Morgunblaðið - 29.08.2006, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.08.2006, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Nú í lok ágúst 2006 er að-eins mánuður þangaðtil áætlað er að byrjasöfnun vatns í Hálslón. Nokkur órói er í þjóðfélaginu vegna þessa, því að allstór hópur fólks hefur efasemdir um öryggi stíflunnar. Háværar kröfur eru um að fresta fyllingu lónsins meðan málið er skoðað nánar. Efa- semdir um Hálslón og Kárahnjúkastíflu ná inn í raðir jarðvísinda- manna vegna legu stíflunnar á virku sprungusvæði. Eink- um hefur fólk áhyggj- ur af mögulegum sprunguhreyfingum og hvort þær geti valdið miklum leka og stefnt stíflunni í hættu. Blaðamannafundur Landsvirkj- unar á þriðjudag í síðustu viku var þarft skref í þá átt að upplýsa landsmenn um verkefnið, stöðu þess og öryggi mannvirkjanna. Fundurinn hefur þó ekki náð að eyða öllum efasemdum. Hér þarf Landsvirkjun því að gera betur. Traust ýmissa fræðimanna á framkvæmdunum myndi án efa aukast ef skýr svör fást við eft- irtöldum spurningum: 1. Eru til annarstaðar í heim- inum jafnháar eða hærri stífl- ur sem byggðar hafa verið yf- ir virkt sprungukerfi á gliðnunarsvæði, hliðstætt sprungunum við Kárahnjúka? Ef svo er, hefur leki valdið vandræðum við þær stíflur? 2. Vatnsborðshækkun Hálslóns mun verða 170– 180 m í gljúfr- inu ofan stífl- unnar. Við það hækkar vatns- þrýstingur í berginu undir gljúfrinu sem því nemur, eða um 17–18 loft- þyngdir. Gliðn- un sprungna og brot bergs vegna aukins vökvaþrýstings er vel þekkt fyrirbæri. Á meðfylgjandi mynd er þver- snið yfir gljúfrið við Kára- hnjúka sýnt á einfaldaðan átt og að auki sprunga í berg- grunninum sem grunnvatn nær að leika um. Sprungan liggur samsíða gljúfrinu. Spurningarnar sem svara þarf eru: a) Hversu djúpt ná sprungur niður í berggrunninn undir Kárahnjúkastíflu samkvæmt rannsóknum þeim sem Landsvirkjun hefur l gera? b) Hversu mikil getur g sprungna eins og þei sýnd er á myndinni o vegna vatnsborðshæk innar? c) Hver er munurinn á gliðnun sem einhverj eru á að verði vegna vökvaþrýstings, og þe gliðnun sem stíflan þ Mikilvægt er að svörin fram með tölum og allar f sendur um eðliseiginleika ins fylgi með. Æskilegt hefði verið að leg umræða sem þessi hef sér stað áður en ákvörðun verkefnið var tekin og á h legri vettvangi en síðum d anna. Við því verður ekki þessu, en skýr svör nú æt hjálpa til við að hreinsa a loftið. Tvær spurningar til Landsvirkjunar um Kárahnjúkastíflu Eftir Magnús Tuma Guðmundsson »Efasemdir umlón og Kárahn stíflu ná inn í raðir vísindamanna veg legu stíflunnar á v sprungusvæði. Magnús Tumi Guðmundsson Höfundur prófessor í jarðe isfræði við Háskóla Ísland Stefnt er að því að lokastíflum við Kárahnjúka oghefja fyllingu Hálslóns núí haust. Það verður sig- urstund í augum margra en aðrir munu bera harm sinn í hljóði. Slík tímamót kalla á hugleiðingar um stöðu óbyggðanna í vitund okkar Íslendinga. Þótt ferð um Kárahnjúkasvæðið hafi verið kveikjan að þessari grein ásamt fjölmiðlaumræðu und- anfarið um sprungur, misgengi, hitasvæði og eldvirkni á virkj- unarsvæðinu og kröfum um nýtt áhættumat og endurskoðað arð- semismat, er tilgangurinn ekki að fjalla um virkjunarframkvæmdir á Snæfellsöræfum heldur um viðhorf Íslendinga til óbyggða landsins al- mennt í ljósi líðandi stundar. Óbyggðaferðir í gegnum tíðina, ýmist gangandi eða ríðandi, hafa fest myndir hálendisins í huga þess sem hér skrifar. Svipuðu máli gegnir um vaxandi fjölda Íslend- inga. Ég tel að þjóðin sé að vakna til nýrrar vitundar um land sitt þar sem virkjanir eru teknar með meiri fyrirvara en áður og krafist er vandaðari undirbúnings og sterkari raka fyrir spillingu nátt- úruverðmæta en nokkru sinni fyrr. Umræður um óbyggðir Íslands undanfarin misseri hafa skerpt lín- ur í þessu efni. Sumir vilja varð- veita óbyggðir landsins og telja þær dýrmætan fjársjóð sem má með engu móti fórna. En aðrir gefa lítið fyrir óbyggð- ir nema unnt sé að koma þeim í verð. Mér kemur í huga setning úr bókinni Auðnustundir eftir Birgi Kjaran fyrir rúmum fjórum ára- tugum þegar umræða um sama efni fór fram í íslensku samfélagi: „Mikil háðung væri það okkar kynslóð ef það ætti eftir að verða hennar dagsverk að eyða undrum Íslands.“ (Birgir Kjaran, Auðn- ustundir, 1964). Þannig ritaði þekktur náttúruunnandi og virtur stjórnmálamaður. Tvíbent viðhorf Íslendinga Áreiðanlega líta flestir Íslend- ingar á sjálfa sig sem náttúruunn- endur þrátt fyrir skiptar skoðanir á virkjunum og stóriðju. Hins veg- ar má vel til sanns vegar færa að viðhorf okkar Íslendinga til virkj- unarmála í óbyggðum séu tvíbent- ari en annarra Vesturlandaþjóða. Iðnbyltingin fór framhjá okkur og framkvæmdir með stórfelldu inn- gripi inn í náttúrulegt umhverfi gerðust hér síðar en annars staðar í hinum vestræna heimi. Á meðan náttúruspjöll hafa fylgt iðnvæð- ingu og vaxandi ágangi á óspillt svæði annars staðar hefur tíminn unnið með lífríki Íslands. Engu að síður hafa Íslendingar eins og aðr- ar þjóðir haft tilhneigingu til að líta á náttúruna sem andstæðing sem þyrfti að sigrast á, beisla og gera sér undirgefinn. Á hinn bóginn hafa rómantísku skáldin á nítjándu öld og nátt- úruskáld tuttugustu aldar inn- prentað þjóðinni lotningu fyrir fagurri náttúru landsins og gildir þá einu hvort í hlut eiga við- kvæmar jurtir á víðavangi, tærar bergvatnsár eða beljandi jökulár, eldfjöll eða hvítir jökulskallar. Hvaðeina sem náttúran hefur uppá að bjóða opnar manninum leið til fegurðar og lífsnautnar í þessum ljóðum. Þessi tvö andstæðu viðhorf tog- ast á. Það er því síður en svo und- arlegt að það vefjist fyrir hinum almenna borgara að gera upp hug sinn þegar hann stendur and- spænis risavöxnum framkvæmdum eins og við Kárahnjúka. Hvernig á að meta óbyggðir landsins and- spænis virkjunum af þessari stærðargráðu og auk þess stóriðju sem hvoru tveggja er ætlað – með réttu eða röngu – að leggja grunn að fjölþættu atvinnulífi, bættum efnahag og aukinni almennri vel- ferð landsins barna? Margar spurningar, sem hafa vaknað andspænis virkjun kvæmdum við Kárahnjúka enn í loftinu og nýjar bæta Þungt í ferlinu öllu vegur ur Skipulagsstofnunar um kvæmdirnar 1. ágúst 2001 sem framkvæmdum er ha („… vegna umtalsverðra u isáhrifa og ófullnægjandi u inga um einstaka þætti fra kvæmdarinnar og umhver hennar“ eins og segir m.a skurðarorðum). Þann úrsk felldi umhverfisráðherra ú 20. desember 2001 með sk sem Landsvirkjun hefur á reynt að uppfylla. Margir réttilega á þeim mikla hra var í undirbúningsferlinu. undir með þeim sem undr ingarleysi stjórnvalda fyri ingum. En stóra spurning þessi: Var þjóðin með í þe ákvörðun í reynd? Er þjóð um þessa mestu framkvæm sögu þjóðarinnar? Ég efa en tel að svo hefði átt að v Sú gagnrýni sem hefur virkjunum norðan Vatnajö ekki hvað síst undanfarna ætti að vera flestum kunn ur ekki rakin hér. Þar haf legar viðvaranir heyrst frá Stríð streymir Jökla Eftir Gunnar Kristjánsson »Ættu þessi tímekki að verða þess að stjórnmál menn tækju sig á reyndu að endurs viðhorf sín til þróu samfélagsins, sko samhengið milli vi ana og lífsstíls, hu þeim dýrmæta fjá sem er falinn í óby um landsins – og í arlífi þjóðarinnar. FÍKN Í FANGELSI Frétt Morgunblaðsins um að afleys-ingafangavörður á Litla-Hraunihefði verið gripinn með fíkniefni og væri grunaður um að hafa stundað það í sumar að smygla fíkniefnum til fanga, hlýtur að vekja fólk til umhugsunar um ástandið í eina öryggisfangelsi landsins. Í fréttinni var haft eftir Valtý Sigurðs- syni fangelsismálastjóra að fangelsisyfir- völd hafi verið mjög uggandi og í raun ráðþrota yfir því hversu mikið af fíkniefn- um virtist hafa verið í umferð í fangelsinu í sumar. Með þessu er fangelsismálastjóri nán- ast að segja að yfirvöld hafi misst völdin í fangelsinu að hluta til í hendur fanganna, því að sjálfsögðu er fíkniefnaneyzla bönn- uð á Litla-Hrauni og alveg sérstök ástæða til að hafa stíft eftirlit með henni þar. Eins og fram kemur í fréttaskýringu Rúnars Pálmasonar í Morgunblaðinu í dag situr um helmingur fanga á Litla- Hrauni inni fyrir fíkniefnabrot. Margir hinna hafa einnig verið fíklar. Ætla má að fíkniefni og fíkn sé undirrótin að afbrot- um meirihluta þeirra, sem sitja inni í fangelsinu. Það er því rík ástæða til að reyna að búa þannig um hnútana að menn séu laus- ir við fíknina þegar þeir koma aftur út í samfélagið, en að ekki hafi verið alið á henni meðan á fangavistinni stóð – þá eru miklu meiri líkur á að menn fari strax aft- ur að brjóta af sér. Í fréttaskýringunni í dag kemur fram að ýmsar leiðir séu færar fyrir þá, sem hyggjast smygla fíkniefnum inn í fang- elsið og hafa þær allar verið nýttar að meira eða minna leyti. Það virðist liggja í augum uppi að leiðin til að koma í veg fyr- ir fíkniefnasmygl inn á Litla-Hraun sé annars vegar að bæta þar aðstöðu, fá t.d. gegnumlýsingartæki og fíkniefnahund, og hins vegar að herða eftirlit. Í máli Kristjáns Stefánssonar, forstöðumanns Litla-Hrauns, í blaðinu í dag kemur fram að í öryggisfangelsum erlendis séu heim- sóknir til fanga undir meira eftirliti en hér. Menn hljóta að spyrja hvort einhver rök séu fyrir því að heimsóknir til ís- lenzkra fanga séu undir minna eftirliti en tíðkast í nágrannalöndunum. Kristján nefnir jafnframt að engin að- staða sé til að veita föngum fíkniefnameð- ferð á Litla-Hrauni. Það er auðvitað lyk- ilatriði, að hægt sé að frelsa menn frá fíkninni meðan á betrunarvist þeirra stendur, annars rís hún tæplega undir nafni. Athyglisvert hefur verið að fylgjast með málflutningi sr. Jakobs Ágústs Hjálmarssonar dómkirkjuprests, sem lýsti því í grein hér í blaðinu fyrir viku hvernig aðstandandi hans kom „skakkur“ úr fangelsinu rétt fyrir verzlunarmanna- helgi. Hann bendir á að dómskerfið hafi ekki bundið dóma skilyrðum um fíkni- efnameðferð, líklega vegna þess að úr- ræðin séu ekki fyrir hendi. „Fangelsisyf- irvöld hafa ekki borið gæfu til að koma öðru í kring ennþá en að gera samning við meðferðarstofnanir um að taka við föng- um á lokatíma meðferðar!“ skrifar Jakob. „Það atriði leiðir í ljós að það er látið líð- ast að á annað hundrað manns sé haldið uppi við fíkniefnaneyslu af stofnunum ríkisins. Það er ekki ásættanlegt að mað- ur komi úr fangelsi undir áhrifum eitur- lyfja. Það er heldur ekki ásættanlegt að fangi sé óáreittur við þá augljósu iðju að dæla í sig fíkniefnum, gangi í hassskýi um ganga fangelsanna mánuðum saman. Það er reyndar heldur ekki ásættanlegt að stórar upphæðir tryggingabóta fari í það að fjármagna fíkniefnakaup. Það er eitt- hvað meira en lítið bogið við það hvernig við Íslendingar höndlum þessi mál og öm- urlegt að heyra valdhafa og stjórnarand- stöðu bítast um hverjum sé að kenna. Þetta er auðvitað okkur öllum að kenna.“ Það er mikið til í því og augljóslega full þörf á að taka til hendinni í þessum mál- um. STAÐA HIZBOLLAH Yfirlýsing Hassans Nasrallahs, leið-toga Hizbollah-hreyfingarinnar í Líbanon, um að hann hefði ekki fyrirskip- að rán á tveimur ísraelskum hermönnum hefði hann vitað að það yrði kveikjan að stríði vekur athygli. Forustumenn Hizbollah hafa hingað til verið kokhraust- ir og hvað eftir annað lýst yfir því að Ísr- aelar hafi lotið í lægra haldi. Nasrallah ræddi stríðið í viðtali við sjónvarpsstöð í Líbanon á sunnudag: „Við töldum að ekki væru svo mikið sem 1% lík- ur á því að mannránið myndi leiða til stríðs af þessu umfangi og stærðargráðu. Ef í dag væri 11. júlí og þú spyrðir mig hvort ég myndi fremja mannránið ef 1% líkur væru á því að það myndi leiða til stríðs eins og var að ljúka? Ég myndi segja nei, alls ekki, af mannúðar-, siðferð- islegum, félagslegum, öryggis-, hernaðar- legum og pólitískum ástæðum.“ Um 1.100 manns féllu og gríðarleg eyði- legging varð í loftárásum Ísraela á Líb- anon sem stóðu í 34 daga. Ætlun Ísraela var að brjóta Hizbollah á bak aftur, en mistókst hrapalega. Hermennirnir tveir, sem stríðið braust út vegna, eru meira að segja enn í haldi. Hizbollah hefur hins vegar að því er virðist styrkst við átökin, ekki síst vegna þess að samtökin voru bet- ur undir það búin að taka til hendinni þeg- ar þeim lauk heldur en líbönskum stjórn- völdum. Á meðan þau sátu aðgerðarlaus skipulagði Hizbollah ruðning vega og veitti fólki fé til að endurreisa híbýli sín. Ekki ríkir þó sátt um Hizbollah í Líb- anon, en landið byggja hátt í 20 hópar, þar á meðal sjítar, súnnítar, kristnir menn og drúsar. Reynt hefur verið að tryggja jafn- vægi milli hópanna með flóknum stjórn- arskrárákvæðum. Sjítar, sem talið er að séu allt að helmingur íbúa Líbanons, styðja Hizbollah upp til hópa, en í öðrum hópum er hrifningin minni. Þar má heyra ásakanir um að Hizbollah gangi erinda Ír- ana og Sýrlendinga og ýfi ágreining milli hópa innan Líbanons. Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa, sem eru um 10% íbúa, hef- ur ekki farið í felur með gagnrýni sína á Hizbollah og kennir samtökunum um að hafa hrundið átökunum af stað. Kristnir menn voru um helmingur íbúa landsins áður en borgarastyrjöldin, sem stóð frá 1975 til 1990, hófst. Nú er talið að þeir séu um 30%. Þeir eru uggandi vegna upp- gangs Hizbollah og sagt er að þeir, sem geti, reyni nú að hafa sig á brott. Sennilega er rétt að líta á orð Nasrallah í þessu samhengi. Hvað sem líður yfirlýs- ingum um sigra og ósigra er ljóst að eyði- leggingin í Líbanon hefur verið gríðarleg. Líbanar voru loks lausir við hernámslið Sýrlendinga og að ná sér á strik eftir eyði- legginguna, sem borgarastyrjöldin skildi eftir sig. Nú líður mörgum eins og þeir séu komnir aftur á byrjunarreit. „Sigur“ Hiz- bollah var því dýru verði keyptur og Nas- rallah áttar sig á því að þótt hann eigi öfl- uga bakhjarla í Sýrlandi og Íran getur framganga Hizbollah gengið inn í líbanskt þjóðfélag eins og fleygur. Það er sennilega ekki heldur tilviljun að Nasrallah veitti viðtalið degi fyrir komu Kofis Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, til Líbanons. Hizbollah vill ekki rjúfa vopnahléið, sem nú er unnið að því að tryggja, meðal annars með því að safna saman alþjóðlegu friðargæsluliði. Hann vill heldur ekki veikja stöðu Hizbollah, til dæmis með því að samþykkja að samtökin afvopnist. En iðrast hann? Það er annað mál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.