Morgunblaðið - 09.08.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 29
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Stóru dan hvolpar til sölu.
Hvolpar undan Emblu og Blue,
fyrsta og eina got Emblu. Hvolp-
arnir verða skráðir hjá HRFÍ.
Uppl. í síma 662 2700.
Nudd
Klassískt nudd. Árangursrík olíu-
og smyrslameðferð með ívafi ísl.
jurta. Opið alla daga í sumar.
Steinunn P. Hafstað
félagi í FÍHN, s. 692 0644,
Húsgögn
Til sölu
Ísskápur 170 cm á hæð á 5.000
kr. Svalavagn með neti, kerru-
poka og regnneti á 5.000 kr. Sófa-
borð, vel með farið 3.000 kr. Gas-
helluborð og gasskynjari 15.000
kr. Upplýsingar í símum 866 0329
eða 565 2846.
Húsnæði í boði
Einbýli til leigu í Grindavík. 135
fm hús með 33 fm bílskúr til leigu
í Grindavík. Verð 100 þús. á mán.
Uppl. í síma 847 9893.
Húsnæði óskast
Óska eftir 2ja-3ja herbergja
íbúð til leigu
á höfuðborgarsvæðinu eða í
Hafnarfirði. Upplýsingar hjá
Margin í síma 693 3510 milli
klukkan 9 og 20.
Hjálp! Erum á götunni! Reglu-
samt par bráðvantar íbúð. Há-
marks greiðslugeta 70 þ. Skilvís-
um greiðslum heitið. Elín 865
9325, Hörður 849 4776.
Atvinnuhúsnæði
Lagerhúsnæði í Höfðahverfi.
Rúmlega 300 fm lager eða
geymsluhúsnæði til leigu í Höfða-
hverfi. Lofthæð 3,50 m. Hentar
fyrir þungavörur. Góð aðkoma.
Símar 861 8011 og 699 5112.
Sumarhús
Til sölu, sumar/gestahús 24 fm.
Húsið er mjög vandað og fallegt
harðviðarhús með 12 fm palli, til-
búið til flutnings, staðsett í Hvera-
gerði (við Bónusverslunina). Ásett
verð 2,5 millj. Uppl. í síma 893
9503 og 482 2362, Jóhannes. Sjá
einnig: www.kvistas.is
Sumarhús til sölu. Sumahús við
Eyrarskóg í Svínadal, sem af-
hendist fullbúið að utan en tilbúið
til innréttingar að innan, 62 m² að
flatarmáli, bjálkaklæðning. Glugg-
ar og hurðir úr harðviði.
Upplýsingar í síma 893 2329.
Rotþrær
Framleiðum rotþrær, 2.300-25.000
lítra.
Öll fráveiturör og tengistykki í
grunninn.
Sérboruð siturrör og tengistykki
í siturlögnina.
Heildarlausn á hagstæðu verði.
Borgarplast, Seltjarnarnesi,
sími 561 2211.
Borgarplast, Borgarnesi,
sími 437 1370.
Heimasíða:
www.borgarplast.is
Námskeið
Upledger höfuðb.- og spjald-
hryggjarmeðf. Kynningarnám-
skeið á Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðf. verður haldið
26. ágúst næstkomandi í Rvík.
Upplýsingar í síma 466 3090 eða
á www.upledger.is.
Microsoft kerfisstjóranám á
haustönn Frá 4.9 til 31.1.2007.
Ítarlegt, vandað og hagnýtt nám
á mjög hagstæðu verði. Bættu
Microsoft í ferilskrána. Rafiðnað-
arskólinn, www.raf.is,
s. 86 321 86.
Óska eftir
Vörubrettu. Vantar ca 800
notaða EURO palla. Verða að
vera hreinir og í góðu standi.
Uppl. onedin@simnet.is
Þjónusta
Smágrafa (1,8 t) til allra smærri
verka, t.d. jafna inn í grunnum,
grafa fyrir lögnum, múrbrot (er
með brothamri og staurabor) og
almenn lóðavinna. Einnig öll al-
menn smíðavinna og sólpalla-
smíði.
Halur og sprund verktakar ehf.,
sími 862 5563.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Heilbrigðsráðgjöf Sólhildar.
Stuðningsviðtöl og lífsstílsbreyt-
ingar. Hef opnað nýja stofu í Síðu-
múla 15. Tímapantanir í síma 568
3750 (e. kl. 17) og á netfangi: sol-
hildur@vortex.is Sólhildur Otte-
sen, hjúkrunarfræðingur BSc.
Ýmislegt
Týndur páfagaukur, tegund Gári,
flaug út um glugga í Grafarvogi
fimmutdaginn 3. ágúst. Er gæfur,
blár og hvítur, svarar nafninu
Eddi. Ef einhver hefur fengið
hann inn um gluggann vinsam-
lega hringið í síma 894 0394.
Sími 4 200 500
www.plexigler.is
Plexigler fyrir fiskverkendur,
skiltagerðir, fyrirtæki og
einstaklinga.
Sérsmíði og efnissala.
Glæsilegir dömuskór úr leðri.
Litir: Turkis, brúnt og beige.
Verð: 7.600.
Glæsilegir dömuskór úr leðri.
Litir: Svart, hvítt og turkis.
Verð: 4.985.
Glæsilegir dömuskór úr leðri.
Litir: Turkis, brúnt og beige. Verð:
7.600.
Misty skór, Laugavegi 178.
Sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
MMC Montero Ltd árg. '04, ek.
90 þús. km. MMC Montero Ltd
2004, ek. 90 þ. km. Sjálfsk., leður,
topplúga, litað gler, 7 manna,
gullsans, 3800cc. Verð 3.100 þ.
S. 899 2307.
Mercedes Benz árg. '95, ek. 194
þús. km. Til sölu vegna flutnings.
M. Benz E220. Ásett verð 850 þ.
Tilboð 590 þ. Nýskoðaður. Upp-
lýsingar í síma 691 7143.
Jeppar
Land Cruiser LX 2000. Land
Cruiser 90 LX árg. 2000. Ekinn
136.000 km. Beinsk. Upphækk.
33". Dráttarkúla. Tilboð. Uppl. í
síma 899 0844.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, bifhjól,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '05
892 4449/557 2940.
Fellihýsi
Fellihýsi óskast. Óska eftir felli-
hýsi fyrir allt að 300 þ. kr. stað-
greitt. Þarf að vera með miðstöð.
S. 554 0338/691 0338/693 0138.
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
gekk betur þannig og þá gátum við
líka fengið góðan tíma til að spjalla á
eftir. Ekki það að hún Inga væri að
gera lítið úr mér, nei, það var öðru
nær, hún vissi bara að það var margt
annað sem ég gerði betur. ,,Komdu
þegar þú nennir eða hefur tíma, það
er alltaf gaman að fá þig,“ sagði Inga
alltaf þegar við kvöddumst, engin
skilyrði bara væntumþykja. Stundum
kom ég vikulega og stundum liðu
mánuðir á milli heimsókna en alltaf
fékk ég sömu hlýju og góðu móttök-
urnar. Hún samgladdist mér svo inni-
lega í lífinu bæði í stóru og smáu. Ég
var ekki ein um það að vera velkomin
til Ingu og Jóa. Hjá þeim var stöð-
ugur gestagangur og ég vitna hér í
ljóð sem pabbi, bróðir Ingu, orti til
hennar sjötugrar:
Margir sárir – síst er skyldi – sækja til þín
bros og mildi.
Stofan þín hún ilmar öll.
Börnin hennar og þeirra fjölskyld-
ur var hennar auður í lífinu. Hún
sagði mér að bæn hennar til Guðs hafi
fyrst og fremst verið sú að hún fengi
að koma börnunum sínum til manns.
Þegar svo Gunnar, yngsta barnið, var
orðinn 16 ára þakkaði hún fyrir bæn-
heyrslu og sagðist tilbúin að fara. Við,
aðstandendur og vinir, erum afar
þakklát fyrir að Guð kallaði hana ekki
strax til sín heldur fengum að njóta
hennar rúmlega þrjátíu árum lengur!
Ég veit að Inga frænka var ekki rík af
veraldlegum auð en enginn var samt
ríkari en hún að mínu mati; alltaf sátt
og ánægð með sitt. Ég get sagt með
sanni að foreldrar mínir og Inga
frænka séu þær manneskjur sem ég
hef litið mest upp til, þau hafa verið
mér sannar fyrirmyndir í lífinu. Öll
hafa þau verið heilsteypt og sam-
kvæm sjálfum sér, laus við ágirnd og
öfund og leitast við að vera sönn í
samskiptum sínum við fjölskyldur
sínar og samferðamenn.
Inga átti við heilsuleysi að stríða
undanfarin ár og dvaldi á Skjóli síð-
ustu árin. Þar var hún ekki skilin eftir
ein því börn hennar voru einstök í
umhyggju sinni og kærleika og þá má
sérstaklega nefna Herdísi og Gerðu
að öðrum ólöstuðum. Ég þakka þeim
innilega fyrir að fá að vera með Ingu
síðasta spölinn.
Með þakklæti fyrst og fremst en
einnig söknuði kveð ég Ingu frænku
mína, hún var mér afar kær. Við Jónsi
og börnin okkar, Hákon og Inga
Hrönn, sendum fjölskyldu hennar
samúðarkveðjur. Guð blessi minn-
ingu hennar og Jóa (frænda) og gefi
þeim frið.
Anna.
Lífsgöngu Ingu föðursystur minn-
ar er lokið. Hún hefur gengið inn í
fögnuð herra síns þar sem lífsbók
hennar, skráð gullnu letri, fær heið-
urssess.
Saga Ingu frænku er einstök fyrir
þá lífsgleði, örlæti og þjónustulund
sem einkenndi hana alla tíð þrátt fyrir
að hafa aldrei haft úr miklum verald-
legum auði að moða. Hún var öllum
sem henni kynntust ógleymanleg. Að
umgangast Ingu kom í veg fyrir veru-
leikafirringu. Sá andlegi auður sem
hún var nestuð út í lífið af skapara sín-
um og bernskuheimili var óvenju
mikill. Þann auð náði hún að ávaxta
allt sitt líf af ótrúlegri kostgæfni. Arð-
semi eigin fjár stærstu fjármálastofn-
ana landsins bliknar við þann árangur
sem Inga náði við að ávaxta sitt pund.
Inga fæddist og ólst upp á Eskifirði
við kröpp kjör. Hún kynntist því fljótt
að lífið var enginn dans á rósum en
viðhorf hennar til lífsins sem hún ung
nam af móður sinni gerði það að verk-
um að hún fór brosandi í gegnum allt
sitt líf. Ung kynntist hún Jóa sínum.
Gagnkvæm og ótakmörkuð ástin ylj-
aði þeim í óhrjálegum húsakynnum á
fyrstu búskaparárunum og alla tíð
síðan. Samband þeirra var í mörgu
sérstætt. Oft var stutt í stríðnina hjá
Jóa en það var hans aðferð til að flytja
henni ástaróð og Inga tók því eins og
til var ætlast.
Sagt er að Inga hafi erft eðliseig-
inleika móður sinnar. Hún var ósér-
hlífin dugnaðarforkur, alltaf til staðar
tilbúin að þjóna, leiðbeina og rétta
hjálparhönd öllum þeim sem til henn-
ar leituðu. Margir komu til hennar
þegar rétta þurfti af kúrsinn og af
hennar fundi komu allir einhvers
bættari.
Inga var einstaklega örlát mann-
eskja. Heimili Ingu og Jóa stóð öllu
frænd- og vinafólki alltaf opið og
þangað var eftirsóknarvert að koma.
Heimili þeirra var aldrei stórt í fer-
metrum talið og erfitt var að átta sig á
því hvort þröngt væri í búi eða ekki.
Glaðværðin og glettnin í fasi hennar
og elskulegt viðmót mætti manni allt-
af og heima hjá Ingu leið manni eins
og í höllu drottningar. Það var auðvelt
að gleyma stund og stað í samræðum
við Ingu. Ættrækin var hún með af-
brigðum og lét sig varða líðan skyld-
menna sinna.
Inga var einstakur uppalandi og
bar ótakmarkaða virðingu fyrir börn-
um og talaði við þau í samræmi við
það. Það voru ekki einungis börnin
hennar sem nutu leiðsagnar hennar.
Öll barnabörnin dvöldu hjá ömmu
sinni um lengri eða skemmri tíma.
Þau eru öll dugnaðarforkar og bera
þess glöggt merki að hafa notið ást-
ríkis og lífsgleði Ingu. Systkinabörn
Ingu og fjölmargir aðrir ættingjar
fengu uppeldislegar leiðbeiningar á
heimili hennar matreiddar á þann
hátt að ekki gleymast. Fyrir það er nú
þakkað með fátæklegum orðum.
Hún var aðdáunarverð sú ást sem
dætur hennar endurguldu henni með
einstakri umhyggju og umönnun hin
síðustu ár þegar Inga þurfti þess
með. Megi minningin um óendanlega
gefandi móður og ömmu verða börn-
um, barnabörnum og barnabarna-
börnum Ingu frænku styrkur um
ókomin ár.
Halldór Árnason.
FRÉTTIR
SVIFFLUGFÉLAG Íslands fagnar
70 ára afmæli á morgun, fimmtudag-
inn 10. ágúst, og verður félagið með
fagnað á Sandskeiði á afmælisdaginn
kl. 20.
Agnar Kofoed Hansen stóð að
stofnun félagsins ásamt fleiri mönn-
um. Tilgangur með stofnuninni var að
rækta upp innlenda þekkingu á flugi
og gefa áhugasömum kost á að læra
flug á ódýran og einfaldan hátt. Allar
götur síðan hefur meginmarkmið
Svifflugfélagsins verið að sjá um svif-
flugkennslu sem öll er unnin í sjálf-
boðavinnu og á félagið nú búnað og
flugflota til kennslu. Flestir af frum-
kvöðlum flugsins lærðu í upphafi svif-
flug og enn eru fjölmargir sem stíga
sín fyrstu skref í svifflugi. Svifflug-
félagið er félagsskapur sem á sér
langa sögu enda félagið elsta starf-
andi flugfélag landsins. Svifflugfélag-
ið hefur ávallt verið með flugaðstöðu
sína á Sandskeiði við Bláfjallaveg og á
þar flugvöll, flugskýli og klúbbhús.
Einnig á félagið 10 flugvélar. Þá er
svifflugfélagið einnig íþróttafélag og
stunda félagsmenn svifflugsíþróttina
með því að fljúga um Suður- og Vest-
urland þegar veður leyfir, segir í
fréttatilkynningu.
Næstkomandi laugardag, 12. ágúst
(sunnudagurinn 13. til vara), verður
flugafmælishátíð á Sandskeiði og
hefst hún kl. 13. Sýnd verða tæki fé-
lagsins og aðrar svifflugur og munu
margar þeirra fljúga um loftin. Einn-
ig verður sýnt listflug. Þá verður boð-
ið upp á svifflug fyrir gesti eins og
kostur er.
Svifflugfélag
Íslands 70 ára
FUNDUR Landverndar og sex nor-
rænna náttúruverndarsamtaka sem
haldinn var í Færeyjum nýverið
sendi ríkisstjórn Íslands orðsend-
ingu vegna brottfarar Bandaríkja-
hers frá Íslandi þar sem segir að
tryggja þurfi hagsmuni Íslendinga
varðandi umhverfisgæði. Beina
Landvernd og systursamtök á Norð-
urlöndum því til ríkisstjórnarinnar
að nauðsynlegar rannsóknir fari
fram og að menguð svæði verði
hreinsuð með fullnægjandi hætti á
kostnað mengunarvalds.
„Herinn hefur haft umsvif víðs
vegar á Íslandi í hartnær sextíu ár.
Víða um heim þar sem herstöðvar
hafa verið starfræktar hefur slík
starfsemi valdið umtalsverðri meng-
un í jarðvegi og grunnvatni. Ísland er
engin undantekning í þeim efnum
þar sem fundist hefur mengun sem
rakin hefur verið til starfsemi
Bandaríkjahers á nokkrum svæðum
á landinu,“ segir í orðsendingu og að
fjölmörg svæði séu órannsökuð hvað
þennan þátt varðar. „Rannsóknir af
þessu tagi eru vandasamar, dýrar og
tímafrekar en engu að síður ber ís-
lenskum stjórnvöldum að tryggja að
þær verði framkvæmdar af óháðum
aðilum undir yfirumsjón Íslendinga.“
Orðsending til ríkis-
stjórnar Íslands