Morgunblaðið - 29.06.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 19
MINNSTAÐUR
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Hvað gerist þegar klassískur bílaframleiðandi sem rómaður er fyrir framúrskarandi
öryggi og hönnun bíla sinna tekur að framleiða jeppa? Svarið er einfalt: Það verður til
nýr afburða bíll! Fágun og klassi Saab 9-7X eru greinileg við fyrstu sýn og innra rýmið
er einstaklega vel lagað að þörfum ökumannsins og dregur dám af stjórnklefum flugvéla.
Saab 9-7X er frábærlega fjölhæfur og þægilegur í akstri, ákveðinn en mjúkur, einstaklega
kraftmikill og skemmtilega lipur í senn.
Splunkuný klassík!
Jeppinn frá Saab
Verð 5.790.000 kr.
Klassi, öryggi, stíll!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
2
0
Saab
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
EFTIR sveitarstjórnarkosningar í
vor var mynduð ný bæjarstjórn á
Seltjarnarnesi. Sæti í henni eiga
fimm fulltrúar D-lista Sjálfstæð-
isflokksins og tveir fulltrúar N-lista
Bæjarmálafélags Seltjarnarness.
Bæjarstjórnin hefur fundað einu
sinni og á þeim fundi var Jónmundur
Guðmarsson (D) ráðinn bæjarstjóri
og Ásgerður Halldórsdóttir (D)
kjörin forseti bæjarstjórnar.
Ný bæjarstjórn
Seltjarnarness
REYKJAVÍKURBORG hefur fest
kaup á húseign og lóð Landsnets
við Hestháls í Reykjavík undir
nýtt athafnasvæði Strætó bs. Nýja
aðstaðan leysir af hólmi athafna-
svæði Strætó við Kirkjusand. Um
er að ræða framtíðarsvæði fyrir
starfsemi Strætó í iðnaðarhverfi í
námunda við gatnamót Vestur-
landsvegar og Suðurlandsvegar,
segir í tilkynningu.
Húsnæðið, sem er að hluta til á
tveimur hæðum og 2.500 fermetrar
að grunnmáli, var byggt sem vöru-
skemma og hentar starfseminni
mjög vel. Það mun hýsa verkstæði
Strætó en til þess að svo megi
verða þarf að lyfta hluta af þaki
hússins. Litlu þarf að breyta við
aðra hluti þess, svo sem skrif-
stofur, aðstöðu starfsmanna og
mötuneyti.
Eignin afhent í áföngum
Lóðin er alls 32 hektarar og þar
verður reist þvottastöð fyrir stræt-
isvagnana. Þar er ennfremur
nægjanlegt rými fyrir alla 80
strætisvagna byggðasamlagsins. Í
tilkynningu kemur fram að svæðið
verður mun umhverfisvænna en
svæðið við Kirkjusand, því vagn-
arnir verða allir tengdir við raf-
magn og loft. Ekki verður því þörf
á að láta þá ganga í lausagangi fyr-
ir akstur, eins og nú er gert.
Eignin verður afhent í áföngum.
Strætó fær hluta lóðarinnar nú í
september og verður þá hafist
handa við að byggja þvottastöðina.
Í apríl á næsta ári verður verk-
stæðishluti hússins afhentur og þá
verður unnið að endurbótum á því.
Húsnæðið verður að fullu afhent 1.
júní 2007 og stefnt er að því að
starfsemi Strætó flytjist á Hest-
háls í kjölfarið.
Um 200 starfsmenn Strætó bs.
munu starfa í nýrri bækistöð
Strætó við Hestháls, vagnstjórar,
starfsmenn verkstæðis, þvotta-
stöðvar og skrifstofu rekstrarsviðs
Strætó bs.
Framtíð-
arsvæði
Strætó
verður við
Hestháls
Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson
Strætó bs. flytur á næstu mánuðum
af Kirkjusandi upp á Hestháls en
Reykjavíkurborg hefur þar fest
kaup á 32 hektara lóð ásamt stóru
húsnæði af Landsneti og verður
eignin afhent í áföngum. Allir
vagnar Strætó munu rúmast á
svæðinu sem verður umhverf-
isvænna en svæðið við Kirkjusand.
♦♦♦