Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 63 FRÉTTIR Subaru Outback 1998. Ekinn 103 þús. 2,5 vél, sjálfskiptur. Ný dekk, tímareim og bremsur fyrir kr. 150 þús. Vel með farinn og frábær ferðabíll. Verð 790 þús. Uppl. í síma 899 2005. Útsala Útsala. Til sölu Ford Mondeo árgerð 1998, 1600 bíll, Sedan, ekinn 146 þús., þarfnast lagfæringar, góður bíll fyrir laghentan. Listaverð 430 þús., tilboð óskast, Skoða öll tilboð. Upplýsingar í síma 694 2326. Árg. '00, ek. 91 þús. km. Opel Astra á góðu verði árgerð 2000, ekinn 91 þús. km. Sjálfskiptur, ný dekk, nýlega endurnýjuð skoðun. Verð er umsemjanlegt. Sími 425 2596/425 6058 (Kevin). Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, bifhjól, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Glæsileg kennslubifreið, Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Bifhjólaskóli Lýðveldisins aug- lýsir: Einstaklingsmiðuð kennsla á bifhjól. Ekki stórir hópar. Enung- is greitt fyrir tekna tíma. Ný hjól. Kennarar: Jóhann sími 897 7419, Snorri sími 892 1451 og Hreiðar sími 896 0100. Fellihýsi Til sölu Rapido fellihýsi með hörðum hliðum. Tvö fortjöld, get sent myndir. Verð 450 þús. Uppl. í 892 5628, netfang: glja@eyjar.is Einkamál Viltu skuldleysi? Viltu mun hærri laun? Ágæti lesandi: Ef þú ert á meðal þeirra mörgu sem þrá að losna við skuldir og fá meiri tekjur þá verðurðu að fara núna og kynna þér vefsíðuna www.Milljon.com. Smáauglýsingar 5691100                                                          !"  #$!%&''                       !  "#$$ %                             GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ 30-50% afsláttur Sýningu lýkur 28. júní BÆNDAMARKAÐUR Bún- aðarsamtaka Vesturlands verður meðal þess sem boðið verður upp á á Borgfirðingahátíðinni í ár. Hann verður haldinn á Hvanneyri á morgun, sunnudaginn 11. júní kl. 13–17. Einnig verða uppá- komur á vegum fyrirtækja og fé- lagasamtaka á Hvanneyri þennan dag. Bændamarkaðurinn verður sett- ur upp þannig að þeir sem ala, rækta, tína, baka eða á einhvern hátt framleiða gæðavörur heima á býli eigi möguleika á því að koma á markaðinn og selja sína vöru. Þetta verður fyrsti markaður- inn af þremur sem BV hyggjast standa fyrir í sumar en stefnt er að því að halda hina markaðina 8. júlí og 12. ágúst. Boðið verður upp á fjölbreytt vöruúrval og má þar nefna vörur eins og sauðaost, geitaost, plöntur, grænmeti og fiskmeti. Bændamarkaður á Borgfirðinga- hátíð Opið hús í Króki OPIÐ hús verður í Króki á Garða- holti í Garðabæ á sunnudögum frá og með 11. júní. Opið er kl. 13–17. Krókur er lítill bárujárns- klæddur burstabær sem var end- urbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó þar til ársins 1985. ÞRETTÁN námsmenn tóku nýlega við námsstyrkjum frá Landsbank- anum. Yfir 400 umsóknir bárust um styrkina, sem eru á bilinu 150 – 350 þúsund krónur. Þeir eru veittir í fjórum flokkum; til framhaldsskóla- og iðnnema, til háskólanema á Ís- landi, til háskólanema erlendis og til listnema. Eftirtaldir hlutu styrk: Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Fjölbrauta- skólanum við Ármúla, Brynjar Þór Björnsson Menntaskólanum við Sund og Steingrímur Páll Þórð- arson Menntaskólanum á Akureyri, Ester Rut Unnsteinsdóttir sem er í doktorsnámi í líffræði við Háskóla Íslands, René Biasone í dokt- orsnámi við viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands, Sig- urður Örn Stefánsson í meistaranámi í eðlisfræði við Há- skóla Íslands, Sæmundur Jón Oddsson í læknanámi við Háskóla Íslands, Helga Sif Friðjónsdóttir doktorsnemi í hjúkrunarfræði við University of Washington í Banda- ríkjunum, Jón Tómasson sem er í framhaldsnámi í svæfinga- og gjör- gæslulækningum við Wisconsin- háskóla í Bandaríkjunum, Pétur Waldorff sem stundar meistaranám í mannfræði við McGill háskóla í Quebec í Kanada, Edda Hrönn Kristinsdóttir er stundar nám í teiknimyndagerð í The Animation Workshop í Danmörku, Helga Þóra Björgvinsdóttir sem er í fiðlunámi við Universität der Künste í Berlín í Þýskalandi og Nicole Vala Cariglia doktorsnemi er nemur sellóleik við Boston University í Bandaríkj- unum. Á myndinni eru styrkþegar eða fulltrúar þeirra, Guðfinna S. Bjarnadóttir rektor HR og formað- ur dómnefndar og Halldór J. Krist- jánsson bankastjóri Landsbankans. Landsbankinn veitir námsstyrki KB banki veitti nýlega námsstyrki til 13 námsmanna sem stunda nám á framhaldsskóla- og háskólastigi en styrkirnir eru veittir árlega. Er þetta sextánda árið sem bankinn veitir styrki til viðskiptavina í náms- mannaþjónustu bankans. Að þessu sinni gengu sex styrkir til stúdenta við háskóla og sérskóla á Íslandi að upphæð 250 þúsund hver, fjórir styrkir til nemenda í há- skólanámi erlendis að upphæð 350 þúsund hver og þrír námsstyrkir til námsmanna á framhaldsskólastigi. Þeir sem hlutu styrk í ár eru: Dav- íð Þór Tryggvason, Hannes Helga- son, Helga Þóra Björgvinsdóttir, Úlfar Freyr Stefánsson, Bryndís Ósk Jónsdóttir, Gunnhildur Daða- dóttir, Hannes Arnórsson, Herwig Lejsek, Steinar Örn Atlason, Tryggvi Þorgeirsson, Ástríður Ólafsdóttir, Einar Búi Magnússon og Sigurbjörg Ólafsdóttir. Á myndinni er Ingólfur Helgason, forstjóri KB banka, ásamt styrkþeg- um og fulltrúum þeirra. KB banki styrkir námsmenn Íslenskur heimilisiðnaður í Árbæjarsafni ÁRBÆJARSAFN helgar íslenskum heimilisiðnaði sunnudaginn 11. júní, í samvinnu við Heimilisiðnaðarfélag Íslands. Heimilisiðnaðarfélagið kynnir starfsemi kl. 13–17, fé- lagsmenn verða í safnhúsunum og sýna m.a. þjóðbúninga, útsaum, bal- dýringu, knipl, spjaldvefnað, leð- urvinnu, vattarsaum, þæfingu o.fl. Heimilisiðnaðarskólinn stendur fyr- ir nemendasýningu á Kornhúsloft- inu, þar sem sýndur verður afrakst- ur námskeiða vetrarins. Fyrir börnin verður mikið um að vera, þau geta spreytt sig á að húla, ganga á stultum og leika sér með leggi og skeljar, einnig verða hestar á svæðinu. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er kr. 600 en ókeypis er fyrir börn að 18 ára aldri og eins er ókeypis fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Safnið verður opnað kl. 10 og er Kaffisala í Dillonshúsi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.