Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 43 MINNINGAR ✝ Dagmar Jó-hannesdóttir fæddist á Akureyri 10. október 1911. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Grund 17. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhannes Júl- iníusson, f. 8. ágúst 1879, d. 9. septem- ber 1971, og Jórunn Jóhannsdóttir, f. 24. desember 1874, d. 1. febrúar 1966. Systk- ini Dagmarar eru Jóhannes G., f. 1907, d. 1990, Ólöf Áslaug, f. 1909, Sigurbjörg, f. 1914, d. 1973, og Júlíus Valdemar, f. 1917, d. 1998. Hinn 30. ágúst 1941 fæddist hennar einkasonur Atli Viðar Jó- hannesson, forstjóri á Eskifirði. Hann giftist eiginkonu sinni, Bennu Stefaníu Rósantsdóttir kirkjuverði, 26. maí 1969. Börn þeirra eru: 1) Dagmar Ósk Atla- dóttir leikskólakennari, f. 23 októ- ber 1969, sambýlismaður Halldór Valter Stefánsson, börn þeirra eru Katrín Mjöll, f. 1991, og Hrannar Snær, f. 1997. 2) Inga Sigrún Atladóttir, guðfræðingur og deildastóri, f. 8 apríl 1971, eig- inmaður Eric Rubin DosSantos líf- fræðingur, barn þeirra er Guðjón Armand, f. 2000, barn hennar er Dagbjört Katrín, f. 1993. 3) Krist- jana Atladóttir kennari, f. 14 jan- úar 1975, eiginmaður hennar er Pétur Marinó Frederiksson, börn þeirra eru Atli Dagur, f. 1995, Benna Sóley, f. 1999, og Olga Snærós, f. 2003. 4) Júlía Rós Atla- dóttir, lyfjatæknir og verkefnastjóri, gift Hermanni Sig- urði Björnssyni, börn þeirra eru Hólmfríður, f. 2003, og Björn Hermann, f. 2004. Dagmar bjó á Ak- ureyri fram að fermingu þegar hún fór í kaupavinnu á Svalbarðseyri í nokkur ár. Eftir ár- in á Svalbarðseyri flutti hún aftur til foreldra sinna á Akureyri. Árin 1930 til 1937 var Dagmar í vist hjá læknahjónunum í Hafnarfirði og lærði þar útsaum. Árið 1941 ól Dagmar sinn einkason og síðar gekk hún systur dóttur sinni, Jór- unni, í móðurstað frá átta ára aldri. 1948 fór Dagmar með son sinn í kaupavinnu á Kirkjubóli í Strandasýslu. Eftir að Dagmar sneri aftur til Akureyrar bjó hún í foreldrahúsum og annaðist veika móður sína og vann í Gefjuni. Eft- ir að foreldrar hennar létust hélt hún heimili með bróðir sínum Júl- íusi. Árið 1970 flutti Dagmar til sonar síns og tengdadóttur á Ak- ureyri og bjó þar til 1974, þá flutti hún með þeim til Eskifjarðar og bjó þar til 1985. Dagmar flutti þá frá Eskifirði vegna veikinda og bjó eftir það á Ási í Hveragerði og þaðan fór hún á hjúkrunarheim- ilið Grund þar sem hún bjó til dán- ardags. Útför Dagmarar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kveðja til tengdamóður minnar. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Hafðu hjartans þökk fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir Benna. Elsku amma mín. Þá er komið að kveðjustund. Þú varst oft búin að segja að þinn tími væri kominn og að þú værir tilbúin að kveðja. Þegar mamma hringdi í mig að morgni 17. júní og sagði mér að þú værir búin að kveðja brunaði ég af stað upp á Grund. Ég hugsaði bara um að kom- ast til þín. Þegar ég sá þig látna í rúminu var svo mikill friður yfir þér, það var svo gott að þú varst hætt að berjast við að anda og loksins án verkja sem hafa hrjáð þig í alltof mörg ár. Við mamma sátum yfir þér og grét- um, við grétum af því að við vorum þakklátar fyrir okkar minningar með þér, en ég grét líka því mér fannst líf þitt hafa verið ósanngjarnt. Mér fannst oft lagt meira á þig en þú þold- ir. Ég grét líka af því að ég hefði get- að gert meira fyrir þig, verið duglegri að heimsækja þig og lesa fyrir þig. Samband ykkar mömmu var svo náið, mamma saknar þín og talaði mikið um hvað þú hefði létt mikið undir með henni. Ég man lítið eftir því þegar þú bjóst heima hjá okkur í Fögruhlíð- inni. Ég man þó að þegar ég kom inn í herbergið þitt var eins og ég væri komin inn í allt annað hús. Það var svo allt annar stíll inni í herberginu þínu en annars staðar í húsinu. Það var líka svo heitt í herberginu þínu. Ég man eftir rauða stólnum sem þú sast í. Flestar minningar sem ég á um þig eru frá því eftir að þú fórst á Ás og síðan á Grund. Ég hugsa oft um hve erfitt það hef- ur verið fyrir þig að standa ein ólétt að pabba, eftir að afi yfirgaf ykkur. Pabbi þinn var mjög stjórnsamur og harður við þig, hann gat ekki sætt sig við að þú værir einstæð móðir. En þú varst svo dugleg og barðist fyrir þig og pabba við litla aðstoð. Þú vildir aldrei heyra minnst á afa og vildir ekki að við hefðum samband við hann og það var ekki gert framan af. Síðan barst okkur jólagjöf frá afa sem við vissum ekki að við ættum. Ég var ánægð með að eiga afa, nýja ömmu og fullt af frænkum og frændum sem ég hafði ekki hugmynd um. Ég gat ekki beðið með að segja þér fréttirnar. Ég skildi ekki þá að foreldrar mínir þögguðu niður í mér og þá var ég reið, síðar skildi ég þig betur. Undir það síðasta fannst mér þú vera orðin sátt, kannski búin að jafna þig. Ég hugsaði um það þegar ég skírði dótt- ur mína Hólmfríði hvernig þú myndir bregðast við því en þú sagðir bara já. Núna hugsa ég um það að kannski hefði ég átt að ræða það við þig og ræða við þig hversu vel ég tengdist Hólmfríði. En ég valdi að gera það ekki. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að verja miklum tíma með þér undir lok lífs þíns, þá fékk ég tíma til að hugsa um líf þitt og samband okkar. Það er líka gott ef ég hef getað gert síðustu dagana í lífi þínu léttari með því að gefa þér að drekka, borða og halda í höndina á þér. Þú varst með svo fallegar hendur. Þú hafðir alla tíð mikinn áhuga á tísku og ég man svo oft eftir því að þú horfðir á mig rann- sakandi augum þegar ég kom að heimsækja þig og sagðir svo „Er þetta móðins?“ Eftir að þú hættir að geta lesið Morgunblaðið gastu enn skoðað kjólana í Séð og Heyrt og spurt „Er þetta móðins?“ Þetta höfð- um við mamma í huga þegar við völd- um föt á þig í þína hinstu för, við völd- um sparifötin þín. Þú vildir alltaf vera fín til fara. Elsku amma, nú er allt endanlegt, það verður aldrei neitt meira nema minningar þangað til við hittumst aft- ur. Núna ertu komin til Beggu systur þinnar, sem þú hafðir alltaf svo mikl- ar áhyggjur af. Kannski hefur þú náð að ræða málin við afa. Hafðu það gott elsku amma mín og njóttu þess að finna hvergi til. Ég elska þig. Þín, Júlía Rós. Elsku amma. Eftir þrautagöngu þína síðustu ár erum við öll fegin því að þú hefur nú loksins fengið þína langþráðu hvíld. Tilhugsunin um síð- ustu árin þín vekja hjá mér vonleysi og reiði yfir því tilgangsleysi sem líf við stöðuga verki og þjáningu er. Til- hugsunin vekur hjá mér ótal spurn- ingar um lífið, um réttlæti þess og misskiptingu, spurningar sem ég nú reyni að sætta mig við að ekki er hægt að svara. En þú hafðir ekki alltaf verið veik. Þegar við systurnar vorum að alast upp á Eskifirði varst þú einn af föstu punktunum í okkar lífi. Þú sast í brúna stólnum þínum við gluggann í herberginu þínu, prjónaðir sokka og lopapeysur eða glímdir við krossgát- ur. Þú gafst okkur nammi ef við kom- um og báðum nógu kurteislega, ég man að það var ekki alltaf mín sterka hlið. Ég man þegar þú last sögur fyrir mig og Dagmar Ósk systur, það var svo gott að liggja á mjúku öxlinni þinni, ég man að þér fannst ég stund- um liggja of fast því ég vildi sjá myndirnar betur. Ég man þegar þú kenndir okkur að ráða krossgátur og alltaf þegar ég heyri orðin „ra“ og „al“ á ég eftir að hugsa um þig. Ég man þegar þú bjargaðir mér úr prjónaskapnum þegar ég var búin að bjástra við lopasokkana hálfan vetur- inn, ég man að þér fannst ég nú aldrei sérstaklega myndarleg í höndunum. Elsku amma þegar ég lít yfir sam- verustundirnar okkar finnst mér þú hafa kennt mér margt. En fyrst og fremst hefur þú kennt mér mikilvægi þess að elska og fyrirgefa og allt sem þú varst og gerðir hefur gert mig staðfasta í að lifa lífi mínu án haturs og hræðslu við það sem lífið hefur upp á að bjóða. Elsku amma Dagmar, takk fyrir allt, þín, Inga Sigrún Atladóttir DAGMAR JÓHANNESDÓTTIR             !      "# $ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR, áður til heimilis í Álftamýri 24, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 21. júní. Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju föstu- daginn 30. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Kattavinafélag Íslands. Erlendur Þórðarson, Hrafn Björnsson, Guðrún Biering, Arnar Hrafnsson, Dagný Laxdal, Franklín Máni Arnarsson, Þröstur Hrafnsson, Linda Udengård, Baldur Þorsteinsson, Elín Anna Baldursdóttir, Þórður Hans Baldursson. Ástkær dóttir okkar, systir, barnabarn, barna- barnabarn og frænka, ELFA GUÐRÚN REYNISDÓTTIR, lést á vökudeild Barnaspítala Hringsins þriðju- daginn 20. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 14.00. Jóna Björk Gunnarsdóttir, Reynir Hilmarsson, Anna Mekkín Reynisdóttir, Elfa Signý Jónsdóttir, Hannes Höskuldsson, Gunnar J. Jóhannsson, Gunnlaug Árnadóttir, Guðrún Anna Jónasdóttir, Hilmar Árnason, Guðrún Helga Sörensdóttir, Jón Arason, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Höskuldur A. Sigurgeirsson, Hólmfríður J. Hannesdóttir, Jónas Ragnar, Guðrún, Reynir Aðalsteinn, Sigþór,Erna Sigríður, Árni og Jóhann. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Stigahlíð 6, síðar Viðarási 27, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 23. júní. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 30. júní kl. 11.00. Halldór Jón Júlíusson, Guðbjörg Fjóla Halldórsdóttir, Snæþór Sigurbjörn Halldórsson, Lína Dögg Halldórsdóttir, Hermann Hinriksson, Laufey Vilmundsdóttir, Agnar Kristinn Hermannsson, Hinrik Nikulás Hermannsson, Alda Guðrún Hermannsdóttir og barnabarnabörn. Látin er hjartkær frænka okkar, MARGRÉT MARKÚSDÓTTIR JONES. Hún lést þriðjudaginn 13. júní á Eldorado Care Center í San Diego. Jarðarförin fór fram fimmtudaginn 22. júní í River- side National Cemetery. Fyrir hönd ættingja og vina, Guðmundur Svavarsson. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA EIRÍKSDÓTTIR, Kirkjuvegi 1, áður Framnesvegi 16, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 26. júní. Hreinn Líndal Haraldsson, Eiríka Haraldsdóttir, Aldís Haraldsdóttir, Sólveig Haraldsdóttir, Arnbjörn Óskarsson, Sveinbjörg Haraldsdóttir, Haraldur L. Haraldsson, Ólöf Thorlacius, Ágúst Líndal Haraldsson, Valgerður Sigurjónsdóttir, barnabörn og banabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgun- blaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frek- ari upplýsingum). Minningar- greinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.