Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 35
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit ermeð elstu hótelum landsins og ásumrin iðar allt af lífi í sveitinnimeð vaxandi fjölda ferðamanna.
Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri Hótels Reyni-
hlíðar og aðaleigandi, sagði í nokkrum orðum
frá breytingum sem gerðar hafa verið á híbýl-
unum nú nokkur síðustu ár.
„Við höfum verið að endurnýja húsnæðið á
undanförnum fimm árum,“ segir Pétur. „Við
lukum því nú nýlega með því að taka helming-
inn af herbergjunum algjörlega í gegn. Gesta-
móttakan hefur líka verið stækkuð og fengið
andlitslyftingu, útbúinn hefur verið bar á jarð-
hæðinni og anddyrið hefur verið endurbyggt,“
heldur hann áfram.
Veitingastaðurinn í Hótel Reynihlíð hefur
fengið nafnið Veitingahúsið Myllan. Það hefur
löngum verið þekkt fyrir sinn góða mat og hef-
ur einnig gengið í endurnýjun lífdaga. „Við
lukum breytingum þar fyrir tveimur árum,“
segir Pétur, „endurnýjun þess var hluti af
heildarendurnýjuninni og veitingahúsið hefur
t.d. fengið nýjan inngang. Öll árin höfum við
verið með fjölbreyttan og góðan matseðil.“
Hótel Reynihlíð tók til starfa sumarið 1942,
fyrst sem heimagisting hjónanna Péturs Jóns-
sonar og Þuríðar Gísladóttur. Nýtt hús var
byggt yfir starfsemina á árunum 1947–49 og
þar hefur verið rekið hótel óslitið síðan af sömu
fjölskyldunni.
Um breytingarnar nú segir Pétur að verið sé
að laga húsnæðið að kröfum nútímans og þess
umhverfis sem reksturinn er í. „Við erum að
laga okkur að þeim þörfum sem við þekkjum
að eru til staðar. Við viljum einfaldlega vera
betri í því sem við erum að gera, svara þeirri
eftirspurn sem við vitum að er fyrir hendi á
markaðnum og laga okkur betur að henni.“
Hótel Reynihlíð er opið alla mánuði ársins
að undanskildum nóvember, desember og jan-
úar og að sögn Péturs er nýting á herbergjum
mjög góð. „Það er mikið bókað, við erum með
95–98% nýtingu í júlí og ágúst til dæmis,“ segir
Pétur.
„Hótelið hefur verið í fremstu röð hótela á
Íslandi alla tíð síðan það var byggt en nú var
ákveðið að taka stórt stökk inn í nútímann með
þessum breytingum,“ heldur hann áfram.
„Hótel Reynihlíð var fyrst veitingahúsa í dreif-
býli á Íslandi til að fá vínveitingaleyfi og þegar
gæðaflokkunin kom á gistihús fengum við
strax fjórar stjörnur.“
Í hótelinu er 41 herbergi, auk funda- og ráð-
stefnuaðstöðu og veitingastaðurinn tekur
hundrað manns í sæti. Við hliðina á hótelinu er
kaffihús og bar sem heitir Gamli bærinn og
hefur verið rekinn samhliða hótelinu í 12 ár.
Hönnun breytinganna á hótelinu var í hönd-
um Eyrúnar Björnsdóttur innanhússarkitekts.
FERÐALÖG | Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit hefur fengið andlitslyftingu
Nútíminn
á gömlum merg Morgunblaðið/Birkir FanndalPétur Snæbjörnsson, hótelstjóri og aðaleigandi Hótels Reynihlíðar, og eiginkona hans, Erna
Þórarinsdóttir sölustjóri, í veitingastaðnum sem hefur verið gerður upp á glæsilegan hátt.
Ferðamannatíminn er að lengjast í Mývatnssveit og Hótel Reynihlíð nýtur góðs af því.
www.hotelreynihlid.is
Verð á tveggja manna herbergi 17.900 kr.,
eins manns 15.900 kr.
Sími 464 4170,
bookings@reynihlid.is.
sia@mbl.is