Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 35 pabbi var ekki aðeins faðir minn heldur átti ég því láni að fagna að hann var einnig mikill og góður vinur minn. Við systkinin ólumst upp við mik- inn kærleik og vináttu foreldra okkar og hafa þau reynst okkur góðir leið- beinendur í gegnum okkar uppvaxt- arár. Í dag einkennist samband okk- ar allra af mikilli vináttu og eigum við, ásamt fjölskyldum okkar, góðar minningar um samverustundir með mömmu og pabba á liðnum árum. Í sorginni finnst mér gott að hugsa til þeirra skemmtilegu tíma sem ég hef átt með pabba og er ein minn- ingin á þessa leið: Það líður að hausti og pabbi og vinir hans fara að hugsa til rétta. Ég er spurður hvort ég ætli ekki með norður á Hvammstanga og fara með í réttir. Jú ég held það nú. Lundin er létt og brottfarardagur ákveðinn. Það er byrjað á að fara að Grund í Vesturhópi, þar sem vinirnir hittast ásamt áhangendum þeirra. Farið er yfir hestakostinn og járn- ingarnar og síðan er gengið inn í bæ. Þar fara menn með vísur, oft ortar á staðnum, og flytja skáldin sjálf vís- urnar en pabbi sér um sögurnar, sem gjarnan eru um gamla tíma og horfna Vatnsnesinga. Þrátt fyrir að oft væri farið með sömu sögurnar og sömu vísurnar þá var eins og þær væru alltaf gæddar nýju lífi því stundin var ný og stemningin einstök. Pabbi var einstaklega góður sögumaður og setti sig listilega inn í stund og stað. Aldrei var þó á nokkurn hallað í þess- um sögum, aðeins sagt frá hinu já- kvæða og skemmtilega. Á meðan sagan var sögð rifjuðu vísnamenn upp vísur eða bjuggu til nýjar, gjarn- an um líðandi stundu. Þannig snerist dagatalið í septem- ber ár hvert í kringum réttirnar og var haustið skipulagt með það fyrir augum að komast norður því þar undi pabbi sér vel í góðra vina hópi sem ég fékk að kynnast og taka þátt í. Ánastaðasel á Vatnsnesi á ríkan sess í þessum minningum, ferðum þangað fylgdi jafnan eftirvænting hjá pabba og eftir að ég fór að fara með honum þangað skildi ég svo vel þá þrá að komast allavegana einu sinni ár hvert upp í Sel. Þar komust menn í takt við gamla tíma og nutu þar stundarinnar. Þegar ég var 16 ára gamall fór ég að læra húsasmíðar á Trésmiðjunni K-14. Á þessum tíma vorum við þar nokkrir lærlingarnir og er gaman að hugsa til þeirra tíma. Pabbi var alltaf fús til þess að kenna okkur rétta handbragðið og bestu leiðina til að vinna þau verk sem við höfðum ekki unnið áður. Við þurftum ekki að spyrja aftur um hvernig verk skyldi unnið, það var ljóst eftir eina leið- sögn. Pabbi fékk í föðurarf mikinn áhuga fyrir landinu, náttúrunni og stjörn- unum. Sjaldan kom maður að tómum kofunum hjá honum og eru ófáar ferðirnar sem við fórum saman til að skoða náttúruna, plönturnar, fugla- lífið og stjörnurnar. Hann var óþreytandi við að reyna að koma heitum á fuglum, stráum, stjörnum og fjöllum inn hjá okkur krökkunum, sem skilaði sér í sama áhuga hjá okk- ur síðar meir. Ein er sú minning sem gaman er að koma að og er það þegar við Keli og Alfa vorum á einu af okkar mörgu ferðalögum um sveitir landsins með foreldrum okkar. Við höfðum þá fengið að kaupa okkur sælgæti í ein- hverri vegasjoppunni og vorum alsæl með það í aftursætinu á VW-bjöll- unni þegar pabbi allt í einu stoppaði hjá ungum kúasmala, um 10 ára gömlum, og spurði hvort hann vildi ekki nammi. Smalinn hélt það nú og gaf pabbi þá smalanum sælgætið sem við vorum að maula, með mikilli eft- irsjá okkar. Hann lofaði að sjálfsögðu að bæta okkur skaðann en sagðist hafa orðið að gefa stráksa nammið því hann ætti heima svo langt frá næstu sjoppu og fengi því sjaldan nammi. Minningarnar um þessar ferðir eru mér kærar, eins og aðrar góðar minningar, sem eru svo ótal margar. Guð blessi minningu föður míns. Þorbjörn Valur Jóhannsson. Elskulegur tengdafaðir minn er fallinn frá fyrir aldur fram og finnst mér erfitt til þess að hugsa hvernig við förum að án hans. Jói var einstak- ur maður. Ég segi það með sanni að til allra þeirra stunda sem við Tobbi höfum átt með Jóa og Svanhildi hugsa ég með hlýju, gleði og þakk- læti. Frábært fólk í alla staði. Tillitssemi, alúð, hlýja og óendan- leg hjálpsemi einkenndu Jóa og var ekki eins og hann hefði mikið fyrir því að halda í þessa eiginleika sína, hann var bara einfaldlega svona vel gerður. Hagleiksmaður, þúsund þjala smiður og ráðagóður með af- brigðum. Ekki er þörf á að ýkja þar. Sannarlega var hann ákveðinn og vissi hvað hann söng, enda bar maður mikla virðingu fyrir áliti hans á hlut- unum. Jói var sannur heiðursmaður og horfði á það góða í hverjum manni. Ljúft er að minnast liðins tíma og reikar hugurinn aftur til þeirra ótal- mörgu stunda sem við höfum öll átt saman í Markholtinu. Hlýtt viðmót og gestrisni tók á móti okkur í hvert sinn, og áhugi fyrir því sem var að gerast í lífi okkar hverju sinni. Ég átti því láni að fagna að foreldr- ar mínir voru góðir vinir mínir og fé- lagar og þannig var einnig með Tobba og hans foreldra. Því leið ekki á löngu þar til við öll vorum farin að ferðast saman innanlands. Eigum við Tobbi margar minningar um þær góðu stundir sem og aðrar og nutum við ætíð samverunnar við þau fjögur. Þessar minningar eru dýrmætar og verður gott að geta yljað sér við þær um ókomna tíð. Slíkt veganesti inn í framtíðina er ekki sjálfgefið og mun ég ávallt vera þakklát fyrir það. Afabörnin voru alltaf ofarlega í huga Jóa og naut hann þess að spjalla við þau og vera með þeim. Var það sannarlega gagnkvæmt og finn ég mikið til með þeim að missa þennan yndislega afa sem hann var. Jói var hógvær þegar kom að eigin kostum og kunni ekki við að hlusta á lofræður um hann sjálfan. Vera má að orð mín hljómi sem slík, en þessi voru kynni mín af kærum tengdaföður í gegnum árin. Það að hafa kynnst honum og Svanhildi hefur auðgað líf mitt. Sunnan yfir sæinn breiða sumarylinn vindar leiða – draumalandið himinheiða hlær og opnar skautið sitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin – mundu að það er stutt hver stundin stopult jarðneskt yndið þitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Allt hið liðna er ljúft að geyma, láta sig í vöku dreyma. Sólskinsdögum síst má gleyma – segðu engum manni hitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! (Jóhannes úr Kötlum) Blessuð sé minning Jóhanns Björnssonar. Emilía Björg Jónsdóttir. Kveðja frá afabörnum. Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest. Að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær, Allt sem þú hugsar í hljóði, heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði, sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson.) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Elsku Jói afi. Takk fyrir allar góðu og yndislegu stundirnar, takk fyrir að hafa leyft okkur að kúra í faðmi þínum. Guð blessi þig og minningu þína. Þín Svanhildur, Ólafur Jóhann, Jóhann Gylfi og Auður Jóney.  Fleiri minningargreinar um Jó- hann Sæmund Björnsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Mjöll og Ólafur Steinar, Trausti og Áslaug, Hrefna, Bára og fjölskyldur, Bryn- hildur, Einar, Kristín og dætur, Þórður Skúlason, Sigurður Hreið- ar, Hlín Eyrún Sveinsdóttir, Sigþór Hólm Þórarinsson, Valur Þorvalds- son, Ferðafélagarnir í 4F, krakk- arnir í kirkjugarðsvinnunni, Jónas Þórir, Þórdís og Gunnar, Valgerður Magnúsdóttir, Þorgeir Guðmunds- son, Róbert B. Agnarsson og Jón Bjarni Þorsteinsson. Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Bæjum á Snæfjallaströnd, lést á Hrafnistu miðvikudaginn 23. ágúst. Jarðsett verður frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd ástvina og ættingja, Margrét Dóra Elíasdóttir, Elías Halldór Elíasson. JÓN SANDHOLT JÓNSSON plötusmiður, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 30. ágúst kl. 13.00. Alda Jónsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Sigurjón Stefánsson, Guðbjörg Stefánsdóttir, Guðný Stefánsdóttir. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, INGIRÍÐAR ÁRNADÓTTUR, Boðagerði 12, Kópaskeri. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Heil- brigðisstofnunar Þingeyinga fyrir góða umönnun. Ragnheiður Regína Brynjúlfsdóttir, Jón M. Óskarsson, Hulda Kristín Brynjúlfsdóttir, Sigurður Brynjúlfsson, Anna María Karlsdóttir. Ástkær móðir okkar, ÁSTA KRISTINSDÓTTIR, Bláhömrum 2, 1Reykjavík, sem lést á hjartadeild Landspítalans föstudaginn 18. ágúst, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 31. ágúst kl. 15.00. Reynir Á. Jakobsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Gréta Hjartardóttir, Árni F. Ólafsson, Hilmar Jakobsson, Rúnar H. Hauksson, Hörður S. Hauksson, Elsabet Sigurðardóttir, Mary Andersen og ömmubörnin. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HERDÍSAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Njálsgötu 90, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir góða umönnun. Sigríður Haraldsdóttir, Magnús Jósefsson, Sigurður Guðjón Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs eiginmanns míns, föður, sonar, bróður og mágs, SKAFTA KRISTJÁNS ATLASONAR, Ásbrún 1, Borgarfirði eystri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæslu- deildar Landspítalans í Fossvogi. Þórey Eiríksdóttir, Arna Skaftadóttir, Atli Skaftason, Atli Skaftason, Jóna Bára Jakobsdóttir, Jakob Rúnar Atlason, Halla Björg Davíðsdóttir, Heiðar Ásberg Atlason, Aleksandra Kojic. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og einstak- an hlýhug við andlát og útför MARÍU H. ÞORGEIRSDÓTTUR, en útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu fimmtudaginn 24. ágúst. Þorgeir Þorgeirsson, Kristjana F. Arndal, Júlíus Valdimarsson, Rannveig Haraldsdóttir, Garðar Valdimarsson, Brynhildur Brynjólfsdóttir, Þórður Valdimarsson, Þóra Sigurbjörnsdóttir, Anna Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.