Morgunblaðið - 18.08.2006, Síða 20

Morgunblaðið - 18.08.2006, Síða 20
20|Morgunblaðið „Eiginlega er ég menntuð í garðyrkjufræðum í Danmörku og vann við það fram að haustinu 2003, en þá ákvað ég að söðla um og byrja í námi við Viðskiptaháskólann í Bifröst,“ segir Vigdís. Kanada er tryggt Vigdís tók fyrst frumgreinadeild við háskól- ann en fór síðan í viðskiptalögfræði. „Ég er búin að ná þeim sem byrjuðu á undan mér og mun útskrifast um áramótin þegar ég kem heim frá Kanada, en þar tek ég eina önn sem skiptinemi.“ Vigdís segir að margir við Bifröst nýti sér möguleikann til að nema eina eða fleiri annir er- lendis, bæði á fjarlægum menningarsvæðum eins og Kína eða þá í Evrópulöndum eins og Tékklandi. Sjálf valdi hún að halda með tvö börn sín til Kanada. „Kanada er tryggt og tungumálið liggur vel fyrir, þó það sé erfitt að útvega sér húsnæði nema samið sé til eins árs. Ég ætla hins vegar bara að vera fjóra mánuði og þótti heldur verra að þurfa að borga tólf mánaða leigu fyrir það.“ En Vigdís var heppin og fékk góða aðstoð frá fólki sem þekkti til vestra, þeim Jóhanni Úlfari og Elaine Sigurðsson. „Þau redduðu öllu fyrir mig, það er meira að segja matur í ísskápnum þegar ég kem. Ég þarf varla að taka neitt annað með mér en fötin,“ segir Vigdís. Spennandi fyrir krakkana Börn Vigdísar, þau Hlynur, sem er 13 ára, og Sólveig, sem er átta ára, hlakka mjög til ferð- arinnar og dvalarinnar í Winnipeg. „Íbúðin er í hjarta borgarinnar, ekki langt frá University of Manitoba, þar sem ég verð í námi. Ég fékk aðstoð frá Atla Ásmundssyni í íslenska sendiráðinu í Kanada og hann reddaði skóla fyr- ir krakkana.“ Meðan Vigdís var við nám á Bifröst voru börnin í skóla á Varmalandi og líkaði það vel. Og þau kvíða engu þegar haldið verður til Kanada. „Ég er búinn að læra svolitla ensku í skól- anum, svo ég held það gangi bara vel,“ segir Hlynur. Sólveig tekur í sama streng, enda búin að fylgjast vel með í sjónvarpi og á Netinu, auk þess sem hún hefur reynt að kynna sér enskuna eins og kostur er. „Systurdóttir mín fer með okkur og lítur eftir krökkunum og hún býr hjá okkur. Við erum líka svo heppin að hafa svona góð sambönd þarna úti, það veitir mjög mikið öryggi,“ segir Vigdís. Heldur áfram í lögfræði Vigdís á að baki fimm annir í sumarskólanum að Bifröst og er að leggja síðustu hönd á BA- ritgerð sína samtímis því sem hún tekur síðustu önnina úti, við Manitoba-háskólann. Efni rit- gerðarinnar er frelsi einstaklingsins til að velja sér lífeyrissjóð og er hún að fara í yfirlestur um þessar mundir. „Ég verð svo í þremur fögum þarna úti og lýk við ritgerðina samtímis. Að loknum prófum úti í Kanada ætla ég beint í MS-nám í viðskiptalög- fræði. Ég útskrifast þá vorið 2008 og hef þá reyndar flýtt mér um eitt ár í náminu. Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi,“ segir Vigdís. Hún ætlar heldur ekki að láta möguleikann til að sjá Kanada fara fram hjá sér. „Það er virkilega sterk hefð fyrir íslenskri menningu þarna og ég vonast til að komast dá- lítið inn í málin af því að við verðum þarna í fjóra mánuði.“ Vigdísi finnst það sniðugt að börnin fari með og að öll fjölskyldan skipti um umhverfi og fái tækifæri til að kynnast Kanada nánar. „Við ætlum að ferðast eins mikið og tíminn leyfir, það er margt að sjá en þó hefur Gimli for- gang. En ég er ekki heldur í neinum vafa um að við fáum góðar upplýsingar hvað spennandi og skemmtilegt er að sjá, þegar út til Winnipeg er komið,“ segir Vigdís, sem þegar er búin að lesa fjölda bóka um vesturfarana og landkynning- arbæklinga um Kanada. Til Kanada sem skiptinemi Morgunblaðið/Ásdís Vigdís Hauksdóttir er á förum til Kanada sem skiptinemi. Hér er hún ferðbúin með syni sínum Hlyni og dóttur sinni Sólveigu. Vigdís Hauksdóttir er 41 árs að aldri og einstæð móðir með tvö börn. Í lok mánaðarins heldur hún til Winnipeg í Kanada sem skiptinemi í viðskiptalögfræði. Blaðamaður Menntunar for- vitnaðist nánar um málið. Alþjóðleg fræðsla og samskipti www.afs.is info-isl@afs.org 552 5450 Erum a› taka á móti umsóknum um skiptinemadvöl. Fjölmörg lönd í bo›i. Ársdvöl, hálfsársdvöl, 3 mána›a dvöl og 4–6 vikna dvöl. Um er að ræða tveggja anna nám – samtals 462 kennslustundir. Námið gefur 22 einingar til stúd- entsprófs. Markmið Markmiðið með þessu námskeiði er að auka enn frekar samkeppn- ishæfni nemenda og búa þá vel undir krefjandi störf á vinnumark- aðnum. Auk þess að undirbúa nem- endur til starfa við almenn skrif- stofustörf er lögð áhersla á að gera nemendur færari í bókhalds- störfum og skapa ákveðna sér- þekkingu og færast nær sjálfum rekstrinum, segir á heimasíðu NTV. Flestum námsgreinum lýkur með prófi en auk þess er gefin ein- kunn fyrir lokaverkefni og mæt- ingar. TÖK – Tölvuökuskírteini (The European Computer Driving Li- cense). Ef nemendur ná þeim sjö prófum sem tengjast tölvufögunum (upplýsingatækni, Windows, Word, Excel, Power Point, Access og Int- ernetið) fá þeir alþjóðlega vottun um tölvukunnáttu sína. Þetta styrkir mjög stöðu nemenda gagn- vart vinnumarkaðinum, bæði hér heima og erlendis. Við kennum öll sjö fögin og kaupum alþjóðlegt prófskírteini af Skýrslutæknifélagi Íslands. Fjármál og rekstur Á seinni önninni er lögð áhersla á að styrkja enn betur bókhalds- þekkingu nemenda með frekari þjálfun í fjárhagsbókhaldi, sölu- og viðskiptakerfi og launakerfi. Enn- fremur er farið í gerð fjárhags- skema og greiningu lykiltalna úr bókhaldi ásamt undirbúningi og skil á bókhaldsgögnum til endur- skoðenda. Fjármál og rekstur fyr- irtækja eru tekin sérstaklega fyrir og farið í grunnatriði rekstrarhag- fræðinnar. Fjallað er um rekstur fyrirtækja, umhverfi þeirra, mis- munandi rekstrarform, markmið og skipulag fyrirtækja, framleiðslu, framboð, eftirspurn og arðsemi. Kenndur er arðsemisútreikningur, fjallað um ávöxtunarkröfur og að- ferðir við að meta virði verðbréfa og fjárfestinga. Farið er í áætl- unargerð fyrirtækja, greiðslu- og rekstraráætlanir og áætlaðan efna- hag í árslok. Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar. Nemendur eru þjálfaðir sértaklega við notkun Excel í rekstri, einkum við gerð rekstraráætlana, notkun fjármála- falla og arðsemismats. Nemendur leysa m.a. verkefni í tengslum við nám í rekstrarfræði og fjár- málastjórnun. Lögð er meg- ináhersla á verkefna- og heima- vinnu. Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og vera orðnir 18 ára. Kennsluhættir:Námið sam- anstendur bæði af kennslu og verklegum æfingum og eru próf í helstu greinum. Allar kennslugreinar eru kennd- ar frá grunni og er rétt að gera ráð fyrir nokkurri heimavinnu. Vönduð námsgögn eru innifalin í verði. NTV býður skrifstofu- og rekstrarnám Morgunblaðið/Ásdís Tölvubókhald og önnur notkun tölvu er þáttur í námskeiðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.