Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 26
Ég varð svo áhugasöm umeldamennsku og fannsthún svo skemmtilegþegar ég komst upp á lagið að ég í orðsins fyllstu merk- ingu ýtti manninum mínum út úr eldhúsinu,“ segir Ásta og hlær. ,,Ég mæli samt ekki með slíkri stjórnsemi og síðustu árin hefur eldhúsið í æ ríkara mæli orðið staður okkar beggja og raunar allra heimilismeðlima. Mér finnst, eftir oft langan vinnudag, ákveðin hvíld fólgin í því að vera í eldhús- inu mínu og búa til mat og ekkert tiltökumál að eyða einum til tveimur tímum í það. Ég hlusta á útvarpið á meðan, tala við fólkið mitt og íhuga málin.“ Eldar úr fersku hráefni Veltirðu mikið fyrir þér heilsu og hollustu í matargerð? ,,Já, ég geri það. Ég er hjúkr- unarfræðingur að mennt og er mjög meðvituð um að gott mat- aræði skiptir máli fyrir heilsuna. Mín eldamennska byggist á því að elda frá grunni úr fersku hráefni. Ég nota mikið af grænmeti, mögru kjöti eins og kjúklingum, ferskum kryddjurtum en lítið af smjöri og rjóma. Ég er sannfærð um að það handverk sem liggur í matargerð skilar sér. Heimilisfólkinu finnst gott að borða matinn minn en við leggjum mikið upp úr kvöldmatnum, líka sem samverustund.“ Þú ert með eigin heimasíðu., www.astamoller.is, þar sem þú m.a. deilir matarupplifun þinni og uppskriftum. Færðu einhver við- brögð við þeim? ,,Ég hef fengið þónokkur við- brögð og skemmtileg. Matarupp- skriftirnar eru héðan og þaðan og upphaflega ætlaði ég bara að safna þeim saman fyrir sjálfa mig og hafa þar mínar uppáhalds- uppskriftir í nokkurs konar gagnabanka. Ég hef hins vegar orðið vör við að sífellt fleiri nota þær og það finnst mér mjög skemmtilegt. Ég prófa mikið af uppskriftum, héðan og þaðan, en aðeins þær bestu fara inn á heimasíðuna.“ Matreiðslubók handa tengdasyninum Áttu einhver góð ráð handa fólki í eldhúsinu? ,,Ég vil a.m.k. ráðleggja ungum húsmæðrum að taka ekki algjörlega völdin í eld- húsinu eins og ég gerði. Fyrsta gjöfin sem ég gaf tengdasyni mínu var matreiðslubók. Hann varð yfir sig hrifinn og nú elda þau skötuhjúin bæði. Það er ef til vill gott ráð til verðandi tengdamæðra og húsmæðra,“ segir Ásta kank- vís.  MATUR | Ásta Möller segir matargerðina vera stund fyrir íhugun Tók völdin í eldhúsinu Ásta Möller alþingiskona kunni ekkert í matreiðslu þegar hún byrjaði að búa en fékk þá eldlegan áhuga. Hún lýsti því fyrir Unni H. Jóhannsdóttur hvernig hún tók völdin í eldhúsinu og einokaði eldhúsið fyrstu búskaparárin, nokkuð sem hún ráðleggur ungum konum þó að gera ekki. Morgunblaðið/Eyþór Matur leikur í höndunum á Ástu Möller enda áhugamál hjá henni. Miðnætursnarl í íslenskri sumarnótt er réttur á heimasíðu Ástu. Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður. Miðnætursnarl á íslenskri sumarnótt ÞESSI uppskrift er tilvalin málamiðlun á milli þeirra sem vilja léttan málsverð og þeirra sem vilja eitthvað bitastæð- ara. Tilvísunin í titli upp- skriftarinnar er í sænskt tímarit en þaðan fékk Ásta uppskriftina. Uppskriftin hentar fyrir einn. 150 g nautalundir eða annað meyrt kjöt brauðsneið smjörklípa myntublöð fersk basilíka agúrka gulrót Kryddlögur 2 msk. sæt sojasósa, ketjab manis 2 cm ferskur engifer, rifinn 1 hvítlauksrif, marið 2 msk. safi úr límónu, kreistur Blandið öllu hráefninu vel saman. Salatsósa ¼-½ rauður chili, smátt skorinn 2 msk. sæt sojasósa, ketjab manis 2 msk. safi úr límónu, kreistur smávegis af hrásykri Blandið öllu hráefninu vel saman í sósuna. Hreinsið sinar og himnur af kjötinu og skerið það í ½ cm þykkar sneiðar. Leggið kjötið í kryddlöginn og látið vera þar í um klukkustund. Steikið síðan kjötið á pönnu eða grill- ið og skerið það í um það bil 1 cm þykka strimla. Kantskerið brauðsneiðina, steikið létt báðar hliðar henn- ar í litlu smjöri á pönnu og setjið á disk. Leggið fersk myntublöð ofan á sneiðina og ferska basilíku og ef til vill önnur salatblöð eftir smekk. Skerið agúrku og gulrót í þunna strimla á lengdina og bætið ofan á. Einnig má nota annað grænmeti eins og rauða papriku eða lárperu. Raðið kjötinu fallega ofan á græn- metið og skreytið með basil- íkublöðum. Hellið salatsós- unni að lokum yfir allt. Verðkönnun | 30 Daglegtlíf júní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.