Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 48

Morgunblaðið - 29.08.2006, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Víkverji las frétthérna í blaðinu sínu sl. sunnudag sem vakti hann til umhugs- unar. Fyrirsögn henn- ar var: „Stór hluti miða á Danaleikinn seldur fyrirtækjum.“ Hér er átt við landsleik Ís- lendinga og Dana í undankeppni Evr- ópumótsins í knatt- spyrnu 6. september nk. Í fréttinni upplýsir Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri KSÍ að 9.600 miðar séu í boði á téðan leik en aðeins 4.000 verði seldir íslenskum almenningi. Hvað verður þá um hina miðana, 5.600 talsins? Geir segir að 900 mið- ar gangi til danska knattspyrnu- sambandsins, sem er eðlilegt. Þá eru eftir 4.700 miðar og það eru einmitt afdrif þeirra sem vöktu Víkverja til umhugsunar. Obbinn af þeim fer nefnilega til íslenskra fyrirtækja, 2.000 miðar til styrktaraðila KSÍ og annað eins til fyrirtækja sem höfðu sérstaklega samband við KSÍ af þessu tilefni en þau eiga það sameig- inlegt að vera í viðskiptasambandi við Dani. Þessum miðum, jafnmörgum og íslensk alþýða og ósviknir áhugamenn um knattspyrnu hafa aðgang að, dreifa þessi fyrirtæki svo líklega til starfsfólks síns og við- skiptamanna. Það er óskandi að þeir mið- aþegar hafi áhuga á knattspyrnu og séu reiðubúnir að þenja barkann í þágu ís- lenska landsliðsins en ljóst má vera að það þarf á miklum stuðn- ingi að halda í leiknum gegn sterku liði Dana. Hitt er ekki óhugs- andi að umrædd fyrirtæki miðli mið- unum í stórum stíl til Dana, ýmist búsettra hér á landi eða annarra sem leggja munu leið sína hingað upp á skerið af þessu tilefni. Auðvitað er skiljanlegt að Geir Þorsteinsson og félagar reyni að reka KSÍ eins og hvert annað fyr- irtæki. Þar á bæ mega menn hins vegar gæta sín á því að fjarlægjast ekki og styggja grasrótina, hina sönnu sparkunnendur, sem sækja leiki af því að þeir þrá það og vilja, ekki bara til að prófa eitthvað nýtt vegna þess að ókeypis miði var fyrir hendi. Oft er nefnilega sagt að áhorf- endur séu tólfti maðurinn í leik. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is     Orð dagsins: Þú Drottinn, ríkir að eilífu, þitt há- sæti stendur frá kyni til kyns. (Hl. 5, 19.) Í dag er þriðjudagur 29. ágúst, 241. dagur ársins 2006 árnað heilla ritstjorn@mbl.is velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Aftur til fortíðar með nýjum meirihluta í Reykjavík ÞETTA er sú staðreynd sem okkur íbúum Árbæjar og Seláshverfa er boðið uppá í almenningssamgöngum af hinum nýja meiri hluta í borginni. Hér höfum við í rúman áratug átt kost á tveimur strætóleiðum úr okk- ar hverfi sem hafa þjónað okkur vel, og enginn renndi grun í hvað í vænd- um væri af hálfu hinna nýju valdhafa í ráðhúsi okkar Reykvíkinga, þegar þeir láta það óátalið að felld er út leið S5 strætó, hraðleið okkar í miðbæ Reykjavíkur. Þar á bæ eru almennings- samgöngur eitthvað sem valdhaf- arnir virðast hafa hinn mesta ímu- gust á og telja greinilega að fólk sem notar þess háttar samgöngumáta sé bara eitthvert undirmáls fólk og sér- vitringar, sem sé ekki of gott til þess að hanga hálfu dagana á biðstöðum út um allan bæ eða halda sig þá bara innan síns hverfis. Þessir háu herrar lifa greinilega í öðrum heimi heldur en við hin. Þeir hugsa bara í borgarstjóra- bensum,fínum jeppum og láta sig jafnvel dreyma um Hömmera, og þá eru þessir stóru strætisvagnar bara fyrir þeim á götum borgarinnar. Já, þeim eru allar leiðir greiðar. Þeir eru líka svo uppteknir í öðr- um verkefnum þessa dagana, því nú liggur meira á að koma öllum flokks- gæðingunum fyrir í embættum hjá borginni, og það er fólk sem ferðast sko ekki með strætó. Ég spyr: hvað varð um flokk litla mannsins, sem við Árbæingar kus- um svo bláeygir yfir okkur í vor? Er litli maðurinn kannski dáinn og verðbréfa- guttarnir og ofurlauna- forstjórarnir komnir í hans stað? Svekktur Selásbúi. Textaklúður hjá Sjónvarpinu LOKSINS þegar það gerist, að RUV sjónvarp sýnir góða kvikmynd á laugardagskvöldi, sem sjaldan skeður, þarf að eyðileggja útsend- ingu með því að klúðra textaþýð- ingu. Ekki veit ég, hverju um er að kenna, en myndin Loforðið ( Pledge ) með Jack Nicholson var alveg frá- bær, eins og flestar hans myndir eru. En að eyðileggja útsendingu myndarinnar með slíku er til skammar. Betra hefði verið að hafa myndina textalausa, en alla þýð- inguna í slitrum sem raun var, og erfiðara að fylgjast með tali hennar. Varla á RUV skilið þakklæti fyrir svona vinnubrögð, sem koma alltof oft fyrir hjá þessari mætu stofnun. Í lokin stóð Íslensk þýðing eftir ónefndan þýðanda. Varla hefur hann átt sök á þessu klúðri sem ég leyfi mér að kalla. Svanur Jóhannsson. Morgunblaðið/Golli Brúðkaup | Gefin voru saman í hjónaband í Lágafellskirkju 29. júlí sl. af sr. Ólafi Jóhannessyni þau Drífa Viðarsdóttir og Ásgeir Örn Ásgeirs- son. SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON H.J. MBL. eee S.U.S. XFM 91,9 SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA V.J.V. TOPP5.IS eeee eeee S.U.S. XFM 91,9. eeee TOMMI KVIKMYNDIR.IS B.J. BLAÐIÐ rúmlega 60.000 gestir 4 vikur á toppnum á Íslandi ! JAMIE FOXX COLIN FARRELL SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA “COLLATERAL” OG “HEAT” eee LIB - TOPP5.IS eee HJ - MBL með Owen Wilson (Wedding Crashers) sem fer á kostum, ásamt Kate Hudson, Matt Dillon og Michael Douglas. 60.000 gestir GEGGJUÐ GRÍNMYND Ein fyndnasta grínmynd ársins YOU, ME AND DUPREE kl. 5:45 - 8 - 10:15 PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 9 - 10:30 B.i. 12.ára. SUPERMAN kl. 5:30 - 8:30 B.i. 10.ára. THE BREAK UP kl. 5:30 Leyfð 5 CHILDREN AND IT kl. 6 Leyfð LADY IN THE WATER kl. 8 - 10:20 B.i. 12 PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9 SNAKES ON A PLANE kl. 8 - 10:10 B.i. 12 THE SENTINEL kl. 8 B.I.14 HALF LIGHT kl. 10:10 B.I.16 MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostn- aðarlausu. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100 eða sent á netfangið ritstjorn- @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar héldu tombólu í Nóatúni um daginn og söfnuðu til styrktar Rauða krossi Ís- lands 7.337 krónum. Þetta voru þau Harpa Rut, Karín Dúa, Sigurður, Ragnar, Guðjón og Andrea.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.