Morgunblaðið - 10.06.2006, Síða 74
74 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Yfir 51.000 gestir!
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI.
NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS
MAGNAÐUR SUMARSMELLUR SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
www.xy.is
200 kr afsláttur
fyrir XY félaga
eeeeVJV - TOPP5.is
LEITIÐ SANNLEIKANS - HVER
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
eee
V.J.V.Topp5.is
eee
S.V. MBL.
HEIMSFRUMSÝNING
Mögnuð endurgerð af hinni klassísku The Omen !
YFIR 40.000
eee
B.J. BLAÐIÐ
The Omen kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára
16 Blocks kl 6 og 10 B.i. 14 ára
X-MEN 3 kl. 8 B.i. 12 ára
The DaVinci Code kl. 5 B.i. 14 ára
Rauðhetta kl. 3.30 (400 kr.)
Saltkráka kl. 4 (400 kr.)
Á 6. degi 6. mánaðar árið 2006 mun
dagur hans koma. Þorir þú í bíó?
The Omen kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
X-Men 3 kl. 1, 3.20, 5.40, 6, 8, 8.30, 10.20 og 10.50 B.i. 12 ára
Da Vinci Code kl. 2, 5, 8, og 11 B.i. 14 ára
Da Vinci Code LÚXUS kl. 5, 8, og 11
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 1 og 4
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 2
ÞVÍ fleiri hrollvekjur sem ég sé, því
vænna þykir mér um gömlu, mögn-
uðu listasmíðina The Omen, sem á
þrítugsafmæli um þessar mundir. Til
hamingju, þú átt eftir að lifa enda-
laust, líkt og vel haldin vampíra. The
Omen hefur af mörgum vel lukk-
uðum lykilatriðum að státa. Númer
eitt, tvö og þrjú er sígildur efn-
isþráður og númer fjögur, fimm og
sex eru ódauðlegar tónsmíðar Jer-
rys Goldsmith (Ave Satani og Kill-
er’s Storm eru sannarlega með hroll-
köldustu tónsmíðum). Leikhópurinn
og tæknivinnan eru hreint afbragð,
en myndin kom ferli leikstjórans
Richards Donner á fulla ferð.
Fram er kominn leikstjóri sem
nefnist John Moore og á m.a. að baki
dágóða B-mynd, Behind Enemy Li-
nes, sem sannarlega gaf tilefni til
bjartsýni um framhaldið. Endurgerð
The Flight of the Phoenix setti
reyndar spurningarmerki við getu
mannsins á nýjaleik, en hann brást
ósmeykur við og færðist í fang að
endurgera klassíkina The Omen
þegar dró að dagsetningunni
06.06.06. Er til gróðavænlegri tíma-
setning hryllingsmyndar?
Moore hefur bersýnilega lært af
mistökum endurgerðar The Flight
of the Phoenix. Nýja Omen-myndin
jafnast vissulega ekki á við klassíska
frummyndina frekar en endurgerðir
almennt. Ef maður hins vegar legg-
ur sig fram við að hugsa ekki til for-
tíðar og reynir að setja sig í spor
kynslóðarinnar sem heldur bíóunum
gangandi í dag held ég að hún stand-
ist prófið og hafi burði til að standa
undir nafni.
Handritshöfundurinn David Selt-
zer fylgir í aðalatriðum söguþræði
upprunalegu hrollvekjunnar. Mynd-
in hefst í Róm, þar sem Thorn-
hjónunum Robert og Katherine
(Schreiber og Stiles) er að fæðast
fyrsta barnið, en áður en móðirin
kemst til sjálfrar sín kemur munkur
til Roberts og segir honum að frum-
burðurinn hafi fæðst andvana. Til að
sefa sársaukann býður þessi dul-
arfulli kuflmaður föðurnum annað,
nýfætt sveinbarn ungrar, ein-
hleyprar móður sem hann segir hafa
látist af barnsförum. Í uppnámi
augnabliksins samþykkir Robert
ráðagerðina og vita engir aðrir en
þeir tveir um gang mála þessa óveð-
ursnótt.
Tíminn líður, föðurnum hefur vax-
ið ásmegin í starfi og er orðinn
sendiherra í London. Drengurinn,
sem ber nafnið Damien, hefur dafn-
að vel og þegar hann er fimm, sex
ára er móðurina farið að gruna að
ekki sé allt með felldu með sveininn.
Hann virðist vera illa innrættur og
nærvera hans er óþægileg. Þegar
barnapían hans hengir sig fer
óhugnanleg atburðarás í gang. Ör-
væntingarfullur klerkur kemur að
máli við Robert og krefst þess að
hann deyði barnið, sem sé Anti-
Kristur sjálfur, borinn til þess að hið
illa nái völdum á jörðu hér.
Við tekur djöfulleg framvinda, í
orðanna fyllstu merkingu. Opinber-
unarbókin spáir endurkomu dýrsins
og sú atburðarás fer í gang á skelfi-
legan og hugvitssamlegan hátt. At-
riðin, hvert öðru óhugnanlegra,
rekja sig allt til enda og getur mynd-
in, líkt og frummyndin, hægast boðið
upp á nokkrar framhaldsmyndir. Til
þess þarf The Omen að spjara sig
a.m.k. betur en endurgerð Apapl-
ánetunnar um árið.
Moore fetar sig dyggilega áfram
og kryddar söguna með innskotum
sem tengja hana við samtímann. Allt
er þetta snyrtilega gert og stöku
sinnum fæðist ósvikinn óhugnaður
undir sýningunni. Damien kemur
ekki mikið við sögu, en nýliðinn
Davey-Fitzpatrick passar vel í hlut-
verkið, einkum í hryssingslegu loka-
atriðinu. Stiles og Schreiber skortir
hins vegar myndugleikann sem er
nauðsynlegur hlutverkum þeirra.
Aukaleikarahópurinn er sannarlega
vel samansettur, þeir eru allir sterk-
ir skapgerðarleikarar; Postlet-
hwaite, Gambon, Thewlis og Far-
row. Þau standa sig öll eftir atvikum,
að sjálfri „Rosemary“ undanskilinni,
en þess verður að geta að Farrow
geldur leikaranna mest samanburð-
arins við gömlu Omen. Það fer enn
um mann hrollur þegar frammistaða
Billie Whitelaw í hlutverki barn-
fóstrunnar frá víti rifjast upp.
Þegar þessi orð eru skrifuð, eft-
irmiðdaginn 25. maí, glymur skyndi-
lega rödd Adolfs Hitler í útvarpinu
og minnir á að löngum skákar sann-
leikurinn jafnvel hinum geigvænleg-
asta skáldskap.
Barnið hennar Rosemary
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: John Moore. Aðalleikarar:
Julia Stiles, Liev Schreiber, Mia Farrow,
David Thewlis, Pete Postlethwaite,
Michael Gambon, Seamus Davey-
Fitzpatrick. 105 mín. Bandaríkin 2006.
The Omen „Allt er þetta snyrtilega gert og stöku sinnum fæðist ósvikinn óhugnaður,“ segir í dómi.
Sæbjörn Valdimarsson
Sjómannadeginum hefur í gegnumtíðina verið gert hátt undir höfði
á Bolungarvík. Í allan dag verður
fjölbreytt dagskrá í
tilefni sjó-
mannadagsins sem
nær svo hápunkti í
kvöld. Þá mun eng-
inn annar en hinn
síungi Björgvin
Halldórsson leika
fyrir dansi ásamt
Brimkló í Víkurbæ.
Hika aðstandendur hátíðarinnar ekki
við að fullyrða að hér sé um ball ársins
að ræða.
Bítillinn Paul McCartney er sagð-ur afar niðurdreginn í kjölfar
skilnaðar hans og Heather Mills og
segir náinn vinur hans hann ekki hafa
verið jafnlangt niðri frá því fyrri eig-
inkona hans, Linda, lést árið 1998.
„Aðstæður hafa reynst Paul mjög
erfiðar. Hann er að ganga í gegnum
erfitt tímabil en er þrátt fyrir allt að
reyna að lifa eðli-
legu lífi,“ segir
Mark Feather-
stone-Witty, vinur
og samstarfsmaður
McCartney.
Þá eru dætur
Pauls, þær Stella
og Mary, sagðar
hafa átt neyð-
arfundi með Ringo Starr og eig-
inkonu hans Barböru og Oliviu, ekkju
George Harrison, til að leita leiða til
að létta lund McCartney. „Olivia og
Barbara aðstoðuðu Paul þegar Linda
dó. Stella og Mary eru mjög nánar
Paul og þær vildu leita leiða til að
hjálpa honum,“ segir ónafngreindur
heimildarmaður breska blaðsins
Daily Mirror. Bæði McCartney og
Heather Mills hafa vísað á bug full-
yrðingum fjölmiðla um að hún fari
með fullt forræði tveggja ára dóttur
þeirra samkvæmt dómsúrskurði og
segja þau engar ákvarðanir enn hafa
verið teknar um forræði dótturinnar.
Fólk folk@mbl.is