Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 65
FRÉTTIR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
13
0
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Isuzu hefur fyrir löngu sannað öryggi og endingu á íslenskumvegum. Nú kynnumvið nýjan og
stórglæsilegan Isuzu D-MAX pallbíl. Hann er þjáll og lipur í akstri, en jafnframt rammbyggður
og traustur félagi og á alveg ótrúlega góðu verði.
Isuzu D-MAX hefur fengið alveg nýtt útlit og er staðalbúnaður eins og hann gerist bestur, þar
má nefna loftkælingu, ABS hemlakerfi, álfelgur, brettakanta o.fl. Isuzu ermeð 3.0 lítra dísilvél
með túrbínu ogmillikæli og skilar 130 hestöflum.
Isuzu D-MAX er farkostur fjölskyldunnar, vinsæll vinnufélagi og verðið ráða allir við!
PALLBÍLL Á
POTTÞÉTTUVERÐI!
Sjálfskiptur Beinskiptur
Verð á Isuzu D-MAX Crew Cab 2.590.000kr. 2.490.000 kr.
Rekstrarleiga í 36mánuði* 45.224m/vsk 43.612m/vsk
*Miðað við almenn kjör hjá Glitni, 20.000 km akstur á ári og þjónustu.
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Félagsstarf
11.6. Móskarðshnúkar 807
m – Trana 743 m – Möðru-
vallaháls Brottför frá BSÍ kl.
9:00. Fararstj. Gunnar H. Hjálm-
arsson. V. 2.400/2.700 kr.
17.6. Laugardagur. Leggja-
brjótur Brottför frá BSÍ kl.
10:30. V. 2.500/2.900 kr.
16.-18.6. Lómagnúpur
Brottför frá BSÍ kl. 18:00. Farar-
stjóri Reynir Þór Sigurðsson. V.
4.400/5.600 kr.
16.-18.6. Fimmvörðuháls,
vestan ár. Brottför frá BSÍ kl.
17:00. V. 12.000/14.700 kr.
23.-25.6. Jónsmessunætur-
ganga. Uppselt í rútu kl. 18:00,
örfá pláss í skála. Brottför frá
BSÍ kl. 19:00, 20:00. V. 14.100/
16.300 kr. í skála og 12.900/
15.100 kr. í tjaldi.
27.6.-1.7. Hesteyri – Aðalvík
(5 dagar) Brottför kl. 10:00 frá
Ísafirði. Fararstjóri Sylvía Hrönn
Kristjánsdóttir.
Sjá nánar á www.utivist.is
FRAMHALDSSKÓLANUM
á Laugum var slitið í 18.
sinn fyrir skemmstu við at-
höfn í íþróttahúsinu á Laug-
um. Að venju voru veittar
viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur og störf að fé-
lagsmálum og að þessu
sinni fengu allir nýstúd-
entar, en þeir voru sextán
talsins, einhverjar við-
urkenningar.
Á myndinni er Valgerður
Gunnarsdóttir, skólameist-
ari Framhaldsskólans á
Laugum, ásamt stúdent-
unum sem brautskráðust
frá skólanum.
Brautskráning frá skólanum á Laugum
Morgunblaðið/Hafþór
Tippað
í beinni
ÍSLENSKAR getraunir bjóða
viðskiptavinum sínum upp á
nýjan leik sem hefur hlotið nafn-
ið „Tippað í beinni“.
Þar gefst tippurum tækifæri
til að tippa á knattspyrnuleiki
sem eru í beinni útsendingu í
sjónvarpi og segja fyrir um hvað
gerist næst í viðkomandi leik.
Sem dæmi má nefna að hægt
verður að segja fyrir um hvaða
lið skorar fyrsta markið, hversu
mörg mörk verða skoruð í leikn-
um og hver úrslit leiksins verða.
Tæki og
trukkar til
sýnis hjá
Heklu
TÆKI og trukkar verða til sýnis hjá
Vélasviði Heklu í Klettagörðum í dag,
laugardaginn 10. júní, kl. 10-17. Lögð
er áhersla á að kynna allar helstu
tækninýjungar og gefst tækifæri á að
reynsluaka tækjunum og fá ráðgjöf.
Meðal þess sem kynnt verður eru
vinnuvélar, lyftarar, fylgihlutir og
búnaður frá Caterpillar. Þá verður
sýndur nýr 620 hestafla Scanina
R620 dráttarbíll og nokkrir tugir
annarra Scania vörubíla af öllum
gerðum. Sendiferðabílar af gerðinni
Mitsubishi Canter, verða til sýnis
sem og aðrir bílar af gerðunum Audi,
Volkswagen og Mitsubishi sem henta
sem vinnubílar. Hiab hleðslukranar,
Närko vagnar, Joab gámakrókar,
Sörling pallar, Tyllis krana-
ábyggingar, Atlas Copco borvagn og
Goldhoffer vélavagnar verða einnig
kynntir.
Meðal atriða sem boðið verður upp
á er keppni í ökuleikni á vörubílum,
lyftarakeppni, kranakeppni og einnig
gefst gestum kostur á að reynsluaka
nýjustu gerðum af Caterpillar belta-
gröfum og hjólaskóflum o.fl. Þá verð-
ur kosið um glæsilegasta Scania
vörubílinn á svæðinu. Þjónustumið-
stöð Vélasviðsins verður einnig til
sýnis.
Esjudagur
FÍ og
SPRON
ÁRLEGUR Esjudagur Ferðafélags
Íslands og SPRON verður haldinn á
sunnudag, áttunda árið í röð. Meðal
þess sem hæst ber er Esjukapp-
hlaupið þar sem keppt verður um
besta tímann í Esjuhlaupi. Nýjum
skiltum hefur verið komið fyrir við
Esjuna þar sem upplýsingar er að
finna fyrir göngufólk. Árni Tryggva-
son hannaði skiltin en fjölmargir að-
ilar komu að fjármögnun og undir-
búningi við gerð þeirra.
Slysavarnarsveit kvenna ásamt
Björgunarsveitinni Kili á Kjalarnesi
hafa verið helstu frumkvöðlar.
SPRON kostaði gerð skiltisins sem
endurnýjað hefur verið á bílaplaninu
við Esjurætur, þaðan sem flestir
leggja upp í göngur.
Fjölskylduhátíð SPRON verður
við Mógilsá á sunnudag, 11. júní kl.
13.00. Fjölmargt verður til skemmt-
unar fyrir alla fjölskylduna. Idol-
stjörnur taka lagið, boðið verður upp
á Esjugöngur og Esjukapphlaup við
allra hæfi og skoðunarferðir um
skóginn. Á staðnum verða jafnframt
hestar fyrir börnin, trúður, veitingar
og fleira skemmtilegt. Örn Árnason
er kynnir hátíðarinnar.
♦♦♦