Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 65 FRÉTTIR E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 13 0 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 Isuzu hefur fyrir löngu sannað öryggi og endingu á íslenskumvegum. Nú kynnumvið nýjan og stórglæsilegan Isuzu D-MAX pallbíl. Hann er þjáll og lipur í akstri, en jafnframt rammbyggður og traustur félagi og á alveg ótrúlega góðu verði. Isuzu D-MAX hefur fengið alveg nýtt útlit og er staðalbúnaður eins og hann gerist bestur, þar má nefna loftkælingu, ABS hemlakerfi, álfelgur, brettakanta o.fl. Isuzu ermeð 3.0 lítra dísilvél með túrbínu ogmillikæli og skilar 130 hestöflum. Isuzu D-MAX er farkostur fjölskyldunnar, vinsæll vinnufélagi og verðið ráða allir við! PALLBÍLL Á POTTÞÉTTUVERÐI! Sjálfskiptur Beinskiptur Verð á Isuzu D-MAX Crew Cab 2.590.000kr. 2.490.000 kr. Rekstrarleiga í 36mánuði* 45.224m/vsk 43.612m/vsk *Miðað við almenn kjör hjá Glitni, 20.000 km akstur á ári og þjónustu. Selfossi 482 3100 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 461 2960 Félagsstarf 11.6. Móskarðshnúkar 807 m – Trana 743 m – Möðru- vallaháls Brottför frá BSÍ kl. 9:00. Fararstj. Gunnar H. Hjálm- arsson. V. 2.400/2.700 kr. 17.6. Laugardagur. Leggja- brjótur Brottför frá BSÍ kl. 10:30. V. 2.500/2.900 kr. 16.-18.6. Lómagnúpur Brottför frá BSÍ kl. 18:00. Farar- stjóri Reynir Þór Sigurðsson. V. 4.400/5.600 kr. 16.-18.6. Fimmvörðuháls, vestan ár. Brottför frá BSÍ kl. 17:00. V. 12.000/14.700 kr. 23.-25.6. Jónsmessunætur- ganga. Uppselt í rútu kl. 18:00, örfá pláss í skála. Brottför frá BSÍ kl. 19:00, 20:00. V. 14.100/ 16.300 kr. í skála og 12.900/ 15.100 kr. í tjaldi. 27.6.-1.7. Hesteyri – Aðalvík (5 dagar) Brottför kl. 10:00 frá Ísafirði. Fararstjóri Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir. Sjá nánar á www.utivist.is FRAMHALDSSKÓLANUM á Laugum var slitið í 18. sinn fyrir skemmstu við at- höfn í íþróttahúsinu á Laug- um. Að venju voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og störf að fé- lagsmálum og að þessu sinni fengu allir nýstúd- entar, en þeir voru sextán talsins, einhverjar við- urkenningar. Á myndinni er Valgerður Gunnarsdóttir, skólameist- ari Framhaldsskólans á Laugum, ásamt stúdent- unum sem brautskráðust frá skólanum. Brautskráning frá skólanum á Laugum Morgunblaðið/Hafþór Tippað í beinni ÍSLENSKAR getraunir bjóða viðskiptavinum sínum upp á nýjan leik sem hefur hlotið nafn- ið „Tippað í beinni“. Þar gefst tippurum tækifæri til að tippa á knattspyrnuleiki sem eru í beinni útsendingu í sjónvarpi og segja fyrir um hvað gerist næst í viðkomandi leik. Sem dæmi má nefna að hægt verður að segja fyrir um hvaða lið skorar fyrsta markið, hversu mörg mörk verða skoruð í leikn- um og hver úrslit leiksins verða. Tæki og trukkar til sýnis hjá Heklu TÆKI og trukkar verða til sýnis hjá Vélasviði Heklu í Klettagörðum í dag, laugardaginn 10. júní, kl. 10-17. Lögð er áhersla á að kynna allar helstu tækninýjungar og gefst tækifæri á að reynsluaka tækjunum og fá ráðgjöf. Meðal þess sem kynnt verður eru vinnuvélar, lyftarar, fylgihlutir og búnaður frá Caterpillar. Þá verður sýndur nýr 620 hestafla Scanina R620 dráttarbíll og nokkrir tugir annarra Scania vörubíla af öllum gerðum. Sendiferðabílar af gerðinni Mitsubishi Canter, verða til sýnis sem og aðrir bílar af gerðunum Audi, Volkswagen og Mitsubishi sem henta sem vinnubílar. Hiab hleðslukranar, Närko vagnar, Joab gámakrókar, Sörling pallar, Tyllis krana- ábyggingar, Atlas Copco borvagn og Goldhoffer vélavagnar verða einnig kynntir. Meðal atriða sem boðið verður upp á er keppni í ökuleikni á vörubílum, lyftarakeppni, kranakeppni og einnig gefst gestum kostur á að reynsluaka nýjustu gerðum af Caterpillar belta- gröfum og hjólaskóflum o.fl. Þá verð- ur kosið um glæsilegasta Scania vörubílinn á svæðinu. Þjónustumið- stöð Vélasviðsins verður einnig til sýnis. Esjudagur FÍ og SPRON ÁRLEGUR Esjudagur Ferðafélags Íslands og SPRON verður haldinn á sunnudag, áttunda árið í röð. Meðal þess sem hæst ber er Esjukapp- hlaupið þar sem keppt verður um besta tímann í Esjuhlaupi. Nýjum skiltum hefur verið komið fyrir við Esjuna þar sem upplýsingar er að finna fyrir göngufólk. Árni Tryggva- son hannaði skiltin en fjölmargir að- ilar komu að fjármögnun og undir- búningi við gerð þeirra. Slysavarnarsveit kvenna ásamt Björgunarsveitinni Kili á Kjalarnesi hafa verið helstu frumkvöðlar. SPRON kostaði gerð skiltisins sem endurnýjað hefur verið á bílaplaninu við Esjurætur, þaðan sem flestir leggja upp í göngur. Fjölskylduhátíð SPRON verður við Mógilsá á sunnudag, 11. júní kl. 13.00. Fjölmargt verður til skemmt- unar fyrir alla fjölskylduna. Idol- stjörnur taka lagið, boðið verður upp á Esjugöngur og Esjukapphlaup við allra hæfi og skoðunarferðir um skóginn. Á staðnum verða jafnframt hestar fyrir börnin, trúður, veitingar og fleira skemmtilegt. Örn Árnason er kynnir hátíðarinnar. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.