Morgunblaðið - 29.06.2006, Síða 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
ALCAN á Íslandi hélt í gær upp á 40 ára afmæli
fyrirtækisins með veislu í álgeymslunni á hafn-
arbakkanum í Straumsvík. Boðið var upp á tón-
list og veitingar, þar á meðal afmælisköku af-
henta af bakaranum Jóa Fel.
Í tilefni af afmælinu voru styrkir úr sam-
félagssjóði Alcan afhentir. Einnig var afhjúpað
listaverk eftir Steinunni Þórarinsdóttur, mynd-
höggvara.
Afmælisveislan sýndi að starfsmenn Alcan
kunna sannarlega að brosa gegnum tárin. Fyr-
irtækið varð fyrir miklu tjóni fyrir tíu dögum
þegar loka þurfti fjölda kera vegna bilunar í
spennum sem olli straumleysi í kerskálanum.
„Við látum engan bilbug á okkur finna,“ sagði
Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Alcan
þegar hann var spurður hvernig stemmning
hefði ríkt í afmælisveislunni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Afmælisveisla í Straumsvík
SKÝRSLA starfshóps Almanna-
varna á höfuðborgarsvæðinu frá í
febrúar 2005 um áfallaþol gerði ráð
fyrir mannskæðu klórgasslysi í miðri
Reykjavík og hvernig bregðast
skyldi við slíku stóráfalli. Klórgas-
slysið á Eskifirði var því ekki atburð-
ur af því taginu að hann kæmi við-
bragðsaðilum algerlega á óvart þótt
almenningi kynni að virðast þessi
tegund slyss fjarlægur möguleiki,
a.m.k. þangað til á þriðjudaginn var.
Í skýrslunni sem ber heitið Val og
hönnun björgunartilfella fyrir höfuð-
borgarsvæðið eru búin til allnákvæm
dæmi um stóráföll og viðbrögð við
þeim. Þegar Eskifjarðarslysið varð
tók samhæfingarstöð Almannavarna
til starfa sem og samhæfingarstöðin
í Skógarhlíð.
Enginn einn ræður
við svona atburð
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri í Reykjavík, segir að lykill-
inn að góðu viðbragði hafi falist í því
að allir lögðust á eitt um að hjálpa,
bæði sérhæfðir viðbragðsaðilar og
síðan almenningur.
„Það ræður enginn einn við svona
atburð og menn verða að sjá að þetta
er verkefni fyrir heildina,“ bendir
hann á. „Maður finnur að menn átta
sig á að svona atburðir eru ekki
bundnir við svæði, þar sem einn aðili
leysir vandann, heldur heildin.
Flæðið á mannskap milli svæða í
dag, hvort sem er milli lögregluum-
dæma eða sveitarfélaga, er alveg til
fyrirmyndar. Fyrir 10–15 árum var
stífni í þessum efnum en slíkt er ger-
samlega horfið í dag,“ segir hann.
Viðbragðsáætlun gerði
ráð fyrir klórgasslysi
Viðbragð | 8
Afgreiddi | 6
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hef-
ur ógilt samruna Senu og Dagsbrún-
ar en Dagsbrún keypti Senu af Degi
Group í febrúar síðastliðnum.
Er það mat Samkeppniseftirlits-
ins að kaupin styrki markaðsráðandi
stöðu beggja félaganna á ýmsum
mörkuðum fjölmiðlunar og afþrey-
ingar. Þá telur Samkeppniseftirlitið
að í krafti þessarar stöðu geti félögin
takmarkað samkeppni og hagað
verðlagningu sinni, viðskiptakjörum
og þjónustu án þess að taka tillit til
keppinauta sinna og neytenda.
Samkeppniseftirlitið telur að
Baugur Group fari í skilningi sam-
keppnislaga með yfirráð í Dagsbrún
í ljósi hlutafjáreignar sinnar og
tengsla við aðra stóra hluthafa í fé-
laginu, en Baugur á um 31% hlut í
Dagsbrún.
Í yfirlýsingu sem Hreinn Lofts-
son, stjórnarformaður Baugs, sendi
frá sér í gær segir m.a. að þessi nið-
urstaða komi verulega á óvart og sé
henni með öllu hafnað.
Samkvæmt tilkynningu frá Dags-
brún mun ákvörðuninni verða skotið
til áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála en kaupin voru gerð með fyr-
irvara um samþykki samkeppnisyf-
irvalda. Þar segir jafnframt að
Dagsbrún telji að forsendur ákvörð-
unarinnar séu í meginatriðum rang-
ar. | B2
Samruni
Dagsbrúnar
og Senu
ógildur
„Það eru svo fáir
ernir eftir í landinu“
SIGURBJÖRG Sandra Péturs-
dóttir þurfti ekki að hugsa sig lengi
um þegar hún sá óflugfæran haförn
hrapa í Kirkjufellslón skammt frá
Grundarfirði, heldur stökk til og
handsamaði fuglinn í því skyni að
bjarga honum, þrátt fyrir að hann
berðist um á hæl og hnakka. Sig-
urbjörg, sem er aðeins tólf ára, var
ein í útreiðartúr sl. þriðjudagskvöld
þegar hún rakst á hinn ósjálfbjarga
fugl. „Ég hugsaði með mér að ég
ætlaði að bjarga honum, því það
eru svo fáir ernir eftir í landinu,“
segir Sigurbjörg sem fylgdi fugl-
inum suður til Reykjavíkur þar
sem hann var afhentur starfsfólki
Náttúrufræðistofnunar Íslands til
aðhlynningar. Þaðan var fuglinn
síðan sendur í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn, þar sem hann mun
dvelja næstu mánuði og jafnvel ár,
því örninn var illa grútarblautur og
þarf því að fara í rækilegt bað
nokkrum sinnum auk þess sem á
hann vantar nánast allar stélfjaðr-
irnar. Erninum verður komið fyrir
í útibúri í Húsdýragarðinum eftir
u.þ.b. tvær vikur og hann þá hafður
almenningi til sýnis.
Óð óhrædd | 4
Meiri sam-
þjöppun
eignarhalds
MEÐ kaupum FL Group á 24,2%
hlut í Straumi-Burðarási fjárfest-
ingabanka hf. hefur samþjöppun á
eignarhaldi fjármálafyrirtækja auk-
ist, að sögn Jafets Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra VBS fjárfestinga-
banka.
FL Group á nú stóran hlut í þrem-
ur af þeim fjórum viðskiptabönkum
sem skráðir eru í Kauphöll Íslands;
eða 25,9% í Straumi-Burðarási,
24,3% í Glitni og um 3% í KB banka.
„Sjálfur hefði ég kosið að sjá meiri
dreifingu á eignarhaldinu,“ segir
Jafet, en hann kveðst ekki halda að
aukið krosseignarhald muni veikja
bankana í augum erlendra greining-
araðila. | B6
Morgunblaðið/ÞÖK
Bónus með
lægsta verðið
BÓNUS var oftast með lægsta
verðið og verslun Ellefu-ellefu með
það hæsta í verðkönnun á mat- og
drykkjarvörum sem verðlagseftir-
lit ASÍ gerði í matvöruverslunum á
höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn
þriðjudag. Oft reyndist lítill verð-
munur í verslun Bónuss og Krón-
unnar. Af 29 vörutegundum sem
fáanlegar voru í báðum verslunum
var einnar krónu verðmunur í 20
tilvikum og sama verð í einu tilviki.
Mestur verðmunur í könnuninni
var 124% á pakka af Toffypops
kexi sem var ódýrastur, 98 kr, í
Bónus og dýrastur, 219 kr, í Ell-
efu-ellefu. Flestar óverðmerktar
vörur í þessari könnun voru í versl-
uninni Gripið og greitt í Skútuvogi,
en þar voru 10 vörur af 53 ekki
verðmerktar.
Daglegt líf | 30
♦♦♦