Morgunblaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 9
FRÉTTIR
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 36-56
Haustvörur
í úrvalií r li
Laugavegi 82, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Ný sending
Bómullar-
leggings
og bolir
frá
Nýjar skyrtur
með rennilás
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Finnurðu ekki stærðina þína?
Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970
Saumum buxur eftir pöntun
Tilbúnar stærðir 38-50 eða sérpöntun
Opið:
mán.-fös.
kl. 14-18.
buxur.is
Laugavegi 84 • sími 551 0756
Vegas gallabuxurnar komnar
í öllum stærðum
Pils kr. 4.990
Belti kr. 2.700
Jakkapeysa kr. 12.500
HÆ Ð A S M Á R A 4
S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 500-700 fm skrifstofuhúsnæði á einni
hæð á einhverjum framangreindra staða.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI VIÐ BORGARTÚN,
SKÚLATÚN EÐA Í MÚLAHVERFI ÓSKAST
Útsölulok í Eddufelli
500 – 1000 – 2000
Eddufelli 2, sími 557 1730
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Peysur
Ný sending
Jarðirnar tvítaldar
Í HNOTSKURN með baksíðufrétt
og töflu á bls. 10 með grein um
jarðakaup í sunnudagsblaðinu birt-
ust tölur um þróun í jarðakaupum,
sem Fasteignamat ríkisins vann
fyrir Morgunblaðið. Fjöldi útgef-
inna afsala og kaupsamninga
2003–2006 reyndist þar tvítalinn,
þannig að niðurstöðutölurnar í
Hnotskurninni og yfirlitstöflunni
eru helmingi of háar. Skráð afsöl
og kaupsamningar voru því 520 ár-
ið 2003, 665 árið eftir, 627 árið
2005 og voru í gær orðin 354 tals-
ins, en talan í sunnudagsblaðinu
fyrir þetta ár miðaðist við 19.
ágúst.
Hinar töflurnar tvær byggðust á
úttekt Fasteignamats ríkisins fyrir
Bændasamtök Íslands, sem fjallað
var um í Bændablaðinu 25. októ-
ber sl.
Röng höfundar-
kynning
DAGBJÖRT Þyri Þorvarðardóttir
ritar grein í laugardagsblaðið.
Undirskrift greinarinnar átti að
vera eftirfarandi: „Greinarhöfund-
ur er hjúkrunarfræðingur og hefur
starfað yfir 20 ár í heilbrigðisþjón-
ustunni. Hún hefur starfað sem al-
mennur hjúkrunarfræðingur,
deildarstjóri, hjúkrunarforstjóri,
lektor við Háskólann á Akureyri
og setið í bæjarstjórn á Húsavík.
Dagbjört Þyri starfar nú sem
deildarstjóri á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi.“
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á mistökunum.
Rangt föðurnafn
ÞAU leiðu mistök urðu í blaðinu
síðastliðinn laugardag að rangt var
farið með föðurnafn séra Ólafs
Jens Sigurðssonar. Var hann sagð-
ur Jónsson í greininni Gengu út í
gönguferð. Hér með er það leið-
rétt.
LEIÐRÉTT
BORIST hefur eftirfarandi athuga-
semd frá Páli Erni Líndal og Þresti
Líndal.
„Að gefnu tilefni viljum við und-
irritaðir gera athugasemd vegna við-
tals við Andra Teitsson í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins 27. ágúst sl.
Í viðtalinu segist Andri vera búinn
að kaupa jörðina Grímstungu í
Vatnsdal. Af því tilefni viljum við
benda á að Andri Teitsson getur ekki
orðið löglegur eigandi jarðarinnar
nema undirritaðir falli frá forkaups-
rétti sínum. Kaupsamningur sá sem
hann fór með til Sýslumannsins á
Blönduósi til þinglýsingar breytir
engu þar um.
Við viljum lýsa furðu okkar á því
að fasteignasali, seljandi og kaup-
andi reyni að sniðganga handhafa
forkaupsréttar.
F.h. handhafa forkaupsréttar að
jörðunum Grímstungu, Hjarðar-
tungu og Kvisthaga í Vatnsdal.“
Undir þetta rita Páll Örn Líndal
og Þröstur Líndal.
Athugasemd
vegna viðtals
BORIST hefur eftirfarandi athuga-
semd frá Jóhannesi Jónssyni, stofn-
anda Bónuss:
„Í þættinum Örlagadagurinn, sem
sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi,
minntist ég á formann Félags ís-
lenskra stórkaupmanna. Þar átti ég
að sjálfsögðu við fyrrverandi for-
mann Félags íslenskra stórkaup-
manna, Hauk Þór Hauksson, en ekki
núverandi formann, Pétur Björns-
son. Er Pétur beðinn velvirðingar á
þessum mistökum.
Jóhannes Jónsson.“
Athugasemd
frá Jóhannesi
Jónssyni
Sænsk innrás Vegfarendur um höfuðborgarsvæðið hafa upp á síðkastið
orðið varir við malbikunarvél sem keyrir um undir sænskum fána. Er um
að ræða vél á vegum fyrirtækisins NCC sem notuð er í samstarfi við fyr-
irtækið Loftorku til að malbika ýmsar stofnleiðir í og nærri höfuðborginni.
Þrír Svíar eru því hér á landi og sjá um að stýra vélinni.
Morgunblaðið/Ásdís
♦♦♦
♦♦♦