Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 3
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einsöngvari ::: Solveig Kringelborn
EFNISSKRÁ:
Hector Berlioz ::: Rómverskt karnival, forleikur
Edvard Grieg ::: Fimm söngvar
Nikolaj Rimskíj-Korsakov ::: Sheherazade
MIÐASALA ::: SÍMI 545 2500
WWW.SINFONIA.IS
SÖNGUR SÓLVEIGAR Í HÁSKÓLABÍÓI
LAUGARDAGINN 9. SEPTEMBER KL. 17.00
FL Group hefur markað þá stefnu að styðja verkefni er lúta
að mannúð og menningu. Fyrr á þessu ári gerðu FL Group og
Sinfóníuhljómsveit Íslands samstarfssamning til næstu fjögurra
ára og er þar um veglegt framlag að ræða til menningar. Einn
þáttur samstarfsins eru árlegir styrktartónleikar. Þeir fyrstu
verða haldnir 9. september og mun ágóði af tónleikunum renna
til sérverkefnis á vegum BUGL.
Efnisskrá tónleikanna samanstendur af glæsilegum
og gáskafullum forleik, kyngimagnaðri hljómsveitar-
svítu og sérstaka ánægju vekur þátttaka norsku
sópransöngkonunnar Solveig Kringelborn, sem er
sú skandinavíska söngkona sem hefur vakið hvað
mesta athygli á síðustu árum fyrir silfurtæra rödd
og töfrandi framkomu. Solveig kemur í stað Barböru
Bonney sem forfallaðist á síðustu stundu.
Barna- og unglingageðdeild Landspítala - háskólasjúkrahúss, BUGL, sinnir mikilvægu starfi sem kunnugt er. Viðvarandi
skortur á fjármunum sníður þeirri brýnu þjónustu sem þar er veitt þröngan stakk. Því hafa FL Group og Sinfóníuhljómsveit
Íslands ákveðið að ágóði þessara fyrstu styrktartónleika renni til átaksverkefnis BUGL sem hlotið hefur nafnið „Lífið kallar“.
Markmið verkefnisins er að styrkja fjölskyldur barna og unglinga sem eiga við andlega erfiðleika að etja, til að móta nýja
lífssýn þar sem inntakið er lífsgleði. Verkefnið er fjölskyldumiðuð eftirmeðferð í tengslum við bráðaþjónustu BUGL.
Verði aðgöngumiða er stillt í hóf, en landsmenn allir eru hvattir til að styðja verkefnið með frjálsum framlögum
inn á bankareikning 0101-26-600600, kt. 601273-0129.
MIÐAVERÐ ::: 3.700 / 3.400 KR.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
8
3
7
4
LÍFIÐ KALLAR