Morgunblaðið - 10.06.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 61
SKÁKÁHUGAMENN á Íslandi
sem og annars staðar hafa síðustu
daga fjallað mikið um Ólympíuskák-
mótið í Tórínó á Ítalíu. Hvaða þjóðir
stóðu sig vel, hvaða skákmenn stóðu
upp úr, hvaða skák var best tefld og
svo mætti lengi telja. Umræða af
þessu tagi fer aðallega fram á netinu
og á þeim vettvangi hafa margir ís-
lenskir skákáhugamenn tjáð sig um
árangur íslenska liðsins á Skákhorni
skákmanna. Gagnrýnisraddir eru
þar nokkuð háværar og talið er óvið-
unandi að stórveldið í skák, Ísland,
lendi hvað eftir annað í kringum 50.
sæti í opnum flokki á Ólympíuskák-
mótum. Flestir virðast sammála um
að bæta þurfi þjálfun íslenskra skák-
manna og umtalsvert átak þurfi til
svo að raunhæft verði að íslenska
landsliðið í opnum flokki nái að kom-
ast aftur í fremstu röð, en hægt er að
nálgast þessi greinarskrif með því að
fara á www.skak.is og fara þaðan á
vefslóð Skákhornsins.
Til allrar hamingju er heimur
skákarinnar stærri en sem nemur
sjóndeildarhring hins íslenska skák-
samfélags. Úti í hinum stóra heimi
eru til þúsundir og jafnvel tugþús-
undir manna sem lifa af skák með
einum eða öðrum hætti. Hin háa
skákmenning sem þreifst í fyrrver-
andi lýðveldum Sovétríkjanna hefur
breiðst til ótal landa. Frakkland er
orðið stórveldi í skák með ofurstór-
meistara á borð við Etienne Bacrot
(2708) og Joel Lautier (2682) í broddi
fylkingar. Þeir hafa notið góðs af
leiðsögn þjálfara á borð við Josif
Dorfman. Einnig eru mörg Asíulönd
orðin geysiöflug. Kína hefur mark-
visst unnið að því að gera skákmenn-
ina sína þá bestu í heimi. Ekki er um
mannfæð þar að ræða og í mótinu í
ár náði liðið sínum besta árangri
hingað til, lenti í öðru sæti með 34
vinninga á meðan Armenar urðu
hlutskarpastir með 36 vinninga.
Þetta leiðir hugann að þeirri stað-
reynd að veldi Rússa í liðakeppnum
hefur verið hnekkt. Aðrar þjóðir
hafa með skipulögðum vinnubrögð-
um og góðum liðsanda skotið herra-
þjóðinni í austri ref fyrir rass. Í
mótinu í ár breytti engu fyrir Rússa
þó að Vladimir Kramnik (2729) hafi
mætt endurnærður til leiks og náð
bestum stigaárangri allra keppenda,
en hann fékk 6½ vinning af 9 mögu-
legum á fyrsta borði og árangur
hans samsvaraði 2847 stigum.
Fyrir íslenskt skáklíf er kjarni
málsins sá að útilokað er að landslið
Íslands komist í fremstu röð nema til
sé hópur skákmanna sem vilja gera
skák að fullu starfi og að þessi hópur
njóti leiðsagnar snjallra þjálfara sem
hafa jafnframt tengsl í skákheimin-
um til að útvega boð á sterk mót og
útvega sambönd við aðra sterka
skákmenn til að vinna með. Á þetta
hefur áður verið bent en úrræðin til
að hrinda þessu í framkvæmd eru fá-
tækleg. Í fyrsta lagi er ekki auðvelt
að finna hóp manna sem er tilbúinn
að inna af hendi þá vinnu sem nauð-
synleg er til að árangri sem atvinnu-
maður í skák. Margir skákmenn
hafa ekki sjálfir skilning á að for-
senda árangurs sé mikil vinna og að
æfa þurfi að minnsta kosti í 5
klukkutíma á dag til að komast í
fremstu röð. Til viðbótar þessu eiga
félagsmálamenn innan skákhreyf-
ingarinnar erfitt með að skilja að
þetta sé nauðsynleg forsenda þess
að ná árangri í alþjóðlegum keppn-
um. Til að bæta gráu ofan á svart er
skortur á fjármagni og langtíma-
stefnumörkun. Að öllu þessu saman-
dregnu er ekki ástæða til að ætla að
íslenskt landslið í skák muni á næstu
árum nái betri árangri en 30.–50.
sæti í opnum flokki á Ólympíuskák-
móti.
Þessa framtíðarsýn er kannski
ekki mörgum hugnanleg en hún er
veruleiki ef íslenskir skákmenn
halda áfram á þeirri braut að trúa
því að hæfileikar einir saman geti
fleytt mönnum áfram í hinum alþjóð-
lega skákheimi. Hæfileikar og vinna
verða að fara saman og sem dæmi
um það þarf ekki að líta lengra en til
frænda vorra Norðmanna sem eiga
undrabarnið Magnus Carlsen
(2646). Af viðtölum við hinn 15 ára
táning má ráða að hann stúderi skák
a.m.k. 3–4 tíma á dag og haldi sér
ávallt í góðu líkamlegu ástandi. Á Ól-
ympíuskákmótinu tefldi hann átta
skákir, vann fjórar og gerði fjögur
jafntefli og samsvaraði frammistaða
hans 2820 stigum. Hann lagði m.a.
ofurstórmeistarann Michael Adams
(2720) að velli sem og perúska
hörkutólið Julio Granda Zuniga
(2598). Besta skák hans var hinsveg-
ar gegn þýska stórmeistaranum
Arkadij Naiditsch (2664) sem tefld
var í 12. og næstsíðustu umferð.
Hvítt: Arkadij Naiditsch (2664)
Svart: Magnus Carlsen (2646)
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4.
Rg5 d5 5. exd5 b5 6. Bf1 h6 7. Re6
Það hefur sjálfsagt verið ætlun
hvíts að koma á óvart með því að
velja þetta sjaldgæfa afbrigði sem og
að leika þessum óvenjulega leik.
Carlsen var hinsvegar greinilega við
öllu búinn þar eð hann tefldi byrj-
unina óaðfinnanlega.
7…fxe6 8. dxc6 Bc5 9. d3 O-O 10.
Be3 Bxe3 11. fxe3 Dd6! 12. Rd2
Dxc6 13. e4
Við fyrstu sýn mætti ætla að hvít-
ur stæði betur þar eð hann hefur
traustari peðastöðu en eins og næsti
leikur svarts sýnir fram á er það
svartur sem hefur frumkvæðið í
skjóli hraðari liðskipunar.
Stöðumynd 1
13… Dc5!
Nákvæmur leikur sem gerir hvít-
um erfiðara fyrir að koma riddara
sínum fyrir á hinum góða f3-reit.
14. Rb3 Db6 15. De2 Bd7! 16. g3
a5! 17. Bh3 a4 18. Rd2 a3 19. b3 Be8!
Svartur hefur teflt af mikilli hug-
vitssemi og nákvæmni. Peðafram-
rásin á drottningarvæng hefur skap-
að veilur í stöðu hvíts og með þessum
leik verður hvítreiti biskupinn virk-
ur. Í framhaldinu tekst hvítum þó að
halda í horfinu.
20. Df2! Dc6 21. O-O Bh5 22. De3
Bg4! 23. Bg2 Dxc2 24. Hfc1 Db2 25.
h3 Had8!
Mannsfórn sem byggist á því að
hvíta staðan verður óteflanleg eftir
26. hxg4 Rxg4.
26. Hab1 Dxa2 27. Ha1 Db2 28.
Hab1 Da2 29. Ha1 Db2 30. Hab1
Hvítur væri að sjálfsögðu feginn
ef þrátefli yrði niðurstaðan en bar-
áttuglaði Norðmaðurinn hefur ann-
að í huga.
Stöðumynd 2.
30… Dd4! 31. Dxd4 Hxd4 32.
hxg4 Hxd3 33. Rf1 Ha8!
Svartur kemur hróknum undir frí-
peðið og þegar á reynir hefur svart-
ur hartnær unnið tafl þó að hann sé
manni undir í endatafli.
34. Hxc7 a2 35. Ha1 Hxb3 36. Hc2
Hba3 37. Hb2 H8a5 38. Rd2 Rxg4
39. Rb3 H5a4 40. Bh3 h5 41. Bxg4
hxg4 42. Rd2 Hxg3+ 43. Kf2 Hga3
44. Hxb5
Hvítur hefur barist um hæl og
hnakka en nú kemur svarti kóngur-
inn til skjalanna og við það molna
varnir hvíts hægt og sígandi
.Stöðumynd 3.
.44… Kf7! 45. Ke2 Kf6 46. Kd1
Hh3 47. Kc2 g3 48. Hb3 Kg5 49. Kb2
Kg4 50. Hc3 g2 51. Hcc1 He3 52.
Kc2 Kg3 53. Kb2 Kf2 54. Hc2 He2
og hvítur gafst upp.
Þessi frábæra skák Carlsens lagði
grunninn að því að Norðmenn lögðu
Þjóðverja að velli, 2½–1½, en því
miður töpuðu þeir stórt gegn Banda-
ríkjamönnum í lokaumferðinni,
½–3½. Þetta þýddi að liðið lenti í 30.–
35. sæti en að öðru leyti varð árang-
ur Norðurlandaþjóðanna í opnum
flokki sá að Svíar lentu í 16.–19. sæti,
Danir í 20.–29. sæti, Íslendingar í
43.–48. sæti, Finnar í 57.–66. sæti og
Færeyingar í 80.–87. sæti. Af þess-
um samanburði við hinar Norður-
landaþjóðirnar má ljóst vera að til að
íslenska landsliðið í skák dragist
ekki enn frekar aftur úr verður að
huga vel að þjálfun bestu skák-
manna landsins.
Að Ólympíuskákmóti loknu – staða íslenska liðsins
SKÁK
Torínó á Ítalíu
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ 2006
20. maí – 4. júní 2006
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Morgunblaðið/Ómar
Íslenska landsliðinu í skák veitti
ekki af að hafa innanborðs snilling
eins og Magnus Carlsen.
Stöðumynd 1. Stöðumynd 2. Stöðumynd 3.
Bikarkeppnin hafin
Bikarkeppnin er hafin og er þátt-
takan svipuð og undanfarin ár eða
hálfur fjórði tugur sveita.
Í fyrstu umferðinni sigraði sveit
Arons Þorfinnssonar sveit Runólfs
Jónssonar með 122 gegn 77. Aðeins
eru þrír leikir í fyrstu umferð og á
þeim að ljúka nú um helgina.
Þá er a.m.k. einn leikur búinn í ann-
arri umferð. Sveit Indu Hrannar
Björnsdóttur sótti Suðurnesjamenn
heim sl. fimmtudag. Sparisjóðsmenn
byrjuðu með miklum bægslagangi og
unnu fyrstu lotuna með nokkrum yf-
irburðum en sveit Indu kom til baka í
annarri lotu með ágætri spila-
mennsku.
Seinni leikurinn var hins vegar
unga fólkinu erfiður og lokatölur urðu
178–75 fyrir Sparisjóðinn í Keflavík.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Svipmynd úr bikarkeppninni. Inda Hrönn Björnsdóttir og Grímur Krist-
insson spila gegn Gunnlaugi Sævarssyni og Karli Gretari Karlssyni í fé-
lagsheimili bridsspilara á Mánagrund í Keflavík.
28 pör í sumarbrids
sl. miðvikudag
Mánudaginn 5. júní var spilaður
Monrad-barómeter með þátttöku 14
para. Lokastaðan varð þessi:
Rúnar Gunnarss. – Hermann Friðriksson
31
Halldór Svanbergss. – Valur Sigurðss. 20
Inda Hrönn Björnsd. – Grímur Kristinss. 16
Soffía Daníelsd. – Hrafnhildur Skúlad. 14
Miðvikudaginn var besta þátttaka
í sumarbrids til þessa, alls mættu 28
pör og efstu pör voru:
Jóhann Stefánss. – Birkir Jón Jónsson 90
Svala Pálsdóttir – Stefán Garðarss. 71
Vilhjálmur Sigurðss. – Jón Ingþórsson 57
Hrund Einarsd. – Dröfn Guðmundsd. 43
Guðjón Sigurjónss. – Ísak Örn Sigurðss. 34
Sumarbrids er spilað þrjú kvöld í
viku, mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga. Spilamennska hefst kl.
19:00 og hjálpa keppnisstjórar stök-
um spilurum að mynda pör.
Öll úrslit og spilagjöf er að finna á
heimasíðu BSÍ, www.bridge.is.
BRAUTSKRÁNING Menntaskólans
á Ísafirði fór fram í Ísafjarðarkirkju
27. maí sl. Var þetta jafnframt síð-
asta brautskráning Ólínu Þorvarð-
ardóttur, skólameistara við Mennta-
skólann á Ísafirði, en hún lætur nú af
störfum eftir fimm ára embættistíð.
Að þessu sinni voru 68 nemendur
útskrifaðir frá skólanum og er sam-
anlagður fjöldi brautskráðra nem-
enda á þessu skólaári þá 94.
Hæsta meðaleinkunn á stúdents-
prófi að þessu sinni er einkunnin
9,25 og hana hefur hlotið Auður
Sjöfn Þórisdóttir sem er dúx skólans
í ár.
Í ræðu Ólínu Þorvarðardóttur
skólameistara kom m.a. fram að í
vetur hefðu 400 nemendur stundað
nám við skólann, þar af 45 í kvöld-
skóla. Þá var formlega tekin í notk-
un á vorönn ný verkmenntaaðstaða
fyrir nýstofnaða húsasmíðabraut
sem nú hefur verið hrundið af stokk-
um. Með húsasmíðabrautinni hefur
skólinn fengið heimild til þess að út-
skrifa sveina í húsasmíðum.
Einnig sagði Ólína: „Sú kemur tíð
að sárin foldar gróa – segir í hinu
fagra kvæði Hannesar Hafstein. Ég
trúi því og bið þess að svo muni einn-
ig verða um Menntaskólann á Ísa-
firði. Ég kveð þennan vinnustað í
fullri sátt, reynslunni ríkari, með þá
fullvissu í brjósti að ég hef unnið svo
vel sem ég gat fyrir Menntaskólann
á Ísafirði. Um meira verður ekki
beðið. Þegar hretið lægir eru það
sagan og framtíðin sem dæma verk-
in.“
Þá bað Ólína skólanum, nem-
endum hans og starfsfólki öllu bless-
unar.
Brautskráning frá MÍ
ÚTHLUTAÐ hefur verið í fræði-
mannsíbúð Jóns Sigurðssonar í
Kaupmannahöfn og er íbúðinni út-
hlutað frá 1. september 2006 til 31.
ágúst 2007.
Íbúðinni er þó ekki úthlutað í
desember og janúar þar sem þá
verður unnið að endurbótum á
henni. Alls bárust nefndinni að
þessu sinni 16 umsóknir.
Sjö fræðimenn fá afnot af íbúð-
inni, sem hér segir:
Bjarnheiður Guðmundsdóttir til
að rannsaka forvarnir gegn bakt-
eríusjúkdómum í fiskeldi. Gísli Páls-
son til að vinna að rannsóknum á
viðhorfum til votlendis. Guðrún
Marteinsdóttir til að rannsaka áhrif
umhverfis á útbreiðslu þorsks og
annarra fiskistofna. Helgi Þorláks-
son til að vinna að rannsókn á sögu
utanlandsverslunar Íslands. Páll
Theodórsson til að rannsaka sögu
tækniþróunar og brautryðjenda.
Róbert Spanó til að vinna að rann-
sóknum á þróun í danskri dóma-
framkvæmd, skrifum fræðimanna
og kennsluháttum í lögskýringar-
fræði. Sigfinnur Þorleifsson til að
rannsaka áhrif helgiathafna í úr-
vinnslu sorgar.
Fræðimannsíbúðin í Kaupmanna-
höfn, tengd nafni Jóns Sigurðsson-
ar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt
Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur
vinnustofu í Jónshúsi.
Fræðimannsíbúð úthlutað