Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 49 UMRÆÐAN 10.-11. júní Reykjavíkurhöfn - Miðbakki Í dag ver›ur gengi› um gömlu Reykjavíkurhöfn í fylgd me› Gu›jóni Fri›rikssyni sagnfræ›ingi. Lagt verður af stað frá Ingólfsnausti, Aðalstræti 2 kl. 14.00. H2 hönnun Gön guferð um gömlu Reykjavíkurhöfnf l j í „EF EITTHVAÐ er ekki bilað, þá þarf ekki að gera við það.“ Þessi hnyttnu orð féllu nýlega í umræðu um fyrirhugaða skerðingu mennta- málaráðherra á námi til stúdents- prófs. Um þessar mundir virðist nefnilega einmitt ásetningur ráð- herrans að laga það, sem ekki þarf að laga, og helst að nota til þess tíu þumalfingur. Ekki verður séð að ís- lensku skólakerfi sé svo ábótavant, að það réttlæti stórfellda náms- skerðingu ráðherrans, og auk- inheldur hefur margoft verið lýst yfir að markmiðið með skerðing- unni sé ekki sparnaður. Hver er þá tilgangurinn? Skerðingin virðist krossferð framagjarns stjórnmála- manns, sem vill reisa sér bautastein á kostnað gæða menntunar og vel- ferðar æsku landsins. Að hætti stjórnmálamanna hefur ráðherrann verið óspar á fagurgala og inn- antómt orðagjálfur, en þegar kem- ur að raunhæfum úrlausnarefnum, þá verður svara jafnan fátt. Tökum dæmi. Hvernig samræm- ist það að skerða menntun á borði, meðan að því er haldið fram í orði að hún verði jafngóð? Engin svör. Hvernig er hægt að tala um fjöl- breyttari menntun, þegar í reynd er verið að skerða valfrelsi nem- enda? Engin svör. Hvernig verður tekið á þeim vandamálum, sem upp koma árið 2012, þegar tveir ár- gangar útskrifast samtímis úr framhaldsskólum? Engin svör. Hvers eiga börn fædd árið 1993 að gjalda að fá mun lakari menntun en þau sem fædd eru árið 1992? Engin svör. Hvaða úrræði eiga háskólar landsins, þegar nemendur fara að brautskrást úr framhaldsskólum með misgóðan undirbúning? Engin svör. Hvernig eiga fámenn dreif- býlissveitarfélög að mæta vaxandi útgjöldum, sem ráðherrann er að leggja á þau með aukinni lögskip- aðri grunnskólakennslu, þegar námsefni flyst ofan frá framhalds- skólum? Engin svör Þannig má lengi halda áfram. Ef ráðherrann kann skýr og afdrátt- arlaus svör við þessum spurn- ingum, þá er hún beðin að veita þau hið bráðasta. Það getur varla talist affarasælt að stjórnvöld fari fram með vanhugsaðar breytingar af offorsi, sem Mussolini hefði verið fullsæmdur af, í trássi við allt skólasamfélagið utan fáeinna ein- trjáninga og taglhnýtinga. Ráð- herrann hefur nær alla kenn- arastétt landsins upp á móti sér og virðist kæra sig kollótta um. At- hyglisverðast er þó að ekki hefur enn heyrst rödd frá þeim fram- haldsskólanemanda, sem mælir framgöngu ráðherrans bót, og er það umhugsunarefni, þar sem nem- endur nútímans eiga engra beinna hagsmuna að gæta – þeir verða út- skrifaðir þegar breytingarnar taka gildi – annarra en þeirra að þeir verða foreldrar framtíðarinnar. Þeir vilja skiljanlega ekki að af- komendurnir hljóti síðri menntun en þeir fengu. Ef skerðingaráformin ná fram að ganga, getur fyrirhugað rýrara próf ráðherrans ekki talist sam- bærilegt hinu eldra og fullgilda stúdentsprófi. Því er réttara að tala um nýja prófgráðu. Ekki væri úr vegi að sú prófgráða fengi nafnið ÞKG-gráða. Að því loknu má kasta rekunum á kistu íslensks skólakerf- is. Engin svör Helgi Ingólfsson fjallar um styttingu náms til stúdentsprófs Helgi Ingólfsson ’Ef skerðingaráforminná fram að ganga, getur fyrirhugað rýrara próf ráðherrans ekki tal- ist sambærilegt hinu eldra og fullgilda stúd- entsprófi.‘ Höfundur er framhaldsskólakennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.