Morgunblaðið - 18.08.2006, Page 23
Morgunblaðið |23
Hólaskóli er mennta- og rann-
sóknarstofnun sem býður
nemendum hagnýtt nám á
sviði hrossaræktar, hesta-
mennsku, fiskeldis, fiska-
líffræði og ferðaþjónustu með
áherslu á menningu og nátt-
úru.
Nýsköpun og framþróun
Meginmarkmið Hólaskóla
er að styðja við nýsköpun,
framþróun og vöxt í þessum
atvinnugreinum með öflugu
mennta- og rannsóknarstarfi.
Skólinn veitir endurmenntun í
þeim fræðigreinum sem
kenndar eru við skólann.
Hann veitir almenningi
fræðslu og þjónustu í krafti
þekkingar sinnar. Skólinn
leggur áherslu á að þróa
starfsemina í anda sjálf-
bærrar þróunar við nýtingu
náttúruauðlinda, virkrar
byggðastefnu og nýsköpunar.
Skólinn starfar eftir lögum
um búnaðarfræðslu frá mars
1999. Reglugerð sem sam-
þykkt var í apríl 2003 gerir
skólanum kleift að útskrifa
nemendur með háskólagráð-
ur.
Auk almenns skólahalds
sinnir Hólaskóli staðarhaldi á
Hólum, með það að markmiði
að viðhalda reisn þessa sögu-
og helgistaðar og efla gott
mannlíf á Hólum.
Rannsóknarstarf
Hólaskóli býður upp á nám
sem felur í sér ákveðna sér-
stöðu sem studd er með vax-
andi rannsóknarstarfi á öllum
brautum. Uppbygging aka-
demískrar starfsemi við Hóla-
skóla byggist einnig á nánu
samstarfi við háskólastofnanir
hérlendis sem erlendis. Þetta
samstarf eykur gildi þess
náms sem boðið er upp á og
gefur nemendum skólans færi
á fjölbreyttum valkostum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hólakirkja og kirkjuturninn - horft út úr veitingahúsinu "Undir byrðunni" í skólahúsinu.
Menntasetrið
og sögustað-
urinn Hólar