfaðir í öllum handtökum sem unnin
eru á hóteli og læra fjölda tungumála. Í verklega
náminu byrja nemendur frá grunni, í uppvaski,
læra að matbúa, þjóna og þrífa, og áfram allt upp í
starf hótelstjóra,“ segir Egill.
Fyrirkomulag námsins hefur að fyrirmynd
starfsferil núverandi forstjóra Ritz-Carlton-
hótelkeðjunnar, sem sjálfur hóf feril sinn í upp-
vaski: „Þetta er mjög strembið nám. Það byrjar ró-
lega en fyrr en varir er viðveran í skólanum orðin
frá 8 á morgnana til 8 á kvöldin, og að lágmarki
þriggja tíma heimavinna að jafnaði hvern dag,“
segir Egill og bætir við að námið sé þannig upp-
byggt að nemendur stundi til skiptist bóklegt nám
og starfsþjálfun við mörg betri hótel Sviss.
„Skólinn er iðulega talinn með fimm bestu hót-
elskólum heims og skiptir þar ekki síst sköpum ein-
valalið kennara sem starfa við skólann. Fjölþjóðleg
samsetning skólans gerir það að verkum að auk
þess að læra þau tungumál sem eru á námskránni
gerist það yfirleitt að nemendur kynnast menningu
hvors annars og læra stöku orð og frasa úr tungu-
málum skólafélaga sinna. Námið opnar einnig
margar dyr og eru útskrifaðir nemendur ekki bara
bundnir við hótel- og ferðaþjónustuiðnaðinn heldur
geta þeir valdið flestum tegundum stjórn-
unarstarfa.“
Egill lauk stúdentsprófi frá MS, en áhugi hans á
hótelbransanum vaknaði þegar hann vann sem
þjónn á Hótel 101. Vissi Egill ekki fyrr en hann var
farinn að gera sér ferðir á hótel til að virða þau fyr-
ir sér, forvitninnar vegna. „Hótel eru þverskurður
af heiminum. Innan veggja þeirra geturðu séð allt
sem er að sjá,“ segir hann að lokum til að útskýra
hrifningu sína.
Menntun | Egill Sigurðsson kjörinn forseti nemendastjórnar César Ritz-hótelskólans í Sviss
Krefjandi og gefandi nám
Egill Sigurðsson
fæddist í Reykjavík
1984. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MS 2004
og leggur nú stund á
BA-nám í hótelstjórnun
við César Ritz-
hótelskólann í Sviss.
Egill starfaði við bygg-
ingastörf hjá Kraftvaka
og síðar sem bílasali
hjá Bifreiðasölunni
2004–2005. Þá starfaði hann með námi sem
þjónn á veitingastaðnum 101. Foreldrar Egils
eru Sigurður Rúnar Ívarsson rafeindavirkja-
meistari og Sigurborg Svala Guðmundsdóttir
lesblindukennari.
Nú verður gott að búa
í Reykjavík
JÁ, nú verður gott að búa í Reykja-
vík. Nýr borgarstjóri sem lætur
verkin tala, annað en R-listinn. R-
listinn lofaði öllum börnum 18 mán-
aða og eldri leikskólaplássi. Þetta
loforð var fyrst gefið 1994 og aftur
1998. En staðan er að enn bíða börn
eftir plássi. Börnum á þessum aldri
hefur fækkað um 600 en á sama tíma
hefur börnum á aldrinum 1–5 ára
fjölgað í Kópavogi, Garðabæ, Hafn-
arfirði og Akureyri.
Nú verður breyting á enda kom-
inn borgarstjóri sem framkvæmir en
lofar ekki einhverju sem hann stend-
ur ekki við. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son er maður sem lætur verkin tala.
Til hamingju, Reykvíkingar, nú
eru bjartir tímar framundan.
Guðjón Sigurðsson,
Hátúni 10b.
Óþrif
VEGNA skrifa Ólafs Jónasar Sig-
urðssonar og annarra greinahöf-
unda, um sóðaskap í borginni okkar,
Reykjavík, langar mig að blanda
mér í skrifin um þessi mál.
Oftast er talað um drasl sem liggi
hér og þar um borgina ásamt hunda-
skít, ekki minnast þessir ágætu bréf-
stúfsritarar einu orði á alla hrákana
sem fólk dreifir út úr sér um allar
jarðir handa öðrum til að stíga í og
bera síðan heim með sér. Hef ég
meira að segja oftar en einu sinni
séð menn senda frá sér „slummur“ á
sundlaugarbökkunum, þar sem
margir hverjir ganga um berfættir.
Mér persónulega finnst engin tak-
mörk vera fyrir sóðaskapnum og
viðbjóðnum vegna þessa.
Já, gott fólk, þeir eru margir sóð-
arnir í umferðinni, ekki einungis
hundaeigendur, heldur og aðilar úr
öllum hópum þjóðfélagsins hvaða
nafni sem þeir nefnast, háir sem lág-
ir. Það þarf samstillt átak borgarbúa
um að hafa huggulegra í kringum
okkur, í borginni okkar, Reykjavík.
Sigrún Sigurjónsdóttir.
Verð á kassa hærra
SAMKVÆMT nýlegum verðkönn-
unum Neytendastofu kemur fram að
allvíða er um töluverðan mun að
ræða á milli hilluverðs og kassa-
verðs. Ekki er alltaf um stórar upp-
hæðir að ræða en samt í tugum
króna talið oftast nær.
Þegar viðskiptavinur hefur greitt
fyrir sínar vörur kemur mismun-
urinn í ljós. Ég hef nokkuð oft orðið
var við þennan mismun. Þegar mikið
er að gera og biðraðir hafa myndast
eru margir sem sinna þessum mis-
mun að litlu leyti, eða alls ekki. Fólk
nennir ekki að standa í þrasi við sak-
lausa kassadömu sem enga sök á að
máli, samt á hver og einn að leita
réttar síns.
Ég notfæri mér alltaf rétt minn til
athugasemda þótt það kallist smá-
munasemi hjá þeim mörgu sem
standa argir og óánægðir í langri
biðröð.
Það hefur verið staðfest að matur
er dýrastur hér á Norðurlöndunum.
Það er því óþarfi að koma svona
fram við neytendur vísvitandi með
blekkingum.
Svanur Jóhannsson.
Rauð stafræn myndavél
týndist á Kaffibarnum
SONY DSC-T5, rauð stafræn
myndavél, var sett í misgripum í vit-
laust veski á Kaffibarnum í mars sl.
Skilvís finnandi hafi samband við
Láru í síma 616 2676.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
95 ÁRA afmæli. Ragney Eggerts-dóttir (Eyja í Dal) verður 95
ára hinn 13. júní nk. Af þessu tilefni
ætlar Eyja að taka á móti ættingjum
sínum og vinum á morgun, sunnudag-
inn 11. júní, milli kl. 15 og 18 í fund-
arsalnum á 6. hæð Bogarbrautar 65a í
Borgarnesi.
Árnaðheilla
ritstjórn@mbl.is
95 ÁRA afmæli. Í dag, 10. júní, erJóhanna Ingvarsdóttir Norð-
fjörð, kjólameistari 95 ára. Jóhanna
fæddist í Reykjavík og hefur lengst af
búið þar, en bjó á Akureyri frá 1945 til
1957. Það ár lést seinni maður hennar,
Jón Norðfjörð, leikari og bæjargjald-
keri. Jóhanna býr nú á Hrafnistu í
Reykjavík.
Ómissandi
eftirréttur
Opnunartilboð300.000 kr.afsláttur aföllum
hjól
hýsu
m
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is • Póstsendum um allt land
Opið mánud. til föstud. kl. 8–18, laugard. kl. 10–16, sunnud. kl. 12–16.
Við höfum opnað nýja og glæsilega stórverslun Ellingsen að Fiskislóð 1.
Af því tilefni bjóðum við 300.000 kr. afslátt af öllum hjólhýsum.
Hlutavelta | Þau Einar Tryggvason,
Friðrika Tryggvadóttir og Ríkey Lilja
Steinsdóttir söfnuðu kr. 1.313 til
styrktar Rauða krossi Íslands, Ak-
ureyrardeild.
Hlutavelta
ritstjórn@mbl.is