Morgunblaðið - 29.06.2006, Síða 37
hversu rætin skrif Svavars Gests-
sonar, þáverandi ritstjóra blaðsins,
voru, en hann hafði forystu um skrifin
gegn 200 mílna stefnunni. Það var
reynt að eyðileggja æru okkar sem
stóðum að áskoruninni, enda var það
eina ráðið til að hnekkja málinu. Úr
þessu varð mikill slagur og ég á rit-
stjórum Morgunblaðsins þökk að
gjalda fyrir það hversu drengileg þeir
studdu okkur í þessari orrahríð.“ Áð-
ur hafði Magnús skrifaði bréf til rit-
stjóra Morgunblaðsins 26. júlí 1978,
sem m.a. sagði: ,,Í dag eru liðin fimm
ár síðan áskorunin um 200 mílna fisk-
veiðilögsögu fyrir Ísland kom fyrst
fram. Þið hafið … frá fyrsta degi ver-
ið málsvarar þeirra stefnu sem þá var
mörkuð og Morgunblaðið frá upphafi
beitt sér í orrustunni, en hún var
lengi háð af fullum fjandskap gegn
málinu. Í upphafi var við ramman
reip að draga, en eins og laxinn brýst
gegn straumnum og stiklar flúðir lét-
uð þið aldrei deigan síga, og nú þegar
litið er yfir sviðið má sjá að heill Ís-
lands og hamingja hafa sigrað. Fyrir
fáum dögum komu saman nokkrir
,,fimmtíumenninganna“. Þar var mér
falið að flytja ykkur hamingjuóskir og
þakkir fyrir drengilegan máltilbúnað
og baráttuhug sem aldrei brást.“
Hópur 50 manna, Morgunblaðið og
Sjálfstæðisflokkurinn skópu 200 míl-
urnar og gerðu yfirráð Íslands yfir
200 mílunum að veruleika. Sagnfræð-
ingur, sem sleppir þessum þætti
landhelgismálsins er í vondum mál-
um, sem fræðimaður. Nægt er til af
skriflegu efni um þetta tímabil.
Ég spyr að lokum aftur eins og í
fyrri greininni, værum við enn með 50
mílurnar, ef við 50 menn hefðum ekki
bundist samtökum um 200 mílna
áskorunina? Svar, já.
’Hópur 50 manna, Morg-unblaðið og Sjálfstæð-
isflokkurinn skópu 200
mílurnar og gerðu yfirráð
Íslands yfir 200 mílunum
að veruleika. ‘
Höfundur er fyrrv. þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
hcjons@gmail.com
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 37
UMRÆÐAN
Sagt var: Fréttamaðurinn spurði þingmanninn um álit sitt á málinu.
RÉTT VÆRI: … um álit hans (um álit þingmannsins, ekki álit frétta-
mannsins).
Gætum tungunnar
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
NÚ er sumar og margir Íslend-
ingar því á faraldsfæti. Sumir fara
til útlanda en aðrir ferðast um
landið eins og gengur og gerist.
Ég var að koma frá Mílanó um
daginn sem er nú ekki í frásögur
færandi nema á leiðinni inní landið
var ég stoppaður af tollgæslunni
ásamt samferðafólki mínu og allur
farangur gegnumlýstur og leitað
var í öllum fríhafnarpokum og
öðru. Stelpan sem gerði þetta tók
starfið sitt greinilega mjög alvar-
lega. Það var allt verðlagt sem
keypt var og allt áfengi tekið sam-
an. Á endanum þurftum við að
greiða í toll 12000 krónur sem er
fáránlegt. Þegar maður kemur til
annarra landa þá er hvergi svona
ströng tollgæsla eins og á Íslandi.
Tollareglurnar sem hér gilda eru
úreltar. T.d. má bara koma inn
með takmarkað magn af áfengi og
tóbaki til landsins. Ekki má flytja
inn neitt hrátt kjöt eða osta. Þetta
er víst gert til að vernda íslenska
landbúnaðinn. Ef maður myndi
ætla að flytja inn soðið kjöt sem er
leyfilegt þá þyrfti að greiða of-
urtolla af því til að vernda þessar
fáu bændahræður sem eftir eru í
landinu. Hvenær ætla stjórnvöld
að fara að vakna og breyta þessum
reglum og laga aðeins að nútíman-
um. Í öðrum löndum má t.d flytja
inn meira magn af áfengi. Það
mæti e.t.v auka magn áfengis sem
leyfilegt væri að flytja inn, hækka
verð á vörum sem má flytja inn
o.sfrv. Þess skal líka getið að inn-
flutningsbann á hrátt kjöt og hráa
ósoðna osta er sett til að vernda
íslenska landbúnaðinn og til að
passa uppá að hér berist engir
sjúkdómar til lands. Það er vitað
mál að fyrst kjötið er selt úti þ.e.
hráskinka, salamipylsur o.s.frv., þá
eru engir sjúkdómar þar í gangi í
dýrastofnum. Þá hlýtur hver að
spyrja sig: Fyrst engir sjúkdómar
eru í erlendum búfénaði, hví er þá
ekki leyfilegt að flytja það inn til
landsins, þ.e hrátt kjöt og hráa
osta?
Nú langar mig til að varpa þeirri
spurningu til dómsmálaráðherra, er
ekki kominn tími til að breyta þess-
um tollareglum sem hér gilda og
laga þær aðeins að nútímanum?
Þessar reglur voru í fínu lagi fyrir
15–20 árum síðan en nú er 2006 og
leyfi ég mér því að segja að þessar
reglur sem hér gilda varðandi inn-
flutning og toll af vörum séu úrelt-
ar.
Svar óskast frá hæstvirtum
dómsmálaráðherra.
TRYGGVI RAFN TÓMASSON,
Fannafold 99,
112 Reykjavík.
Tollgæsla á Íslandi
Frá Tryggva Rafni Tómassyni:
ferðabox
...og allur ferðabúnaður
kemst á toppinn
430 lítra
nr. 731846
380 lítra
nr. 731446
380 lítra
nr. 731816
NÝTT
23
76
/T
A
K
TÍ
K
/6
.0
6.
/3
X
30
Skógarhlíð 18 – 105 Reykjavík – sími 591 9000
Akureyri – sími 461 1099 • Hafnarfirði – sími 510 9500
www.terranova.is
Nú bjóðum við frábært tilboð á síðustu sætunum til Búlgaríu 6. og 13. júlí
í 1 eða 2 vikur. Þú kaupir 2 flugsæti og greiðir aðeins fyrir 1.
Gríptu tækifærið og skelltu þér til Búlgaríu á einstökum kjörum.
Fjölbreytt gisting í boði á Golden Sands.
kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2
fyrir 1 tilboð. Netverð á mann.
Gisting frá kr. 3.400
Netverð á mann á nótt, m.v. gistingu í
tvíbýli á Hotel Perla með morgunverði.
2 fyrir 1 til
Búlgaríu
6. og 13. júlí
frá kr. 19.990
Síðustu sætin
- SPENNANDI VALKOSTUR
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
mbl.issmáauglýsingar