Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 18.08.2006, Qupperneq 42
Fréttir í tölvupósti 42|Morgunblaðið BUGL er Barna- og unglingageð- deild Landspítalans á Dalbraut. Starf iðjuþjálfa við deildina er margvíslegt og fjölbreytt. „Við vinnum með unglingum og börnum, metum hvar þau eru stödd og hver færni þeirra til að takast á við umhverfið er. Sum börn missa hæfni til að vera í skóla, þau ein- angrast og detta út úr tóm- stundaiðju og jafnvel fjölskyldum sínum,“ segir Kristjana Milla. Rútínan mjög mikilvæg Kristjana Milla segir að reynt sé að byggja upp traust skjólstæðing- anna og að út frá því sé hægt að fara að vinna. „Við komum á rútínunni aftur, það að borða reglulega og mæta í skólann á réttum tíma eru áherslu- atriði í meðferðinni. Það eru bæði stelpur og strákar sem koma til okkar, stelpurnar eru oft haldnar meiri kvíða á meðan hegð- unarröskun er algengari hjá strák- unum.“ Til að vinna gegn þessu er unnið í svokölluðu vettvangsteymi – farið á vettvang barnanna eða unglinganna og þau styrkt í daglegu lífi. „Umhverfið hérna er öruggt og reglurnar eru á hreinu. Þetta er svo fært yfir í lífið sjálft og því fylgt eft- ir.“ Vissi ekki að hverju hún gekk Kristjana Milla útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri árið 2003, en fjögurra ára nám í iðjuþjálfun var sett á laggirnar fyrir tíu árum síðan. „Ætli það séu ekki um það bil 140 starfandi iðjuþjálfar á Íslandi núna, en þeir starfa á mjög víðu sviði, eins og til dæmis við endurhæfingu á Reykjalundi, Grensási og hjá Gigt- arfélaginu. Um er að ræða end- urhæfingu fólks sem misst hefur færni.“ Sjálf segir Kristjana Milla að hún hafi ekki haft hugmynd um að hverju hún gekk þegar hún byrjaði námið við HA. „Ég ætlaði til Akureyrar og dreif mig bara í þetta. Þetta var lifandi, náið og skemmtilegt umhverfi og auðvitað var það plús að námið var mjög skemmtilegt. Fagið er of lítið þekkt enda hafði ég varla hugmynd um hvað ég var að fara út í.“ Fjöldatakmörkun er í hverjum árgangi sem nemur iðjuþjálfun við HA. Mætir fólki í eigin umhverfi Kristjana Milla leggur áherslu á örar breytingar þjóðfélagsins síð- ustu áratugina. „Krakkarnir hreyfa sig mikið minna núna, hér áður fyrr var til dæmis enginn keyrður í fótbolta. Einnig hafa leikir með mikilli kyrr- setu og einhliða örvun aukist með tilkomu sjónvarpsins, tölvunnar og netsins.“ Iðjuþjálfinn mætir fólki í þess eigin umhverfi, hvort sem er heima, í vinnunni, skólanum eða annars staðar. Hér skiptir greining miklu máli, hvatning til frumkvæðis og að- stoð við skipulagningu daglegs lífs. „Þetta getur verið vinna með öldruðum, þar sem unnið er að því að virkja fólk og örva til þátttöku í daglegu lífi. Hér er hægt að nota alls konar föndur, það að nota hend- urnar og heilann meira. Þetta getur líka verið vinna með fólk sem er veikt og sem hefur á einhvern hátt misst hlutverk sitt. Verkefni iðju- þjálfans er að hjálpa fólki að öðlast aftur ábyrgð og hlutverk í lífinu.“ Að sögn Kristjönu Millu eru það að mestu leyti konur sem mennta sig í iðjuþjálfun og henni finnst ekki ólíklegt að launin hafi þar einhver áhrif. „Það eru of fáir strákar sem taka þetta fag, jafnvel þótt ekki sé hægt að segja að iðjuþjálfun sé umönn- unarfag, heldur þvert á móti þjálf- un.“ Iðjuþjálfun – of lítið þekkt fag Í þjóðfélagi sem hefur breyst ört og er í sí- felldri þróun verður starf iðjuþjálfans æ þýð- ingarmeira. Við ræddum við Kristjönu Millu Snorradóttur hjá BUGL. Morgunblaðið/ Jim Smart Hér eru börn frá Umhyggju, sambýlunum á höfuðborgarsvæðinu, BUGL og fleiri stöðum í heimsókn í Tívolíinu í Smáralind Vettvangsferðir eru hluti af meðhöndlun BUGL. Fjölbrautaskóli Suðurnesja 1976-2006 Virðing, samvinna, árangur Innritun í Öldungadeild Innritun í Öldungadeild og meistaraskóla verður í anddyri skólans dagana 24. og 25. ágúst frá kl. 16-19 og verður þá hægt að ræða við námsráðgjafa og fulltrúa nemenda úr öldungaráði. Nú er einnig mögulegt að innrita sig með tölvupósti en þá fylla nemendur út innritunareyðublað öldungadeildar og senda það á elsak@fss.is og verður umsóknin tekin gild um leið og greiðsla berst á reikning skólans nr. 1109-26-6612 kt. 661176 0169. KL. Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur 18:00 Stæ 193 Ens 102 Dan 102 Ísl 102 18:00 Stæ 202 Ens 202 Mhl 103 (myndvinnsla) Ísl 202 Stæ 363 Ens 303 Sag 423 (galdrasaga) Ísl 212 18:00 Stæ 413  Ens 503 Upp 103    Ísl 403 18:00 Mtb 103* Msv102/Mþf 101* Spæ 103 20:00 Spæ 303 Utn 103      Dan 202 Þýs 103 20:00 Sál 103 Sag 103 Dan 202 Nát 103   20:00 Nær 103    Bók 103 Nát 123   -og efnafr.) 20:00 Teh 103/Grt 102-203 Mgv 102/Mvb 101*    -     Námskeið í íslensku fyrir útlendinga hefjast 13. september hjá Mími Sí- menntun. Nemendur geta valið milli morgun- og kvöldkennslu. Venju- leg námskeið standa í tólf vikur, og eru alls fimmtíu kennslustundir, fjórar á viku. Við bjóðum einnig upp á einkakennslu, kennslu fyrir sér- staka hópa og kennslu á vinnustöðum. Áhugasamir geta hringt á skrifstofuna s. 580 1800, og skráð sig, eða skráð sig á heimasíðunni. Skráning hefst 21. ágúst. Courses in Icelandic Courses in Icelandic for foreigners will start September 13th. Stud- ents can choose between morning- and eveningclasses. The duration of standard courses is twelve weeks, a total of fifty lessons, four a week. We also offer private lessons, courses for special groups, and teaching for groups at the workplace. If you are interested, please contact the office, telephonenumber 580 1800, where you can register, but it is also possible to register on our website. Regsitration will commence August 21st. Námskeið í íslensku fyrir útlendinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.