Morgunblaðið - 29.08.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.08.2006, Qupperneq 20
|þriðjudagur|29. 8. 2006| mbl.is daglegtlíf Eiga sjálfsofnæmissjúkdómar sér sameiginlega orsök spyr Kristján Steinsson, yfirlæknir á gigtardeild LSH. » 22 heilsa Í Davis-námstækninni er beitt nýjum aðferðum í lestrar- kennslu og á sérhvert orð sér þar þrjár myndir. » 24 menntun Hildur Inga Björnsdóttir lét langþráðan draum rætast þeg- ar hún opnaði fataverslun með eigin hönnun. » 22 tíska Hestarnir eru líf og yndi Sól- eyjar Ragnarsdóttur, sem mæl- ir enda með reiðnámskeiðum fyrir alla krakka. » 24 áhugamál Flestir unglingar segja foreldrum sín-um einhverntímann ósatt. Þegarforeldrar standa börn sín að slíku ereðlilegt að þeir verði reiðir en sér- fræðingar ráðleggja þeim þó að láta sér renna reiðina áður en þeir ræða við börn sín. Í nýlegri umfjöllun breska dagblaðsins Tim- es um samskipti foreldra og unglinga er for- eldrum bent á að koma því vandlega til skila að ástæða þess að þeir séu að „skipta sér af“ börnum sínum sé fyrst og fremst sú að þeir vilji að þau séu örugg en ekki sú að þeir séu að dæma þau eða stjórna þeim. Reiði og dómharka? Eins er foreldrum bent á að velta því fyrir sér hvers vegna barnið telur sig knúið til að segja ósatt og hvort þeir geti gert lagt sitt af mörkum til að barninu finnist auðveldara að segja þeim satt. Viti barnið að foreldrar þess bregðast hvorki við með reiði né dómhörku er líklegra að það treysti sér til að segja þeim satt. Foreldrum er einnig bent á að sýna alltaf viðleitni í þá átt að semja við börn sín, því segi þeir sjálfkrafa nei þá loka þeir á ákveðin tjá- skipti við barnið. Unglingar eru sífellt að leita að því hvar mörkin liggja, að láta reyna á þessi sömu mörk og að reyna að víkka þau út. Þegar unglingur finnur að það er ekki vilji til að ræða eða semja um þessi mörk þá er lík- legra að hann gangi yfir þau bara til að sýna fram á sjálfstæði sitt. Þess vegna er mikilvægt að gefa aðeins eftir og þá gefur unglingurinn vonandi eftir líka. Utanaðkomandi aðstoð Þegar unglingur er farinn að leggja í vana sinn að segja ósatt og það um alvarleg og mik- ilvæg mál þarf hinsvegar að grípa til annarra ráða. Ef unglingur segir foreldrum sínum stöðugt ósatt getur þurft að leita utanaðkom- andi aðstoðar til að rjúfa slíkan vítahring. Mik- ilvægt er að unglingar óttist ekki álit foreldra sinna og að foreldrar fullvissi börn sín um það að þeim sé óhætt að segja þeim hvað sem er og að sama hvað komi upp á þá verði þeim ávallt mætt með skilningi. Morgunblaðið/Sverrir Uppeldi Viti barnið að foreldrar þess bregðast hvorki við með reiði né dómhörku er líklegra að það treysti sér til að segja þeim satt.  Ef þið standið barnið ykkar að því að segja ósatt, er betra að láta sér renna reiðina áður en þið ræðið við það.  Það er fullkomlega eðlilegt að unglingar hag- ræði sannleikanum öðru hvoru. En þegar þeir eru farnir að leggja í vana sinn að segja ósatt um mikilvæg mál er ástæða til að leita að og skoða undirliggjandi ástæður þess.  Reynið að kynnast foreldrum vina barnanna ykkar svo þið getið rætt saman um hvað telst ásættanlegt.  Ekki hika við að tala við aðra foreldra og bera saman bækur ykkar. En látið barnið ykkar vita að þið hafið það í hyggju.  Ekki segja nei sjálfkrafa. Verið alltaf tilbúin að standa í samningaviðræðum.  Útskýrið fyrir börnum ykkar hvers vegna það er mikilvægt að þið vitið hvar þau eru og seg- ið þeim að það sé ekki hegðun þeirra sem valdi þeim áhyggjum heldur hegðun annarra.  Gerið samkomulag um farsímanotkun og gæt- ið þess vandlega að þau standi við það sem hefur verið ákveðið. Ef það fer í taugarnar á þeim þegar þið hringið í þau, sendið þeim þá sms skilaboð. Hafið símanúmer hjá góðum vini þeirra ef þið skylduð ekki ná sambandi.  Sýnið áhuga á því hvern þau eru að tala við á msn spjallrásum, án þess að þeim finnist þið vera að yfirheyra þau.  Verið viss um að barnið ykkar viti að það geti sagt ykkur hvað sem er. Ráð til foreldra bab@mbl.is Hvað er til ráða þegar unglingur segir ósatt? TÖFLUR, sem ætlað er að stækka brjóst kvenna og nýlega voru settar á markað í Danmörku geta haft alvarlegar aukaverkanir, að því er fram kemur í Jótlandspóstinum. Þær innihalda aukinheldur efni sem bönnuð eru þar í landi. Lyfið gengur undir nafninu Top-up og samkvæmt upplýs- ingum framleiðandans geta aukaverkanir þess meðal ann- ars lýst sér í aukinni kynþörf og þrýstnari vörum. Sérfræðingar sem skoðuðu innihaldslýsinguna benda þó á mun alvarlegri aukaverkanir, s.s. aukna hættu á brjósta- krabbameini og blóðtappa. Þá innihalda pillurnar efni frá tveimur plöntum sem eru bannaðar í matvælum í Danmörku. Önnur þeirra getur skaðað lifrina og hægt á hjartslætti en hin truflað horm- ónakerfið. Danski innflytjandinn Jim Groser er þegar búinn að selja um 800 glös af töflunum en segist munu taka þær af mark- aði, komi í ljós að þær innihaldi hættuleg efni. » Heilsa | 22Reuters Hættuleg brjóstastækkunar- pilla HUNDAEIGENDUR sem stefna að því að fá hvolpa undan tíkum sínum ættu að halda þeim frá öllum dýra- leikföngum úr seigu plastefni sem innihalda þalat, en það er mýkingarefni not- að í plast. Á vef Jyllands-Posten segir að norska umhverfisstofnunin hafi fundið mýk- ingarefnið þalat í yfir helmingi allra dýraleikfanga sem hún athugaði. Plastleikföng sem innihalda þetta efni geta dregið úr frjósemi hjá tík- um og ruglað hormónastarfsemina. Ef tíkin er þegar með hvolpum eru fóstrin sérstaklega viðkvæm fyrir þa- lati, sem finnst aðallega í litskrúð- ugum gúmmíbeinum, leikmúsum og plastböngsum sem væla. Hundar eru viðkvæmari fyrir þessu en önnur dýr því þeir naga og borða oft leikföngin. Þalat er bannað í leikföng fyrir börn undir þriggja ára aldri en frá og með 16. janúar verður það bannað, samkvæmt Evróputilskipun, í allt dót fyrir börn til 14 ára aldurs. Foreldrar skulu gæta að því að ungbörn komist ekki í dýraleikföng úr plasti því þau geta nagað þau eins og gæludýrin. gæludýr Leikföng geta haft áhrif á frjósemi hunda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.