Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 47

Morgunblaðið - 18.08.2006, Side 47
Morgunblaðið |47 Hafðu samband við þína stöð! Nám á landsbyggðinni Námskeið Náms- og starfsráðgjöf Fjarnám Kvasir - Símenntunarmiðstöðvarnar á landsbyggðinni Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra www.farskolinn.is Fræðslumiðstöð Vestfjarða www.frmst.is Fræðslunet Austurlands www.fna.is Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum www.mss.is Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar www.simey.is Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi www.simenntun.is Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð www.viska.eyjar.is Þekkingarsetur Þingeyinga www.hac.is Fræðslunet Suðurlands www.sudurland.is/fraedslunet Nám sem nýtist þér! Skrifstofubraut I Tveggja anna braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar. Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf. Kennslutími: 8:20 - 12:30/12:55. Kennsla hefst 23. ágúst Fjarnám - Skrifstofubraut I Spennandi möguleiki fyrir fólk utan höfuðborgarsvæðisins til að stunda fjarnám á skrifstofubraut I - sjá frekari upplýsingar á mk.is Your Golden Opportunity!! Office Skills Programme for Foreign Students www.mk.is Framhaldsnám - Skrifstofubraut II Tveggja anna framhaldsnám á skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi. Mikil áhersla er lögð á tölvunám, viðskipta- og samskiptagreinar. Inntökuskilyrði: Krafist er þekkingar í ensku, bókfærslu og tölvunotkun. Þeir nemendur sem lokið hafa námi af skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi ganga fyrir um skólavist. Kennslutími: 8:20 - 12:30/12:55. Kennsla hefst 23. ágúst Hagnýtt viðskipta- og fjármálagreinanám Staðbundið nám og fjarnám Spennandi námsleið sérsniðin að vinnutíma fólks í fjármálafyrirtækjum. Áhersla lögð á hagnýtar viðskiptatengdar námsgreinar. Kennsla hefst í byrjun september. Upplýsingar veitir fagstjóri hagnýtra viðskipta- og fjármálagreina í símum 594 4000 og 824 4114. Netfang. ik@mk.is Einnig er bent á www.mk.is hvað mest í gangi. Ég sé ekki bet- ur en að hröðunarkortið svari flest- um ef ekki öllum þeim spurningum sem þar eru uppi, og vel það. Hitt er annað að við þurfum einnig að hafa samræmt viðmið á landsvísu. Það er hins vegar ekki svo að ég sé að mæla framkvæmd samræmdu prófanna bót, eins og útfærsla þeirra er í dag. Heldur er ég að hnykkja á því sem aðrir hafa bent á sem er að til þess að við getum sýnt fram á ágæti tiltekinna kennsluaðferða, þá þurfum við að fá árangurinn mældan með einni mælistiku. Ég á von á því að nið- urstaða úr slíku mati skipti máli þegar námskrá er ákveðin hjá þeim stofnunum í landinu sem mennta kennara, og einnig síðan þegar kennarar velja sér starfsaðferðir á vettvangi. – Að val þeirra byggist á haldbærum gögnum um hvaða kennsluaðferðir reyndust nem- endum best til að ná miklum, skjót- um og viðvarandi framförum. Hvað lestrarkennsluna svo varð- ar þá beiti ég einnig þessum sömu aðferðum, „beinum fyrirmælum og „hnitmiðaðri færniþjálfun með mælingum við hana. Eins og ég hef sagt einhvern tíma áður hef ég engan sérstakan áhuga á lesblindu – dyslexíu, ég bara kenni þeim að lesa sem eru illa læsir. Það má segja að vandi þeirra í lestrinum sé hliðstæður áðurnefndum stærð- fræðivanda að því leyti að nemend- urnir hafa ekki á hraðbergi þau grundvallaratriði í lestækni sem nauðsynleg eru til að geta kveðið að. Að kveða að er að blanda mál- hljóðunum hratt saman eftir því sem röð bókstafanna sýnir hverju sinni – nokkuð sem nemendur eiga að læra, æfa og að ná valdi á fyrstu skólaárin sín. Að láta þessa krakka stríða við að „lesa sam fellda texta tímunum saman dag eftir dag, jafn- vel í áravís, er aðeins uppskrift af andúð og uppgjöf gagnvart öllum lestri, námi, skóla og jafnvel sjálf- um sér. Þess vegna kenni ég þeim lykilatriðin í lestrinum og æfi þau í að beita þeirri tækni. Lykilatriðin fela í sér sambandið milli málhljóða og bókstafa; s.s. heyra málhljóð – benda á bókstaf, sjá bókstaf – segja málhljóð, heyra málhljóð – skrifa bókstaf. Þannig læra þau einnig að skrifa um leið og þau læra að lesa með því að æfa sig í að umskrá málhljóð í bókstaf og bók- staf í málhljóð. Sumir nemendur þurfa meiri heyrnræna æfingu en aðrir, sérstaklega við að æfa sér- hljóðin sem þau heyra ekki alltaf nægilega vel. Þetta er mjög ólíkt því að kenna nemendum að þekkja tiltekin orð. Þá geta þeir lesið texta sem settur er saman úr þeim orð- um. En þegar þau svo sjá nýjan texta með nýjum orðum lenda þau í vandræðum því þau þekkja ekki orðin og fara að geta sér til um hvað standi. Nemendum sem hins vegar hefur verið kennt að umskrá málhljóð í bókstaf og öfugt er ekki kennt tiltekið innihald, þeim er kennd regla. Hafi þeir vald á um- skráningunni kunna þeir regluna og geta beitt henni þótt innihaldið – röð stafanna – breytist. Þetta dæmi er samsvarandi því að læra tiltekna reglu í reikningi eins og að deila. Kunnáttan er þá bundin við regluna en ekki innihald tiltekinna dæma. Með öðrum orðum sagt, maður þarf að geta reiknað dæmin þótt tölurnar breytist. Sumir nemendur lenda svo í því að vera í sérkennslu og stuðningi meira og minna öll grunnskólaárin sín þótt almennur þroski þeirra virðist vera með ágætum. Í efstu bekkjunum og framhaldsskólunum þekkjum við líka svonefndar hægar ferðir. Það er spurning hvort við þurfum ekki að endurskoða ræki- lega það samhengi allt? Til dæmis það að nemendur fái stuðning af því að fyrirfram sé eiginlega gefið að þeir verði áfram á eftir öðrum nemendum og þ.a.l. áfram með stuðninginn. Ég er eiginlega að kalla eftir nýrri hugsun í hug- myndafræði s.s. þeirri að það að vinna á eigin hraða þýði ekki það sama og að nemandinn vinni sér- staklega hægt. Hin nýja hugsun felur sem sagt hvorki í sér stuðn- ing í hefðbundinni merkingu né hægar ferðir, heldur hitt að allir nemendur vinna af kappi. Það er svo aftur breytilegt hvar nemend- urnir eru staddir í námsefninu. Þeir sem eru langt á eftir að okkar mati þurfa að bæta sig hratt. Við þurfum því að haga fyrirkomulag- inu þannig að það séu engar inn- byggðar og kerfislægar hamlanir eða námsefnisskammtar sem haldi þeim niðri. Þess í stað fái nemend- urnir markvissa sérfræðiþjálfun og nái í náminu þeim áfangamark- miðum fljótt og vel sem við teljum eðlilegt og nauðsynlegt að krakkar á tilteknum aldri hafi á valdi sínu. Málið snýst sem sagt ekki um fjölda kennslustunda, heldur þær mælanlegu breytingar sem íhlutun kennarans skapar á kunnáttu og leikni nemandans í hverri einustu kennslustund. Við hljótum að gera sömu kröfur um ágæti kennslu og við gerum um aðra þjónustu sem skiptir sköpum fyrir okkur í lífinu, ekki satt? Ef við skoðum einnig íslensku- kennslu fyrir börn og fullorðna sem eru af erlendu bergi brotin þá hefur hún nokkuð verið í um- ræðunni hvað varðar aðgengi, kostnað, fyrirkomulag og tíma- fjölda. Einnig veltir fólk því fyrir sér hvort málið skuli kennt fræði- lega eða hvort leggja skuli áherslu á einhvers konar vinnustaðamál s.s. heil orð og setningar. Mig langar til að mega taka þessa um- ræðu aðeins lengra og bæta við mikilvægi kennslu og þjálfunar málhljóða sem eins konar fornámi, hvaða leið sem fólk velur síðan að fara í íslenskukennslunni. Kennsla með beinum fyrirmælum fellur bæði að kennslu einstaklinga sem hópa. Hún felur í sér ferlið: Sýna – leiða – prófa, þannig að nemend- urnir heyra fyrst rétt hljóðdæmi, síðan segja þeir það með kenn- aranum, og að lokum endurtaka þeir dæmið einir og kennarinn hlustar, ekki ósvipað og gert er í tónlistarkennslu. Þegar svarið er örugglega rétt tekur færniþjálf- unin við og nemandinn nær sam- fellu, öryggi og mýkt með því að auka tíðni rétt myndaðra málhljóða á kostnað annarra. Kennsla af þessu tagi gefur okkur einnig ómetanlegar upplýsingar um sam- band hljómmyndunar í íslensku og upprunamáli, þ.e. hvað er auðvelt og hvað er erfitt fyrir hvern. Með því að taka þessar upplýsingar saman og gera þær aðgengilegar öðrum kennurum geta þeir skipu- lagt kennslu sína í ljósi þeirra s.s. um það hverjir þurfi lengri tíma en aðrir til að æfa tiltekin málhljóð. Þarna liggja einnig mörg og áhugaverð rannsóknarverkefni. Það er sjálfsagt að geta þess hér að kennsluaðferðirnar bein fyr- irmæli og hnitmiðuð færniþjálfun með mælingum hafa reynst sér- staklega vel til að kenna börnum með einhverfu. Árangurinn verður eftirminnilegur eins og þeir þekkja sem það hafa gert. Mikilvægi þess að hefja kennsluna sem allra fyrst á meðan börnin eru ung og kenna þeim þétt er einnig vel þekkt. Það er því grafalvarlegt mál ef börn á Íslandi þurfa að bíða í tvö ár eða lengur eftir greiningu um ein- hverfu og erfitt að skilja hvers vegna slík greining fer ekki fram á fleiri en einum stað. Ef svo væri kæmust börnin fyrr að og þjálfunin skilaði sér margfalt, bæði til ein- staklingsins og til samfélagsins. Eins og staðan er í dag eru greiðslur vegna þjálfunar úr okkar sameiginlega sjóði skilyrtar klín- ísku greiningunni sem þýðir að það eru aðeins börn þeirra foreldra sem hafa fjárhagslegt svigrúm til að greiða sjálfir nauðsynlega þjálf- un sem ekki þurfa að bíða. Ég starfa á eigin vegum og eins og undanfarið býð ég í vetur kennslu í lestri, reikningi og skrift, auk kennslu- og atferlisráðgjafar fyrir skóla. Þar að auki vil ég benda kennurum á að ég fer hvert á land sem er með kynningar og námskeið í kennsluaðferðunum, beinum fyrirmælum og hnitmiðaðri færniþjálfun með mælingum, ásamt skyldum aðferðum. Annars eru tildrög þess að ég fór að ein- beita mér að kennslunni aftur þau að með átta ára reynslu minni af atferlisráðgjöf í skólum lærði ég fljótt að þeir nemendur sem eiga í linnulitlum útistöðum þar vegna hegðunar sinnar eiga nær und- antekningalaust einnig í alvar- legum vanda með skólanámið sitt. Ef litið er á grunnskólastigið þá sýnist mér að fjöldi beiðna um að- stoð vegna hegðunarvanda taki vaxtarkipp á miðstigi, svona um tíu, ellefu ára aldurinn. Í þessu samhengi er brýnt að birtar séu opinberar tölur svo maður geti mátað reynslutölur úr starfinu við þær. Þegar þar er komið í skóla- göngunni eykst magn og umfang námsefnisins og þá reynir á leikni nemendanna við að beita í marg- víslegu samhengi þeirri tækni í lestri, ritun og reikningi sem þeir eiga að hafa á valdi sínu eftir fyrstu árin í skólanum. Það gefur auga leið að sá sem er skyldugur að mæta til vinnu sinnar á hverjum degi en ræður ekki við verkefnin sem bíða hans þar og getur ekki fylgt því eftir sem þar er gert, jafnvel árum saman, hlýtur að bresta. Hvers vegna kennslan í skólanum hefur ekki skilað sér til þeirra nemenda sem hér um ræðir veit ég ekki og fyrir því liggja væntanlega ýmsar ástæður og margþættar. En hvað sem því líður þurfum að koma miklu fyrr inn í ferlið og hlutast til um atburða- rásina í stað þess að bíða og sjá og lenda síðan í því að verða að bregðast við orðnum hlut og alvar- legum. Mig langar til að mega und- irstrika þetta sérstaklega. Við kennarar hljótum að bera ábyrgð- ina á kennslunni og framförum nemendanna. Ef það er hins vegar almenn skoðun í skólasamfélaginu að námsvandi sé til kominn af öðr- um ástæðum, s.s. því að foreldrar sinni ekki sem skyldi heimanámi barna sinna, þá vaknar sú spurning um leið hvort ekki þurfi að endur- skoða skólaskylduna, og taka upp fræðsluskyldu að nýju? Guðríður Adda Ragnarsdóttir, atferlisfræðingur og kennari. Sími/fax: 562 14 67, adda@is- mennt.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.