Morgunblaðið - 29.06.2006, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÁKVARÐANIR ríkisstjórn-
arinnar í ríkis- og skattamálum
undanfarin ár endurspegla grund-
vallarmun á ríkisstjórnarflokk-
unum og Samfylkingunni. Ef að-
gerðir ríkisstjórnarinnar í skatta-
og velferðarmálum eru
teknar saman kemur í
ljós rauður þráður þar
sem þrengt er að
venjulegu fólki og eldri
borgurum. Fjár-
málaráðherra staðfesti
nýlega í svari á Alþingi
að skattbyrði hefur
aukist hjá öllum lands-
mönnum nema hjá
þeim langtekjuhæstu.
Skerðing skattleys-
ismarka, sem að mestu
hefur komið fram eftir
að þessi ríkisstjórn tók
við, er svo harkaleg að
ríkissjóður hefur tekið
tugum milljarða króna
meira til sín en ef
skattleysismörk hefðu
haldið raungildi sínu.
Fyrirhuguð hækkun á
skattleysismörkum,
sem náðist í gegn af
hálfu verkalýðshreyf-
ingarinnar þrátt fyrir
mótþróa ríkisstjórnarflokkanna, er
nánast helmingi minni en það sem
hefði þurft til þess að skattleys-
ismörkin yrðu jafnhá og þau voru
þegar þessi ríkisstjórn tók við
völdum.
Ný skattheimta
af eldri borgurum
Hafin er áður óþekkt skatt-
heimta af eldri borgurum og ör-
yrkjum. Landssamband eldri borg-
ara hefur bent á að eldri borgari
með 110.000 krónur í tekjur hafi
nú þurft að greiða um 14% af
tekjum sínum í skatt. En sami
eldri borgari greiddi einungis 1,5%
á árinu 1988. Öryrkjabandalagið
bendir sömuleiðis á að lífeyrisþegi
sem fær einungis greiddar bætur
almannatrygginga greiði jafngildi
tveggja mánaða útborgunar á ári
hverju í beina skatta. Um 30.000
manns á landinu eru með tekjur
undir 100.000 krónum og þeir
greiða nú tvo milljarða í skatta
sem þeir gerðu ekki áður en þessi
ríkisstjórn tók við völdum.
Almenningur borgar brúsann
Nú hefur svo þessi
kjaraskerðing rík-
isstjórnarinnar til
margra ára verið
notuð sem skipti-
mynt í kjara-
viðræðum sem sýnir
skipbrot hennar í
efnahagsmálum. Eft-
ir stendur að það er
fólkið í landinu sem
borgar brúsann og
ríkisstjórnin mun
hreykja sér af samn-
ingum sem almenn-
ingur greiðir sjálfur
fyrir. Vinnuveitendur
eru vitaskuld himin-
lifandi yfir því að
ríkið borgi kjara-
samningana fyrir
þá.
En með þessari
ákvörðun hefur rík-
isstjórnin hins vegar
ekki aðeins svikið
sitt helsta kosning-
arloforð um flata lækkun á tekju-
skattsprósentunni heldur einnig
viðurkennt að sú skattastefna hafi
ekki þjónað hagsmunum venjulegs
fólks í landinu heldur fyrst og
fremst hinum útvöldu og efna-
mestu.
Ríkisstjórnin hyglar
hinum efnamestu
Hugmyndafræði ríkisstjórn-
arflokkanna sést einnig vel í þeim
skattaaðgerðum sem þeir lögfestu.
Um 60% af lækkuninni áttu að
renna til 25% tekjuhæstu ein-
staklinganna en aðeins um 2% fara
til lægstu 25%. Það þýðir í reynd
að þeir allra tekjuhæstu fá mest
og þeir allra tekjulægstu fá nær
ekkert. Nærri 25% af heildarlækk-
uninni áttu að fara til þeirra 5%
tekjuhæstu. En einungis 0,1% af
heildarlækkuninni átti að fara til
5% tekjulægstu. Sömu sögu er að
segja frá eignarskattslækkuninni.
Um 24% af eignarskatts-
lækkuninni renna til 5% tekju-
hæstu einstaklinganna. En ein-
ungis 1,2% af
eignarskattslækkuninni renna til
15% tekjulægstu einstaklinganna.
Um 1% ríkustu Íslendinganna er
með 88% af tekjum sínum sem
fjármagnstekjur sem er í 10%
skattþrepi. Þessir einstaklingar
greiða að meðaltali um 12% af
tekjum sínum í skatta á meðan
fólk með meðaltekjur greiðir um
26%. Hinir efnamestu leggja því
ekki fram sama hlutfall í þágu al-
mannahags vegna skattakerfis rík-
isstjórnarinnar.
Þegar allar breytingar rík-
isstjórnarinnar á skattkerfinu frá
1995 eru lagðar saman kemur í
ljós að maður með milljón króna
mánaðarlaun þarf að greiða einum
mánaðarlaunum sínum minna í
skatt á ári en á meðan þarf ellilíf-
eyrisþeginn að borga einum mán-
aðarlaunum sínum meira í skatt á
ári.
Víðtækar kjaraskerðingar
ríkisstjórnarinnar
Á fjölmörgum öðrum sviðum
hefur ríkisstjórnin staðið fyrir víð-
tækum kjaraskerðingum. Má þar
nefna skerðingu á vaxtabótum og
barnabótum en frá árinu 1995 eru
útgjöld vegna barnabóta um 10
milljörðum lægri en þau hefðu ver-
ið ef barnabætur hefðu fengið að
halda raungildi sínu eins og það
var á árinu 1995. Þá býr íslenskur
almenningur við eitt hæsta mat-
vælaverð í heimi vegna stefnu rík-
isstjórnarinnar í skatta- og tolla-
málum. Sömuleiðis er lyfjaverð hér
með því hæsta í Evrópu og Íslend-
ingar greiða nánast dýrasta bens-
ínverð sem þekkist. Þjónustugjöld
í heilbrigðiskerfinu og skólagjöld í
ríkisreknum háskólum hafa hækk-
að umtalsvert undanfarin ár. Og
vegna slæmrar hagstjórnar rík-
isstjórnarflokkana eru vextir
hvergi jafnháir og á Íslandi og
verðbólgan hefur verið yfir verð-
bólgumarkmiði Seðlabankans í tvö
ár. Þetta er nú allur árangur rík-
isstjórnarinnar.
Ríkisstjórn
hinna útvöldu
Ágúst Ólafur Ágústsson
fjallar um skattamál rík-
isstjórnarinnar
’Á fjölmörgumsviðum hefur
ríkisstjórnin
staðið fyrir víð-
tækum kjara-
skerðingum ‘
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Höfundur er varaformaður
Samfylkingarinnar.
FYRR í þessum mánuði úrskurð-
aði Hæstiréttur að forstjóra og
lækningaforstjóra Landspítala – há-
skólasjúkrahúss (LSH) hefði verið
„óheimilt“ að víkja Tómasi Zoëga yf-
irlækni úr starfi og að ákvörðun
þeirra hefði verið „ólögmæt“.
Áður hafði lækningaforstjórinn,
Jóhannes Gunnarsson,
sagt í fjölmiðlum að mál
Tómasar væri „mikið
prófmál“. Forstjórinn,
Magnús Pétursson sagði
að læknum væri „heim-
ilt“ að skjóta máli sínu
til ráðuneytis eða dóm-
stóla til að fá úr því
skorið hvort um ólög-
mæta ákvörðun hefði
verið að ræða.
Fyrir héraðsdómi
sagði lækningaforstjór-
inn, Jóhannes M. Gunn-
arsson, að Tómas „hafi
ekki vanrækt starfskyldur sínar og
hafi því ekki verið efni til að áminna
hann eða víkja honum úr starfi.“
Með því viðurkennir lækninga-
forstjóri að stofurekstur Tómasar
hafi engin áhrif haft á hans skyldur á
spítalanum og ekki skaðað hagsmuni
spítalans.
Jóhannes og Magnús hafa tapað
þessu „mikla prófmáli“ fyrir þeim
dómstólum sem þeir sjálfir vísuðu
til.
Viðbrögð þeirra eru einföld og
skýr: þeir hunsa dóm Hæstaréttar
og setja Tómasi sömu ólögmætu af-
arkosti og áður.
Beinn málskostnaður hleypur
þegar á milljónum. Vinnutapið er
ómælt. Meira að segja lögmaður
spítalans viðurkennir að Tómas geti
sett fram kröfu um miskabætur. Allt
í allt gæti ákvörðun
yfirstjórnar að víkja
Tómasi úr starfi kost-
að spítalann tugi, og
jafnvel hundruð,
milljóna króna.
Í stuttu máli: Jó-
hannes og Magnús
hafa látið hæfan mann
fara af engu tilefni,
brotið með því lög og
valdið spítalanum
verulegu fjárhagslegu
tjóni.
En hver ber
ábyrgðina?
Samkvæmt heimasíðu LSH
stjórnar forstjóri spítalanum „í um-
boði stjórnarnefndar og ráðuneytis,
skipaður af heilbrigðisráðherra til
fimm ára í senn“.
Í einkageiranum kæmi slíkt mál
að sjálfsögðu til kasta stjórnar. Það
væri á ábyrgð formanns að kalla
hana skjótt saman og bregðast við
því tjóni sem stjórnendur hefðu
valdið hluthöfum. Í alvarlegu máli
sem þessu hlyti stjórnin að ræða það
úrræði að láta stjórnendurna fara.
Niðurstöður stjórnarinnar væru svo
kynntar eigendunum.
En hvað hefur stjórnarnefnd LSH
gert? Ekki neitt.
Og hvað hefur ráðherra gert?
Ekki heldur neitt.
Landspítalinn er þjónustustofnun
í eigu allra Íslendinga. Stjórnendur,
stjórnarnefnd og ráðherra sitja í
okkar umboði. Það er alvarlegt mál
fyrir okkur öll ef gæslumenn þessa
stærsta sjúkrahúss landsins sinna
ekki skyldum sínum.
Í réttarríki ber öllum að fara að
niðurstöðum dómstóla, hvort sem er
um opinbera eða einkaaðila að ræða.
Hver ber ábyrgð á Landspít-
ala – háskólasjúkrahúsi?
Sveinn Valfells skrifar um
„ólögmæti“ uppsagnar
Tómasar Zoëga yfirlæknis
úr starfi á LSH
’Með því viðurkennirlækningaforstjóri að
stofurekstur Tómasar
hafi engin áhrif haft á
hans skyldur á spít-
alanum og ekki skaðað
hagsmuni spítalans.‘
Sveinn Valfells
Höfundur er viðskipta-
og verkfræðingur.
Í SÉRKENNILEGRI grein
Guðna Th. Jóhannessonar hér í
blaðinu 19. júní sl., er fjallað um 200
mílurnar, auglýsingabækling styrkt-
an af helstu fjármálastofnunum
landsins sem hann skrifaði í og um-
fjöllun ,,núverandi og
fyrrverandi stjórn-
málamanna“ eins og
hann segir um málið,
eins og aðrir en hann
viti ekkert um málið.
Þar sem hann hefur nú
stigið fram á sjón-
arsviðið á opinberum
vettvangi verður ekki
komist hjá því að fjalla
um skrif hans í auglýs-
ingabæklinginn. Á tíma
Sovétríkjanna var al-
gengt að taka myndir
af forystu flokksins á
múrum Kremlar. Síðan kom það fyrir
að einhver sem þar var á mynd félli í
ónáð. Málið var þá afgreitt með ein-
földum hætti. Viðkomandi maður var
klippur úr myndinni og hún skeytt
saman að nýju, sovéska sagnfræðin í
öruggum höndum flokksins. Sagn-
fræðingurinn segir í umræddri grein:
,,Sjálfur skrifaði ég með glöðu geði
stutt yfirlit um sögu landhelgismáls-
ins í kálfinn umdeilda; annars vegar
vegna þess að þar gafst frábært tæki-
færi til að skrifa fyrir tugþúsundir
lesenda og hins vegar vegna þess að
mér finnst það nánast starfsskylda
sagnfræðinga að svara kalli um stutt
skrif fyrir almenning á sérsviði sínu.“
Í þessari grein ætla ég aðeins að
taka fyrir umfjöllun Guðna um tíma-
bilið 1973 til 1976, sem verður í skrif-
um hans algjört bull. Ekki er einu
orði minnst á tilurð 200 mílnanna og
framgang þeirra. Í þessu samhengi,
er sagnfræðingnum bent á grein Jón-
ínu Michaelsdóttur í áðurnefndum
bækling, en hún segir þar (um árið
1973): ,,… í júlímánuði skoraði hópur
fimmtíu Íslendinga á alþingi og rík-
isstjórn að lýsa því yfir nú þegar að
Íslendingar myndu krefjast 200
mílna fiskveiðilögsögu á hafrétt-
arráðstefnunni. Í þessum hópi voru
margir þjóðkunnir forystumenn og
sérfræðingar á svið sjávarútvegs og
landhelgisgæslu og
hafði þetta framtak um-
talsverð áhrif.“, feitletr-
un mín.
Einnig bendi ég sagn-
fræðingnum á að lesa
grein mína hér í blaðinu
þann 13. júní sl. Hér
verður ekki heldur kom-
ist hjá því að benda
sagnfræðingum á þátt
Morgunblaðsins í þessu
máli, sem hefði áreið-
anlega ekki náð eyrum
þjóðarinnar án þess. Þar
voru í fararbroddi rit-
stjórar blaðsins, Styrmir Gunn-
arsson, Matthías Johannessen. Mér
er enn þakklæti í huga til þessara
tveggja manna fyrir frábær störf í
þessu máli. Glæsileg blaðamennska
af hæsta gæðaflokki þar á bæ, t.d.
ætti sagnfræðingurinn að lesa blað-
auka Morgunblaðsins á þeim degi,
sem útfærslan í 200 mílur var 15.
október 1975, þar er m.a. fjallað um
50 menninganna á blaðsíðum 18–19.
Ég vil í þessu sambandi rifja upp við-
tal við Magnús Sigurjónsson félaga
minn og vin í blaðinu á 10 ára afmæli
útfærslunnar 15. október 1985, en þar
segir hann, eftir að segja frá fundi
ríkisstjórnarinnar skömmu eftir
áskorun 50-menninganna: ,,En á
fundi ríkisstjórnarinnar fékk áskor-
unin ekki sama hljómgrunn og stjórn-
arblöðin reyndu að gera lítið úr henni.
Þjóðviljinn reis upp á afturfæturna
og úr varð hörð barátta og óvægin.
Mér er sérstaklega minnisstætt
Sovésk sagn-
fræði á ís-
lenskri grund
Hreggviður Jónsson
gerir athugasemdir við umfjöll-
un Guðna um tímabilið ’73-’76
Hreggviður Jónsson
S í m a r : 5 5 1 7 2 7 0 , 5 5 1 7 2 8 2 o g 8 9 3 3 9 8 5
Þjónustus ími utan skr i fs to fut íma 893 3985
Ferjubakki, 4ra herb.
Til afhendingar fljótlega
Lækkað verð
Burknavellir, 3ja herb. í Hafnarfirði
Nánast ný íbúð - Til afhendingar strax
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. skipasali
hibyliogskip@hibyliogskip.is • www.hibyliogskip.is
Mjög góð 4ra herb. íbúð á góðum stað í
Breiðholtinu, alls 105,2 fm.
Íbúðin er með góðu parketi á gólfum, með
stórum og góðum herbergjum og góðum
skápum. Björt og rúmgóð stofa, opið milli
stofu og eldhúss sem er með mjög góðri
innréttingu. Góðir skápar í holi. Stórt
baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Mjög áhugaverð eign.
Tilbúin án gólfefna.
Alls 85 fm íbúð á jarðhæð í jaðarbyggð
með sérinngangi í mjög vönduðu húsi.
Mjög vel skipulögð íbúð með vönduðum
innréttingum. Vönduð tæki í eldhúsi.
Glæsilegt flísalagt baðherbergi og þvotta-
herbergi inn af baði. Sérverönd út frá stofu.
Eign sem vert er að skoða og er á góðu
verði.