Morgunblaðið - 18.08.2006, Síða 33

Morgunblaðið - 18.08.2006, Síða 33
Mikilvægi ráðgjafar hefur aldrei verið meira en nú. Á sama tíma og krafa viðskiptavina um góða þjón- ustu vex hratt er flækjustig óska, vara og þjónustu að aukast. Veru- leiki margra er að þurfa stöðugt oftar að gefa sér tíma með við- skiptavinum og samstarfsfólki til að greina mál, útskýra, leysa úr og veita ráð. Ábyrgð fylgir ráðleggingu Dæmi um það eru forritarar, ráðgjafar, lögreglumenn, fjölmiðla- fólk, þjónustufulltrúar, sérfræð- ingar, sölumenn og stjórnendur sem þurfa að geta greint mál til að taka ákvarðanir ásamt öllum þeim sem á einhvern hátt starfa beint eða óbeint við ráðgjöf. Sá sem ráð- leggur ber mikla ábyrgð og því er mikilvægt að fagleg vinnubrögð séu viðhöfð. Það að veita ráð er flókið ferli sem byggist á mörgum eig- inleikum. Einn af þeim eiginleikum er að geta gert fullnægjandi grein- ingu á þörfum, væntingum, vanda- málum, kröfum o.fl. Síðan þarf að vinna úr upplýsingunum og leggja fram möguleikana sem í boði eru og aðstoða við val á þeim. Færni í samtalstækni er einn af lykilárang- ursþáttum í ráðgjöf. En það er færni til að hlusta og spyrja spurn- inga, gera samantekt og athuga með skilning á viðmælandanum og umræðuefninu. Sjálfstraust er mikilvægt Í ráðgjöf reynir oft á persónu- legan styrk ráðgjafans. Dæmi um það er þegar ekki fer saman það sem viðmælandinn vill heyra og það sem hann þarf að heyra. Einn- ig þarf ekki að fara saman það sem viðmælandann langar til að fá og það sem mögulegt er og honum fyrir bestu. Sjálfstraust þarf því að vera nægjanlegt til að þora að segja það sem segja þarf og lipurð í samskiptum þarf að vera nægj- anleg til að geta rætt þannig mál án þess að það trufli ráðgjaf- arferlið. Á námskeiðunum er farið í hag- nýtar æfingar sem reyna á ráðgjaf- arfærnina og gefa þátttakendum innsýn í eigin styrkleika og þróun- armöguleika á sviði ráðgjafar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður sem gefur rými til að ræða eigin aðstæður og þróun. Skipulag námsins: Námskeiðið er í fimm skrefum sem eru yfir eftirfarandi: Skref 1. Hvað gerir góðan ráðgjafa? – 4 klst. Í fyrsta skrefinu verður farið yfir þau atriði sem gera góðan ráðgjafa. Þátttakendur draga fram þau atriði sem aðgreina góða ráðgjafa frá þeim sem eru ekki eins góðir. Far- ið er yfir fræðilegan grunn árang- ursþáttanna og þeir skilgreindir og ræddir. Hver og einn leggur mat á eigin ráðgjafarfærni út frá árang- ursþáttunum og ræðir í tveggja manna hópi. Markmið: Draga fram árangursþættina í ráðgjöf, ræða þá og fá ítarlegan skilning á því hvað þarf til að vera góður ráðgjafi. Einnig að greina eigin styrkleika og sóknarfæri í ráðgjöf. Skref 2. Ráðgjöf og samtalstækni – 4 klst. Í öðru skrefinu verður farið yfir þau skref sem ráðgjafarferlið inni- heldur. Fjallað verður um hvernig traust verður til og hvað ráðgjafi getur gert til að auka trúverð- ugleika sinn og ráðgjafarferlisins. Farið er yfir samtalstækni og þau atriði sem tengjast henni þ.m.t. spurningatækni, virk hlustun, íhlut- un, óyrt tjáning og skilningur. Far- ið verður í ítarlegar æfingar í sam- talstækni. Þátttakendur taka viðtöl við hver annan í þriggja manna hópum þar sem einn er spyrill, einn er í viðtalinu og sá þriðji veitir endurgjöf á spurningatækni, virka hlustun, líkamsmál, áhuga, augn- samband, tón og raddbeitingu, flæði í samtali o.fl. Meðal þess sem æft verður er þarfagreining með viðskiptavini. Markmið: Auka skilning á ráðgjafarferlinu og þeim atriðum sem varða traust og trúverðugleika. Fara yfir sam- talstækni þ.m.t. spurningatækni, virka hlustun og skilning. Skref 3. Samskipti og ágreiningur – 4 klst. Í þriðja skrefinu verður farið yfir efni sem tekur á ágreiningi og hvernig meðhöndla eigi spennu í samskiptum. Farið verður yfir mis- munandi leiðir sem eru mögulegar í ágreiningi og hvenær rétt er að beita þeim. Þátttakendur fá hóp- verkefni sem þarf að finna sameig- inlega lausn á. Verkefni krefst þess að tekist sé á við ágreininginn í hópnum. Einnig verður farið yfir hagnýta aðferðafræði sem fjallar um hvernig orða eigi samskiptin í erfiðum aðstæðum. Þátttakendur fá endurgjöf á eigin færni í hópastarfi þar sem tekist er á. Markmið: Auka þekkingu á ágreiningsfræð- unum og hvernig best er að vinna með spennu í samskiptum. Þekkja mismunandi tegundir ágreinings og leiðir til að vinna í ágreiningi. Æfa meðhöndlun spennu og ágreinings í samskiptum. Skref 4. Áhrif og sannfæring- arkraftur – 4 klst. Í síðasta hlutanum verður farið í aðferðir við að hafa áhrif á hegðun. Mikilvægur hluti ráðgjafar er að fá fólk til að taka réttar ákvarðanir t.d. við kaup á vörum og þjónustu. Innsýn í grunnatriði í sölutækni er því gagnleg. Farið er í æfingar sem miða að því að draga fram ávinning og styðja með rökum. Fjallað verð- ur um hagnýtar leiðir til að fá fólk til að sættast á ákveðna niðurstöðu sem ráðgjafi er sannfærður um að sé sú eina sem máli skiptir. Hér er að sjálfsögðu ekki átt við neitt ann- að en heiðarlega og vel ígrundaða ráðgjöf. Markmið: Kynna og æfa grunnatriði sölu- tækni og þekkja mismunandi leiðir til að hafa áhrif á fólk. Skref 5. Kynningartækni og framkoma – 4 klst. Það að geta haldið kynningar og flutt erindi er nauðsynlegur hluti í ráðgjöf. Algengt er að ráðgjafar þurfi að kynna fyrir viðskiptavinum hugmyndir sínar, skoðanir og mat. Framkomukvíði og óöryggi eru eðlileg viðbrögð en mega ekki ráða því hvað er sagt og hvernig. Fagleg og vel undirbúin kynning sem flutt er af sannfæringu og öryggi á að vera á færi allra ráðgjafa. Farið verður yfir lykilatriði í kynning- artækni og framkomu og látið reyna á færnina fyrir framan hóp- inn. Þátttakendur mæta með eigin kynningar og fá endurgjöf og leið- sögn þ.m.t. á notkun hjálpartækja eins og Power Point. Markmið: Þekkja og æfa kynningar fyrir framan hóp. Auka öryggi og fag- mennsku í framkomu. Að veita ráð á réttan hátt Morgunblaðið |33 mbl.is smá- auglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.