Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 36
Á vefslóðinni www.michelintra-
vel.com má fá kort af öllum hugs-
anlegum ferðaleiðum og þeirri
þjónustu, sem í boði er á leiðinni.
Morgunblaðið/Ómar
Belgar eru að sögn Stefáns Ásgrímssonar einna varasamastir í umferðinni sem helgast einkum af því að ekki er
svo ýkja langt síðan þeir voru skyldaðir til að þreyta bílpróf áður en þeim var hleypt út í umferðina
Reuters
Ef ekið er á eigin bíl þarf bílstjóri að hafa græna kortið sem fæst hjá trygg-
ingafélögum og er alþjóðleg staðfesting á að bíllinn sé ábyrgðartryggður.
tryggingafélög margskonar ferða-
og farangurstryggingar.
Evrópska sjúkratryggingakortið
| Kort þetta fæst hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins og auðveldast
er að verða sér úti um það á heima-
síðu TR, www.tr.is. Kortið gildir í
öllum ríkjum EES og Sviss og stað-
festir rétt korthafa til heilbrigð-
isþjónustu, sem kann að vera nauð-
synleg á ferðalaginu. Ef þetta kort
er ekki handbært þarf að greiða alla
læknis- og heilbrigðisþjónustu fullu
verði.
Lyfjavottorð | Vottorð frá heim-
ilislækni fyrir þá, sem heilsu sinnar
vegna þurfa að taka eftirrit-
unarskyld lyf, sem geta valdið vímu-
áhrifum og hafa þau meðferðis við
komu til landa innan Schengen-
svæðisins. Vottorðið þarf að vera
stimplað af landlæknisembættinu
svo að það sé tekið gilt.
Tjaldbúðaskírteini | Gott er að
hafa alþjóðlegt tjaldbúðaskírteini
þegar gist er á tjaldsvæðum Evr-
ópu. Handhafar þess njóta bæði for-
gangs og ýmissa fríðinda og er skír-
teinið gefið út til félagsmanna FÍB.
Hraðbrautamerki | Límmiðar í
framrúðu, sem er staðfesting þess
að eingreiðsla fyrir tímabundin af-
not af hraðbrautum hafi verið
greidd. Lönd, sem krefjast hrað-
brautamerkja, eru: Búlgaría, Rúm-
enía, Sviss, Slóvakía, Tékkland,
Ungverjaland og Austurríki. Merk-
in fást á landamærastöðvum og
bensínstöðvum í grennd við þær.
Öryggisvesti | Ítalía, Portúgal,
Spánn og Austurríki krefjast þess
að öryggisvesti í skærgulum eða
appelsínugulum lit sé í bílnum og
það notað ef stöðva þarf t.d. bílinn í
vegkanti til að skipta um dekk.
aðar, þarf að vera með í för, en helst
skulu þessi skírteini ekki vera í
hanskahólfinu þegar bíllinn er yf-
irgefinn vegna þess að bílaþjófar
sækjast eftir slíkum plöggum.
Græna kortið | Ef ekið er á eigin
bíl er nauðsynlegt að hafa græna
kortið. Græna kortið fæst hjá trygg-
ingafélögum, en það er alþjóðleg
staðfesting þess að bíllinn sé
ábyrgðartryggður. Skynsamlegt er
að hafa kortið tiltækt á ferðalögum
um Vestur-Evrópu og bráðnauðsyn-
legt í Albaníu, Andorra, Bosníu/
Herzegóvínu, Búlgaríu, Hvíta-
Rússlandi, Makedóníu, Moldavíu,
Rúmeníu, Serbíu-Montenegro,
Tyrklandi og Úkraínu. Jafnframt er
mælt með því að kortið sé meðferðis
í Tékklandi, Slóvakíu, Ungverja-
landi, Króatíu, Slóveníu, Eistlandi,
Lettlandi, Litháen og Póllandi.
Ferðatryggingar | Ýmsar ferða-
tryggingar eru innifaldar í greiðslu-
kortum og gilda ef ferðin hefur að
helmingi eða öllu leyti verið greidd
með greiðslukorti. Sömuleiðis bjóða
bleikt ökuskírteini, í sömu stærð og
greiðslukort, er fullgilt við akstur
erlendis. Í mörgum löndum Austur-
Evrópu er skynsamlegt að hafa líka
meðferðis alþjóðlegt ökuskírteini,
sem FÍB og sýslumannsembættin
gefa út. Alþjóðlegt ökuskírteini er í
rauninni alþjóðleg þýðing á öku-
skírteininu og staðfesting þess að
handhafi þess sé með fullgild öku-
réttindi. Ef erlendur lögreglumaður
fær í hendurnar ökuskírteini Íslend-
ings ásamt alþjóðlegu ökuskírteini
þá á hann að sjá þetta strax.
Gömlu stóru bleiku plöstuðu
pappírsskírteinin eru einnig fullgild
erlendis svo fremi sem þau eru ekki
útrunnin. En skynsamlegt er þó að
verða sér úti um nýju plastskírteinin
í stað gömlu skírteinanna þar sem
erlendir aðilar, sem kunna að spyrja
um ökuskírteini, átta sig betur á
þeim. Eldri skírteinin gætu vafist
fyrir mönnum.
Skráningarskírteini | Skráning-
arskírteini þess bíls, sem ferðast er
á, hjólhýsa eða annars aukabún-
V
ið akstur í útlöndum skal
hafa þá meginreglu í
heiðri að fara í hvívetna
eftir lögum, reglum og
umferðarmerkjum.
Hægri handar akstur tíðkast víðast
hvar sem þýðir að hægfarnasta um-
ferðin skal halda sig lengst til
hægri, t.d. gangandi, síðan hjólandi
og svo akandi, og framúrakstur
leyfist eingöngu á vinstri kanti. Þá
er mikilvægt að brýna fyrir fólki að
akstur og áfengi eiga aldrei saman,
en freistist menn til að bjóða hætt-
unni heim í þeim efnum, geta tóm
leiðindi og mikið vesen í sum-
arfríinu fylgt slíku hátterni,“ segir
Stefán Ásgrímsson, ritstjóri hjá Fé-
lagi íslenskra bifreiðaeigenda.
Leyfilegt áfengismagn í blóði við
akstur er mismunandi eftir löndum,
allt frá 0,0% í Rússlandi og mörgum
fyrrum austantjaldslöndum upp í
0,09% á Kýpur og 0,08% á Írlandi,
Bretlandi, Lúxemborg, Möltu, Sviss
og Nýja-Sjálandi. Á Íslandi er miðað
við 0,05%, eins og mjög víða annars
staðar. Stefán segist hafa góða
reynslu af akstri í Evrópulöndum og
almennt séu ökumenn til fyrir-
myndar þó alls staðar megi finna
undantekningar. „Belgar eru þó
einna varasamastir í umferðinni
sem helgast einkum af því að ekki
er svo ýkja langt síðan að þeir voru
skyldaðir til að þreyta bílpróf áður
en þeim var hleypt út í umferðina.
Sömuleiðis er gott að gæta sín mjög
vel þegar ekið er í gömlu aust-
antjaldslöndunum þar sem heima
menn hafa ekki vanist því að hafa
bíla til umráða. Ólíkt því sem marg-
ir álíta að Ítalir og Frakkar séu
hvað hættulegastir Evrópubúa í um-
ferðinni, finnst mér svo alls ekki
vera, en þeir nota mikið augn-
samband við aðra ökumenn og
bendingar í allar áttir sem kannski
er íslenskum ökumönnum eilítið
framandi.“
Öll gögn í lagi
FÍB leggur áherslu á tíu mikilvæg
ferðagögn fyrir bílferðalag erlendis
sem sjá má hér að neðan. Mjög mik-
ilvægt er að gögn þessi séu í lagi og
meðferðis þegar haldið er af stað og
gott er að fara vel yfir listann áður
en ferðatöskunum er lokað og úti-
dyrunum læst.
Vegabréf | Gilt vegabréf er nauð-
synlegt. Þó norrænir ríkisborgarar
þurfi ekki að framvísa vegabréfi við
komu til annarra Norðurlanda held-
ur dugi þar almenn persónuskilríki,
þá er vegabréfið algjör nauðsyn ef
lengra skal halda. Innan Norður-
landanna er þó alltaf til bóta að hafa
vegabréfið við höndina, t.d. þegar
reka þarf erindi í bönkum, á hót-
elum og tjaldsvæðum. Allir, sem náð
hafa 15 ára aldri, skulu bera eigið
vegabréf á ferðlögum utan Norður-
landanna. Hægt er að fá útgefin
vegabréf fyrir börn undir 15 ára
aldri, en þau eru ekki nauðsynleg ef
einungis er ferðast innan Evrópu,
t.d. innan Schengen-svæðisins. Þar
nægir að börn undir 15 ára aldri séu
skráð í vegabréf foreldris.
Ökuskírteini | Almennt íslenskt
FERÐALÖG | Akstur í útlöndum krefst undirbúnings og skipulags
Tíu mikilvæg ferðagögn
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
36 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
Sjóstangaveiði í Reykjanesi
Í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp verður
boðið upp á ýmsar nýjungar í ferða-
þjónustu í sumar. Þar á meðal eru báts-
ferðir, sjóstangaveiði, kajakferðir og
leiðsögn um Reykjanesið og umhverfi.
Ferðalangar geta notið náttúrunnar á
siglingu með Sunnu ÍS um djúpið. Af-
þreying af þessu tagi hefur ekki verið
áður í Reykjanesi nema samkvæmt
pöntunum fyrir hópa: Nú er afþreyingin
einnig fyrir einstaklinga og minni hópa.
Best er þó að panta fyrirfram.
Spánverjavígin
Á Jónsmessu, 24. júní nk. verður haldið
málþing um Spánverjavígin árið 1615 á
vegum Snjáfjallaseturs á Snæ-
fjallaströnd. Í tengslum við málþingið
verður fluttur einleikur Kómedíuleik-
hússins um vígin. Einnig verður sett
upp sýning um Spánverjavígin í sam-
vinnu við verkefnið Vestfirði á miðöld-
um, Strandagaldur og fleiri. Sam-
skiptum Íslendinga og Spánverja/Baska
á 17. öld verða gerð skil á málþinginu,
einnig fornleifarannsóknum sem tengj-
ast samskiptunum. Á dagskránni verð-
ur vettvangsskoðun með leiðsögn í
Æðey, Sandeyri og Ögur. Jónas Helga-
son í Æðey býður upp á siglingu frá Ísa-
firði.
Miðjarðarhafssigling og Ítalía
Dagana 13.–27. september býður Úrval-
Útsýn upp á siglingu um Miðjarðarhafið
og dvöl á Ítalíu en fararstjóri í þeirri ferð
verður Guðmundur V. Karlsson.
Siglt verður á skemmtiferðaskipinu
Splendor of the Seas.
Flogið er til Bologna 13. september.
Þaðan er ekið til Verona þar sem gist
verður í tvær nætur og farið í heilsdags-
ferð að Gardavatni. Þann16. sept. er ek-
ið til Feneyja þar sem helstu byggingar
verða skoðaðar og siglt á gondólum.
Daginn eftir er haldið af stað í Miðjarð-
arhafssiglingu. Eftir siglingu er dvalið í
Florens í tvær nætur og áður en haldið
er heim er farið m.a. til Siena og Pisa.
Gönguleiðakort
og örnefnaskilti
Mikilvægt er að áningarstaðir ferða-
manna séu skipulagðir þannig að
manngerðir hlutir eins og skilti, borð og
bekkir falli sem best að umhverfinu, að
sögn Rannveigar Einarsdóttur, annars
eiganda fyrirtækisins Náttúrulega, sem
hún stofnaði ásamt Elínu S. Harð-
ardóttur í vor. Fyrirtækið hefur að-
seturá Höfn í Hornafirði. Það sérhæfir
sig í hönnun fræðsluskilta og korta,
skipulagi ferðamannastaða og útivist-
arsvæða, ásamt öðru. Helstu verkefnin
núna eru gönguleiðakort yfir Mýrar í
Hornafirði, örnefnaskilti og auglýs-
ingaskilti fyrir Jöklasýninguna á Höfn,
skipulag skógræktarsvæðisins við
Drápskletta á Höfn, fræðsluskilti á nátt-
úrustíg við Fláajökul og lokafrágangur
fræðsluskilta í Haukafelli á Mýrum.
Eyjan Vigur í sumar
Eins og mörg undanfarin ár verður
eyjan Vigur opnuð almennum ferða-
mönnum 10. júní. Lítið er af snjó í ár en
fullt af fugli. Hretið sem kom seinnipart
maí virðist ekki hafa haft teljandi áhrif á
varp fuglanna, en lundi, teista og æðar-
fugl eru helstu tegundirnar sem verpa í
Vigur. Krían er aftur á móti minna áber-
andi þetta árið og kannski margir sem
þakka fyrir að geta gengið hjálmlausir
um grösuga balana. Farið er frá Ísafirði
alla daga fram til loka ágúst klukkan 14.
Einnig er boðið upp á morgun- og
kvöldferðir fyrir hópa.
Bókanir í Vigur eru hjá Vestur-
ferðum á Ísafirði sem veita nánari
upplýsingar.
www.vesturferdir.is
www.natturulega.is
www.rnes.is