Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 17

Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 17
Morgunblaðið |17 „Setrið var opnað upphaflega sem annars vegar námsaðstaða fyrir há- skólanema og hins vegar sem rann- sóknarmiðstöð fyrir Þingeyjarsýslur. Það er hugsað sem þverfagleg mið- stöð rannsókna, þar sem veitt er að- staða, tæki og búnaður, og eins til að veita frumkvæði að rannsóknarstarfi. Þetta gerum við bæði með því að hvetja til rannsóknarverkefna stúd- enta sem eru búsettir hér og eins með því að lokka til okkar fræðimenn og einstök verkefni,“ segir Óli. Hýsill rannsóknarverkefna Setrið hefur ekki bara tekið við verkefnum frá öðrum heldur skapað sér eigin rannsóknarverkefni. Þannig má segja að stofnunin hafi sett sér það markmið að verða hýsill marg- víslegra rannsóknarverkefna. „Við leitumst líka við að koma á samstarfi milli fræðimanna sem hér búa og fræðimanna annars staðar að, hafa milligöngu um samstarf háskól- anna, það er Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands, og svo setursins.“ Fyrir fimm árum síðan fengu Óli og félagi hans hugmyndina um að koma setrinu á legg og það var svo sett á laggirnar árið 2003. „Við fengum breiða fylkingu á bak við okkur, bæði þingmenn, ráðherra og valdamenn hér í héraðinu, til þess að geta gert þetta og við fengum alls staðar góðar undirtektir. Nátt- úrustofa Norðausturlands og Þekk- ingarsetrið voru stofnuð samhliða og hafa alltaf unnið náið saman og eru reyndar undir sama þaki hérna á Húsavík. Báðar stofnanirnar eru sjálfstæðar en samstarfið er mjög mikilvægt.“ Þjónusta við atvinnuvegina Óli segir að þriðja hjólið undir vagninum sé Fræþing, eða Fræðslu- miðstöð Þingeyinga, sem sinnt hefur símenntun með námskeiðahaldi bæði fyrir atvinnuvegina og fyrir venjulegt fólk. „Fræðslumiðstöðin hefur að mark- miði að þjónusta fullorðið fólk í víðum skilningi hvað endurmenntun og sí- menntun varðar. Fræþing var upp- haflega eins og aðrar símennt- unarstofnanir með tómstundanámskeið, tungumála- námskeið og þess háttar, en hefur þróast síðustu misserin þannig að þjónustan við atvinnuvegina hefur stóraukist,“ segir Óli. Hann segir að stofnanirnar þrjár hafi leitað eftir samstarfi við stétt- arfélögin, Landmennt og Símennt, og verið með meiri áherslu á þessa aðila og atvinnuvegina almennt, á meðan áherslan á tómstundanámskeið hafi farið minnkandi. „Aðsókn að tómstundanám- skeiðum hefur almennt farið minnk- andi og það er greinilegt hérna á okk- ar svæði. Í staðinn hefur áhugi fullorðins fólks á að fá tækifæri til að endurmennta sig, eða mennta sig meira á ákveðnu sviði, aukist veru- lega. “ Háskólanámssetur Þekkingarsetur Þingeyinga er jafnframt rannsóknarstörfunum að vinna að traustari undirstöðum há- skólanáms í Þingeyjarsýslum í sam- starfi við Fræðslumiðströð Þing- eyinga. „Markmiðið er að reka öflugt há- skólanámssetur á Húsavík. Við vilj- um stuðla að því að staðbundin þekk- ing verði nýtt af aðilum innan setursins og utan þess til þess að kenna á háskólastigi,“ segir Óli. Óli segir að nýting háskólaseturs- ins hafi verið mikil og fari vaxandi. 30 til 40 nemar frá hinum ýmsu háskól- um landsins hafi sólarhringsaðgang að vinnuaðstöðu í setrinu. „Reynslan hefur sýnt að nemar nýta aðstöðuna á ólíkum tímum, það er sumir í dagvinnu en aðrir á kvöldin og um helgar. Þetta gerir það að verkum að húsnæðið nýtist afar vel.“ Fjöldi nemenda og mismunandi starfstími hefur haft í för með sér lif- andi og skemmtilegt háskóla- umhverfi, að sögn Óla. Rannsóknir Unnið hefur verið að allmörgum rannsóknarverkefnum á setrinu. Sum hafa verið unnin að öllu leyti á setr- inu, meðan önnur hafa verið í sam- starfi við fræðimenn utan setursins. „Þekkingarsetrið aflaði styrkja til nokkurra af þessum verkefnum á síð- asta ári og við vonumst til að við get- um haldið þeirri starfsemi áfram í vetur. Í sumum tilvikum vann setrið sjálft að þeim rannsóknum sem styrkir fengust til, á meðan önnur verkefni voru unnin í samstarfi við aðila innan svæðisins eða utan þess. Við höfum meðal annars unnið að rannsóknarstörfum í samstarfi við Hólaskóla, Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga, Norðursiglingu og Rauf- arhafnarhrepp, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Óli. Horfurnar á áframhaldandi góðum rekstri byggjast að vonum á fjárveit- ingum að miklu leyti. Verið er að ráð- gera sameiningu Fræþings og Þekk- ingarsetursins og hefur menntamálaráðherra lýst yfir stuðn- ingi við þau áform. Óli telur að sam- einingin, sem þegar er orðin að veru- leika, muni styrkja stofnanirnar og að fjármögnun verði mun auðveldari og betur nýtt þegar báðar stofnanirnar séu komnar undir sama hatt. Þverfagleg miðstöð rannsókna Þekkingarsetur Þingeyinga var stofnað sumarið 2003 og hóf starfsemi sína í október sama ár. Hlutverk setursins er að vera miðstöð rannsókna í héraðinu og jafnframt háskólasetur. Við hittum Óla Halldórsson, forstöðumann setursins, að máli. Hafþór Hreiðarsson Óli Halldórsson, forstöðumaður Þekkingarseturs Þingeyinga er bjartsýnn. Markmiðið er að byggja upp öflugt há- skólaumhverfi á Húsavík. HP Compaq nx6325 • AMD Sempron 3500 örgjörvi • 15” XGA skjár1024x768 • 512MB vinnsluminni • 80GB harður diskur • DVD+/-RW geislaskrifari • ATI Mobility Radeon skjákort með allt að 128MB • Bíómetrískur fingrafaralesari verð kr. 129.900 Hámarksafköst – Hámarksframmistaða HP Pavilion dv1599 • Intel Pentium M 760, 2GHz örgjörvi • 14” skjár WXGA 1280x768 • 1024MB DDR vinnsluminni • 100GB harður diskur • DVD+/-RW geislaskrifari • Intel skjákort með allt að 128MB verð kr. 155.900 HP Compaq nc6320 • Intel Core Duo T2400 örgjörvi • 15” TFT skjár 1400x1050 • 512MB DDR2 vinnsluminni • 80GB harður diskur SMART SATA • 16X LightScribe DVD+/-RW Double Layer geislaskrifari • Intel skjákort með allt að 128MB: • Engar áhyggjur ábyrgð verð kr. 199.900 HP Compaq nx9420 • Intel Core Duo T2400 örgjörvi • Intel Core Duo T2400 örgjörvi • 17” TFT WSXGA breiðtjaldsskjár 1680x1050 • 1024MB vinnsluminni • 80GB harður diskur • DVD+/-RW SuperMulti Double Layer geislaskrifari • ATI skjákort með allt að 256M verð kr. 224.900 Verslaðu aðeins hjá viðurkenndum HP söluaðila: Office 1 Superstore um land allt Sími 550 4100 Oddi skrifstofuvörur um land allt Sími 515 5000 Samhæfni, Reykjanesbæ Sími 421 7755 TRS, Selfossi Sími 480 3300 Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðarkróki Sími 550 4100 Tölvuþjónustan, Akranesi Sími 575 9200 Netheimar, Ísafirði Sími 456 5006 Eyjatölvur, Vestmannaeyjar Sími 481 3930 Bókabúð Þórarins Stefánssonar, Húsavík Sími 464 1234

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.