Morgunblaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 37
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Þetta æxlaðist bara þannigað hótelið var á sölu ogvið slógum til og keypt-um það,“ svarar Þor-
grímur Kristjánsson þegar hann
er spurður af hverju honum og
konu hans Þuríði Þórðardóttur
datt í hug að kaupa hótel í fjöllum
Austurríkis. Hótelið ber nafnið
Skihotel Speiereck og hafa Þor-
grímur og Þuríður verið eigendur
að því í eitt ár. „Ég er reyndar
búinn að vera hérna í Austurríki
með annan fótinn í tuttugu ár sem
skíðakennari og þekki því vel til.“
Þorgrímur segir þau ekki hafa
þurft að hugsa sig lengi um þegar
þau sáu hótelið á sölu. „Þuríður
rak gistiheimili á Íslandi og er þar
með vön svona rekstri. Það var lít-
ið mál fyrir okkur að flytja til
Austurríkis og við fengum mjög
góðar undirtektir hjá öllum heima,
engum fannst við orðin „klikk“,“
segir Þorgrímur og hlær.
Algjör útivistarparadís
Hótelið stendur í þorpinu
St.Michael og er í Lungau héraði í
Salzburger Land. „Þorpið er í
meira en 1000 metra hæð, með
mjög góðu skíðasvæði sem er með
yfir sextíu lyftum. Hér er hæsti
skíðatindur í Salzburger Land og
þeir eru að byggja þetta upp í að
vera besta skíðasvæði í Aust-
urríki,“ segir Þorgrímur og bætir
við að koma í þorpið sé eins og að
fara hundrað ár aftur í tímann.
„Þetta er ekta austurískt sveita-
þorp með mjög gömlum bygg-
ingum. Þorpsandinn er líka frá-
bær, ég þekkti flesta þorpsbúa
áður og þeir hafa síðan tekið Þur-
íði vel.“
St.Michael er um 100 km í suð-
urátt frá Salzburg og ekki langt
frá því liggur hraðbrautin til Ítalíu
en um klukkutíma akstur er þang-
að frá þorpinu. „Þetta er vinsælt
skíðasvæði á veturnar og hérna
byggist í rauninni allt upp á skíða-
íþróttinni. Það búa um 3000
manns í þorpinu, margir eru
bændur en aðrir vinna við að
þjóna ferðamönnunum sem sækja
þorpið heim allan ársins hring. Á
sumrin kemur fólk mikið hingað í
göngu- og hjólaferðir, hérna er
líka hægt að veiða og fara í hesta-
ferðir en það eru a.m.k þrír hesta-
búgarðar með íslenska hesta í
þorpinu. Þetta svæði er í raun al-
gjör útivistarparadís allan ársins
hring. Um 200 metra frá hótelinu
okkar er 18 holu golfvöllur og svo
er ekki nema þriggja mínútu
gangur upp í skíðalyfturnar,“ seg-
ir Þorgrímur hálf móður eftir upp-
talninguna en bætir þó við að
skíðakláfarnir séu líka opnir á
sumrin og þá sé t.d hægt að fara
upp með hjól og hjóla um fjöllin.
„Þannig að það er mjög mikið
hægt að gera hérna og ég gæti
verið með dagskrá alla daga, allan
daginn.“ En Þorgrímur er með
réttindi til að taka hópa í göngu
og hjólaferðir um nánasta um-
hverfi og fjöllin.
Í ekta sveitastíl
Þorgrímur og Þuríður hafa ver-
ið að endurbæta hótelið að und-
anförnu. „Við leigðum það út til
enskrar ferðaskrifstofu seinasta
vetur en ákváðum síðan að taka
það í gegn. Við opnuðum það svo
formlega eftir breytingar fyrstu
helgina í júní með miklu fjöri.“
Hótelið sem er um fimmtíu ára
er í gömlum austurrískum sveita-
stíl, á fjórum hæðum með átján
herbergjum og veitingastað sem
tekur sextíu manns. „Við sjálf er-
um aðalstarfskraftarnir í sumar
en svo mun ég halda áfram að
kenna á skíði í vetur og Þuríður
sér um staðinn.“ Þorgrímur segir
allt hafa gengið vel hjá þeim hing-
að til og að þau hafi fengið góðar
viðtökur.
FERÐALÖG | Þorgrímur Kristjánsson og Þuríður Þórðardóttir keyptu skíðahótel í Austurríki
Vinalegt sveitaþorp í fjöllunum
Þuríður og Þorgrímur fyrir miðju í góðra vina hópi á hótelinu.
Séð yfir austurríska skíðaþorpið St. Michael sem er einstaklega fallegt hvort sem er á sumrin eða veturna.
www.skihotel-speiereck.at
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Norræn hönnunun • www.bergis.is
COPENHAGEN