Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sun 10/9 kl. 14 Sun 24/9 kl. 14 Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Lau 2/9 kl. 20 Sun 3/9 kl. 20 UPPS. Fim 7/9 kl. 20 Sun 10/9 kl. 20 FOOTLOOSE Fim 31/8 kl. 20 Lau 9/9 kl. 20 Fös 22/9 kl. 20 Lau 23/9 kl. 20 EYFI STÓRTÓNLEIKAR Fös 1/9 kl. 20 Fös 1/9 kl. 22 MANNAKORN ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Þri 5/9 kl. 20 Þri 5/9 kl. 22 HÖRÐUR TORFA AFMÆLISTÓNLEIKAR Fös 8/9 kl. 19:30 Fös 8/9 kl. 22 PINA BAUSCH LOKSINS Á ÍSLANDI! Dansleikhúsið frá Wuppertal undir stjórn Pinu Bausch verður með 4 sýningar á verkinu Aqua í Borgarleikhúsinu. Sun 17/9 kl. 20 Mán 18/9 kl. 20 Þri 19/9 kl. 20 Mið 20/9 kl. 20 Aðeins þessar 4 sýningar. Miðaverð 4.900. MIÐASALA HAFIN. OPIÐ HÚS Sunnudaginn 3.september verður opið hús í Borgarleikhúsinu. Allir velkomnir. ÁSKRIFTARKORT Endurnýjun áskrftarkorta stendur yfir! Mein Kampf e. George Tabori Amadeus e. Peter Shaffer Fagra veröld e. Anthony Neilson Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonar- son, Þórarinn Eldjárn og Egil Ólafsson. Lík í óskilum e. Anthony Neilson Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lindgren Viltu finna milljón? e. Ray Cooney. Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson Íslenski dansflokkurinn og margt, margt fleira. Kortasala hafin! Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með! Litla hryllingsbúðin - síðustu aukasýningar! Lau. 2/9 kl. 19 UPPSELT Lau. 2/9 kl. 22 ný aukasýn – örfá sæti laus Sun. 3/9 kl. 20 UPPSELT Fös. 8/9 kl. 19 örfá sæti laus Lau. 9/9 kl. 19 UPPSELT Lau. 9/9 kl. 22 ný aukasýn – sala hafin! Sun. 10/9 kl. 20 örfá sæti laus Fös. 15/9 kl. 19 Lau. 16/9 kl. 19 síðasta sýning – örfá sæti laus www.leikfelag.is 4 600 200 Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. BROTTNÁMIÐ ÚR KVENNABÚRINU - eftir W. A. Mozart Frumsýning fös. 29. sep. kl. 20 2. sýn. sun. 1.okt. kl. 20 – 3. sýn. fös. 6. okt. kl. 20 – 4. sýn. sun. 8. okt . kl. 20 5. sýn. fös. 13. okt. kl. 20 - 6. sýn. sun. 14. okt. kl. 20 www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningu í boði Vinafélags íslensku óperunnar kl. 19.15 Námskeið um Mozart og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá EHÍ hefst 3. október. Skráning í síma 525 4444 – endurmenntun@hi.is Þriðjudagstónleikar í kvöld kl. 20.30 Johann Sebastian Trio Bellarti Chihiro Inda fiðla, Pawel Panasiuk selló og Agnieszka Panasiuk píanó leika Tríó í C-dúr K 548 eftir W.A. Mozart, Andað á sofinn streng eftir Jón Nordal og Tríó í d-moll op. 32 eftir Anton Arensky. Síðustu tónleikar sumarsins. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvík. www.lso.is - lso@lso.is KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Iceland Film Festival hefst á morgun 30. ágúst og stendur til 21. september. Óhætt er að segja að boðið sé til sannkallaðrar kvikmyndaveislu og verður mikill stjörnufans á hátíðinni en Matt Dillon og Marisa Tomei hafa boðað komu sína á opnun hátíð- arinnar. Eins munu Gerard Butler, Jim Stark, Ray Winstone og Bent Hamer verða heiðursgestir á hátíð- inni. Alls verða sýndar 30 kvikmyndir í fjórum flokkum: Heimurinn, sem er kjarnadagskrá hátíðarinnar ætluð óháðum myndum hvaðanæva að úr heiminum. Ameríka, flokkur óháðra kvikmynda frá Bandaríkjunum. Heimildarmyndir, flokkur nýjustu heimildarmynda og Gala, fyrir sér- valdar myndir sem frumsýndar verða með viðhöfn. Meðal mynda sem sýndar verða er kvikmynd Pedros Almodóvar Volver, óskarsverðlaunamyndin Tsotsi, The Libertine sem skartar Johnny Depp í aðalhutverki, Factot- um með þeim Matt Dillon og Marisu Tomei í aðalhlutverkum, The Wind that Shakes the Barley sem Ken Loach leikstýrir og sjálf Bjólfskviða sem Sturla Gunnarsson leikstýrði og er kölluð dýrasta kvikmynd Íslands- sögunnar en myndin var öll tekin hér á landi. Grúsksýningar og handritanámskeið Jack Stevenson, sem er með ötul- ustu kvikmyndasöfnurum heims, mun stjórna sérstökum sýningum helgina 1. til 3. september þar sem hann sýnir fágætar myndir og fjallar um gerð þeirra og áhrif. Meðal ann- ars mun hann fjalla um bandarískar stríðsáróðursmyndir og erótík í am- erískri kvikmyndamenningu. Í tengslum við kvikmyndahátíðina verður haldið eins dags námskeið fyrir upprennandi kvikmynda- handritshöfunda. Námskeiðið fer fram á Hótel Nordica á laugardag og er kennsla í höndum David Garret og Gregg Rossen sem báðir hafa átt ágætu gengi að fagna sem handrits- höfundar í Hollywood. Kvikmyndir | Stjörnufans á Iceland Film Festival Blásið til hátíðar www.icelandfilmfestival.is Morgunblaðið/Steingerður Berserkir Íslenska stórmyndin Bjólfskviða verður sýnd á hátíðinni. LJÓST er að fáir kettir njóta jafn- mikilla vinsælda Grettir og vinsældir hans hér á landi sönnuðust um helgina þegar kvikmyndin Grettir 2 var frumsýnd en hún skaust beint í fyrsta sæti íslenska bíólistans. Um 5.500 manns sáu hana um helgina en þess má geta að fyrri myndin halaði til sín í um 6.100 áhorfendur á sinni frumsýningarhelgi. Að þessu sinni er Grettir staddur í Bretlandi þangað sem að Jón, mis- heppnaði eigandi hans, ákvað að skella sér í ferðalag. Grettir hittir þar kött sem reynir allt til að gera honum lífið leitt á meðan á dvölinni stendur. „Fjölskyldumyndir eins og Grettir 2 lifa ávallt mun lengur en aðrar myndir, t.d. unglingamyndir og gam- anmyndir, sem brenna hraðar upp,“ segir Christof Wehmeier, markaðs- og vörumerkjastjóri hjá Samfilm, sem dreifir myndinni. Grínmyndin You, Me and Dupree, með Owen Wilson, Kate Hudson, Michael Douglas og Matt Dillon, var frumsýnd um helgina og situr í öðru sæti bíólistans. Matt Dillon og Kate Hudson leika nýgift hjón sem bjóða svaramanninum, Owen Wilson, að dvelja hjá sér eftir að hann missti bæði vinnuna og íbúðina. Óhjá- kvæmilega endar svaramaðurinn á því að misnota sér gestrisni ungu hjónanna. Heyrst hefur að hlutverk svaramannsins sé byggt á Owen Wil- son sjálfum. Aron Víglundsson, markaðsstjóri Myndform/Laug- arásbíó, sem dreifa myndinni, segir að landinn kunni vel að meta grín- myndir eins og þessa og því má búast við góðu gengi hennar á komandi vik- um. Áhugaverðasta myndin sem frum- sýnd var um helgina er án efa hin umdeilda Thank you for Smoking sem vermir þriðja sæti listans. Þar leikur Aaron Eckhart talsmann tób- aksiðnaðarins sem reynir að koma al- menningi í skilning um að tóbak sé á engan hátt skaðlegt heldur þvert á móti sé það heilsusamlegt. Kvikmyndir | Topp tíu í bíó á Íslandi Allir elska Gretti Vinsæll Grettir trónir á toppi íslenska bíólistans um þessar mundir. MAGNI Ásgeirsson mun flytja lagið „I Alone“ með hljómsveitinni Live í þættinum Rock Star Supernova í kvöld, en lagið er úr smiðju hljóm- sveitarinnar Live. Það voru áhorf- endur þáttanna sem völdu lagið með kosningu á heimasíðu þáttanna á slóðinni rockstar.msn.com. Í síðustu tveimur þáttum hefur Magni verið í hópi þeirra þriggja sem fæst atkvæði fengu í vinsældakosn- ingu áhorfenda og hefur hann því þurft að taka aukalag til að sanna sig fyrir forkólfum Supernova-bandsins. Nokkuð hefur borið á óánægju meðal íslenskra áhorfenda og virðist sem atkvæði þeirra gegnum heima- síðu þáttarins nái sum ekki að skila sér í keppnina. Skjár einn, sem sýnir þættina, hyggst því taka saman sér- stakar leiðbeiningar fyrir íslenska áhorfendur svo netatkvæði þeirra skili sér örugglega. Einnig hefur gjald fyrir kosningu með SMS- skilaboði verið lækkað úr 99 krónum í 19 krónur. Nokkrir tölvupóstar eru á ferð milli íslenskra netverja þar sem fólk er hvatt til að styðja við bakið á Magna og taka þátt í kosningunni. Mikil stemning hefur skapast kring- um þáttinn en nú eru aðeins sex þátt- takendur eftir af þeim fimmtán sem hófu keppni. Lagalistinn í Rock Star í kvöld er annars eftirfarandi: Lukas: „Lithi- um“, Ryan: „Clocks“, Dilana: „Moth- er, Mother“, Storm: „Bring Me To Life“, Magni: „I Alone“ og Toby: „Rebel Yell“. Sjónvarp | Aðeins sex eftir í Rock Star Magni syngur lag úr smiðju Live Ljósmynd/Danny Moloshok Fjölskyldumaður Magni Ásgeirs- son ásamt syni sínum. Bretar hafavalið Bítlaplötuna Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band uppáhalds plöt- una sína í mik- illi könnun á vegum breska rík- isútvarpsins, BBC, í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá því byrjað var að birta opinbera vinsældalista í landinu. Litlu munaði þó á plötunni, sem kom út árið 1967, og Thriller sem Michael Jackson sendi frá sér árið 1982. Alls tóku 220 þúsund manns þátt í könnuninni og munaði 201 atkvæði á Sgt. Pepper og Thriller en hlust- endur BBC 2 gátu valið á milli platna sem náð höfðu 1. sæti á breska vin- sældalistanum. Í þriðja sæti var platan Joshua Tree með U2, Rumours með Fleetwood Mac var í 4. sæti og Wish You Were Here með Pink Floyd var í 5. sæti. Bítlarnir áttu 4 plötur í 10 efstu sætunum og einnig plötuna í 11. sæti. Önnur könnun var einnig gerð um plötur sem ekki komust í efsta sæti vinsældalistans. Þar varð Dark Side Of The Moon með Pink Floyd hlut- skörpust og The Rise And Fall Of Ziggy Stardust And The Spiders From Mars með David Bowie varð önnur. Fólk folk@mbl.is Fréttir í tölvupósti                         "#     $   % &'   "'   () ) *) +) ,) -) .) /) 0) (1)  0, 70              

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.