Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 39

Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 39
Morgunblaðið |39 Bæklingurinn með námskeiðum á haustönn kemur í hús 5. september S Í M E N N T U N Athugið! 1. september flytjum við í Skeifuna 8 Sími 580 1800 • mimir@mimir.is • www.mimir.is e in n t v e ir o g þ r ír 4 .1 56 Baldur Sæmundsson, sem stjórnar Hótel- og matvælaskólanum, nefnir til fleiri námskeið sem fara af stað núna í haust. „Námskeiðin eru fjölbreytt að vanda og má þar nefna námskeið í matreiðslu á grænmetisfæði, fræðsla um óþol, námskeið í smur- brauði og námskeið um matreiðslu á léttum og góðum réttum, til dæmis hádegissnarl,“ segir Baldur. Fyrir þarfir fullorðinna Baldur segir að þessi námskeið gefi grunneiningar á mennta- skólastigi og nefnir til námskeið fyr- ir fagfólk um matreiðslu á íslenskri villibráð. „Jafnframt verður boðið upp á fagnámskeið í samvinnu við stétt- arfélagið Eflingu og Menntasvið Reykjavíkurborgar. Þetta eru 60 tíma námskeið,“ segir Baldur. Námskeið Sæmundar fróða, en svo nefnist símenntun MK á mat- vælasviðinu, eru sérstaklega skipu- lögð með þarfir fullorðinna og starf- andi fólks í huga, að sögn Baldurs. „Við leggjum mikið upp úr því að námskeiðin séu gagnleg og fræðslu- starf Sæmundar fróða miðast við það að auka þekkingu og færni starfsfólks, til þess að það sé betur í stakk búið til þess að takast á við fjölbreytileg og síkrefjandi störf í sinni atvinnugrein,“ segir Baldur. Hann segir að kennslan beinist að raunverulegum viðfangsefnum þar sem tilteknir verkþættir eru æfðir undir handleiðslu fagfólks. Tengsl við César Ritz Samstarfssamningur hefur verið undirritaður milli Menntaskólans í Kópavogi og Hótelskóla César Ritz í Sviss, en samstarfssamningurinn tekur til kennslu í hótelgreinum, og öðlast MK þar með rétt til að kenna í þessum greinum í nafni César Ritz. „Þetta er einn af frægari hót- elskólum heims, og við erum mjög stolt yfir að hafa undirritað þennan samning,“ segir Baldur. Námið í nafni César Ritz skólans hefst ein- mitt nú í haust. Ferðafræðinám Nám í ferðafræðum við skólann býður líka upp á nýjungar, en hrundið verður af stað hagnýtu ferðafræðinámi fyrir þá sem enn eru starfandi. „Þetta verður eins konar dreif- nám, fólk nemur hvað á sínum stað og svo verður hist nokkrum sinnum á ári,“ segir Helene Pedersen í ferðamálaskólanum. Helene segir að námskeiðið henti til dæmis þeim sem starfa við ferða- þjónustu bænda eða svipuð störf innan ferðaþjónustunnar. Ferðamannastraumurinn hefur vaxið gífurlega á undanförnum ára- tugum og þörfin fyrir menntun þeirra sem starfa í ferðaþjón- ustugeiranum vex hröðum skrefum. „Það er ekki bara verið að tala um fólk sem vinnur sem leiðsögumenn og á ferðaskrifstofum, það er verið að tala um fólk sem vinnur að ferða- málum úti á landsbyggðinni og þarf á þessari menntun að halda,“ segir Helene. Ferðafræðinámskeiðið er 18 ein- ingar á tveimur önnum. Námskeiðið byrjar í október. „Þá er ferðamannavertíðin eig- inlega búin og smærri gistiheimili, bændur sem leigja út og aðrir sem vinna í geiranum hafa tækifæri til að nema og afla sér þekkingar. Svo verður kennt út janúar eða fram í febrúar, en þá fara ferðamenn aftur að tínast til landsins,“ segir Helene. Fleiri námssvið Anna Vilborg Einarsdóttir í Leið- söguskólanum segir að námið verði að mestu leyti hefðbundið en þó muni skólinn bæta við sig kjörsviðum. „Það er verið að setja af stað nám í almennri leiðsögn, afþreying- arleiðsögn og gönguleiðsögn, og svo verður leiðsögn sem er sögutengd, en líklega verður það námskeið ekki sett af stað fyrr en á vorönninni. Mörg spennandi námskeið í boði hjá MK Menntaskólinn í Kópavogi er ekki að- eins framarlega í ferða- fræði og flugþjónustu. Matvæli og framreiðsla er einnig mjög fram- arlega við skólann. Menntun leit inn til að kynna sér málið. Morgunblaðið/ Jim Smart Guðlaug Ragnarsdóttir, Anna Vilborg Einarsdóttir, Helene Pedersen og Baldur Sæmundsson í Menntaskólanum í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.