Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HLUTHAFAFUNDUR FL GROUP HF. VERÐUR HALDINN FÖSTUDAGINN 7. JÚLÍ 2006 AÐ NORDICA HOTEL, SUÐURLANDSBRAUT 2 OG HEFST FUNDURINN KL. 16.00. Á DAGSKRÁ FUNDARINS VERÐA: Reykjavík 28. júní 2006. Stjórn FL Group hf. 1. Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á hlutum í Straumi– Burðarás Fjárfestingabanka hf. og hækkun hlutafjár í tengslum við kaupin um allt að kr. 1.803.956.507 að nafnverði. 2. Kosning stjórnar. 3. Önnur mál löglega fram borin. Hluthöfum er sérstaklega bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf hluthafafundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og önnur gögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir hluthafafund. Ennfremur verður hægt að nálgast tillögurnar á vefsíðu félagsins www.flgroup.is. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við upphaf fundarins á fundarstað. STAÐGENGLAR fjármála- og fé- lagsmálaráðherra tóku í gærmorgun við áskorun frá starfsmönnum á svæðaskrifstofum fatlaðra sem eru í Bandalagi háskólamanna, þess efnis að þeir tryggi nægilegt fjármagn til gerðar stofnanasamnings milli BHM og Svæðaskrifstofu málefna fatlaðra. 25 þúsund krónum munar á launum fólks í sömu störfum eftir því hvort það starfar hjá ríki eða sveitarfélög- um, samkvæmt upplýsingum Guð- nýjar Jónsdóttur, þroskaþjálfa í að- gerðarhópi vegna samninganna. Samningafundur í kjaradeilunni verður haldinn í dag og verði hann árangurslaus má búast við að fjöldi starfsmanna segi upp störfum á morgun, föstudag, að sögn Guðnýj- ar. „Hvorki félags- né fjármálaráð- herra gat mætt sjálfur og þeir sendu staðgengla í sinn stað, en þeir tóku samviskusamlega við áskoruninni og þetta kemst vonandi til skila,“ sagði Guðný. Hún sagði að á samningafundum undanfarið hefði ekkert þokast í samkomulagsátt. Ákveðið hefði ver- ið að gera þessa samninga fyrir ári síðan og þeir hefðu átt að ganga í gegn fyrir 1. maí síðastliðinn. Fundir hefðu hafist í febrúar, en samning- arnir ekki klárast fyrir 1. maí eins og að hefði verið stefnt og í raun ekkert gerst síðan þá. Guðný sagði að þau væru að þrýsta á um að háskólamenntun þeirra yrði metin til jafns við það sem annars staðar gerðist. Þannig hefðu sveitarfélögin samið og það munaði 25 þúsund krónum á launum fólks í sömu störfum eftir því hvort það starfaði hjá sveitarfélögum eða ríkinu. Félagar í BHM afhentu félags- og fjármálaráðherra áskorun Morgunblaðið/Kristinn Staðgenglar ráðherra tóku við áskoruninni í gærmorgun fyrir hönd fjármála- og félagsmálaráðherra. Munað getur 25 þúsund kr. á launum fólks í sömu störfum ÞAÐ var Richard prins af Sayn-Wittgenstein, eig- inmaður Benediktu prinsessu í Danmörku, systur Mar- grétar Þórhildar drottningar, sem veiddi 19 punda lax- inn í Þverá sem sagt var frá í vikunni. Er það stærsti lax sem veiðst hefur í Þverá í sumar, og stærsti lax sem frést hefur af í laxveiðiánum til þessa. Prinsinn veiddi þennan stóra hæng á svarta Frances-keilutúpu í veiðistaðnum Snasa og sleppti honum aftur að viðureign lokinni. Rich- ard var að veiða í Þverá í fyrsta sinn en mun áður hafa veitt lax á Íslandi. Prinsinn, sem er verndari Vernd- arsjóðs villtra laxastofna (NASF) í Danmörku, veiddi vel ásamt félögum sínum þessa daga í Þverá. Ævintýri í Kjósinni Tíu laxar veiddust í Laxá í Kjós á þriðjudagsmorgunn, sem er ágætis veiði, en mestum sögum fer þó af ævintýr- unum við löndum stærsta laxins sem veiðst hefur í ánni í sumar. Haraldur Eiríksson, ritstjóri fréttavefjar SVFR, var þá við leiðsögn í ánni og rak augun í stórlax undir brúnni á þjóðveginum. Segir hann söguna svo á vefnum: „Þar sem verið var að aðstoða veiðimenn var einn þeirra dreginn undir brú og rennt á þann silfraða með stífu adrenalínflæði. Hvelltók sá stóri og upphófst gríð- arleg barátta sem endaði á þann veg að 55 punda "Big Game" girni sem ritstjóri hafði keypt í einni veiðibúðinni nú í vor small í sundur. Nú var reynt að hafa upp á lax- inum og fannst hann ofan við brúna með fjórar sökkur og kokgleyptan maðkaöngul í sér. Góð ráð voru nú sérlega dýr eða þar til Ásgeir Heiðar fyrrum leigutaki árinnar greip stöng til þess að freista þess að festa í sökkunum sem löfðu úr laxinum væna. Eftir skamma stund tókst ætlunarverkið og í annað sinn hófst baráttan sem lauk skömmu síðar er sakkan sem fest hafði verið í gaf sig. Töldu menn nú laxinn úr sögunni en hvimleitt er að skilja við magatekinn lax sem þennan og líklegt að úr honum blæddi eftir átökin sem voru mikil. Þar sem sá sem þetta ritar stóð á brúnni rak hann augun í laxinn í þriðja sinn og enn var rennt á færið sem lafði úr skolti þess stóra. Og viti menn, galdrakarlinn Ásgeir Heiðar festir aftur í laxinum og nú var alvöru hernaðarplan sett í gang. Greinarritari tók sér stöðu undir brúnni og var rétt stöngin niður að stólpunum. Tekið var á laxinum og upphófst æsileg barátta þar sem ekki var vitað hversu haldið væri gott í þeim stóra. Bárust leikar niður í svo- kallaða Hökkla og sótti laxinn mjög stíft til hafs. Sem dæmi um hraðann í rokunum þá mátti elta fiskinn brúar- stólpa á milli þegar að hann tók rokur upp fyrir og niður fyrir brúnna og á milli pytta. Í tvígang fór sá er þetta skrifar kylliflatur í miðri ánni áður en laxinum var land- að. Var þar á ferðinni 8.8 kílóa hængur, greinilega einn af gamla Laxárstofninum vöðvastæltur og þykkur.“ Sex laxar fyrsta daginn í Hofsá Sex laxar veiddust í Hofsá í Vopnafirði á mánudag, þegar fyrstu veiðimennirnir tóku að kasta í hylji árinnar. „Þetta er allt nýgenginn lax, átta til þrettán pund,“ sagði Jóhann Gunnarsson leiðsögumaður. „Flestir koma upp á miðsvæðinu en það er líka búið að sjá laxa efst þannig að hann er að dreifa sér um ána.“ „Það komu 11 á land á svæði eitt í gærkvöldi og aðrir 11 í morgun,“ sagði Ingi Freyr Ágústsson, leið- sögumaður við Blöndu, þegar rætt var við hann. Hann sagði laxinn lítið vera að sýna sig enda væri mikið í ánni. Laxinn er farinn að ganga upp laxastigann af ágætis krafti en yfir 80 eru farnir gegnum teljarann. Þá hafa nokkrir laxar þegar veiðst á svæðum tvö og þrjú. Um 160 laxar hafa nú veiðst í Blöndu. Richard prins veiddi stærsta laxinn í Þverá Richard prins við veiðar í Þverá í Borgarfirði. STANGVEIÐI veidar@mbl.is Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is SAMÞYKKT var á ríkisstjórnarfundi á þriðudag tillaga samgönguráðherra um að ferjulægi í Bakkafjöru verði framtíðartenging milli Vestmanna- eyja og lands, og að lokið verði nauð- synlegum rannsóknum og undirbún- ingi til að framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Tillagan er unnin í ljósi lokaskýrslu starfshóps sem fjallaði um framtíðarmöguleika í samgöngum við Vestmannaeyjar. Í tillögu ráð- herra er áætlað að á næsta ári fari fram umhverfismat, hönnun og öflun leyfa vegna framkvæmdarinnar. Gera má ráð fyrir að heildarfram- kvæmdatími við ferjuhöfn og mann- virki henni tengd sé á bilinu 2 til 21⁄2 ár frá því að hönnun og umhverfismat liggur fyrir, og að áætlaður smíðatími nýrrar ferju sé 15 til 18 mánuðir. Mið- að við það verður því hægt að taka höfnina í notkun árið 2010. Sturla Böðvarsson, samgönguráð- herra, segir að þrír kostir hafi verið í stöðunni: jarðgöng til Eyja, nýr og endurbættur Herjólfur, eða ferjulægi í Bakkafjöru. „Það er ekki talinn árennilegur kostur að fara í jarðgöng, svo ég lít svo á að það sé út af borðinu. Ég lagði það til í ríkisstjórninni að það væri við það miðað að framtíðarkost- urinn væri Bakkafjöruhöfnin.“ Stangast ekki á við frestun framkvæmda Þegar rannsóknir liggja fyrir verð- ur svo hægt að taka endanlega ákvörðun um hvort af uppbyggingu í fjörunni verður, segir Sturla. Hann segir þessi uppbyggingaráform á engan hátt stangast á við áform rík- isstjórnarinnar um að fresta fram- kvæmdum ríkisins, ef af verði hefjist framkvæmdir ekki fyrr en á árunum 2008-2010, þegar þensluáhrif vegna framkvæmda á Austurlandi verði að mestu gengin yfir. „En það er mjög mikilvægt að eyða óvissunni gagnvart Eyjamönnum, og ég taldi nauðsynlegt að tefla strax fram þessari niðurstöðu minni, þann- ig að mönnum verði alveg ljóst að af- staða samgönguráðherra sé að velja Bakkafjöruna, og jarðgöngin verði þar með úr sögunni,“ segir Sturla. Tillaga samgönguráðherra um Bakkafjöru samþykkt í ríkisstjórn Mikilvægt að eyða óvissu Eyjamanna YFIR sex hundruð ökumenn voru stöðvaðir af lögreglu á Suðvestur- landi vegna áhersluverkefnis um ölv- unar- og lyfjaakstur sl. helgi. Lögreglan í Reykjavík kærði 13 ökumenn vegna ölvunar. Lögreglan í Hafnarfirði og Kópavogi höfðu sam- vinnu umrædda helgi og stöðvuðu 90 manns á föstudagskvöldið og var einn ölvaður. Kvöldið eftir voru 163 stöðvaðir á Reykjanesbraut og 50 manns við Elliðavatnsveg og var einn drukkinn. Þá stöðvaði lögreglan í Árnessýslu 41 á laugardaginn og voru allir allsgáðir, en 47 voru stöðv- aðir kvöldið eftir og einn kærður. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli at- hugaði ökumenn á leið frá Leifsstöð og stöðvaði 136 ökumenn og var einn grunaður um ölvun. Lögregla stöðvaði mörg hundruð ökumenn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.