Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
tíska
Sjálfsofnæmissjúkómar eru þeir sjúk-dómar kallaðir sem valda því aðónæmiskerfið fer að skynja eigin vefisem utanaðkomandi og framleiðir
mótefni sem ráðast þá á eigin vef og skemma
hann. Orsaka þeir oft á tíðum bólgur sem kom-
ið geta í liði og eru þeir því flokkaðir undir
gigtsjúkdóma. Hefur vísindamenn grunað í
nokkurn tíma að slíkir sjálfsofnæmissjúkdóm-
ar séu arfgengir.
Á ráðstefnu samtaka norrænna gigtlækna
sem haldin var hér á dögunum kynntu u.þ.b. 80
fyrirlesarar rannsóknir sínar og voru flestir
frá Norðurlöndunum en nokkrir frá Banda-
ríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Ástralíu.
Margir hinna erlendu gesta sýndu rann-
sóknum íslenskra vísindamanna á arfgengi
gigtsjúkdóma mikinn áhuga en viðurkennt er
að hér séu kjöraðstæður fyrir slíkar rann-
sóknir. Fámenni þjóðarinnar, gott skrán-
ingakerfi á sjúkrasögu og ættfræði auk vilja
sjúklinga til að taka þátt í rannsóknum gera
það að verkum að töluverður árangur hefur
náðst á þessu sviði hér á landi.
Uppgötvun sem vakið hefur athygli
Kristján Steinsson, yfirlæknir á gigtardeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss og Rann-
sóknastofu í gigtsjúkdómum hefur ásamt sam-
starfsfólki sínu á rannsóknastofunni unnið að
því að kanna erfðafræðilegar orsakir sjúk-
dómsins rauðir úlfar. Rauðir úlfar er sjálfs-
ofnæmissjúkdómur, sem getur valdið bólgu og
einkennum frá flestum líffærum, misalvar-
legum, en algengustu einkennin eru frá liða-
mótum og húð svo og nýrum, lungum og
taugakerfi. Rauðir úlfar eru mun algengari
meðal kvenna en karla en orsakir hans eru vís-
indamönnum ekki að fullu kunnar.
Kristján hefur ásamt samstarfsfólki sínu á
rannsóknastofunni þeim Helgu Kristjáns-
dóttur og Gerði Gröndal í samvinnu við Mörtu
E-Alarcón við Uppsalaháskóla í Svíþjóð, fund-
ið gen, sem veldur rauðum úlfum, en almennt
er talið að fleiri en eitt gen stuðli að myndun
sjúkdómsins.
Uppgötvunin hefur vakið athygli og fengið
mikla umfjöllun, en á ráðstefnunni flutti Krist-
ján yfirlitserindi þar sem hann ræddi um lík-
indi þess að erfðafræðilegar orsakir rauðra
úlfa geti einnig skipt máli hvað varðar aðra
sjálfsofnæmissjúkdóma. „Ýmislegt bendir til
þess að sjálfsofnæmissjúkdómar almennt séu í
sumum tilfellum fjölskyldulægir þ.e. finnist í
meiri mæli í sumum fjölskyldum en öðrum.“
Í erindi Kristjáns kom fram að á rann-
sóknastofunni eru fyrirliggjandi gögn er
benda sterklega til þess að svo sé. „Við
stefnum nú á að fara út í mun stærra verkefni
til að kanna þetta frekar með læknum á Land-
spítala og Íslenskri erfðagreiningu,“ segir
Kristján. Reynist þessi tilgáta Kristjáns og
fleiri vísindamanna rétt eiga sjúkdómar eins
og liðagigt, rauðir úlfar, sykursýki, skjaldkirt-
ilssjúkdómar, MS og bólgusjúkdómar í görn
sér sameiginlegar erfðafræðilegar orsakir.
Eiga sjálfsofnæmissjúkdómar sér sameiginlega orsök?
Morgunblaðið/ Jim Smart
Orsakir Kristján Steinsson gigtarlæknir
hefur unnið að því að kanna erfðafræðilegar
orsakir sjúkdómsins rauðir úlfar.
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
Þessi fatnaður er kannskipínulítið spegilmynd afmér sjálfri. Mér finnst föteiga að vera þægileg og svo
hef ég mikla þörf fyrir að skreyta
mig en mjög hóflega samt. Gegnsæi
hefur líka alltaf heillað mig, sem
unglingur gekk ég mikið í undir-
kjólum af ömmu þannig að áhuginn á
gegnsæjum efnum byrjaði snemma
hjá mér. Á þeim tíma gekk fólk ekki
almennt í undirkjólum utanyfir ann-
an fatnað svo þetta þótti frekar sér-
stakt. Mjög ung byrjaði ég að hanna
og sauma á mig minn eigin fatnað
svo leiðin lá alltaf í að læra eitthvað
tengt tísku,“ segir Hildur Inga
Björnsdóttir sem opnaði nýlega fata-
búðina Xirena á Skólavörðustíg 4a,
þar sem hún selur fatnað eftir eigin
hönnun.
„Ég lauk námi í grafískri hönnun
frá Myndlista- og handíðaskólanum
árið 1990. Nam málaralist við Acca-
demia di Belle Arti di Brera í Mílanó
og lauk svo mastersgráðu í tísku-
hönnun frá hinum virta skóla Domus
Academy í Mílanó. Eftir námið vann
ég í eitt ár í Mílanó m.a. við að mark-
aðssetja efni fyrir textílfyrirtæki.
Svo kom ég heim og var grafískur
hönnuður, stílisti og blaðamaður á
Nýju lífi í átta ár en það blundaði
alltaf í mér að fara út í eigin fata-
hönnun svo ég lét slag standa núna.“
Leitaði til náttúrunnar
Í mastersverkefni sínu hannaði
Hildur fatalínu sem minnti á íslenska
náttúru og hélt hún áfram með það
þema í nýjustu hönnun sinni. „Míl-
anó er inni í landi og þaðan sést ekki
til sjávar svo mig langaði til að gera
fatnað sem minnti mig á sjóinn og
vindinn. Fyrir fólk sem býr í borgum
er nauðsynlegt að tengjast meira
náttúrunni og uppruna sínum. Ég er
alin upp í Reykjavík og uppgötvaði
ekki þessa þörf á náttúrunni fyrr en
ég flutti út. Þá áttaði ég mig á því
frelsi sem náttúran gefur manni,
mér fannst hún heillandi þegar ég
hafði hana ekki lengur og því leitaði
ég aftur í hana í hönnuninni. Fötin
sem ég hannaði í náminu voru dálítið
leikhúsleg en með tímanum varð
hugmyndin tískutengdari og ég fór
að hanna eins konar skreytifatnað,
þ.e stakar flíkur til að fara í yfir eða
undir annan fatnað til að gefa punkt-
inn yfir i-ið. Á endanum hannaði ég
þó fatalínu með heildarútlit í huga
svo konur hafi einnig möguleika á að
raða flíkunum saman að vild.“
Hildur segir að það hafi verið svo-
lítið yfirþyrmandi fyrst að fara út í
eigin rekstur og hefja fatafram-
leiðslu og því hafi hún farið á nám-
skeiðið Brautargengi hjá Iðntækni-
stofnun sem er fyrir konur sem vilja
stofna fyrirtæki. „Þetta var mjög
gott námskeið og styrkti mig í að
láta þetta verða að veruleika. Við
stöppuðum stálinu hver í aðra því að
það er átak að sleppa föstum tekjum
og öryggi þegar maður veit ekki
hvað bíður manns, en nú er ég
ánægð yfir að hafa látið drauminn
rætast.“
Íslensk ull sem skraut
Xirena dregur nafn sitt af haf-
meyju (sirena á ítölsku) og fannst
Hildi það lýsandi fyrir fatnaðinn sinn
þar sem konum á að líða eins og
hluta af náttúrunni í honum. „Þetta
er bara byrjunin á heildstæðari
tískulínu. Ég er með það markmið að
selja hönnun mína erlendis og miða
því allt framleiðsluferlið við það en
eins og er fæst hún aðeins hér á Ís-
landi.“
Fatnaður Hildar er einstaklega
léttur og mjúkur viðkomu en hún
notar m.a teygjanlegt og gegnsætt
jerseyefni og íslenska ull í hönnun
sína. „Ég nota ullina sem skraut þar
sem það myndast ákveðinn strúktúr
í léttu efninu þegar þykk ullin er not-
uð með því. Þegar ég hanna sniðin
læt ég svo efnið dálítið ráða ferðinni,
eins og vatn sem finnur sína leið fyr-
ir rennslið. Ég reyni einnig að hafa
sem minnst af saumum til að fatn-
aðurinn verði eins gegnsær og tær
og mögulegt er.“
Hildur segir að fatalínan sem fæst
í búðinni núna sé framleidd í mjög
takmörkuðu upplagi og þar sem efn-
in séu nú þegar ófáanleg verði hún
auk þess aldrei endurgerð í sömu
mynd, þótt hún muni áfram halda sig
við náttúruþemað. Þar sem hönnun
Hildar er skreytifatnaður ákvað hún
að bjóða einnig upp á fatnað frá Di-
mensione Danza til að hafa fjöl-
breyttara úrval í versluninni, en það
var eitt af uppáhaldsfatamerkjunum
hennar þegar hún dvaldist á Ítalíu.
„Dimensione Danza er ítölsk lína
sem ég sel líka hérna í búðinni. Þetta
er tískufatnaður undir áhrifum frá
dansi og er ætlaður konum á öllum
aldri. Þessi fatnaður er í mínum anda
því hann er þægilegur og flottur og
virkar vel með minni hönnun,“ segir
Hildur.
Hannar fyrir hafmeyjur
Búðin Xirena-fatnaður Hildar og hinn ítalski Dimensione Danza skreyta gínur í versluninni.
Morgunblaðið/Ásdís
Frelsi Fatnaður Hildar Ingu er þægilegur og felur í sér frelsistilfinningu.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
»Sjálfsofnæmissjúkdómar valda því aðónæmiskerfið skynjar eigin vefi sem ut-
anaðkomandi og ræðst gegn þeim
»Rauðir úlfar eru dæmi um slíkan sjúk-dóm og veldur hann margvíslegum ein-
kennum, m.a. útbrotum, bólgum í liðum og
jafnvel flogaköstum
»Sjúkdómurinn er algengari meðalkvenna en karla
» Íslenskir vísindamenn í samvinnu við er-lenda samstarfsmenn hafa fundið gen
sem veldur rauðum úlfum
»Talið er að genið geti orsakað aðrasjálfsofnæmissjúkdóma
Í HNOTSKURN
heilsa