Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 39
UMRÆÐAN
Þessir tveir menn eru hvor öðrum snjallari.
Þessar þrjár konur eru hver annarri snjallari.
Þessar tvær þjóðir eru hvor annarri snjallari.
Englendingar og Frakkar eru hvorir öðrum snjallari.
Allt er þetta fólk hvað öðru snjallara.
Þessi tvö börn eru hvort öðru snjallara.
Þetta tvennt er hvað öðru snjallara.
(meira á morgun)
Gætum tungunnar
HLUTVERK Morgunblaðsins
er skýrt – að tryggja völd Sjálf-
stæðisflokksins og vernda þá sem
Flokknum tengjast. Það má deila
um hvort Morgunblaðið er fjöl-
miðill eða áróðursrit. Þessar at-
hugasemdir byggjast á því að
blaðið sé fjölmiðill. Það er Sjálf-
stæðisflokknum nauðsynlegt að
halda Framsóknarflokknum á lífi
– eða a.m.k. nægilega stórum til
að geta verið hækja undir völd
Flokksins. Það er því mikið að
gera á blaðinu nú um stundir.
Það kann að skýra eitthvað. Jó-
hann Ársælsson, alþingismaður
Samfylkingarinnar, benti á hlut-
verk Morgunblaðsins í grein í
blaðinu fyrir skömmu. Þar benti
hann á tilraunir í blaði sem dreift
var til áskrifenda Morgunblaðs-
ins til að réttlæta framgöngu
Flokksins í landhelgismálinu. Jó-
hanni er svarað af ritstjórn
blaðsins í dag, í dálki sem heitir
Staksteinar. Sá dálkur, hvar eitt
sinn voru málaðar huggulegar
mannlífsmyndir, er í dag líklega
mesti sori íslenskrar blaða-
mennsku – hvaðan miskunn-
arlaust vegið er úr launsátri að
mannorði fólks. Þar virðist rit-
stjórnin fá útrás fyrir hugmyndir
sínar um innræti ímyndaðra and-
stæðinga. Dálkurinn í dag er með
þeim ljótari sem ég hef séð. Rétt
er að taka það sérstaklega fram
að blaðið hefur talað fyrir skoð-
anafrelsi. Það er því eðlileg krafa
að Morgunblaðið biðji Jóhann af-
sökunar á óhróðri, útúrsnún-
ingum og hótunum sem birtast í
Staksteinum í gær. Ritstjórnin
ætti að nota ferðina og biðja
fleiri afsökunar. Það myndi
stækka hana.
Lúðvík Bergvinsson
Morgunblaðið á að
biðjast afsökunar
Höfundur er alþingismaður.
ÞAÐ gjörist býsna oft að birtar
eru niðurstöður svokallaðra rann-
sókna er sýna eiga hollustu áfeng-
isneyzlu og betur að gáð eru flestar
þeirra runnar undan rifjum og kost-
aðar af vínframleið-
endum en þó öllu frem-
ur vínsölum, enda ríma
þær afar illa við rann-
sóknir sem eru t.d.
unnar á vegum eða
undir eftirliti Alþjóða
heilbrigðismálastofn-
unarinnar – WHO.
Ekki er svo sem að
undra þó áfeng-
isauðvaldið auglýsi
sína vöru og sýni hana í
þeim töfraljóma unaðs-
semda sem við þekkj-
um svo vel, en lakara
er þegar reynt er að klína vís-
indalegu vörumerki hollustunnar á
innihaldið.
Það vakti verðskuldaða athygli
mína á dögunum þegar Blaðið birti
rannsóknarniðurstöður virtrar
stofnunar „Institute of Alkohol Stu-
dies“ IAS undir fyrirsögninni:
Áfengi stærri heilsufarsvandi en of-
fita. Undirfyrirsögnin var: Ný rann-
sókn sýnir fram á að fimm til níu
milljónir barna tilheyra fjölskyldum
sem hafa beðið alvarlegan skaða af
ofnotkun áfengis, og er þar greini-
lega átt við Evrópulönd. Rétt skal
gripið niður í þessari merku grein
sem Blaðið á þakkir skildar fyrir að
birta. Þarna segir að árlega kosti
vandamál sem tengjast áfeng-
isneyzlu 125 milljarða evra ef öll
Evrópa er talin með. Þar segir einn-
ig: Áfengisvandamálið er eitt af
þremur stærstu heilsufarsvanda-
málum sem Evrópubúar glíma við
næst á eftir tóbaksneyzlu og háum
blóðþrýstingi. Áfengisvandinn er
stærri en offituvandamálið, hreyf-
ingarskortur og neyzla
ólöglegra eiturlyfja.
Tilvitnun lýkur.
Þetta eru athygl-
isverðar og um leið
ógnvekjandi nið-
urstöður en koma svo
sem ekki á óvart. Það
vekur einnig athygli að
fræðimennirnir sem að
rannsóknunum stóðu
hvetja yfirvöld til að
taka þessi mál fastari
tökum m.a. með því að
stjórna dreifingu og
sölu áfengis t.d. með
því að hækka verð og takmarka opn-
unartíma sölustaða, nokkuð sem
rímar mjög illa við boðskap „frelsis“
postulanna hér á landi. Þarna segir
einnig að það sé augljóslega munur á
þeim skaða sem áfengi veldur miðað
við til hvaða Evrópulanda er horft,
en alls staðar væru þó alvarleg
vandamál til staðar sem öll löndin
ættu sameiginleg. Inn í þetta fléttast
t.d. 10 þúsund mannslíf af völdum
þeirra er aka undir áhrifum áfengis
og er hræðileg tala. Í lokin segir for-
maður nefndar um áfengisvarnir
svo: Við vonum að þessi skýrsla
sendi neyðarkall til Evrópusam-
bandsins og ríkisstjórna innan Evr-
ópu. Misnotkun áfengis er eitt út-
breiddasta heilsufarsvandamál sem
við horfumst í augu við en eins og
staðan er í dag er alltof lítið gert í
Evrópu til þess að stemma stigu við
týndum mannslífum og þeim
ómælda skaða sem þessi misnotkun
veldur. Tilvitnun lýkur.
Svo mörg voru þau orð og okkur
þótti full ástæða til að ítreka þau
skilaboð sem þau fela í sér enn frek-
ar. Við bindindismenn viljum vinna
með og kynna staðreyndir einar í
þessum málum og þessi skelfilega
niðurstaða er ógnvænleg og allt
hugsandi fólk ætti að taka til hennar
fullt tillit þegar mótuð er stefna í
áfengismálum og henni svo fram-
fylgt á bezta veg. Þetta ákall á að
vera okkur bæði viðvörun og hvatn-
ing.
Áfengi er eitt af stærstu
heilsufarsvandamálunum
Helgi Seljan fjallar
um áfengismál ’Við bindindismenn vilj-um vinna með og kynna
staðreyndir einar í þess-
um málum og þessi
skelfilega niðurstaða er
ógnvænleg og allt hugs-
andi fólk ætti að taka til
hennar fullt tillit þegar
mótuð er stefna í áfeng-
ismálum og henni svo
framfylgt á bezta veg.‘
Helgi Seljan
Höfundur er form.
fjölmiðlanefndar IOGT.
Kirkjuvellir 7 - Hf. Opið hús
Opið hús í dag frá kl. 14.00 til 16.00
Tilbúnar sýningaríbúðir.
Glæsilegt 23 íbúða fjölbýlishús á sex hæðum.
2ja, 3ja & 4ra herbergja íbúðir
4 íbúðir á hæð.
Lyfta í stigagangi
Bílastæði í bílakjallara
Glæsilegar innréttingar frá Brúnás
Eldhústæki frá AEG
Vandað myndasímakerfi
Vandaður frágangur
Byggingaraðili er Gunnar og Ólafur ehf.
Sölumenn Hraunhamars á staðnum
Kirkjuvellir 7, Hafnarfirði opið hús
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasali, Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði