Morgunblaðið - 18.08.2006, Page 2
2|Morgunblaðið
Þessir aðilar hafa um árabil átt aðild að og ver-
ið bakhjarlar fjögurra fræðslumiðstöðva í iðn-
aði: Menntafélagi byggingariðnaðarins,
Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins, Prent-
tæknistofnun og Fræðsluráði hótel- og mat-
vælagreina.
Í takt við þróunina
Þessi samruni er talinn vera í takt við þró-
unina í atvinnulífinu. Hagsmunagæsla og þjón-
usta við fyrirtæki er í minnkandi mæli tengd
atvinnuvegum eða einstökum starfsgreinum
heldur leggur atvinnulífið áherslu á sambæri-
leg skilyrði fyrir öll fyrirtæki. Meðal slíkra
skilyrða er gott aðgengi að vel menntuðu og
færu starfsfólki.
Hlutverk IÐUNNAR er því fyrst og fremst
að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í
byggingar-, málm-, prentiðnaði og matvæla-
og veitingagreinum.
Skipulag IÐUNNAR
Í samstarfssamningi stofnaðila er kveðið á
um að IÐAN skuli starfrækja sí- og endur-
menntun og jafnvel meistaranám. IÐAN mun
taka þátt í rannsóknar- og þróunarverkefnum
um hæfni í iðnaði og iðnmenntun og hún mun
leiða samskipti við stjórnvöld um fræðslumál
viðkomandi greina. Stofnaðilar vilja sjá IÐ-
UNA vinna eftirfarandi verkefni á næsta ára-
tug:
IÐAN bjóði fjölbreytt nám á framhalds- og
háskólastigi.
Greina þarfir iðnaðarins fyrir þekkingu
starfsmanna. Fyrirtæki gera ráð fyrir IÐ-
UNNI við uppbyggingu eigin starfs-
mannastjórnunar.
Annist þróunarstarf fyrir mennta-
málaráðuneytið í iðn- og starfsmenntun.
Annist ráðgjöf í fyrirtækjum, aðstoða við að
móta menntastefnu og starfsþróun.
Upplýsingatorg IÐUNNAR veitir upplýs-
ingar um iðnnám, símenntun iðnaðarmanna og
annað nám sem varðar iðnaðinn. IÐAN tekur
yfir upplýsingavefinn www.idan.is um nám og
störf sem Samtök iðnaðarins komu á legg og
hafa rekið undanfarin ár.
Hvaða breytingu vonast menn til að sjá við
sameiningu fjögurra fræðslumiðstöðva í eina?
„Með stofnun IÐUNNAR er komið tæki-
færi til að þjóna hlutaðeigandi greinum með
miklu markvissari hætti en verið hefur. Fyrst
má nefna að daglegur rekstur og skrif-
stofuhald er á einni hendi. Í öðru lagi má nefna
að nú geta menn sameinast um meiri strauml-
ínulögun í úrvinnslu verkefna. Verkefni, sem
áður voru unnin með ýmsum hætti hjá ein-
staka fræðslumiðstöðvum, eru nú á einni
hendi,“ segir Hildur Elín Vignir, fram-
kvæmdastjóri IÐUNNAR.
Hvaða verkefni er átt við?
,,T.d. má nefna samskipti við mennta-
málaráðuneyti og iðn- og verkmenntaskóla.
Með stofnun IÐUNNAR er kominn öflugri
grunnur fyrir hvers konar kynningarstarf.
Eins má nefna að breiður starfsgrundvöllur
IÐUNNAR gefur færi á því að laða að fleiri
starfsgreinar til samstarfs í menntamálum,“
segir Hildur Elín.
Meðal helstu verkefna og/eða nýjunga á
sviðunum fjórum má nefna:
Prenttæknisvið IÐUNNAR
Á síðustu árum hefur stafræna byltingin í
myndvinnslu gerbreytt starfsháttum þeirra
sem vinna við prentiðnað og ljósmyndarar,
hönnuðir og prentsmiðir vinna nær eingöngu
með stafræn gögn og tæki. Þekktasta forrit
myndvinnslunnar er Photoshop sem sumir
telja jafnmikilvæga uppfinningu og filmuna á
sinni tíð. Prenttæknisvið IÐUNNAR fræðslu-
seturs stendur fyrir Íslandsheimsókn Ben
Willmore, eins af þekktustu photoshopgúrúum
heims í byrjun október, þar sem fagmönnum í
myndvinnslu, hönnuðum, prentsmiðum og öðr-
um gefst kostur á að sitja tveggja daga nám-
skeið með manni sem einn af aðalverkfræð-
ingum NASA sagði að hefði flutt besta
Photoshop-námskeið sem hann hefði setið.
Tugir þúsunda einstaklinga allt frá byrjendum
til starfandi fagmanna hafa setið námskeið hjá
Willmore og ber saman um að honum takist að
svipta hulunni af virkni þessa magnaða forrits.
Námskeiðið er haldið 5. og 6. október og er
haldið í tengslum við ráðstefnu Xplor-
samtakanna, sem eru alþjóðleg samtök fag-
manna í gagnavinnslu og prentiðnaði. Efni
ráðstefnunnar er einmitt framtíðarhorfur
Adobe-forritanna sem eru að verða að-
alverkfæri prentsmiða og hönnuða.
Bygginga- og mannvirkjasvið IÐUNNAR
Ein af nýjungum á Bygginga- og mann-
virkjasviði er nám fyrir ófaglært starfsfólk
sem vinnur í byggingariðnaði.
Við mannvirkjagerð starfar fjöldi manna
sem ekki hafa iðnmenntun en sinna ýmsum
sérhæfðum störfum og gera má ráð fyrir að
þeim fjölgi mikið á næstu árum. Vegna auk-
inna krafna atvinnulífsins er nú boðið upp á
nám sem byggist á starfsþjálfun og sérhæf-
ingu á vinnustað ásamt þátttöku í nám-
skeiðum. Þannig geta þeir náð betra valdi á
starfi sínu og starfsumhverfi og styrkt stöðu
sína á vinnumarkaði til framtíðar. Námið eflir
samkeppnishæfni og framleiðni fyrirtækja að
sama skapi.
Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR
Eitt af þeim verkefnum sem unnið er að á
Matvæla- og veitingasviði IÐUNNAR þessa
dagana nefnist „Sérstök matargerð“. Markmið
verkefnisins er að hanna og semja námsefni
fyrir sérfæði sem ætlað verður til kennslu í
framhaldsskólum og á endurmenntunarnám-
skeiðum. Efnið mun jafnframt nýtast öllum
þeim sem matreiða sérfæði, bæði fagfólki og
almenningi.
Málm- og véltæknisvið IÐUNNAR
Þekkingarframboð sviðsins byggist á „nám-
skeiðaflokkum“ frekar en einstökum nám-
skeiðum. Hver flokkur námskeiða hefur það
markmið að dekka ákveðin þekkingarsvið
nægjanlega þannig að þeir iðnaðarmenn sem
tileinka sér efni allra námskeiðanna teljast búa
yfir þeirri þekkingu sem nauðsynleg er til að
kallast fullfær iðnaðarmaður á hinu tiltekna
sviði. Þegar er búið að semja slíka pakka í
vökvatækni, loftræsitækni og málmsuðu. Nú
er unnið að því að útbúa námskeiðaflokk fyrir
kælitækni og verður fyrsti hluti hans á boð-
stólum í byrjun næsta árs.
IÐAN er með aðsetur á Hallveigarstíg 1.
Starfsmenn hennar eru 13 talsins.
Fjórar fræðslumiðstöðvar sameinast
í IÐUNNI – fræðslusetri ehf.
Nemar á umbrotsnámskeiði hjá Iðunni Fræðslusetri.
IÐAN – fræðslusetur ehf.
varð til við samruna fjögurra
fræðslumiðstöðva í iðnaði og
ferðaþjónustu síðastliðið
vor. Eigendur IÐUNNAR
eru Samtök iðnaðarins,
Samiðn, MATVÍS, Félag
bókagerðarmanna og Sam-
tök ferðaþjónustunnar.