Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 53 Toyota Corolla Luna árg. '97. Ek- inn 122.000. Vínrauður. Verð 350 þús. Upplýsingar í síma 861 2702 og 555 2890. Til sölu Suzuku Ignis 1500 Sport árg. '04, 109 hestöfl. Ekinn aðeins 18 þús. Einn eig. Aukabúnaður. Tveir gangar á nýjum dekkjum, allt á sportfelgum. Veðbandalaus. Verð 1.350 þús. Möguleiki á 100% láni. S. 868 1129/896 3677. Til sölu stórglæsilegur Chevrolet Corvette árg. '94, ekinn aðeins 87 þús. km. Ný dekk, bíll í topp- standi, veðbandalaus. Verð 2.850 þús. Möguleiki á 100% láni. Uppl. í síma 868 8601/896 3677. Peugeot árg. '02 ek. 70 þús. km Áhvílandi 550.000 kr. Bíllinn er í góðu standi. Verð kr. 890.000- Upplýsingar í síma 867 7866. Nýir og nýlegir bílar langt undir markaðsverði Leitin að nýjum bíl hefst á www.islandus.com. Öflug þjónusta, íslensk ábyrgð og bíla- lán. Við finnum draumabílinn þinn um leið með alþjóðlegri bílaleit og veljum besta bílinn og bestu kaupin úr meira en þremur millj- ónum bíla til sölu, bæði nýjum og nýlegum. Seljum bíla frá öllum helstu framleiðendum. Sími þjón- ustuvers 552 2000 og netspjall á www.islandus.com. Nissan Almera árg. '99, bensín, ek. 124 þús. Beinsk. Vetrardekk á felgum, CD, fjarstýrð samlæs- ing. Verð 470 þús. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 892 7828. MMC Montero árg. '03, ek. 69 þús. km Stórglæsilegur silfur- litaður Montero á frábæru verði. Sérstök afmælisútgáfa hlaðin aukahlutum. Uppl. í s. 821 3231. Mazda árg. '98, ek. 99.000 km. 4ra dyra Mazda 323 SLX með 1500cc bensínvél, sjálfsk. með nýja tímareim. Uppl. 692 4588. Lexus IS-200 Limited árg. 05/ 2004, ek. 20 þ. Ssk. m. leðri, svartur. Áhv. 2,4 m. VÍS 59 þ./ mán. Verð 2.650 þ. Hægt að skoða á www.notadirbilar.is, radnr 116787. Er á staðnum! Eirhöfða 11, 110 Rvík. S. 898 3007/ andrisi@hi.is. Gullfallegur VW Passat 1600 árg. '99. Sumar- og vetrardekk á felgum. Góður bíll. Nýyfirfarinn, ek. 105 þús. Verð 850 þús. Mögul. á 100% láni. S. 868 8601/896 3677. Árg. '00, ek. 70.000 km. Dodge Ram EX CAB. Verð 2.900.000. Upplýsingar í s. 865 6356. Jeppar Suzuki Grand Vitara DIESEL Grand Vitara árgerð 2001, ek. 83 þ. km., 5 gíra, 100% smurbók, snyrtilegur og góður bíll. Algjör sparigrís. V. 1.580.000. Ath skipti á ódýrari. S. 899 6929. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, bifhjól, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06, 696 0042/566 6442. Glæsileg kennslubifreið, Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Bátar Hjólabátur óskast keyptur. Hjólabátur til skemmtunar fyrir krakka og fullorðna óskast keypt- ur. Hafið samband í s. 456 7586 eða 864 6530. Vélhjól Yamaha 1100 Dragstar. Til sölu Yamaha 1100 Dragstar 2001, ekið 16.000 km. Hjól í toppstandi með aukabúnaði. Verð 820 þ. S. 482 2362 eða 893 9503, Jóhannes. Hjólhýsi Hjólhýsi til sölu! Hefurðu séð ódýru og glæsilegu Delta Euroliner og Summerliner hjólhýsin hjá okkur? Verð frá 1.252. þ. Getum afgreitt nokkur í dag. Allt að 100% lán. Fortjald á hálfvirði. S. 587 2200, 898 4500. www.vagnasmidjan.is. Hjólhýsi til sölu! Eigum aðeins eitt Hobby Land- haus UML eftir á lager. Verð að- eins 3.000.000 kr. Ultra-heat fylg- ir. Komið og kannið málið. Útveg- um allar gerðir af hobby hjólhýs- um. Frekari upplýsingar í síma 587 2200, 898 4500. www.vagnasmidjan.is. Bátur til sölu! 4 tonna bátur í góðu standi og með nýlegri vél er til sölu. Upplýsingar í síma 426 8038. Bílar Bílar aukahlutir HÖGGDEYFAR Fyrir bílinn: Gabriel höggdeyfar, gormar, stýrisliðir, vatnsdælur, sætaáklæði, sætahlífar fyrir hesta- og veiðimenn, burðarbog- ar, aðalljós, stefnuljós, ASIM kúplingssett. Framlengingar- speglar fyrir fellihýsi og tjald- vagna, verð kr. 2.250. GS varahlutir, Bíldshöfða, sími 567 6744. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 FIMMTA gangan í röð gangna um „Græna trefilinn“ í fræðslu- samstarfi skógræktarfélaganna og KB banka verður í kvöld kl. 20. Upphaf göngunnar er við Reyn- isvatn. Gengið verður um skóg- ræktar- og útivistarsvæðin á aust- urheiðum Reykjavíkur undir leiðsögn Björns Júlíussonar frá um- hverfissviði Reykjavíkur. Fjallað verður um sögu svæðisins og um ræktun, náttúru og umhverfi. Boðið verður upp á léttar veit- ingar í lok göngunnar. Þetta er létt og fræðandi ganga sem tekur um tvo tíma og eru allir velkomnir. Til þess að komast að Reynisvatni er best að aka inn Grafarholtshverfið. Nánari upplýsingar á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands, www.skog.is. Gengið í nágrenni Reynisvatns FRÉTTIR Lánshlutfall og hámarkslán lækka ÞAU leiðu mistök urðu við vinnslu baksíðufréttar í Morgunblaðinu í gær að sagt var að ein af aðgerðum rík- isstjórnarinnar til að berjast gegn þenslu hér á landi væri sú að hækka lánshlutfall hjá Íbúðalánasjóði, og hækka hámarkslán sjóðsins. Þessu er að sjálfsögðu þveröfugt farið, lána- hlutfall og hámarkslán verða lækkuð, ekki hækkuð, eins og skýrt kom fram í ýtarlegri frétt blaðsins. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Ókeypis sætaferðir daglega Í frétt sem birtist í blaðinu fimmtu- daginn 15. júní kom fram röng dag- setning á ókeypis sætaferðum frá BSÍ til Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar. Sætaferðirnar eru klukkan hálffimm á morgnana en ekki hálf- fjögur eins og fram kom í fréttinni. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. LEIÐRÉTT UNGIR jafnaðarmenn hafa sent frá sér eftirfarandi ályktun: „Ungir jafnaðarmenn […] líta á hátt lyfjaverð hér á landi sem alvar- lega ógnun við velferðina og jafna stöðu fólks gagnvart heilbrigð- iskerfinu. […] hátt verð á lyfjum kemur harðast niður á efnaminni heimilum. […] lyfjaverð hér á landi er í sumum tilfellum margfalt hærra en í nágrannalöndum okkar án þess að tilhlýðilegar skýringar hafi fengist á þessum mun. Ungir jafnaðarmenn skora á stjórnvöld að grípa strax í taumana og tryggja hér sanngjarnt lyfjaverð með ein- um eða öðrum hætti.“ Hátt lyfjaverð alvarleg ógnun HÁSKÓLI Íslands og lyfjafyr- irtækið Eli Lilly á Íslandi hafa gengið frá samstarfssamningi um að efla rannsóknir og fræðslu um barna- og unglingageðlækningar á Íslandi. Markmið samstarfsins er að auka skilning á mikilvægi sérgreinarinnar og efla þekkingu á fræðasviðinu hérlendis þannig, að hún verði eins og best þekkist í nágrannalöndum okkar. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Stefán B. Sig- urðsson, forseti læknadeildar, og Rúna Hauksdóttir, markaðs- og sölustjóri Eli Lilly, undirrituðu samkomulag þessa efnis. Í upphafi verður lögð áhersla á að fá hingað til lands erlenda sér- fræðinga til fyrirlestrahalds. Er sérstakri samstarfsnefnd sem skipuð er sérfræðingi í barna- og unglingageðlækningum við læknadeild Háskóla Íslands og yf- irlækni barna- og unglingageð- deild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss falið að hafa umsjón með samstarfinu, velja gestafyr- irlesara en einnig að hafa frum- kvæði að nýjum verkefnum og þróa samstarfið enn frekar, segir í fréttatilkynningu. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Guðmundsson, yf- irlæknir BUGL, Rúna Hauksdóttir og Ólafur Adólfsson frá Eli Lilly á Ís- landi, Bertrand Laut, aðjúnkt í barna- og unglingageðlækningum við Há- skóla Íslands, og Stefán B. Sigurðsson, forseti læknadeildar HÍ. Efla rannsóknir og fræðslu um geðlækningar BÍLABÚÐ Benna frumsýnir í dag nýjan bíl af gerðinni Porche 911 Turbo. Með þessum sportbíl er Porsche enn og aftur að setja ný viðmið í framleiðslu á sport- bílum. Porsche 911 Turbo er með 6 strokka vél, 480 hestöfl og há- markstog er 680 Nm frá 2100 til 4000 snúningum. Bíllinn er 60 hestöflum aflmeiri heldur en fyrirrennarinn. Þrátt fyrir þessa aukningu á afli er 3,6 lítra slagrýmið óbreytt. Tæknimenn Porsche gerði það kleift með nýstárlegri forþjöppu- og kælitækni; túrb- ína með breytilegri afkasta- getu, segir í fréttatilkynningu. Er 3,7 sek í hundraðið Hröðun frá 0 upp í 100 km/ klst er 3,7 sek á sjálfskiptum bíl með Tiptronic S skiptingu. Porsche 911 Turbo verður til sýnis í sýningarsal Bílabúðar Benna fimmtudag og föstudag að Vagnhöfða 23. Frum- sýning á Porsche FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ harmar þá fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að breyta skattalögum þannig að hærra hlutfall tekna fólks renni í ríkissjóð eftir næstu áramót en nú- gildandi lög gera ráð fyrir, að því er fram kemur í tilkynningu frá félag- inu. „Þeir þingmenn sem sækja um- boð sitt til kjósenda sem eru hlynntir lækkun tekjuskattsprósentunnar verða að hafa í huga fyrir hvern þeir sitja á þingi þegar þeir greiða at- kvæði um hækkunartillöguna. Þá er þingmönnum hollt að hafa í huga að til er fólk sem þarf að gera áætlanir fram í tímann um tekjur, t.d. til að geta greitt af lánum sínum. Hækkun lögfestrar skattprósentu næstu ára- mót getur kippt stoðunum undan slíkum áætlunum launafólks,“ segir þar enn fremur. Harma skatta- lagabreytingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.