Morgunblaðið - 10.06.2006, Side 34
Vika á Ítalíu
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
25
46
05
/2
00
6 16.600 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Bíll úr flokki B
50 50 600 • www.hertz.is
*
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
*Verð miðað við gengi 1. maí 2006.frá
Daglegtlíf
júní
Persónulegir munir á skrifborðinu geta aukiðvinnuafköstin, að því er ný könnun leiðir í ljós.Fjölskyldumyndir, fáni uppáhaldsíþróttaliðsins
eða hvað sem er sem hressir upp á vinnuumhverfið hef-
ur góð áhrif, að því er fram kemur í frétt Dagens
Nyheter. Gerð var könnun á vegum Vasakronan sem
leiddi í ljós að konum þykir betra að vinna ef persónu-
legir munir eru í kringum þær en körlum.
Báðum kynjum þótti það þó mikilvægt, en alls tóku
yfir þúsund manns þátt í könnuninni. 70% fannst sam-
band á milli streitu og útlits skrifborðsins og 59% þótti
hafa góð áhrif að hafa persónulega muni í vinnuum-
hverfinu.
Hávaði og skvaldur
Skrifstofufólki þykir vinnuumhverfi allajafna mik-
ilvægt fyrir vinnuafköstin. Ef það er streituvaldandi
verða vinnuafköstin minni og öfugt. Prófessor við Upp-
salaháskóla segir að hávaði og skvaldur geti t.d. haft
neikvæð áhrif en annað hljóð geti haft róandi áhrif, s.s.
fuglasöngur eða vatnsniður. Aðgangur að setustofu og
eldhúsi þótti 55% þátttakenda mikilvægur. Hins vegar
hefur hvíldarherbergi eða sturta engin áhrif á vinnuaf-
köstin, skv. könnuninni.
KÖNNUN
Mynd af elskunni á skrifborðið
Morgunblaðið/Eyþór
Tæplega 60% þótti gott að hafa persónulega muni í
vinnuumhverfinu.
Lítil börn sem horfa mikið á sjón-varp geta átt í erfiðleikum meðsvefn, að því er finnsk rannsókn
bendir til. Í Svenska Dagbladet er
greint frá rannsókninni sem gerð var í
Tammerfors í Finnlandi. Þau börn sem
horfa á sjónvarpsefni fyrir fullorðna
eiga á hættu að sofa verr en önnur. En
einnig getur það haft áhrif þegar börn-
in leika sér í sama rými og sjónvarp er
í gangi. Foreldrar sem vilja að börnin
séu útsofin og frísk ættu því að bíða
með að horfa á fréttir, glæpaþætti og
kvikmyndir þar til börnin eru farin að
sofa.
Rannsóknin tók til 321 foreldris 5-6
ára barna í þremur háskólabæjum í
Finnlandi.
Óvirkt áhorf hefur líka áhrif
Athyglisverðasta niðurstaðan var sú,
að mati Anja Riitta Lahikainen pró-
fessors, að óvirkt áhorf, þ.e. þegar
kveikt er á sjónvarpi í sama herbergi
og börnin leika sér án þess að þau séu
að horfa, hefur svo mikil áhrif á svefn
barnanna. Að meðaltali var kveikt á
sjónvarpinu í rúma fjóra tíma á dag á
heimilunum sem tóku þátt í rannsókn-
inni. Börnin horfðu sjálf í 1,4 klukku-
stundir að meðaltali á dag og óvirka
áhorfið var álíka langt til viðbótar. Virkt
áhorf leiddi ekki til verri svefns, sér-
staklega ekki ef um barnaefni var að
ræða og foreldrarnir horfðu með. Óvirkt
áhorf getur leitt til þess að börnin sjá
eitthvað sem ekki er við hæfi barna og
því er mikilvægt fyrir foreldra að spyrja
börn sín reglulega hvort eitthvað veki
óhug hjá þeim eða hvort eitthvað sem
þau hafi séð í sjónvarpinu liggi þungt á
þeim. Bandaríska barnalæknafélagið
hefur áður beint þeim tilmælum til for-
eldra að börn horfi ekki á sjónvarp í
meira en tvo tíma á dag og sænskur
sérfræðingur sem rætt er við í SvD vill
að sænskir foreldrar taki þau tilmæli
einnig til sín.
Sjónvarpið getur haft áhrif á svefn ungra barna
Morgunblaðið/Sverrir
BÖRN
H
ugþrautarfólk getur nú glaðst yf-
ir því að hafa nóg að velta vöng-
um yfir í sumarfríinu. Nýlega
kom út Bókin um Kakuro en
Kakuro er rökrænn gátuleikur
sem minnir mikið á Sudoku sem hefur verið
mjög vinsælt út um allan heim að undanförnu.
Lárus Jón Guðmundsson hjá Hugall, sem
gefur bókina út, segir þessar gátur nokkuð
svipaðar Sudoku en með meiri dýpt. „Kakuro
er svipað og krossgáta nema með tölur í stað
orða. Aðeins má nota tölur á bilinu 1 til 9, það
má bara nota hverja tölu einu sinni í hverri
lausnarlínu og allar tölur línunnar sam-
anlagðar verða að vera jafnar vísbendingartöl-
unni.“
Aðspurður hvort þetta sé erfitt segir Lárus
þá sem leysi gáturnar þurfa að hafa ágæta rök-
hugsun ásamt pínulítilli færni í hugarreikningi.
„Maður þarf í rauninni ekki að vera rosagóður í
stærðfræði til að leysa Kakuro þar sem ekki
þarf að leggja saman upp í hærra en 45. Létt-
ustu gáturnar gætu jafnvel hentað krökkum
niður í tíu ára.“
Í bókinni eru 100 Kakuro-gátur
á mismunandi styrkleikastigi
„Í Íslensku staðfærslunni á Kakuro lék ég
mér að því að endurskíra styrkleikastigin í
bókinni en þau eru fimm. Léttasta gátan heitir
Garmur, svo kemur Greipur, Garpur, Glámur
og Grettir en hann er erfiðasta stigið. Garmur
er bara garmur, greipur þýðir handsterkur,
garpur er sterkari en greipur og Grettir vann
Glám.“
Rakst á Kakuro á ferðalagi
Lárus kynntist Kakuro þegar hann var á
ferðalagi í Englandi síðastliðið haust. „Við
hjónin vorum í helgarferð og ég rakst á Kak-
uro-bók í bókabúð og greip með mér. Ég heill-
aðist strax því þetta er
sniðugt og ávanabind-
andi, nú reyni ég að
leysa gátu eins oft og ég
get.“
Kakuro er upp-
runalega komið frá Jap-
an en Lárus segir það þekkt í Bandaríkjunum
undir heitinu „Cross sums“ sem mætti þýða
samlagning í kross. „Kakuro er ekkert nýtt en
hefur verið mjög vinsælt í Bretlandi að und-
anförnu og útgáfurétturinn hefur verið seldur
til flestra Evrópulanda,“ segir Lárus en hann
sjálfur hefur mjög gaman af Kakuro eins og
venjulegum krossgátum og Sudoku. „Svona
hugarþrautir eru ögrandi og gaman að takast á
við þær.“
AFÞREYING | Kakuro er rökrænn gátuleikur frá Japan
Leysi gátu eins oft og ég get
Morgunblaðið/ÞÖK
Lárus Jón Guðmundsson hefur gaman að því
að leysa Kakuro-gátur.
Garmur er
léttasta stig-
ið en Grettir
það erfiðasta
Gæði sæðis minnka með aldrinum, aðþví er bandarísk könnun leiðir í ljós.Í Aftenposten er bent á að karlar al-
veg eins og konur þurfi að hugsa um líf-
fræðilegu klukkuna þegar kemur að barn-
eignum.
Bandarískir vísindamenn hafa nú fundið
samhengi á milli erfðafræðilegra gæða sæðis
og aldurs karlmannanna og telja að erfða-
efnið verði lélegra með árunum. Rannsakað
var DNA í sæði frá 97 körlum á aldrinum
22–80 ára og niðurstöðurnar benda til þess
að því eldri sem karlar eru, því fleiri sáð-
frumur hafi galla í DNA. Líkurnar á því að
karlar beri áfram erfðagallann sem leiðir til
dvergvaxtar aukast einnig með aldrinum. Að
sögn Andrews Wyrobeks, forsvarsmanns
rannsóknarinnar, sem fór fram í Kaliforníu,
sýnir rannsóknin fram á að karlar sem bíða
með barneignir fram eftir aldri geta átt á
hættu að frjóvgun takist ekki auk þess sem
líkurnar á erfðagalla hjá afkvæminu aukast.
Morgunblaðið/Ómar
Niðurstöður benda til að því eldri sem karlar
eru því fleiri sáðfrumur hafi galla í DNA.
RANNSÓKN
Sæðið verður
lélegra
með árunum
Þungaðar konur sem vinna streituvaldandivinnu ættu ekki að vinna meira en 32tíma á viku, að því er hollensk rannsókn
bendir til. Í Svenska Dagbladet kemur fram að
rannsóknin hafi tekið til 7.000 þungaðra kvenna
og í ljós hafi komið að
þær sem unnu streitu-
valdandi vinnu meira en
32 tíma á viku áttu á
hættu að eignast of létt
börn, þ.e. að meðaltali
150 g léttari en börn
þeirra sem unnu minna.
Ástæðan er talin hátt
gildi streituhormónsins
kortisól sem kemst í gegnum fylgjuna til fóst-
ursins. Áður er þekkt að kortisól getur hindrað
fósturvöxt. Stressaðar óléttar konur eiga þar að
auki frekar á hættu að fá of háan blóðþrýsting
sem getur minnkað blóðstreymi til fóstursins.
Þrátt fyrir að rannsakaðar hafi verið konur sem
unnu yfir 32 tíma á viku ráðleggja vísindamenn-
irnir í Amsterdam þunguðum konum að vinna
ekki meira en 24 tíma á viku.
HEILSA
Styttri vinnuvika
á meðgöngu